{"id":4035,"date":"2017-12-18T18:35:26","date_gmt":"2017-12-18T18:35:26","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/opinberunarbok-johannesar-17-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:35:26","modified_gmt":"2017-12-18T18:35:26","slug":"opinberunarbok-johannesar-17-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/opinberunarbok-johannesar-17-kafli\/","title":{"rendered":"Opinberunarb\u00f3k J\u00f3hannesar 17. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XVII.<\/p>\n<p>\u00dear kom og einn af sj\u00f6 englunum sem h\u00f6f\u00f0u sj\u00f6 sk\u00e1lirnar, tala\u00f0i vi\u00f0 mig og sag\u00f0i til m\u00edn: <span class=\"athugasemd\" title=\"H\u00e9r framsetur hann \u00e1 r\u00f3mversku kirkju \u00ed sinni r\u00e9ttri mynd hver e\u00f0 ford\u00e6mast skal. Og \u00feetta er \u00fatsk\u00fdring hins xiii. kap.\">[<\/span> &#8222;Kom, eg man s\u00fdna \u00fe\u00e9r d\u00f3m hinnar miklu h\u00f3rkonu sem \u00e1 m\u00f6rgum v\u00f6tnum situr me\u00f0ur hverri h\u00f3ranir dr\u00fdgt hafa konungar jar\u00f0arinnar og \u00feeir sem \u00e1 j\u00f6r\u00f0u b\u00faa eru drukknir or\u00f0nir af hennar h\u00f3runarv\u00edni.&#8220; Og hann flutti mig \u00ed anda \u00e1 ey\u00f0im\u00f6rk. Og eg s\u00e1 \u00fe\u00e1 konu sitja \u00e1 fagurrau\u00f0u d\u00fdri, fullu af n\u00f6fnum h\u00e1\u00f0ungarinnar, hafandi sj\u00f6 h\u00f6fu\u00f0 og t\u00edu horn. Og konan var kl\u00e6dd purpura og pelli rau\u00f0u og umpr\u00fddd gulli og gimsteinum og perlum. Og \u00ed hennar enni skrifu\u00f0 n\u00f6fn <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Leyndur) \/ \u00dea\u00f0 er s\u00fa hin andlega mikla Bab\u00fdlon\">[<\/span> leyndard\u00f3msins: Hin mikla Bab\u00fdlon, m\u00f3\u00f0ir frillulifna\u00f0anna og allrar sv\u00edvir\u00f0u \u00e1 j\u00f6r\u00f0u. Og eg s\u00e1 \u00fe\u00e1 konu drukkna af bl\u00f3\u00f0i heilagra og af bl\u00f3\u00f0i p\u00edslarvotta Jes\u00fa. Og eg undra\u00f0ist mj\u00f6g \u00fe\u00e1 eg s\u00e1 hana.<\/p>\n<p>\tOg engillinn sag\u00f0i til m\u00edn: &#8222;Hvar fyrir undrast \u00fe\u00fa? Eg man segja \u00fe\u00e9r leyndan d\u00f3m konunnar og d\u00fdrsins \u00feess sem hana ber og hefur sj\u00f6 h\u00f6fu\u00f0 og t\u00edu horn. \u00dea\u00f0 <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ (D\u00fdr) \/ \u00dea\u00f0 er \u00fea\u00f0 r\u00f3mverska r\u00edki\u00f0 og er \u00fe\u00f3 ekki \u00fea\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki allt heldur er \u00fea\u00f0 eftir sitt fall upp aftur reist af p\u00e1fanum\">[<\/span> d\u00fdr sem \u00fe\u00fa hefur s\u00e9\u00f0 \u00fea\u00f0 var og er eigi og mun upp aftur koma af undirdj\u00fapinu og mun svo fara \u00ed fyrird\u00e6mingina. Og \u00feeir sem \u00e1 j\u00f6r\u00f0u b\u00faa, hverra n\u00f6fn eigi eru skrifu\u00f0 \u00e1 l\u00edfsb\u00f3kinni \u00ed fr\u00e1 upphafi veraldar, munu undrast n\u00e6r \u00feeir sj\u00e1 d\u00fdri\u00f0 \u00fea\u00f0 er var og eigi er, hvert \u00fe\u00f3 er. Og h\u00e9r er \u00fea\u00f0 hugskot hvert speki hefur.