{"id":3904,"date":"2017-12-18T18:35:04","date_gmt":"2017-12-18T18:35:04","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/romverjabrefid-8-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:35:04","modified_gmt":"2017-12-18T18:35:04","slug":"romverjabrefid-8-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/romverjabrefid-8-kafli\/","title":{"rendered":"R\u00f3mverjabr\u00e9fi\u00f0 8. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VIII.<\/p>\n<p>Svo er n\u00fa ekkert <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Ford\u00e6milegt) \/ \u00de\u00f3 a\u00f0 syndin upp\u00e6sist \u00ed holdinu \u00fe\u00e1 ford\u00e6mir h\u00fan \u00fe\u00f3 eigi af \u00fev\u00ed a\u00f0 andinn er r\u00e9ttl\u00e1tur og stendur \u00e1 m\u00f3ti syndinni. En hvar eigi er andinn \u00fear veikist l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 fyrir holdi\u00f0 og ver\u00f0ur yfirtro\u00f0i\u00f0 so a\u00f0 \u00f3m\u00f6gulegt er a\u00f0 l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 sto\u00f0a manninum nema til syndar og dau\u00f0a. \u00dear fyrir sendi Gu\u00f0 son sinn og lag\u00f0i vorar syndir upp \u00e1 hann og hj\u00e1lpa\u00f0i oss so a\u00f0 uppfylla l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 fyrir hans anda\">[<\/span> ford\u00e6milegt \u00e1 \u00feeim sem \u00ed Christo Jes\u00fa eru, \u00feeir sem eigi ganga eftir holdinu heldur eftir andanum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ein huggun vegna syndarinnar sem enn n\u00fa er me\u00f0 \u00feeim heil\u00f6gu\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 l\u00f6gm\u00e1l \u00feess anda sem a\u00f0 l\u00edfgar \u00ed Christo Jes\u00fa hefur gj\u00f6rt mig frj\u00e1lsan af l\u00f6gm\u00e1li syndarinnar og dau\u00f0ans. \u00dev\u00ed hva\u00f0 l\u00f6gm\u00e1linu var \u00f3m\u00f6gulegt (me\u00f0 \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 krenktist fyrir holdi\u00f0) \u00fea\u00f0 gj\u00f6r\u00f0i Gu\u00f0 og sendi sinn son \u00ed l\u00edking syndugs holds og ford\u00e6mdi syndina \u00ed holdinu fyrir syndina so a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6tingin sem af l\u00f6gm\u00e1linu heimtist uppfylldist \u00ed oss sem eigi ganga eftir holdinu heldur eftir andanum.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir sem holdlegir eru eru holdlega sinna\u00f0ir en hinir sem andlegir eru \u00feeir eru andlega sinna\u00f0ir. \u00dev\u00ed holdsins sinni er dau\u00f0i en andarins sinni er l\u00edf og fri\u00f0ur. \u00dev\u00ed a\u00f0 holdsins sinni er fjandskapur \u00ed gegn Gu\u00f0i af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki Gu\u00f0s l\u00f6gm\u00e1li undirvorpi\u00f0, \u00fea\u00f0 f\u00e6r \u00feess og eigi orka\u00f0. En \u00feeir sem l\u00edkamlegir eru geta eigi Gu\u00f0i \u00fe\u00f3knast.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00e9r eru\u00f0 ekki l\u00edkamlegir heldur andlegir, ef Gu\u00f0s andi byggir annars \u00ed y\u00f0ur. En hver hann hefur eigi Krists anda s\u00e1 er eigi hans. En ef Kristur er me\u00f0 y\u00f0ur \u00fe\u00e1 er l\u00edkaminn a\u00f0 s\u00f6nnu dau\u00f0ur syndarinnar vegna en andinn er l\u00edfi\u00f0 fyrir r\u00e9ttl\u00e6tingarinnar sakir. \u00dev\u00ed ef hans andi sem Jes\u00fam uppvakti af dau\u00f0a byggir \u00ed y\u00f0ur \u00fe\u00e1 mun og s\u00e1 sami sem Jes\u00fam Christum uppvakti af dau\u00f0a l\u00edfga og y\u00f0ra dau\u00f0lega