{"id":3876,"date":"2017-12-18T18:34:57","date_gmt":"2017-12-18T18:34:57","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/postulasagan-8-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:57","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:57","slug":"postulasagan-8-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/postulasagan-8-kafli\/","title":{"rendered":"Postulasagan 8. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VIII.<\/p>\n<p>En Saul var samsinnandi hans dau\u00f0a. <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ Saulus ofs\u00f3knari safna\u00f0arins\">[<\/span> \u00de\u00e1 gj\u00f6r\u00f0ist og mikill \u00f3fri\u00f0ur \u00feeim safna\u00f0i sem var til Jer\u00fasalem. Og \u00feeir tv\u00edstru\u00f0ust allir burt um h\u00e9r\u00f6\u00f0 Judee og Samarie fyrir utan postularnir. En gu\u00f0hr\u00e6ddir menn bjuggu um Stephanum og b\u00e1ru yfir honum trega mikinn. En Saul t\u00f3k a\u00f0 ey\u00f0a s\u00f6fnu\u00f0inum, gangandi inn \u00ed \u00fdmsra h\u00fas, dragandi \u00fat menn og kvinnur og setti \u00ed var\u00f0h\u00f6ld.<\/p>\n<p>\tEn \u00feeir sem tv\u00edstra\u00f0ir voru f\u00f3ru um kring og pr\u00e9diku\u00f0u Gu\u00f0s or\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Ofs\u00f3knin er s\u00f6k hvar fyrir evangelium enn meir \u00fatbrei\u00f0ist\">[<\/span> Philippus f\u00f3r og ofan til borgarinnar \u00ed Samaria og pr\u00e9dika\u00f0i \u00feeim \u00fat af Christo. Og f\u00f3lki\u00f0 t\u00f3k me\u00f0 einu samheldi til a\u00f0 heyra og g\u00e6tur a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gefa sem af Philippo sag\u00f0ist, sj\u00e1andi og \u00feau teikn er hann gj\u00f6r\u00f0i. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00f3hreinir andar f\u00f3ru \u00fat af m\u00f6rgum \u00feeim er \u00f3\u00f0ir voru me\u00f0 \u00f3pi miklu. Margir iktsj\u00fakir og haltir ur\u00f0u og heilbrig\u00f0ir. Og mikill f\u00f6gnu\u00f0ur gj\u00f6r\u00f0ist \u00ed \u00feeirri borg.<\/p>\n<p>\tEn \u00fear var \u00e1\u00f0ur fyrri \u00ed \u00feeirri borg s\u00e1 nokkur sem S\u00edmon h\u00e9t, t\u00f6frama\u00f0ur, og t\u00e6ldi me\u00f0 \u00fev\u00ed hina samversku \u00fej\u00f3\u00f0 a\u00f0 hann sag\u00f0i sig vera nokkursh\u00e1ttar mikinn, hverjum \u00feeir hl\u00fdddu allir, fr\u00e1 hinum minnsta til ins mesta, segjandi: <span class=\"athugasemd\" title=\"S\u00edmon Magus\">[<\/span> &#8222;\u00deessi er kraftur Gu\u00f0s s\u00e1 er kallas hinn mikli.&#8220; En \u00feeir lutu honum af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann haf\u00f0i \u00ed langan t\u00edma \u00e6rt \u00fe\u00e1 me\u00f0 sinni fj\u00f6lkynngi. Og \u00fe\u00e1 \u00feeir tr\u00fa\u00f0u n\u00fa Philippo sem hann pr\u00e9dika\u00f0i af Gu\u00f0s r\u00edki og af nafni Jes\u00fa Christi sk\u00edr\u00f0ust b\u00e6\u00f0i menn og konur. <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Samaria sn\u00fdst til tr\u00faarinnar fyrir Philippum\">[<\/span> \u00de\u00e1 tr\u00fa\u00f0i og S\u00edmon sj\u00e1lfur. Og er hann var sk\u00edr\u00f0ur h\u00e9lt hann sig a\u00f0 Philippo. En \u00fe\u00e1 hann s\u00e1 \u00feau t\u00e1kn og kraftaverk sem ske\u00f0u t\u00f3k hann felmsfullur a\u00f0 undrast.