{"id":3873,"date":"2017-12-18T18:34:57","date_gmt":"2017-12-18T18:34:57","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/postulasagan-5-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:57","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:57","slug":"postulasagan-5-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/postulasagan-5-kafli\/","title":{"rendered":"Postulasagan 5. kafli"},"content":{"rendered":"<p>V.<\/p>\n<p>En \u00feess konar ma\u00f0ur sem Anan\u00edas var a\u00f0 nafni me\u00f0ur h\u00fasfreyju sinni Saf\u00edra seldi eignir s\u00ednar og duldi af ver\u00f0inu a\u00f0 vitund sinnar h\u00fasfreyju en f\u00e6r\u00f0i suman hlut og lag\u00f0i til f\u00f3ta postulanna. <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ Hr\u00e6\u00f0ilegt straff hr\u00e6sninnar \u00e1 Anania og Sapira\">[<\/span> \u00de\u00e1 sag\u00f0i P\u00e9tur: &#8222;Anania, \u00fev\u00ed uppfylldi andskotinn hjarta \u00feitt so a\u00f0 \u00fe\u00fa lygir a\u00f0 heil\u00f6gum anda og duldir sumu af ver\u00f0aurum akursins? Var hann eigi \u00feinn a\u00f0 \u00f6llu? Og \u00fe\u00e1 hann var seldur var hann \u00ed \u00fe\u00ednu valdi. Fyrir \u00fev\u00ed settir \u00fe\u00fa sl\u00edkan hlut \u00fe\u00e9r \u00ed hjarta? eigi hefur \u00fe\u00fa logi\u00f0 a\u00f0 m\u00f6nnum heldur a\u00f0 Gu\u00f0i.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Vitnan um gu\u00f0d\u00f3m heilags anda\">[<\/span> En \u00fe\u00e1 Anan\u00edas heyr\u00f0i \u00feessi or\u00f0 datt hann ni\u00f0ur og gaf upp \u00f6ndina. Og hr\u00e6\u00f0sla mikil kom yfir alla \u00fe\u00e1 sem \u00fea\u00f0 heyr\u00f0u. En ungmennin st\u00f3\u00f0u upp og t\u00f3ku hann \u00ed burt, b\u00e1ru hann \u00fat og gr\u00f3fu hann.<\/p>\n<p>\tOg \u00fea\u00f0 ske\u00f0i innan skamms, n\u00e6rri \u00ferim stundum, a\u00f0 hans h\u00fasfreyja kom \u00fear inn og vissi eigi hva\u00f0 \u00fear haf\u00f0i gj\u00f6rst. En P\u00e9tur segir til hennar: &#8222;Seg \u00fe\u00fa m\u00e9r, kona, hvort \u00fei\u00f0 seldu\u00f0 akurinn svo d\u00fdrt?&#8220; H\u00fan sag\u00f0i: &#8222;J\u00e1, so d\u00fdrt.&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i P\u00e9tur til hennar: &#8222;Fyrir \u00fev\u00ed eru \u00fei\u00f0 sam\u00feykk or\u00f0in a\u00f0 freista anda Drottins? Sj\u00e1\u00f0u, f\u00e6tur \u00feeirra sem j\u00f6r\u00f0u\u00f0u mann \u00feinn eru fyrir dyrum \u00fati og \u00feeir munu \u00feig \u00fat bera.&#8220; Og jafnsnart datt h\u00fan ni\u00f0ur fyrir f\u00e6tur honum og gaf upp \u00f6ndina. En ungmennin komu inn og fundu hana dau\u00f0a, b\u00e1ru \u00fat og gr\u00f3fu hana hj\u00e1 manni s\u00ednum. Og miklum \u00f3tta sl\u00f3 yfir allan s\u00f6fnu\u00f0inn og yfir \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 heyr\u00f0u.