{"id":3907,"date":"2017-12-18T18:35:04","date_gmt":"2017-12-18T18:35:04","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/romverjabrefid-11-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:35:04","modified_gmt":"2017-12-18T18:35:04","slug":"romverjabrefid-11-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/romverjabrefid-11-kafli\/","title":{"rendered":"R\u00f3mverjabr\u00e9fi\u00f0 11. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XI.<\/p>\n<p>Svo segi eg n\u00fa: Hvert hefur Gu\u00f0 \u00fe\u00e1 sitt f\u00f3lk fr\u00e1 s\u00e9r reki\u00f0? <span class=\"athugasemd\" title=\"Af \u00fatsk\u00fafun Gy\u00f0inga\">[<\/span> Fjarri er \u00fev\u00ed. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg em og \u00cdsraelsma\u00f0ur \u00fat af Abrahams s\u00e6\u00f0i, af kyni Benjam\u00edn. Gu\u00f0 hefur ekki sitt f\u00f3lk fr\u00e1 s\u00e9r reki\u00f0 \u00fea\u00f0 hann hefur \u00e1\u00f0ur fyrirhuga\u00f0. E\u00f0a viti \u00fe\u00e9r eigi hva\u00f0 Ritningin segir af El\u00eda? <span class=\"athugasemd\" title=\"2. Reg. 19\">[<\/span> Hvernin hann ba\u00f0 fyrir Gu\u00f0 \u00ed gegn \u00cdsrael og sag\u00f0i: &#8222;Drottinn, sp\u00e1menn \u00fe\u00edna hafa \u00feeir \u00ed hel slegi\u00f0 og \u00fe\u00ednum \u00f6lturum umvelt og eg em einn eftirblifinn og \u00feeir umsitja um mitt l\u00edf.&#8220; En hva\u00f0 segir honum gu\u00f0legt andsvar? &#8222;Sj\u00f6 \u00fe\u00fasundir manna hef eg l\u00e1ti\u00f0 m\u00e9r yfirbl\u00edfa \u00feeir sem eigi hafa beygt s\u00edn kn\u00e9 fyrir Baal.&#8220; So gengur \u00fea\u00f0 og n\u00fa til \u00e1 \u00feessum t\u00edmum a\u00f0 nokkrir bl\u00edfa enn eftir eftir \u00fatvalningu n\u00e1\u00f0arinnar. En fyrst \u00fea\u00f0 er \u00fat af n\u00e1\u00f0inni ske\u00f0 so er ver\u00f0uskuldanin engin, annars v\u00e6ri n\u00e1\u00f0in engin n\u00e1\u00f0. En er \u00fea\u00f0 \u00fat af ver\u00f0skuldaninni \u00fe\u00e1 er n\u00e1\u00f0in ekkert, elligar v\u00e6ri ver\u00f0skuldanin engin ver\u00f0skuldan.<\/p>\n<p>\tHva\u00f0 er n\u00fa \u00fe\u00e1? \u00dea\u00f0 \u00cdsrael eftirleita\u00f0i \u00fea\u00f0 hefur hann eigi au\u00f0last en \u00fatvalningin au\u00f0la\u00f0ist \u00fea\u00f0 en \u00feeir a\u00f0rir eru forblinda\u00f0ir. Eftir \u00fev\u00ed sem skrifa\u00f0 er: &#8222;Gu\u00f0 gaf \u00feeim einn \u00fever\u00fa\u00f0aranda og augu a\u00f0 \u00feeir sj\u00e1 eigi og eyru a\u00f0 \u00feeir heyra eigi&#8220; allt til \u00feessa dags. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ese. 6\">[<\/span> Dav\u00ed\u00f0 segir og: <span class=\"athugasemd\" title=\"Psal. 69\">[<\/span> &#8222;\u00deeirra bor\u00f0 l\u00e1t \u00feeim ver\u00f0a a\u00f0 sn\u00f6ru, til fj\u00f6trunar og hneyskla og \u00feeim til endurgjalds. Forblinda og \u00feeirra augu so \u00feeir sj\u00e1i eigi og beyg jafnan \u00feeirra hrygg.