l\u00edkami vegna \u00feess a\u00f0 hans andi byggir \u00ed y\u00f0ur. <\/p>\n<p>\t\u00dear fyrir erum v\u00e9r, k\u00e6rir br\u00e6\u00f0ur, n\u00fa eigi holdsins skuldunautar \u00fea\u00f0 v\u00e9r eigum eftir holdinu a\u00f0 lifa. \u00dev\u00ed ef \u00fe\u00e9r lifi\u00f0 eftir holdinu munu \u00fe\u00e9r deyja en ef \u00fe\u00e9r dey\u00f0i\u00f0 fyirr andann holdsins gj\u00f6r\u00f0ir munu \u00fe\u00e9r lifa. \u00dev\u00ed \u00feeir sem af Gu\u00f0s anda lei\u00f0ast \u00feeir eru Gu\u00f0s synir. \u00dev\u00ed \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 eigi me\u00f0teki\u00f0 \u00fer\u00e6lkunaranda svo \u00fe\u00e9r \u00feurfi\u00f0 n\u00fa aftur a\u00f0 ugga um y\u00f0ur heldur hafi \u00fe\u00e9r me\u00f0teki\u00f0 sonarlegan anda fyrir hvern v\u00e9r k\u00f6llum: &#8222;Abba, elskanlegur fa\u00f0ir!&#8220; S\u00e1 sami andi ber vitnisbur\u00f0 me\u00f0 vorum anda \u00fea\u00f0 v\u00e9r erum Gu\u00f0s synir. En fyrst v\u00e9r erum synir so erum v\u00e9r og erfingjar, einkum Gu\u00f0s erfingjar, og samarfar Krists ef v\u00e9r l\u00ed\u00f0um annars me\u00f0 honum upp \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 v\u00e9r ver\u00f0um einnin me\u00f0 honum upphafnir til d\u00fdr\u00f0arinnar.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 eg held \u00fear a\u00f0 m\u00f3tl\u00e6ting \u00feessara t\u00edma s\u00e9 ekki ver\u00f0 til \u00feeirrar d\u00fdr\u00f0ar sem vi\u00f0 oss mun opinberu\u00f0 ver\u00f0a. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e1hyggjusamleg eftirbi\u00f0 skepnunnar b\u00ed\u00f0ur eftir uppbirtingu Gu\u00f0s barna. Me\u00f0 \u00fev\u00ed \u00fe\u00f3 a\u00f0 skepnan er h\u00e9g\u00f3manum undirgefin \u00e1n hennar vilja heldur fyrir hans sakir sem hana hefur undirlagt upp \u00e1 vonina. \u00dev\u00ed a\u00f0 sj\u00e1lf skepnan mun frelsu\u00f0 ver\u00f0a af \u00fer\u00e6lkan fallvaltrar veru til d\u00fdr\u00f0arlegs frelsis Gu\u00f0s barna. \u00dev\u00ed v\u00e9r vitum \u00fea\u00f0 alla skepnu forlengir og h\u00fan ber s\u00f3tt me\u00f0 oss allt til \u00feessa t\u00edma.<\/p>\n<p>\tEigi alleinasta h\u00fan heldur v\u00e9r sj\u00e1lfir sem h\u00f6fum andarins frumt\u00f6k, oss forlengir sj\u00e1lfa eftir \u00feeirri arfleif\u00f0 og v\u00e6ntum eftir lausn vors l\u00edkama. Sennilega erum v\u00e9r s\u00e1luhj\u00e1lplegir en \u00fe\u00f3 \u00ed voninni. \u00dev\u00ed s\u00fa von sem s\u00e9st er eigi von. E\u00f0a hversu kunnu v\u00e9r \u00feess a\u00f0 vona sem v\u00e9r sj\u00e1um? En ef v\u00e9r vonum \u00e1 \u00fea\u00f0 er v\u00e9r sj\u00e1um ekki \u00fe\u00e1 b\u00ed\u00f0um v\u00e9r \u00feess fyrir \u00feolinm\u00e6\u00f0i.<\/p>\n<p>\tSo hj\u00e1lpar og andinn einnin l\u00edka vorum breyskleik. \u00dev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r vitum ekki hva\u00f0 v\u00e9r skulum bi\u00f0ja sem \u00fea\u00f0 byrja\u00f0i heldur bi\u00f0ur s\u00e1 andi fyrir oss me\u00f0 \u00f3umr\u00e6\u00f0anlegri andvarpan. En hann sem hj\u00f6rtun rannsakar veit hva\u00f0 andarins meining er \u00fev\u00ed a\u00f0 hann bi\u00f0ur fyrir heil\u00f6gum eftir \u00fev\u00ed e\u00f0 Gu\u00f0i hagar. En v\u00e9r vitum a\u00f0 \u00feeim sem Gu\u00f0 elska tekst allt til betranar, einkum \u00feeim sem eftir fyrirhyggjunni kalla\u00f0ir eru. \u00dev\u00ed a\u00f0 hverja hann hefur \u00e1\u00f0ur fyrirhuga\u00f0 \u00fe\u00e1 hefur hann og tilskikka\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feeir skyldu ver\u00f0a saml\u00edkir hans sonar \u00edmynd so a\u00f0 hann sj\u00e1lfur s\u00e9 frumgetningur me\u00f0al margra br\u00e6\u00f0ra. En hverja hann hefur fyrirhuga\u00f0a \u00fe\u00e1 hefur hann og kalla\u00f0 en hverja hann hefur kalla\u00f0 \u00fe\u00e1 hefur hann og r\u00e9ttl\u00e1ta gj\u00f6rt en hverja hann hefur r\u00e9ttl\u00e6tta \u00fe\u00e1 hefur hann og d\u00fdr\u00f0arlega gj\u00f6rt.