<\/p>\n<p>\tEn m\u00f6rg t\u00e1kn og st\u00f3rmerki gj\u00f6r\u00f0ust me\u00f0 l\u00fd\u00f0num fyrir postulanna hendur. Og allir vor \u00feeir \u00e1samt me\u00f0 einum huga \u00ed forbyrgi Salomonis. Og \u00f6ngvir a\u00f0rir dirf\u00f0ust meir a\u00f0 samlaga sig \u00feeim heldur mikla\u00f0i \u00fe\u00e1 l\u00fd\u00f0urinn. \u00dear t\u00f3k og enn meir a\u00f0 aukast fj\u00f6ldi \u00feeirra karla og kvenna sem \u00e1 Drottin tr\u00fa\u00f0u so a\u00f0 \u00feeir b\u00e1ru \u00fat vanf\u00e6ra menn \u00e1 str\u00e6tin og l\u00f6g\u00f0u \u00fe\u00e1 \u00e1 s\u00e6ngur e\u00f0ur b\u00f6rur so \u00fe\u00e1 a\u00f0 P\u00e9tur k\u00e6mi a\u00f0 hans skuggi skygg\u00f0i yfir nokkra af \u00feeim. <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Skugginn Petri l\u00e6knar sj\u00faka\">[<\/span> \u00dear komu og margir til samans \u00fat af \u00feeim borgum sem \u00ed n\u00e1nd voru vi\u00f0 Jer\u00fasalem og f\u00e6r\u00f0u me\u00f0 s\u00e9r sj\u00faka menn og \u00fe\u00e1 sem af \u00f3hreinum \u00f6ndum kvaldir voru hverjir e\u00f0 allir ur\u00f0u heilbrig\u00f0ir.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 st\u00f3\u00f0 upp kennimannah\u00f6f\u00f0inginn og \u00feeir allir sem me\u00f0 honum voru (hverjir e\u00f0 eru villuflokkur Saduceo) og uppfylltust af vandl\u00e6ti og l\u00f6g\u00f0u hendur \u00e1 postulana og settu \u00fe\u00e1 inn \u00ed almennilegt var\u00f0hald. <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Ofs\u00f3kn \u00ed m\u00f3ti postulunum\">[<\/span> En engill Drottins kom um n\u00f3tt og lauk upp dyr myrkvastofunnar, leiddi \u00fe\u00e1 \u00fat og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Engillinn frelsar postulana\">[<\/span> &#8222;Fari\u00f0, st\u00edgi\u00f0 upp og tali\u00f0 til f\u00f3lksins \u00ed musterinu \u00f6ll \u00feessi l\u00edfsins or\u00f0.&#8220; \u00de\u00e1 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u \u00fea\u00f0 heyrt gengu \u00feeir inn \u00ed d\u00f6gun \u00ed musteri\u00f0 og t\u00f3ku a\u00f0 kenna.<\/p>\n<p>\tEn e\u00f0 kennimannah\u00f6f\u00f0inginn kom til og \u00feeir e\u00f0 me\u00f0 honum voru, k\u00f6llu\u00f0u \u00feeir saman r\u00e1\u00f0i\u00f0 og alla \u00f6ldunga \u00cdsraelssona og sendu til myrkvastofunnar \u00fe\u00e1 a\u00f0 s\u00e6kja. En \u00fe\u00e1 \u00fe\u00e9nararnir komu \u00fear og fundu \u00fe\u00e1 eigi \u00ed myrkvastofunni hurfu \u00feeir aftur og kunngj\u00f6r\u00f0u \u00feeim \u00fea\u00f0 og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Myrkvastofuna fundu v\u00e6r a\u00f0 s\u00f6nnu lukta me\u00f0 allri athygli og var\u00f0mennina standandi \u00fear framan fyrir dyrum en \u00fe\u00e1 v\u00e9r lukum upp fundu v\u00e9r \u00f6ngvan \u00fear inni.&#8220; En er kennima\u00f0urinn og yfirstj\u00f3rnari musterisins og a\u00f0rir fleiri kennimannah\u00f6f\u00f0ingjar heyr\u00f0u \u00feessi or\u00f0 t\u00f3ku \u00feeir a\u00f0 ver\u00f0a efablandnir um \u00fe\u00e1 hva\u00f0 af \u00feeim mundi hafa m\u00e1tt ver\u00f0a.