<\/p>\n<p>\t\u00deau sj\u00f6 h\u00f6fu\u00f0in eru sj\u00f6 fj\u00f6ll \u00e1 hverjum konan situr og \u00fea\u00f0 eru sj\u00f6 konungar. Fimm eru fallnir og einn er enn og s\u00e1 annar er ei enn kominn og n\u00e6r hann kemur hl\u00fdtur hann stuttan t\u00edma a\u00f0 bl\u00edfa. Og \u00fea\u00f0 d\u00fdri\u00f0 sem var og er eigi \u00fea\u00f0 er s\u00e1 inn \u00e1ttandi og er \u00fat af \u00feeim sj\u00f6 og fer \u00ed ford\u00e6mingina. Og \u00feau t\u00edu horn \u00fe\u00fa hefur s\u00e9\u00f0 \u00fea\u00f0 eru t\u00edu konungar \u00feeir e\u00f0 r\u00edki\u00f0 enn eigi me\u00f0t\u00f3ku en munu um stutta stund l\u00edka sem konungar me\u00f0taka magt me\u00f0 d\u00fdrinu. \u00deessir hafa \u00fea\u00f0 eitt r\u00e1\u00f0 a\u00f0 \u00feeir munu gefa sinn kraft og magt d\u00fdrinu. \u00deeir munu og str\u00ed\u00f0a vi\u00f0 lambi\u00f0 og lambi\u00f0 mun \u00fe\u00e1 yfirvinna \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er Drottinn drottnanna og konungur konunganna og me\u00f0 \u00fev\u00ed \u00feeir sem kalla\u00f0ir og \u00fatvaldir og tr\u00faa\u00f0ir eru.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg hann sag\u00f0i til m\u00edn: &#8222;V\u00f6tnin \u00feau \u00fe\u00fa hefur s\u00e9\u00f0 \u00fear e\u00f0 h\u00f3rkonan situr \u00e1 eru f\u00f3lk og l\u00fd\u00f0ir og hei\u00f0nar \u00fej\u00f3\u00f0ir og tungum\u00e1l. Og \u00feau t\u00edu hornin sem \u00fe\u00fa hefur s\u00e9\u00f0 \u00e1 d\u00fdrinu \u00feau munu hata h\u00f3rkonuna og munu hana sney\u00f0a og nakta gj\u00f6ra og munu hennar hold eta og hana me\u00f0 eldi brenna. \u00dev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 gaf \u00ed \u00feeirra hj\u00f6rtu a\u00f0 gj\u00f6ra hva\u00f0 honum \u00fe\u00f3knast a\u00f0 \u00feeir gj\u00f6ra einn vilja og a\u00f0 \u00feeir gefi d\u00fdrinu sitt r\u00edki \u00feanga\u00f0 til a\u00f0 fullkomna\u00f0 yr\u00f0i Gu\u00f0s or\u00f0. Og konan sem \u00fe\u00fa hefur s\u00e9\u00f0 er hin mikla borg hver sitt r\u00edki hefur yfir konungum jar\u00f0arinnar.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XVII. \u00dear kom og einn af sj\u00f6 englunum sem h\u00f6f\u00f0u sj\u00f6 sk\u00e1lirnar, tala\u00f0i vi\u00f0 mig og sag\u00f0i til m\u00edn: [ &#8222;Kom, eg man s\u00fdna \u00fe\u00e9r d\u00f3m hinnar miklu h\u00f3rkonu sem \u00e1 m\u00f6rgum v\u00f6tnum situr me\u00f0ur hverri h\u00f3ranir dr\u00fdgt hafa konungar jar\u00f0arinnar og \u00feeir sem \u00e1 j\u00f6r\u00f0u b\u00faa eru drukknir or\u00f0nir af hennar h\u00f3runarv\u00edni.&#8220; Og hann flutti mig \u00ed anda \u00e1 ey\u00f0im\u00f6rk. Og eg s\u00e1 \u00fe\u00e1 konu sitja \u00e1 fagurrau\u00f0u d\u00fdri, fullu af n\u00f6fnum h\u00e1\u00f0ungarinnar, hafandi sj\u00f6 h\u00f6fu\u00f0 og t\u00edu horn. Og konan var kl\u00e6dd purpura og pelli rau\u00f0u og umpr\u00fddd gulli og gimsteinum og perlum. Og \u00ed hennar enni skrifu\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/opinberunarbok-johannesar-17-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-4035","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/4035","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4035"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/4035\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4035"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}