<\/p>\n<p>\tEn er postularnir \u00feeir sem til Jer\u00fasalem voru heyr\u00f0u \u00fea\u00f0 a\u00f0 Samaria haf\u00f0i me\u00f0teki\u00f0 Gu\u00f0s or\u00f0 sendu \u00feeir til \u00feeirra Petrum og Johannem. <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Petrus og J\u00f3hannes sendir \u00ed Samariam\">[<\/span> Og \u00fe\u00e1 \u00feeir ofan komu b\u00e1\u00f0u \u00feeir fyrir \u00feeim so a\u00f0 \u00feeir me\u00f0t\u00e6ki heilagan anda. \u00dev\u00ed a\u00f0 hann var eigi enn kominn yfir nokkurn \u00feeirra nema \u00feeir voru a\u00f0eins sk\u00edr\u00f0ir \u00ed nafni Drottins Jes\u00fa Christi. \u00deeir l\u00f6g\u00f0u \u00fe\u00e1 hendur yfir \u00fe\u00e1 og \u00feeir me\u00f0t\u00f3ku heilagan anda.<\/p>\n<p>\tEn er S\u00edmon s\u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 heilagur andi var\u00f0 gefinn fyrir handaupplegging postulanna bau\u00f0 hann \u00feeim peninga og sag\u00f0i: &#8222;Gefi \u00fe\u00e9r m\u00e9r og \u00feetta vald so a\u00f0 yfir hvern er eg legg hendur a\u00f0 hann me\u00f0taki heilagan anda.&#8220; En P\u00e9tur sag\u00f0i til hans: <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ S\u00edmon Magus straffast af Petro\">[<\/span> &#8222;Peningur \u00feinn s\u00e9 me\u00f0 \u00fe\u00e9r til gl\u00f6tunar \u00fev\u00ed \u00fe\u00fa meintir Gu\u00f0s g\u00e1fu me\u00f0 peninga \u00fatvegast. Ekkert hlutskipti n\u00e9 g\u00e6fu lag ver\u00f0ur \u00fe\u00e9r af \u00feessu or\u00f0i \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feitt hjarta er eigi r\u00e9ttfer\u00f0ugt fyrir Gu\u00f0i. Fyrir \u00fev\u00ed gj\u00f6r i\u00f0ran fyrir \u00feessa \u00fe\u00edna illsku og bi\u00f0 Gu\u00f0 um ef ver\u00f0a m\u00e6tti a\u00f0 \u00fe\u00e9r fyrirgefist \u00feessi hugsan \u00fe\u00edns hjarta \u00fev\u00ed a\u00f0 eg s\u00e9 \u00feig vera me\u00f0 beisku galli og \u00ed fj\u00f6tri rangl\u00e6tisins.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 svara\u00f0i S\u00edmon og sag\u00f0i: &#8222;Bi\u00f0ji \u00fe\u00e9r fyrir m\u00e9r til Drottins so a\u00f0 ekkert komi yfir mig \u00fat af \u00fev\u00ed sem \u00fe\u00e9r s\u00f6g\u00f0u\u00f0.&#8220; En \u00feeir \u00fe\u00e1 e\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u vitna\u00f0 og tala\u00f0 or\u00f0 Drottins sneru \u00feeir aftur til Jer\u00fasalem og pr\u00e9diku\u00f0u gu\u00f0sspj\u00f6llin \u00ed m\u00f6rgum samverskum kaupt\u00fanum.<\/p>\n<p>\tEn engill Drottins tala\u00f0i til Philippo og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ Geldingurinn Bl\u00e1landsdrottningar gj\u00f6r\u00f0ist tr\u00faa\u00f0ur og sk\u00edr\u00f0ist af Philippo\">[<\/span> &#8222;Statt upp og gakk \u00ed su\u00f0ur \u00e1 \u00feeim veg sem liggur fr\u00e1 Jer\u00fasalem ofan til Gasa \u00feeirrar sem \u00ed ey\u00f0i er.&#8220; Hann st\u00f3\u00f0 upp og gekk \u00ed burt. Og sj\u00e1\u00f0u, a\u00f0 bl\u00e1lenskur ma\u00f0ur, geldingur og vildarmenni drottningarinnar Candases af Bl\u00e1landi, hver e\u00f0 yfir var settur allar hennar fj\u00e1rhirslur, hann var farinn til Jer\u00fasalem a\u00f0 tilbi\u00f0ja og f\u00f3r n\u00fa heim \u00ed veg og sat \u00ed s\u00ednum vagni, lesandi Esaiam sp\u00e1mann.<\/p>\n<p>\tEn andinn sag\u00f0i til Philippo: &#8222;Gakk \u00feanga\u00f0 a\u00f0 og teng \u00feig a\u00f0 \u00feeim vagni.&#8220; \u00de\u00e1 skunda\u00f0i Philippus \u00feanga\u00f0 a\u00f0 og heyr\u00f0i a\u00f0 hann var a\u00f0 lesa Esaiam sp\u00e1mann og sag\u00f0i: &#8222;Skilur \u00fe\u00fa ekki hva\u00f0 \u00fe\u00fa les?