Stutt lýsing

Enn á ný safnar Biblíufélagið til stuðnings við prentun á Biblíum í Kína, en peningurinn rennur að mestu til kaupa á pappír fyrir Biblíur, sem verður dreift til innanlandsnotkunar í Kína.

Biblíur til Kína

á vegum Hið íslenska biblíufélag Guðmundsson

  • 500.000 kr.

    Markmið söfnunar
  • 4.350 kr.

    Upphæð sem hefur safnast
  • 0

    Dagar til stefnu
  • Markmið

    Söfnun lýkur þegar
Prósent sem hefur safnast :
0.87%
Lágmarskupphæð pöntunar kr.1000 Hámarksupphæð er kr. Setja gilda tölu
kr.
Reykjavik, Ísland

Ítarlegar upplýsingar um söfnun

Söfnun Hins íslenska biblíufélags: Biblíur til Kína

Kristin trú er í miklum vexti víða um heim. Kína, fjölmennasta ríki heims, er eitt þeirra landa sem ekki gefur upp nákvæmar tölur um umfang og vöxt kristinnar trúar. En það er ljóst að um margra ára skeið hefur kristnu fólki fjölgað hratt í Kína, svo mjög að til eru þeir sem áætla að að fylgjendum Krists fjölgi um heil 7% árlega þar í landi.

Aðgengi Kínverja að Biblíunni styður við vöxt og framgang kristinnar trúar þar í landi. Ekki er heimilt að flytja inn Biblíur til Kína en aftur á móti er ekkert sem kemur í veg fyrir að þær séu prentaðar þar. Í því ljósi hafa Sameinuðu Biblíufélögin (UBS) stutt við uppbyggingu prentsmiðju sem prentar Biblíur í Kína.

Íslenskar krónur eru drjúgar í þessari mikilvægu prentsmiðju. Litlar 1350 krónur duga til kaupa á pappír í heilar 10 Biblíur! 3000 krónur duga þannig fyrir pappír í rúmar 22 Biblíur. Fyrir þín tilstuðlan geta 22 manneskjur í Kína fengið beinan aðgang að Orði Guðs í Biblíunni.

Völd og áhrif Kína vaxa dag frá degi í hinu alþjóðlega samfélagi. Það er okkur bjargföst vissa að ef fleiri Kínverjar verða innblásnir, helgast og mótast og af Guðs orði, þá muni það verða Kína og heiminum öllum til farsældar og blessunar.

Tökum þátt í þessu verkefni. Tökum höndum saman við kristið fólk í öllum heiminum og styðjum við útbreiðslu Orðsins í Kína.

Og biðjum þess að það megi falla í góða, frjóa jörð.

Fyrir hönd Hins íslenska biblíufélags
Sr. Grétar Halldór Gunnarsson formaður framkvæmdarnefndar


 

Hægt er að styðja við verkefnið með kreditkorti hér á vefsíðunni
eða millifæra á reikning félagsins í Landsbankanum, merkt: kina2023.

Kennitala: 620169-7739
Bankareikningur: 0101-26-003555

 


Hið íslenska biblíufélag er almannaheillafélag. Einstaklingar og fyrirtæki sem styrkja félagið með gjöfum yfir 10.000 krónum á ári fá skattaafslátt. Fyrirtæki geta veitt styrki til almannaheillafélaga fyrir allt að 1,5% af rekstrartekjum ársins. Hið íslenska biblíufélag sendir skattayfirvöldum yfirlit yfir þá einstaklinga og félög sem gefa umfram 10.000 krónur á ári, og er upphæðin færð sjálfvirkt á skattframtal stuðningsaðila.