<\/p>\n<p>\tHva\u00f0 eigum v\u00e9r til a\u00f0 segja? Er Gu\u00f0 me\u00f0 oss, hver er \u00fe\u00e1 \u00e1 m\u00f3ti oss? Hver og eigi \u00feyrmdi s\u00ednum eiginlegum syni heldur gaf hann \u00fat fyrir oss alla, hvernin skyldi hann \u00fe\u00e1 eigi veita oss alla hluti me\u00f0 honum? Hver vill n\u00fa \u00fe\u00e1 \u00e1saka Gu\u00f0s \u00fatvalda menn? Gu\u00f0 er s\u00e1 sem r\u00e9ttl\u00e6tir. Hver er hann sem \u00fe\u00e1 ford\u00e6mir? Kristur er hann sem d\u00e1i\u00f0 hefur og einnin s\u00e1 sem uppvaktur er vakinn, hver a\u00f0 er til h\u00e6gri handar Gu\u00f0i og bi\u00f0ur fyrir oss.<\/p>\n<p>\tHver vill oss skilja fr\u00e1 Gu\u00f0s elsku? H\u00f6rmung e\u00f0ur m\u00f3tl\u00e6ti, ofs\u00f3kn e\u00f0ur hungur, vola\u00f0 e\u00f0ur h\u00e1ski e\u00f0ur sver\u00f0? So sem a\u00f0 skrifa\u00f0 er: &#8222;Fyrir \u00feig ver\u00f0um v\u00e9r deyddir allan dag og erum reikna\u00f0ir sem sau\u00f0ur til dr\u00e1ps \u00e6tla\u00f0ur.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Psal. 13\">[<\/span> Sennilega berum v\u00e9r langt af \u00feessu \u00f6llu vegna hans er oss elska\u00f0i. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg em \u00feess full\u00f6ruggur a\u00f0 hverki dau\u00f0i n\u00e9 l\u00edf, englar n\u00e9 h\u00f6f\u00f0ingjast\u00e9ttir e\u00f0a yfirvald og eigi hi\u00f0 n\u00e1l\u00e6ga n\u00e9 hi\u00f0 \u00f3komna, eigi h\u00e6\u00f0 e\u00f0a d\u00fdpt n\u00e9 nokkur \u00f6nnur skepna f\u00e6r oss skili\u00f0 fr\u00e1 Gu\u00f0s k\u00e6rleika hver a\u00f0 er \u00ed Drottni vorum Jes\u00fa Christo.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VIII. Svo er n\u00fa ekkert [ ford\u00e6milegt \u00e1 \u00feeim sem \u00ed Christo Jes\u00fa eru, \u00feeir sem eigi ganga eftir holdinu heldur eftir andanum. [ \u00dev\u00ed a\u00f0 l\u00f6gm\u00e1l \u00feess anda sem a\u00f0 l\u00edfgar \u00ed Christo Jes\u00fa hefur gj\u00f6rt mig frj\u00e1lsan af l\u00f6gm\u00e1li syndarinnar og dau\u00f0ans. \u00dev\u00ed hva\u00f0 l\u00f6gm\u00e1linu var \u00f3m\u00f6gulegt (me\u00f0 \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 krenktist fyrir holdi\u00f0) \u00fea\u00f0 gj\u00f6r\u00f0i Gu\u00f0 og sendi sinn son \u00ed l\u00edking syndugs holds og ford\u00e6mdi syndina \u00ed holdinu fyrir syndina so a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6tingin sem af l\u00f6gm\u00e1linu heimtist uppfylldist \u00ed oss sem eigi ganga eftir holdinu heldur eftir andanum. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir sem holdlegir eru eru holdlega sinna\u00f0ir <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/romverjabrefid-8-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3904","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3904","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3904"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3904\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3904"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}