&#8220; En hann svara\u00f0i: &#8222;Hvernin m\u00e1 eg kunna \u00fea\u00f0 nema a\u00f0 nokkur lei\u00f0r\u00e9tti mig?&#8220; \u00de\u00e1 ba\u00f0 hann Philippum \u00fea\u00f0 hann st\u00edgi upp og s\u00e6ti hj\u00e1 s\u00e9r. En Ritningarinnihald \u00fea\u00f0 hann las var \u00feetta: &#8222;So sem sau\u00f0ur er hann til dr\u00e1ps leiddur og \u00feegandi sem lamb fyrir \u00feeim er \u00fea\u00f0 klippir, l\u00edka so hefur hann og eigi upploki\u00f0 s\u00ednum munni. \u00cd hans l\u00e6kkan er hans d\u00f3mur burt hafinn en hver mun hans aldur \u00fat mega segja? \u00dev\u00ed a\u00f0 hans l\u00edfdagar eru af j\u00f6r\u00f0unni \u00ed burt teknir.&#8220; \u00de\u00e1 svara\u00f0i geldingurinn Philippo og sag\u00f0i: &#8222;Eg bei\u00f0i \u00feig, af hverjum talar sp\u00e1ma\u00f0urinn \u00feetta? Sj\u00e1lfum s\u00e9r e\u00f0ur um nokkurn annan?&#8220;<\/p>\n<p>\tEn Philippus lauk upp s\u00ednum munni og t\u00f3k til \u00ed fr\u00e1 \u00feessari skrift og bo\u00f0a\u00f0i honum af Jes\u00fa. Og sem \u00feeir f\u00f3ru um veginn komu \u00feeir a\u00f0 vatni nokkru. Og geldingurinn sag\u00f0i: &#8222;Sj\u00e1\u00f0u vatni\u00f0, hva\u00f0 hamlar m\u00e9r \u00fea\u00f0 eg sk\u00edrunst eigi?&#8220; En Philippus sag\u00f0i: &#8222;Ef \u00fe\u00fa tr\u00fair af \u00f6llu hjarta \u00fe\u00e1 h\u00e6fir \u00fea\u00f0.&#8220; Hann svara\u00f0i og sag\u00f0i: &#8222;Eg tr\u00fai a\u00f0 Jes\u00fas Christus s\u00e9 Gu\u00f0s sonur.&#8220; Og hann bau\u00f0 a\u00f0 vagninn sta\u00f0n\u00e6mdist. Og \u00feeir stigu b\u00e1\u00f0ir ofan \u00ed vatni\u00f0, Philippus og geldingurinn, og hann veitti honum sk\u00edrn. En er \u00feeir voru upp komnir \u00far vatninu greip andi Drottins Philippum \u00ed burt og geldingurinn s\u00e1 hann eigi meira. Me\u00f0 \u00fea\u00f0 f\u00f3r hann gla\u00f0ur s\u00edna g\u00f6tu. En Philippus fannst \u00ed Asd\u00f3d, gekk um kring og pr\u00e9dika\u00f0i evangelium \u00ed \u00f6llum st\u00f6\u00f0um \u00fear til hann kom til Cesaream.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VIII. En Saul var samsinnandi hans dau\u00f0a. [ \u00de\u00e1 gj\u00f6r\u00f0ist og mikill \u00f3fri\u00f0ur \u00feeim safna\u00f0i sem var til Jer\u00fasalem. Og \u00feeir tv\u00edstru\u00f0ust allir burt um h\u00e9r\u00f6\u00f0 Judee og Samarie fyrir utan postularnir. En gu\u00f0hr\u00e6ddir menn bjuggu um Stephanum og b\u00e1ru yfir honum trega mikinn. En Saul t\u00f3k a\u00f0 ey\u00f0a s\u00f6fnu\u00f0inum, gangandi inn \u00ed \u00fdmsra h\u00fas, dragandi \u00fat menn og kvinnur og setti \u00ed var\u00f0h\u00f6ld. En \u00feeir sem tv\u00edstra\u00f0ir voru f\u00f3ru um kring og pr\u00e9diku\u00f0u Gu\u00f0s or\u00f0. [ Philippus f\u00f3r og ofan til borgarinnar \u00ed Samaria og pr\u00e9dika\u00f0i \u00feeim \u00fat af Christo. Og f\u00f3lki\u00f0 t\u00f3k me\u00f0 einu samheldi til a\u00f0 heyra <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/postulasagan-8-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3876","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3876","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3876"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3876\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3876"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}