{"id":3913,"date":"2017-12-18T18:35:04","date_gmt":"2017-12-18T18:35:04","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrra-kortintubref-1-kafli\/"},"modified":"2018-01-13T23:35:20","modified_gmt":"2018-01-13T23:35:20","slug":"fyrra-korintubref-1-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrra-korintubref-1-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrra Korintubr\u00e9f 1. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Hinn fyrri S. P\u00e1ls pistill <\/p>\n<p>til Corinthios<\/p>\n<p>I.<\/p>\n<p>P\u00e1ll, kalla\u00f0ur til postula Jes\u00fa Christi fyrir vilja Gu\u00f0s, og S\u00f3stenes vor br\u00f3\u00f0ir <span class=\"athugasemd\" title=\"Undirskrift\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00feeim Gu\u00f0s s\u00f6fnu\u00f0i sem er \u00ed Korint\u00edu, \u00feeim helga\u00f0ir eru \u00ed Christo Jes\u00fa, \u00feeim k\u00f6llu\u00f0um heil\u00f6gum samt \u00f6llum \u00feeim sem \u00e1kalla nafn Drottins vors Jes\u00fa Christi \u00ed \u00f6llum \u00feeirra lands\u00e1lfum og vorum: <span class=\"athugasemd\" title=\"Yfirskrift\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tN\u00e1\u00f0 og fri\u00f0ur af Gu\u00f0i vorum f\u00f6\u00f0ur og Drottni Jes\u00fa Christo s\u00e9 me\u00f0 y\u00f0ur. <span class=\"athugasemd\" title=\"Kve\u00f0jan\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00deakkir gj\u00f6ri eg Gu\u00f0i m\u00ednum i\u00f0uglega y\u00f0ar vegna fyrir \u00fe\u00e1 Gu\u00f0s n\u00e1\u00f0 sem y\u00f0ur er gefin \u00ed Christo Jes\u00fa \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e9r eru\u00f0 fyrir hann \u00ed \u00f6llum hlutum au\u00f0ga\u00f0ir \u00ed allri kunn\u00e1ttu og vi\u00f0urkenningu eftir \u00fev\u00ed sem s\u00fa pr\u00e9dikan af Christo Jes\u00fa er kr\u00f6ftug vor\u00f0in \u00ed y\u00f0ur so a\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 \u00f6ngvan brest \u00ed nukkuri gj\u00f6f, eftirb\u00ed\u00f0andi augl\u00fdsingu vors Drottins Jes\u00fa Christi s\u00e1 er y\u00f0ur mun sta\u00f0festa allt a\u00f0 lokum so a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 \u00f3straffanlegir \u00e1 degi Drottins vors Jes\u00fa Christi. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00deakkargj\u00f6r\u00f0\">[<\/span> \u00dev\u00ed Gu\u00f0 er tr\u00far fyrir hvern \u00fe\u00e9r kalla\u00f0ir eru\u00f0 til <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Samlags) \/ \u00dea\u00f0 er, samarfar og sameigendur allra hluta me\u00f0 Christo\">[<\/span> samlags sonar hans Jes\u00fa Christi vors Drottins.<\/p>\n<p>\tEn eg bei\u00f0i y\u00f0ur, br\u00e6\u00f0ur, fyrir nafn Drottins vors Jes\u00fa Christi \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 allir hinn sama or\u00f0r\u00f3m og eigi s\u00e9 \u00fear nokkurt sundurlyndi y\u00f0ar \u00e1 milli heldur \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 fullkomnir \u00ed saml\u00edkri lund og einnri meiningu. \u00dev\u00ed a\u00f0 m\u00e9r er so kunngj\u00f6rt, br\u00e6\u00f0ur m\u00ednir, af \u00feeim sem af Cloes heimkynni eru \u00fat af y\u00f0ur a\u00f0 \u00fer\u00e6tur s\u00e9 y\u00f0ar \u00e1 milli. En eg segi \u00fear af \u00fea\u00f0 hver y\u00f0ar einn skuli segja: &#8222;Eg em P\u00e1ls,&#8220; s\u00e1 annar: &#8222;Eg em Appolinis,&#8220; hinn \u00feri\u00f0ji: &#8222;Eg em Kefas,&#8220; hinn fj\u00f3r\u00f0i: &#8222;Eg em Krists.&#8220; Hva\u00f0? Er Kristur n\u00fa \u00fe\u00e1 \u00ed sundurskiptur? Er nokku\u00f0 P\u00e1ll fyrir y\u00f0ur krossfestur? E\u00f0a eru \u00fe\u00e9r sk\u00edr\u00f0ir \u00ed P\u00e1ls nafni? Eg \u00feakka Gu\u00f0i \u00fea\u00f0 eg hefi \u00f6ngvan y\u00f0varn sk\u00edrt utan Crispum og Gajum so a\u00f0 enginn \u00feurfi \u00fea\u00f0 a\u00f0 segja a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 sk\u00edr\u00f0ir \u00ed m\u00ednu nafni. Eg sk\u00edr\u00f0a og heimamenn Stephane. Framar veit eg ekki hvort eg hefi nokkurn y\u00f0varn annan sk\u00edrt.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 Kristur sendi mig eigi til a\u00f0 sk\u00edra heldur a\u00f0 bo\u00f0a Gu\u00f0s evangelion, eigi me\u00f0ur or\u00f0asnilld so a\u00f0 eigi yr\u00f0i kross Christi a\u00f0 h\u00e9g\u00f3ma. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feetta or\u00f0 af krossinum er f\u00edflska \u00feeim sem fortapa\u00f0ir ver\u00f0a en oss sem hj\u00e1lpast er \u00fea\u00f0 Gu\u00f0s kraftur. \u00dev\u00ed a\u00f0 so er skrifa\u00f0: <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 29\">[<\/span> &#8222;Ey\u00f0a mun eg visku vitringanna og skilning skynsamra mun eg forleggja.