{"id":4039,"date":"2017-12-18T18:35:26","date_gmt":"2017-12-18T18:35:26","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/opinberunarbok-johannesar-21-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:35:26","modified_gmt":"2017-12-18T18:35:26","slug":"opinberunarbok-johannesar-21-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/opinberunarbok-johannesar-21-kafli\/","title":{"rendered":"Opinberunarb\u00f3k J\u00f3hannesar 21. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXI.<\/p>\n<p>Og eg s\u00e1 n\u00fdjan himin og n\u00fdja j\u00f6r\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hinn fyrsti himinn og fyrsta j\u00f6r\u00f0 forgekk og sj\u00f3rinn er ei meir. <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 65 \/ 2. Pet. 3\">[<\/span> Og eg, J\u00f3hannes, s\u00e1 hina heil\u00f6gu borg, \u00fe\u00e1 n\u00fdju Jer\u00fasalem, ofan fara af himni fr\u00e1 Gu\u00f0i, tilreidda svo sem pr\u00fddd br\u00fa\u00f0ur s\u00ednum manni. Og eg heyr\u00f0i r\u00f6dd mikla af st\u00f3lnum segja: <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 25\">[<\/span> &#8222;Sj\u00e1 \u00fear tjaldb\u00fa\u00f0 Gu\u00f0s hj\u00e1 m\u00f6nnum og hann man hj\u00e1 \u00feeim byggja og \u00feeir munu hans f\u00f3lk vera og Gu\u00f0 sj\u00e1lfur me\u00f0ur \u00feeim mun \u00feeirra Gu\u00f0 vera. Og Gu\u00f0 mun \u00feerra \u00f6ll t\u00e1r af \u00feeirra augum. Dau\u00f0inn mun eigi meir vera, eigi harmur n\u00e9 kveinan e\u00f0a hrygg\u00f0 mun meir vera \u00fev\u00ed a\u00f0 hi\u00f0 fyrsta er umli\u00f0i\u00f0.&#8220; Og s\u00e1 upp \u00e1 st\u00f3lnum sat sag\u00f0i: &#8222;Sj\u00e1, eg gj\u00f6ri \u00fea\u00f0 allt saman n\u00fdtt.&#8220; Og hann sag\u00f0i til m\u00edn: &#8222;Skrifa \u00fe\u00fa \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feessi or\u00f0 eru s\u00f6nn og tr\u00faarleg.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 43 \/ 2. Cor. 5\">[<\/span><\/p>\n<p>\tOg hann sag\u00f0i til m\u00edn: &#8222;\u00dea\u00f0 er gj\u00f6rt. Eg em A og \u00d6, upphaf og ni\u00f0urlag. Eg man \u00feyrstum gefa af brunni lifanda vats fyrir ekki. <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 44\">[<\/span> Hver e\u00f0 yfirvinnur s\u00e1 mun eignast allt \u00fea\u00f0 og eg man hans Gu\u00f0 vera og hann mun minn sonur vera. En \u00feeim \u00f3ttafullum og vantr\u00fau\u00f0um og sv\u00edvir\u00f0ulegum og manndr\u00e1purum og frillulifna\u00f0arm\u00f6nnum og t\u00f6frurum og sk\u00fargo\u00f0ad\u00fdrkurum og \u00f6llum lj\u00fagurum, \u00feeirra hlutdeild mun vera \u00ed d\u00edkinu sem me\u00f0 eldi og brennisteini logar, hver a\u00f0 er s\u00e1 annar dau\u00f0i.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg einn af \u00feeim sj\u00f6 englum sem haf\u00f0i \u00fe\u00e6r sj\u00f6 sk\u00e1lir fullar me\u00f0 \u00fe\u00e6r sj\u00f6 s\u00ed\u00f0ustu pl\u00e1gur kom a\u00f0 m\u00e9r og tala\u00f0i vi\u00f0 mig og sag\u00f0i: &#8222;Kom, eg man s\u00fdna \u00fe\u00e9r kvinnuna, br\u00fa\u00f0ur lambsins.&#8220; Og hann t\u00f3k mig burt \u00ed anda upp \u00e1 h\u00e1tt og miki\u00f0 fjall og s\u00fdndi m\u00e9r hina miklu borg, \u00fe\u00e1 heil\u00f6gu Jer\u00fasalem, ofan fara af himni fr\u00e1 Gu\u00f0i, hafandi bjartleik Drottins og hennar lj\u00f3s var l\u00edkt hinum d\u00fdrm\u00e6tasta steini, svo sem sk\u00e6r jaspis. Og h\u00fan haf\u00f0i mikla og h\u00e1va m\u00farveggi og haf\u00f0i t\u00f3lf hli\u00f0 og \u00ed \u00feeim hli\u00f0unum t\u00f3lf engla og n\u00f6fn skrifu\u00f0 hver a\u00f0 eru t\u00f3lf kynkv\u00edslir \u00cdsraelssona. Af austri \u00ferj\u00fa hli\u00f0, af nor\u00f0ri \u00ferj\u00fa hli\u00f0, af su\u00f0ri \u00ferj\u00fa hli\u00f0, af vestri \u00ferj\u00fa hli\u00f0. Og m\u00farveggur borgarinnar h\u00f6f\u00f0u t\u00f3lf grundvelli og \u00ed \u00feeim s\u00f6mum n\u00f6fn \u00feeirra t\u00f3lf postula lambsins.