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 kom \u00fear nokkur ma\u00f0ur. <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ Postularnir \u00e1sakast fyrir \u00f3hl\u00fd\u00f0ni\">[<\/span> S\u00e1 undirv\u00edsa\u00f0i \u00feeim: &#8222;Sj\u00e1i\u00f0, \u00feeir menn sem \u00fe\u00e9r settu\u00f0 \u00ed myrkvastofu eru \u00ed musterinu, standa og kenna \u00fear f\u00f3lkinu.&#8220; \u00de\u00e1 f\u00f3r yfirbo\u00f0arinn burt me\u00f0 \u00fe\u00e9nurunum og s\u00f3ttu \u00fe\u00e1 fyrir utan ofurvald \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00f3ttu\u00f0ust f\u00f3lki\u00f0 a\u00f0 \u00feeir mundi me\u00f0 grj\u00f3ti gr\u00fdttir ver\u00f0a. Og sem \u00feeir s\u00f3ttu \u00fe\u00e1 skikku\u00f0u \u00feeir \u00fe\u00e1 fyrir r\u00e1\u00f0i\u00f0. Kennimannah\u00f6f\u00f0inginn spur\u00f0i \u00fe\u00e1 a\u00f0 og sag\u00f0i: &#8222;H\u00f6fu v\u00e6r eigi af allri alv\u00f6ru bo\u00f0i\u00f0 y\u00f0ur a\u00f0 \u00fe\u00e9r skyldu\u00f0 eigi l\u00e6ra \u00ed \u00feessu nafni? Og sj\u00e1i\u00f0, \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 uppfyllt Jer\u00fasalem me\u00f0ur y\u00f0ra kenning og \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 so lei\u00f0a yfir oss \u00feessa manns bl\u00f3\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn P\u00e9tur svara\u00f0i og postularnir og s\u00f6g\u00f0u: <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ Opinberlegt andsvar Petri \u00e1minnandi til i\u00f0ranar\">[<\/span> &#8222;Framar ber a\u00f0 hl\u00fd\u00f0a Gu\u00f0i en m\u00f6nnum. Gu\u00f0 fe\u00f0ra vorra uppvakti Jes\u00fam hvern \u00fe\u00e9r l\u00edfi sviptu\u00f0 og upphengdu\u00f0 \u00e1 tr\u00e9\u00f0. \u00deennan hefur Gu\u00f0 me\u00f0 sinni h\u00e6gri hendi upphafi\u00f0 til eins h\u00f6f\u00f0ingja og lausnara a\u00f0 veita \u00cdsrael i\u00f0ran og syndanna fyrirgefning. Og v\u00e9r erum hans vottar til \u00feessara or\u00f0a og heilagur andi hvern e\u00f0 Gu\u00f0 gaf \u00f6llum \u00feeim er honum hl\u00fd\u00f0a.&#8220; En \u00fe\u00e1 \u00feeir heyr\u00f0u \u00fea\u00f0 sk\u00e1rust \u00feeir innan og hugsu\u00f0u s\u00e9r a\u00f0 l\u00edfl\u00e1ta \u00fe\u00e1. <\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 st\u00f3\u00f0 upp nokkur af Phariseis af r\u00e1\u00f0inu, Gamal\u00edel a\u00f0 nafni, einn l\u00f6gvitringur, mikilsvirtur af \u00f6llu f\u00f3lki, og bau\u00f0 a\u00f0 postularnir skyldu v\u00edkja \u00fat um stundarsakir og sag\u00f0i til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"8 \/ Grimmdar\u00e6\u00f0i Gy\u00f0inga stillir Gamal\u00edel\">[<\/span>&#8222;\u00de\u00e9r \u00cdsraelsmenn, taki\u00f0 y\u00f0ur \u00ed vakt hva\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 gj\u00f6ra vi\u00f0 \u00feessa menn. Fyrir \u00feessa daga reis upp Theudas, segandi sig nokkurn vera, hverjum a\u00f0 samsinnti tal manna n\u00e6r fj\u00f3rum hundru\u00f0um, hver a\u00f0 \u00ed hel er sleginn og allir \u00feeir sem honum tr\u00fa\u00f0u eru \u00ed sundurdreif\u00f0ir og a\u00f0 \u00f6ngvu gj\u00f6r\u00f0ir. Eftir hann st\u00f3\u00f0 upp J\u00fadas af Galilea \u00e1 sk\u00f6ttunard\u00f6gum og umsneri miklu f\u00f3lki eftir s\u00e9r. Og hann fyrirf\u00f3rst og allir so margir sem honum samsinntu eru \u00ed sundurtv\u00edstra\u00f0ir.