{"id":3947,"date":"2017-12-18T18:35:11","date_gmt":"2017-12-18T18:35:11","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/galatabrefid-5-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:35:11","modified_gmt":"2017-12-18T18:35:11","slug":"galatabrefid-5-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/galatabrefid-5-kafli\/","title":{"rendered":"Galatabr\u00e9fi\u00f0 5. kafli"},"content":{"rendered":"<p>V.<\/p>\n<p>Svo standi\u00f0 n\u00fa \u00ed \u00fev\u00ed frelsi \u00fear Kristur hefur frelsa\u00f0 oss me\u00f0 og l\u00e1ti\u00f0 ekki f\u00e6ra y\u00f0ur aftur \u00ed \u00fea\u00f0 \u00fer\u00e6ld\u00f3msoki\u00f0. Sj\u00e1i\u00f0, eg P\u00e1ll segi y\u00f0ur \u00fea\u00f0: Ef svo er a\u00f0 \u00fe\u00e9r l\u00e1ti\u00f0 umskera y\u00f0ur \u00fe\u00e1 er Kristur y\u00f0ur ekki nytsamur. Eg vitna enn s\u00e9rhverjum manna \u00fea\u00f0 aftur sem sig l\u00e6tur umskera a\u00f0 hann er enn n\u00fa allt l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Skyldugur) \/ \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e1n tr\u00faarinnar er ekkert hjarta hreint, \u00e1n hjartans hreinsunar er ekkert verk hreint n\u00e9 gott\">[<\/span> skyldugur a\u00f0 gj\u00f6ra. \u00de\u00e9r eru\u00f0 Kristi fr\u00e1skildir sem fyrir l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 vilji\u00f0 r\u00e9ttl\u00e1tir vera og eru\u00f0 n\u00e1\u00f0inni fr\u00e1fallnir. En v\u00e9r vonum \u00ed andanum fyrir tr\u00fana \u00feess r\u00e9ttl\u00e6tis hvers v\u00e9r hlj\u00f3tum a\u00f0 vona. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00ed Christo Jes\u00fa gildir hvorki umskurn n\u00e9 yfirh\u00fa\u00f0 nokkurt heldur s\u00fa tr\u00faa sem fyrir k\u00e6rleikann verkar.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e9r hlupu\u00f0 f\u00ednlega, hver aftra\u00f0i y\u00f0ur sannleiknum a\u00f0 hl\u00fd\u00f0a? \u00deessar umt\u00f6lur eru eigi af honum sem y\u00f0ur hefur kalla\u00f0. L\u00edti\u00f0 s\u00fardeig s\u00fdrir allt deigi\u00f0. Eg fors\u00e9 mig \u00feess til y\u00f0ar \u00ed Drottni \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e9r munu\u00f0 ekki \u00f6\u00f0ruv\u00eds sinna\u00f0ir vera. En hver y\u00f0ur villir s\u00e1 mun bera sinn d\u00f3m, hann s\u00e9 hver hann vill. En eg, k\u00e6rir br\u00e6\u00f0ur, ef eg pr\u00e9dika n\u00fa umskurnina, hvar fyrir l\u00ed\u00f0 eg \u00fe\u00e1 ofs\u00f3knina? \u00de\u00e1 er og afskafin krossins hneykslan. G\u00e6fi Gu\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feeir yr\u00f0i og afsni\u00f0nir sem y\u00f0ur sturla.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00e9r, k\u00e6rir br\u00e6\u00f0ur, eru\u00f0 til frelsisins kalla\u00f0ir. Einasta sj\u00e1i\u00f0 so til \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e9r gefi\u00f0 fyrir frelsi\u00f0 holdinu ekkert <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ (Tilefni) \/ \u00dea\u00f0 gj\u00f6ra \u00feeir sem a\u00f0 segja: &#8222;Fyrst tr\u00fain verkar alla hluti \u00fe\u00e1 viljum v\u00e9r engin g\u00f3\u00f0verk gj\u00f6ra. V\u00e9r viljum treysta upp \u00e1 tr\u00fana.&#8220;\">[<\/span> tilefni heldur fyrir k\u00e6rleikann \u00fe\u00e1 \u00fej\u00f3ni\u00f0 hver \u00f6\u00f0rum. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00f6ll l\u00f6g ver\u00f0a \u00ed einu or\u00f0i uppfylld, \u00ed \u00fev\u00ed: &#8222;Elska \u00feinn n\u00e1unga sem sj\u00e1lfan \u00feig.&#8220; En ef svo er \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e9r t\u00f6nnli\u00f0 og tyggi\u00f0 hver annan innbyr\u00f0is \u00fe\u00e1 sj\u00e1i\u00f0 til \u00fea\u00f0 hver y\u00f0ar svelgist ekki af \u00f6\u00f0rum.<\/p>\n<p>\tEn eg segi: Gangi\u00f0 \u00ed andanum, \u00fe\u00e1 munu \u00fe\u00e9r ekki fullkomna holdsins girndum. \u00dev\u00ed a\u00f0 l\u00edkaminn girnist \u00ed m\u00f3ti andanum og andinn \u00ed m\u00f3ti l\u00edkamanum. Og \u00feessir eru hvorir \u00ed m\u00f3ti \u00f6\u00f0rum so \u00fe\u00e9r gj\u00f6ri\u00f0 ekki hva\u00f0 \u00fe\u00e9r vilji\u00f0. En ef andinn stj\u00f3rnar y\u00f0ur \u00fe\u00e1 eru \u00fe\u00e9r ekki undir l\u00f6gm\u00e1linu. En holdsins verk eru opinber, so sem a\u00f0 er: <span class=\"athugasemd\" title=\"Holdsins verk\">[<\/span> H\u00f3rd\u00f3mur, frillulifna\u00f0ur, saurl\u00edfi, lausung, sk\u00fargo\u00f0ad\u00fdrkan, fj\u00f6lkynngi, fjandskapur, hatur, agg, rei\u00f0i, \u00fer\u00e6ta, sundur\u00feykki, tv\u00eddr\u00e6gni, \u00f6fundskapur, manndr\u00e1p, ofdrykkja, of\u00e1t og \u00feessu l\u00edkt, \u00fat af hverju eg hefi \u00e1\u00f0ur fyrri sagt og segi enn n\u00fa fyrir \u00fea\u00f0 \u00feeir s\u00f6mu sem \u00feetta gj\u00f6ra erfa ekki Gu\u00f0s r\u00edki. En h\u00e9r \u00ed gegn er \u00e1v\u00f6xtur andarins: <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00c1v\u00f6xtur andans\">[<\/span> K\u00e6rleiki, f\u00f6gnu\u00f0ur, fri\u00f0ur, \u00feolinm\u00e6\u00f0i, bl\u00ed\u00f0leiki, g\u00f3\u00f0girni, tr\u00fa, h\u00f3gv\u00e6r\u00f0, hreinl\u00edfi \u0096 \u00ed gegn sl\u00edku er ekki l\u00f6gm\u00e1li\u00f0. En \u00feeir sem Kristi tilheyra \u00feeir krossfesta sitt hold me\u00f0 girndum og tilhneigingum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>V. Svo standi\u00f0 n\u00fa \u00ed \u00fev\u00ed frelsi \u00fear Kristur hefur frelsa\u00f0 oss me\u00f0 og l\u00e1ti\u00f0 ekki f\u00e6ra y\u00f0ur aftur \u00ed \u00fea\u00f0 \u00fer\u00e6ld\u00f3msoki\u00f0. Sj\u00e1i\u00f0, eg P\u00e1ll segi y\u00f0ur \u00fea\u00f0: Ef svo er a\u00f0 \u00fe\u00e9r l\u00e1ti\u00f0 umskera y\u00f0ur \u00fe\u00e1 er Kristur y\u00f0ur ekki nytsamur. Eg vitna enn s\u00e9rhverjum manna \u00fea\u00f0 aftur sem sig l\u00e6tur umskera a\u00f0 hann er enn n\u00fa allt l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 [ skyldugur a\u00f0 gj\u00f6ra. \u00de\u00e9r eru\u00f0 Kristi fr\u00e1skildir sem fyrir l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 vilji\u00f0 r\u00e9ttl\u00e1tir vera og eru\u00f0 n\u00e1\u00f0inni fr\u00e1fallnir. En v\u00e9r vonum \u00ed andanum fyrir tr\u00fana \u00feess r\u00e9ttl\u00e6tis hvers v\u00e9r hlj\u00f3tum a\u00f0 vona. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00ed Christo Jes\u00fa gildir hvorki umskurn <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/galatabrefid-5-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3947","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3947","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3947"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3947\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3947"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}