{"id":3906,"date":"2017-12-18T18:35:04","date_gmt":"2017-12-18T18:35:04","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/romverjabrefid-10-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:35:04","modified_gmt":"2017-12-18T18:35:04","slug":"romverjabrefid-10-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/romverjabrefid-10-kafli\/","title":{"rendered":"R\u00f3mverjabr\u00e9fi\u00f0 10. kafli"},"content":{"rendered":"<p>X.<\/p>\n<p>K\u00e6rir br\u00e6\u00f0ur! Sennilega er \u00fea\u00f0 \u00f3sk m\u00edns hjarta og gr\u00e1tleg b\u00e6n til Gu\u00f0s fyrir \u00cdsrael a\u00f0 \u00feeir hj\u00e1lpu\u00f0ust. \u00dev\u00ed eg ber \u00feeim vitni a\u00f0 \u00feeir vandl\u00e6ta um Gu\u00f0 en eigi a\u00f0 skynsemd. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00feekkja ekki \u00fea\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti sem Gu\u00f0s er og leita vi\u00f0 upp a\u00f0 r\u00e9tta s\u00ednar eiginlegar r\u00e9ttl\u00e6tingar og eru so \u00fev\u00ed r\u00e9ttl\u00e6ti sem fyrir Gu\u00f0i dugir ekki undirgefnir. \u00dev\u00ed a\u00f0 endalok l\u00f6gm\u00e1lsins er Kristur, til r\u00e9ttl\u00e6tis \u00f6llum \u00feeim sem \u00e1 hann tr\u00faa. <\/p>\n<p>\tMoises skrifar um \u00fea\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti sem kemur \u00fat af l\u00f6gm\u00e1linu: &#8222;Hver s\u00e1 mann sem \u00fea\u00f0 gj\u00f6rir hann lifir \u00fear inni.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Levi. 28\">[<\/span> En \u00fea\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti sem \u00fat af tr\u00fanni segir so: &#8222;Seg \u00fe\u00fa ekki \u00ed \u00fe\u00ednu hjarta: Hver vill uppst\u00edga \u00ed himininn (\u00fea\u00f0 er eigi anna\u00f0 en Christum af h\u00e6\u00f0inni ofan aftur a\u00f0 toga e\u00f0a hver vill st\u00edga ni\u00f0ur \u00ed undirdj\u00fapi\u00f0 (\u00dea\u00f0 er eigi anna\u00f0 en Christum af dau\u00f0a upp aftur a\u00f0 teygja)?&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Deu. 30\">[<\/span> En hva\u00f0 segir Ritningin? &#8222;Or\u00f0i\u00f0 er \u00fe\u00e9r n\u00e6r, einkum \u00ed \u00fe\u00ednum munni og \u00ed \u00fe\u00ednu hjarta.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00deetta er tr\u00faarinnar or\u00f0 hvert v\u00e9r pr\u00e9dikum. \u00dev\u00ed ef \u00fe\u00fa vi\u00f0urkennir Jes\u00fam me\u00f0 \u00fe\u00ednum munni \u00fea\u00f0 hann s\u00e9 Drottinn og tr\u00fair \u00ed \u00fe\u00ednu hjarta \u00fea\u00f0 Gu\u00f0 hafi hann uppvaki\u00f0 af dau\u00f0a \u00fe\u00e1 muntu hj\u00e1lpast. \u00dev\u00ed a\u00f0 n\u00e6r v\u00e9r tr\u00faum af hjarta ver\u00f0um v\u00e9r r\u00e9ttl\u00e1tir og \u00fe\u00e1 v\u00e9r vi\u00f0urkennum me\u00f0 munninum ver\u00f0um v\u00e9r hj\u00e1lplegir. \u00dev\u00ed hva\u00f0 segir Ritningin? &#8222;Hver \u00e1 hann tr\u00fair s\u00e1 mun eigi a\u00f0 hneykslan ver\u00f0a.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 28\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 enginn greinarmunur er \u00e1 millum Gy\u00f0ings og hins g\u00edrska af \u00fev\u00ed a\u00f0 einn er Drottinn allra, r\u00edkur \u00fat yfir \u00f6llum \u00feeim hann \u00e1kalla. \u00dev\u00ed hver hann \u00e1kallar nafn Drottins s\u00e1 mun h\u00f3lpinn ver\u00f0a. En hvernin skulu \u00feeir kalla \u00e1 \u00feann hvern \u00feeir tr\u00faa eigi? E\u00f0a hvernin skulu \u00feeir n\u00fa tr\u00faa \u00e1 \u00feann af hverjum \u00feeir hafa eigi heyrt? En hvernin skulu \u00feeir heyra \u00e1n pr\u00e9dikaranna? E\u00f0a hvernin skulu \u00feeir mega pr\u00e9dika nema \u00feeir s\u00e9 sendir? So sem skrifa\u00f0 er: &#8222;Hversu pr\u00fd\u00f0ilegir eru f\u00e6tur \u00feeirra sem fri\u00f0inn bo\u00f0a og \u00feeirra e\u00f0 bo\u00f0a hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a!