&#8220;<\/p>\n<p>\tSo segi eg n\u00fa: Hafa \u00feeir \u00fear fyrir reki\u00f0 sig \u00e1 a\u00f0 \u00feeir skyldu falla? Langt er fr\u00e1 \u00fev\u00ed. Heldur er \u00fat af \u00feeirra hrasan hei\u00f0ingjum heilsugj\u00f6f or\u00f0in so a\u00f0 \u00feeir hv\u00f6ttu \u00fe\u00e1 til vandl\u00e6tingar. \u00dev\u00ed ef \u00feeirra fall er heimsins au\u00f0leg\u00f0 og \u00feeirra minnkan hei\u00f0inna manna r\u00edkd\u00f3mur, hversu miki\u00f0 meir v\u00e6ri \u00fea\u00f0 so ef \u00feeirra full tala \u00fear v\u00e6ri? Vi\u00f0 y\u00f0ur hei\u00f0ingja tala eg: Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 eg em postuli hei\u00f0inna manna vil eg mitt emb\u00e6tti hei\u00f0ra, ef eg g\u00e6ta \u00fe\u00e1 einhvernegin hvatt \u00fe\u00e1 sem mitt hold eru til vandl\u00e6tingar og nokkra af \u00feeim hj\u00e1lplega gj\u00f6rt. \u00dev\u00ed ef \u00feeirra glatan er heimsins forl\u00edkun hva\u00f0 v\u00e6ri \u00fea\u00f0 anna\u00f0 en v\u00e9r \u00f6\u00f0lu\u00f0unst l\u00edfi\u00f0 af dau\u00f0anum? \u00dev\u00ed ef snei\u00f0irnar eru heilagar \u00fe\u00e1 er og deigi\u00f0 heilagt og ef r\u00f3tin er heil\u00f6g \u00fe\u00e1 eru og kvistirnir heilagir.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00f3 nokkrir af kvistunum s\u00e9 afbrotnir en \u00fe\u00fa sem vart villur vi\u00f0smj\u00f6rsvi\u00f0ur ert \u00e1 millum \u00feeirra innplanta\u00f0ur og vor\u00f0inn hluttakari \u00feeirrar r\u00f3tar og feitleika \u00feess vi\u00f0smj\u00f6rsvi\u00f0ar, fyrir \u00fev\u00ed skaltu eigi meta \u00feig \u00ed gegn kvistunum. Ef ef \u00fe\u00fa metur \u00feig \u00ed gegn \u00feeim \u00fe\u00e1 m\u00e1tt \u00fe\u00fa vita a\u00f0 \u00fe\u00fa ber eigi r\u00f3tina heldur ber r\u00f3tin \u00feig. \u00de\u00fa segir so: Kvistirnir eru \u00fev\u00ed afbrotnir a\u00f0 eg yr\u00f0i innplanta\u00f0ur. \u00dea\u00f0 er og sanntala\u00f0. Fyrir vantr\u00faar sakir eru \u00feeir afbrotnir en \u00fe\u00fa stendur fyrir tr\u00fana. Vert \u00fev\u00ed eigi metnugur heldur \u00f3ttasleginn. \u00dev\u00ed ef Gu\u00f0 hefur ekki \u00feyrmt n\u00e1tt\u00farlegum kvistum, ver\u00f0a m\u00e1 a\u00f0 hann \u00feyrmi \u00fe\u00e9r eigi heldur.<\/p>\n<p>\t\u00dear fyri sj\u00e1 \u00fe\u00fa g\u00f3\u00f0girni Gu\u00f0s og har\u00f0\u00fa\u00f0, har\u00f0\u00fa\u00f0ina \u00e1 \u00feeim sem fallnir eru en g\u00f3\u00f0girnina \u00e1 \u00fe\u00e9r, ef \u00fe\u00fa st\u00f6\u00f0ugur bl\u00edfur \u00ed g\u00f3\u00f0girninni, elligar ver\u00f0ur \u00fe\u00fa og einnin afh\u00f6ggvinn. Og hinir a\u00f0rir ef \u00feeir bl\u00edfa eigi \u00ed vantr\u00fanni \u00fe\u00e1 ver\u00f0a \u00feeir innplanta\u00f0ir \u00fev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 er m\u00e1ttugur til a\u00f0 r\u00f3tfesta \u00fe\u00e1 inn aftur. \u00dev\u00ed ef \u00fe\u00fa sem af n\u00e1tt\u00faru ert villtur vi\u00f0smj\u00f6rsvi\u00f0ur ert afsni\u00f0inn og \u00ed m\u00f3t n\u00e1tt\u00farunni ert innplanta\u00f0ur \u00e1 hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a vi\u00f0smj\u00f6rstr\u00e9\u00f0, miklu framar munu \u00feeir \u00fe\u00e1 sem eftir n\u00e1tt\u00farunni eru innplantast s\u00ednum vi\u00f0smj\u00f6rsvi\u00f0i.