<\/p>\n<p>\tOg s\u00e1 vi\u00f0 mig tala\u00f0i haf\u00f0i gulllegan reyrkvar\u00f0a \u00fea\u00f0 hann skyldi m\u00e6la borgina og hennar hli\u00f0 og m\u00farveggi. Og borgin er sett ferk\u00f6ntu\u00f0 og lengd hennar er so mikil sem breiddin. Og hann m\u00e6lti borgina me\u00f0 gullreyrnum upp \u00e1 t\u00f3lf \u00fe\u00fasund renniskei\u00f0a. Lengdin og breiddin og h\u00e6\u00f0in hennar er l\u00edka jafnt. Og hann m\u00e6lti hennar m\u00farveggi hundra\u00f0 fj\u00f3rar og fj\u00f6rut\u00edgi \u00e1lnir eftir \u00feess manns m\u00e6ling sem engillinn hefur. <span class=\"athugasemd\" title=\"144 \u00e1lna er m\u00farinn \u00feykkur\">[<\/span> Og sm\u00ed\u00f0i hennar m\u00farveggja var af jaspis og borgin af sk\u00edru gulli, l\u00edkt sk\u00e6ru gleri. Og grundvellirnir og m\u00farveggir borgarinnar voru pr\u00fdddir me\u00f0 allsh\u00e1tta\u00f0a gimsteina. Hinn fyrsti grundv\u00f6llur var jaspis, s\u00e1 annar saf\u00edr, hinn \u00feri\u00f0ji calcedonius, fj\u00f3r\u00f0i smaragdus, fimmti sardonichus, sj\u00f6tti sardis, sj\u00f6undi chrisolitus, \u00e1ttandi berillus, n\u00edundi topasius, t\u00edundi chrisophras, ellefti hyacinthus, t\u00f3lfti amet\u00fdst.<\/p>\n<p>\tOg \u00feau t\u00f3lf hli\u00f0in voru t\u00f3lf perlur og s\u00e9rhvert hli\u00f0i\u00f0 var af s\u00e9rhverri perlunni. Og str\u00e6tin borgarinnar voru sk\u00edragull so sem gegnumsk\u00ednandi gler. Og eg s\u00e1 \u00fear ekkert musteri inni \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 alm\u00e1ttugur er hennar musteri og lambi\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 6\">[<\/span> Og borgin \u00fearf eigi s\u00f3lar n\u00e9 tungls \u00fea\u00f0 \u00feau l\u00fdsi \u00ed henni \u00fev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0s bjartleiki uppl\u00fdsir hana og lj\u00f3s hennar er lambi\u00f0. Og \u00fe\u00e6r \u00fej\u00f3\u00f0ir sem h\u00f3lpnar ver\u00f0a ganga \u00ed \u00fev\u00ed sama lj\u00f3si og konungar \u00e1 j\u00f6r\u00f0u munu innflytja s\u00edna d\u00fdr\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1 hina s\u00f6mu. Og hennar hli\u00f0 ver\u00f0a ekki um daginn afturlukt \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fear man engin n\u00f3tt vera. Og ekkert saurugt og sv\u00edvir\u00f0ilegt n\u00e9 lygn man \u00fear innganga utan \u00feeir sem skrifa\u00f0ir eru \u00e1 l\u00edfsb\u00f3kinni lambsins.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXI. Og eg s\u00e1 n\u00fdjan himin og n\u00fdja j\u00f6r\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hinn fyrsti himinn og fyrsta j\u00f6r\u00f0 forgekk og sj\u00f3rinn er ei meir. [ Og eg, J\u00f3hannes, s\u00e1 hina heil\u00f6gu borg, \u00fe\u00e1 n\u00fdju Jer\u00fasalem, ofan fara af himni fr\u00e1 Gu\u00f0i, tilreidda svo sem pr\u00fddd br\u00fa\u00f0ur s\u00ednum manni. Og eg heyr\u00f0i r\u00f6dd mikla af st\u00f3lnum segja: [ &#8222;Sj\u00e1 \u00fear tjaldb\u00fa\u00f0 Gu\u00f0s hj\u00e1 m\u00f6nnum og hann man hj\u00e1 \u00feeim byggja og \u00feeir munu hans f\u00f3lk vera og Gu\u00f0 sj\u00e1lfur me\u00f0ur \u00feeim mun \u00feeirra Gu\u00f0 vera. Og Gu\u00f0 mun \u00feerra \u00f6ll t\u00e1r af \u00feeirra augum. Dau\u00f0inn mun eigi meir vera, eigi harmur n\u00e9 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/opinberunarbok-johannesar-21-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-4039","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/4039","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4039"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/4039\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4039"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}