&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Psal. 52\">[<\/span> En \u00feeir eru \u00fe\u00f3 ei allir gu\u00f0sspjallinu hl\u00fd\u00f0ugir. \u00dev\u00ed Esaias segir: &#8222;Drottinn, hver tr\u00fair vorri pr\u00e9dikan?&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 53\">[<\/span> Fyrir \u00fev\u00ed kemur tr\u00fain \u00fat af pr\u00e9dikuninni en pr\u00e9dikunin fyrir Gu\u00f0s or\u00f0. En eg segi: Hafa \u00feeir eigi heyrt \u00fea\u00f0? &#8222;Sennilega er \u00feeirra hlj\u00f3mur um \u00f6ll l\u00f6nd \u00fatgenginn og \u00feeirra or\u00f0 \u00ed allar heimsins \u00e1lfur.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Psal. 18\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEn eg segi: Hefur \u00cdsrael eigi \u00feekkt \u00fea\u00f0? \u00cd fyrstu segir Moyses: &#8222;Eg mun \u00e6sa y\u00f0ur upp til vandl\u00e6tingar yfir \u00feeim sem er mitt f\u00f3lk og yfir skynlausri \u00fej\u00f3\u00f0 mun eg etja y\u00f0ur til rei\u00f0i.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. 32\">[<\/span> En Esaias er djarfm\u00e1ll og segir: <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 65\">[<\/span> &#8222;Eg em af \u00feeim fundinn sem eigi hafa m\u00edn leita\u00f0 og \u00feeim augl\u00fdstur sem eigi hafa a\u00f0 m\u00e9r spurt.&#8220; En til \u00cdsrael segir hann: <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 52\">[<\/span> &#8222;Allan dag hefi eg m\u00ednar hendur \u00fatbreitt til f\u00f3lks \u00feessa er eigi vill tr\u00faa heldur m\u00e9r \u00ed m\u00f3ti m\u00e6landi.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>X. K\u00e6rir br\u00e6\u00f0ur! Sennilega er \u00fea\u00f0 \u00f3sk m\u00edns hjarta og gr\u00e1tleg b\u00e6n til Gu\u00f0s fyrir \u00cdsrael a\u00f0 \u00feeir hj\u00e1lpu\u00f0ust. \u00dev\u00ed eg ber \u00feeim vitni a\u00f0 \u00feeir vandl\u00e6ta um Gu\u00f0 en eigi a\u00f0 skynsemd. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00feekkja ekki \u00fea\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti sem Gu\u00f0s er og leita vi\u00f0 upp a\u00f0 r\u00e9tta s\u00ednar eiginlegar r\u00e9ttl\u00e6tingar og eru so \u00fev\u00ed r\u00e9ttl\u00e6ti sem fyrir Gu\u00f0i dugir ekki undirgefnir. \u00dev\u00ed a\u00f0 endalok l\u00f6gm\u00e1lsins er Kristur, til r\u00e9ttl\u00e6tis \u00f6llum \u00feeim sem \u00e1 hann tr\u00faa. Moises skrifar um \u00fea\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ti sem kemur \u00fat af l\u00f6gm\u00e1linu: &#8222;Hver s\u00e1 mann sem \u00fea\u00f0 gj\u00f6rir hann lifir \u00fear inni.&#8220; [ En \u00fea\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/romverjabrefid-10-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3906","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3906","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3906"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3906\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3906"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}