<\/p>\n<p>\tEg vil eigi dylja fyrir y\u00f0ur, g\u00f3\u00f0ir br\u00e6\u00f0ur, \u00feennan leyndan d\u00f3m svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 eigi metna\u00f0arfullir me\u00f0 sj\u00e1lfum y\u00f0ur. Blindleiki er \u00ed sumum m\u00e1ta \u00cdsrael yfirfallinn \u00feanga\u00f0 til a\u00f0 fylling hei\u00f0innar \u00fej\u00f3\u00f0ar er inn komin og \u00f6ll \u00cdsrael ver\u00f0i svo h\u00f3lpin, eftir \u00fev\u00ed sem skrifa\u00f0 er: <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 59\">[<\/span> &#8222;\u00dat af S\u00edon mun koma s\u00e1 sem frelsar og umsn\u00fdr \u00f3gu\u00f0legu ath\u00e6fi af Jakob. Og \u00feessi er minn s\u00e1ttm\u00e1li vi\u00f0 \u00fe\u00e1 n\u00e6r eg burttek \u00feeirra syndir.&#8220; En eftir \u00fatvalningunni hefi eg \u00fe\u00e1 k\u00e6ra fyrir fe\u00f0ranna sakir.<\/p>\n<p>\tGu\u00f0s gjafir og kallan eru \u00f3umskiptilegar. \u00dev\u00ed a\u00f0 l\u00edka so sem \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 eigi for\u00f0um tr\u00faa\u00f0 \u00e1 Gu\u00f0 en n\u00fa hafi \u00fe\u00e9r miskunn \u00f6\u00f0last fyrir \u00feeirra vantr\u00faar skuld so hafa n\u00fa hinir og eigi vilja\u00f0 tr\u00faa \u00e1 miskunn \u00fe\u00e1 sem \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 hloti\u00f0 so a\u00f0 \u00feeir m\u00e6ttu og miskunnsemi \u00f6\u00f0last. \u00dev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 lukti alla undir vantr\u00fanni upp \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 hann miskunna\u00f0i \u00f6llum.<\/p>\n<p>\u00d3 hv\u00edl\u00edk d\u00fdpt au\u00f0\u00e6fanna, b\u00e6\u00f0i spekinnar og so Gu\u00f0s vi\u00f0urkenningar! Hversu \u00f3umr\u00e6\u00f0anlegir eru hans d\u00f3mar og \u00f3finnanlegir hans vegir! &#8222;\u00dev\u00ed hver hefur \u00feekkt herrans sinni e\u00f0a hver hefur hans r\u00e1\u00f0gjafi veri\u00f0? <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 60\">[<\/span> E\u00f0a hver hefur honum nokkurt fyrri gefi\u00f0 so a\u00f0 honum m\u00e6tti \u00fea\u00f0 ver\u00f0a endurgoldi\u00f0?&#8220; \u00dev\u00ed a\u00f0 af honum og fyrir hann og \u00ed honum eru allir hlutir. Honum s\u00e9 hei\u00f0ur og d\u00fdr\u00f0 a\u00f0 eil\u00edfu. Amen.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XI. Svo segi eg n\u00fa: Hvert hefur Gu\u00f0 \u00fe\u00e1 sitt f\u00f3lk fr\u00e1 s\u00e9r reki\u00f0? [ Fjarri er \u00fev\u00ed. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg em og \u00cdsraelsma\u00f0ur \u00fat af Abrahams s\u00e6\u00f0i, af kyni Benjam\u00edn. Gu\u00f0 hefur ekki sitt f\u00f3lk fr\u00e1 s\u00e9r reki\u00f0 \u00fea\u00f0 hann hefur \u00e1\u00f0ur fyrirhuga\u00f0. E\u00f0a viti \u00fe\u00e9r eigi hva\u00f0 Ritningin segir af El\u00eda? [ Hvernin hann ba\u00f0 fyrir Gu\u00f0 \u00ed gegn \u00cdsrael og sag\u00f0i: &#8222;Drottinn, sp\u00e1menn \u00fe\u00edna hafa \u00feeir \u00ed hel slegi\u00f0 og \u00fe\u00ednum \u00f6lturum umvelt og eg em einn eftirblifinn og \u00feeir umsitja um mitt l\u00edf.&#8220; En hva\u00f0 segir honum gu\u00f0legt andsvar? &#8222;Sj\u00f6 \u00fe\u00fasundir manna hef eg l\u00e1ti\u00f0 m\u00e9r <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/romverjabrefid-11-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3907","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3907","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3907"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3907\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3907"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}