<\/p>\n<p>\tOg n\u00fa segi eg y\u00f0ur: V\u00edki\u00f0 fr\u00e1 \u00feessum m\u00f6nnum og l\u00e1ti\u00f0 \u00fe\u00e1 kyrra. \u00dev\u00ed a\u00f0 ef \u00feetta r\u00e1\u00f0 e\u00f0ur verk er af m\u00f6nnum til \u00fe\u00e1 forgengur \u00fea\u00f0. En ef \u00fea\u00f0 er af Gu\u00f0i \u00fe\u00e1 megi \u00fe\u00e9r ei \u00fev\u00ed kefja so a\u00f0 ei s\u00fdnust \u00fe\u00e9r berjast Gu\u00f0i \u00ed m\u00f3ti.&#8220; \u00de\u00e1 samsinntu \u00feeir honum og k\u00f6llu\u00f0u \u00e1 postulana, str\u00fdktu \u00fe\u00e1 og bu\u00f0u \u00feeim a\u00f0 \u00feeir t\u00f6lu\u00f0u me\u00f0 \u00f6ngu m\u00f3ti \u00ed nafni Jes\u00fa og l\u00e9tu \u00fe\u00e1 fara.<\/p>\n<p>\tEn \u00feeir gengu a\u00f0 s\u00f6nnu gla\u00f0ir \u00ed burtu fr\u00e1 r\u00e1\u00f0sins \u00e1sj\u00e1n \u00fea\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u \u00feess ver\u00f0ugir veri\u00f0 a\u00f0 l\u00ed\u00f0a h\u00e1\u00f0ung fyrir Jes\u00fa nafns sakir. Og hvern dag \u00ed musterinu og \u00ed \u00f6\u00f0rum fleiri h\u00fasum g\u00e1fu \u00feeir ei upp a\u00f0 kenna og a\u00f0 pr\u00e9dika evangelium \u00fat af Jes\u00fa Christo.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>V. En \u00feess konar ma\u00f0ur sem Anan\u00edas var a\u00f0 nafni me\u00f0ur h\u00fasfreyju sinni Saf\u00edra seldi eignir s\u00ednar og duldi af ver\u00f0inu a\u00f0 vitund sinnar h\u00fasfreyju en f\u00e6r\u00f0i suman hlut og lag\u00f0i til f\u00f3ta postulanna. [ \u00de\u00e1 sag\u00f0i P\u00e9tur: &#8222;Anania, \u00fev\u00ed uppfylldi andskotinn hjarta \u00feitt so a\u00f0 \u00fe\u00fa lygir a\u00f0 heil\u00f6gum anda og duldir sumu af ver\u00f0aurum akursins? Var hann eigi \u00feinn a\u00f0 \u00f6llu? Og \u00fe\u00e1 hann var seldur var hann \u00ed \u00fe\u00ednu valdi. Fyrir \u00fev\u00ed settir \u00fe\u00fa sl\u00edkan hlut \u00fe\u00e9r \u00ed hjarta? eigi hefur \u00fe\u00fa logi\u00f0 a\u00f0 m\u00f6nnum heldur a\u00f0 Gu\u00f0i.&#8220; [ En \u00fe\u00e1 Anan\u00edas heyr\u00f0i \u00feessi or\u00f0 datt hann <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/postulasagan-5-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3873","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3873","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3873"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3873\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3873"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}