&#8220; Hvar er n\u00fa spekingurinn? <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 33\">[<\/span> Hvar er ritningameistarinn? Hvar er veraldarvitringurinn? Hefur Gu\u00f0 ekki gj\u00f6rt speki heims \u00feessa a\u00f0 heimsku?<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e1 me\u00f0an heimurinn fyrir s\u00edna visku \u00feekkti ekki Gu\u00f0 \u00ed s\u00ednum v\u00edsd\u00f3mi \u00fe\u00f3kna\u00f0ist Gu\u00f0i \u00fea\u00f0 vel fyrir f\u00e1v\u00edslega pr\u00e9dikan hj\u00e1lplega a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fe\u00e1 sem \u00fear \u00e1 tr\u00faa. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 Gy\u00f0ingar \u00e6skja teikns og Grikkir spyrja a\u00f0 speki en v\u00e9r pr\u00e9dikum Krist hinn krossfesta, Gy\u00f0ingum a\u00f0 s\u00f6nnu hneykslan en Grikkjum heimsku. En \u00feeim sem kalla\u00f0ir eru, b\u00e6\u00f0i Gy\u00f0ingum og Grikkjum, bo\u00f0um v\u00e9r Krist, einn gu\u00f0legan kraft og gu\u00f0lega speki. \u00dev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0s f\u00e1viska er m\u00f6nnum hyggnari og Gu\u00f0s <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ (Veikleiki) \/ Gu\u00f0leg f\u00e1viska og veikleiki er evangelium, \u00fea\u00f0 er heimska fyrir \u00feeim v\u00edsu en villa fyrir \u00feeim heil\u00f6gu en fyrir \u00feeim kristnu er \u00fea\u00f0 kraftur og v\u00edsd\u00f3mur\">[<\/span> veikleiki er m\u00f6nnum styrkvari.<\/p>\n<p>\tFyrir \u00fev\u00ed \u00e1l\u00edti\u00f0, g\u00f3\u00f0ir br\u00e6\u00f0ur, y\u00f0ra kallan \u00fea\u00f0 eigi eru margir spekingar eftir holdinu, ei margir voldugir, eigi margir e\u00f0albornir kalla\u00f0ir heldur \u00fea\u00f0 hva\u00f0 heimskulegt er fyrir heiminum \u00fea\u00f0 hefur Gu\u00f0 \u00fatvali\u00f0 upp \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 hann gj\u00f6r\u00f0i vitringana a\u00f0 hneykslan. Og \u00fea\u00f0 sem veiklegt var fyrir heiminum \u00fea\u00f0 \u00fatvaldi Gu\u00f0 so a\u00f0 hann gj\u00f6r\u00f0i a\u00f0 hneykslan \u00fea\u00f0 hva\u00f0 \u00f6flugt er og \u00fea\u00f0 sem \u00f3e\u00f0la var fyrir heiminum og forsm\u00e1\u00f0 \u00fea\u00f0 hefur Gu\u00f0 \u00fatvali\u00f0 og \u00fea\u00f0 sem ekkert er so a\u00f0 hann ni\u00f0ur\u00ferykkti \u00fea\u00f0 hva\u00f0 nokkursh\u00e1tta\u00f0 er, so a\u00f0 enginn ma\u00f0ur m\u00e6tti s\u00e9r fyrir hans augum hr\u00f3sa, \u00fat af hverjum \u00fe\u00e9r eru\u00f0 komnir \u00ed Christo Jes\u00fa, hver oss er af Gu\u00f0i gj\u00f6r\u00f0ur til v\u00edsd\u00f3ms og r\u00e9ttl\u00e6tis, til helgunar og til endurlausnar. &#8222;So a\u00f0 hver (eftir \u00fev\u00ed sem skrifa\u00f0 er) sem s\u00e9r hr\u00f3sar, s\u00e1 hr\u00f3si s\u00e9r \u00ed Drottni.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Jere. 9\">[<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hinn fyrri S. P\u00e1ls pistill til Corinthios I. P\u00e1ll, kalla\u00f0ur til postula Jes\u00fa Christi fyrir vilja Gu\u00f0s, og S\u00f3stenes vor br\u00f3\u00f0ir [ \u00feeim Gu\u00f0s s\u00f6fnu\u00f0i sem er \u00ed Korint\u00edu, \u00feeim helga\u00f0ir eru \u00ed Christo Jes\u00fa, \u00feeim k\u00f6llu\u00f0um heil\u00f6gum samt \u00f6llum \u00feeim sem \u00e1kalla nafn Drottins vors Jes\u00fa Christi \u00ed \u00f6llum \u00feeirra lands\u00e1lfum og vorum: [ N\u00e1\u00f0 og fri\u00f0ur af Gu\u00f0i vorum f\u00f6\u00f0ur og Drottni Jes\u00fa Christo s\u00e9 me\u00f0 y\u00f0ur. [ \u00deakkir gj\u00f6ri eg Gu\u00f0i m\u00ednum i\u00f0uglega y\u00f0ar vegna fyrir \u00fe\u00e1 Gu\u00f0s n\u00e1\u00f0 sem y\u00f0ur er gefin \u00ed Christo Jes\u00fa \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e9r eru\u00f0 fyrir hann \u00ed \u00f6llum hlutum au\u00f0ga\u00f0ir \u00ed allri <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrra-korintubref-1-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"closed","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3913","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3913","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3913"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3913\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3913"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}