{"id":3866,"date":"2017-12-18T18:34:57","date_gmt":"2017-12-18T18:34:57","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-19-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:57","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:57","slug":"johannesargudspjall-19-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-19-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3hannesargu\u00f0spjall 19. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XIX.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 t\u00f3k P\u00edlatus Jes\u00fam og l\u00e9t str\u00fdkja hann. <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ Christus h\u00fa\u00f0str\u00fdktur, \u00feyrnum kr\u00fdndum og spotta\u00f0ur\">[<\/span> Og str\u00ed\u00f0smennirnir fl\u00e9ttu\u00f0u k\u00f3r\u00f3nu af \u00feyrnum og settu \u00e1 hans h\u00f6fu\u00f0, f\u00e6r\u00f0u hann og \u00ed purpurakl\u00e6\u00f0i og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Heill s\u00e9rtu, konungur Gy\u00f0inga!&#8220; og g\u00e1fu honum p\u00fastra. \u00de\u00e1 gekk P\u00edlatus \u00fat aftur og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Sj\u00e1i\u00f0, eg lei\u00f0i hann n\u00fa \u00fat til y\u00f0ar so a\u00f0 \u00fe\u00e9r viti\u00f0 \u00fea\u00f0 eg finn \u00f6ngva s\u00f6k me\u00f0 honum.&#8220; \u00de\u00e1 gekk Jes\u00fas \u00fat berandi \u00feyrnik\u00f3r\u00f3nu og eitt purpurakl\u00e6\u00f0i. Og hann sag\u00f0i til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Yfirlitur Christi. Esaie liii. V\u00e9r s\u00e1um hann, et ct.\">[<\/span> &#8222;Sj\u00e1i\u00f0 manninn!&#8220; \u00de\u00e1 er kennimannah\u00f6f\u00f0ingjarnir og \u00fe\u00e9nararnir s\u00e1u hann k\u00f6llu\u00f0u \u00feeir, so segjandi: &#8222;Krossfestu, krossfestu hann!&#8220; P\u00edlatus sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Taki \u00fe\u00e9r hann og krossfesti\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 eg finn \u00f6ngva s\u00f6k me\u00f0 honum.&#8220; \u00de\u00e1 sv\u00f6ru\u00f0u honum Gy\u00f0ingar: &#8222;V\u00e9r h\u00f6fum og l\u00f6g og eftir vorum l\u00f6gum skal hann deyja \u00fev\u00ed a\u00f0 hann gj\u00f6r\u00f0i sig sj\u00e1lfan a\u00f0 Gu\u00f0s syni!&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 P\u00edlatus heyr\u00f0i \u00feessi or\u00f0 \u00f3tta\u00f0ist hann enn meir og gekk inn aftur \u00ed \u00feingh\u00fasi\u00f0 og sag\u00f0i til Jes\u00fa: <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Samtal Christi og Pilati um vald veraldlegrar valdstj\u00f3rnar\">[<\/span> &#8222;Hva\u00f0an ert \u00fe\u00fa?&#8220; En Jes\u00fas gaf honum eigi svar. \u00de\u00e1 sag\u00f0i P\u00edlatus til hans: &#8222;Talar \u00fe\u00fa eigi vi\u00f0 mig? Veist \u00fe\u00fa eigi a\u00f0 eg hefi vald til a\u00f0 l\u00e1ta krossfesta \u00feig og eg hefi vald til a\u00f0 gefa \u00feig lausan?&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i: &#8222;Eigi hef\u00f0ir \u00fe\u00fa nokkurt vald yfir m\u00e9r nema \u00fe\u00e9r v\u00e6ri \u00fea\u00f0 gefi\u00f0 h\u00e9r ofan a\u00f0. Fyrir \u00fev\u00ed hefur s\u00e1 meiri synd er mig seldi \u00fe\u00e9r.&#8220; Og eftir \u00fea\u00f0 leita\u00f0i P\u00edlatus vi\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta hann lausan. En Gy\u00f0ingar hr\u00f3pu\u00f0u og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Ef \u00fe\u00fa l\u00e6tur \u00feennan lausan \u00fe\u00e1 ertu ekki keisarans vinur \u00fev\u00ed a\u00f0 hver sem sig gj\u00f6rir konung hann m\u00e6lir \u00ed m\u00f3ti keisaranum.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 P\u00edlatus heyr\u00f0i \u00feessi or\u00f0 leiddi hann Jes\u00fam \u00fat og setti sig \u00e1 d\u00f3mst\u00f3l \u00ed \u00feeim sta\u00f0 sem kallast H\u00e1ifl\u00f6tur en \u00e1 ebresku Gabbata. <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Christus d\u00e6mdur til dau\u00f0a\">[<\/span> En \u00fea\u00f0 var \u00e1 affangadegi p\u00e1ska, n\u00e6rri s\u00e9ttu stund. \u00de\u00e1 segir hann til Gy\u00f0inga: &#8222;Sj\u00e1i\u00f0 konung y\u00f0varn!&#8220; En \u00feeir k\u00f6llu\u00f0u: &#8222;Tak \u00ed burt, krossfestu hann!&#8220; P\u00edlatus sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Skal eg krossfesta konung y\u00f0varn?&#8220; Kennimannah\u00f6f\u00f0ingjarnir sv\u00f6ru\u00f0u: &#8222;\u00d6ngvan h\u00f6fum v\u00e6r konung nema keisarann!&#8220; \u00de\u00e1 seldi hann \u00feeim hann a\u00f0 hann krossfestist.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 t\u00f3ku \u00feeir Jes\u00fam og leiddu hann \u00fea\u00f0an. <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Gj\u00f6rningar utan borgar \u00ed aft\u00f6kusta\u00f0num\">[<\/span> Hann sj\u00e1lfur bar sinn kross og gekk \u00fat \u00ed \u00feann sta\u00f0 sem kallast H\u00f6fu\u00f0skeljasta\u00f0ur en \u00e1 ebresku Golgata, hvar \u00feeir krossfestu hann og tvo a\u00f0ra me\u00f0 honum sinn til hvorrar handar en Jes\u00fa \u00ed mi\u00f0i\u00f0. P\u00edlatus skrifa\u00f0i eina yfirskrift og setti hana upp yfir krossinn. <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ Yfirskriftin yfir Jes\u00fa\">[<\/span> En so var skrifa\u00f0: &#8222;Jes\u00fas af Na\u00f0saret, Gy\u00f0inga k\u00f3ngur.&#8220; \u00deessa yfirskrift l\u00e1su margir af Gy\u00f0ingum \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e1 sta\u00f0ur var n\u00e6rri borginni er Jes\u00fas var krossfestur \u00e1. En \u00fea\u00f0 var skrifa\u00f0 \u00e1 ebresku, g\u00edrsku og lat\u00ednu. \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u kennimannah\u00f6f\u00f0ingjarnir og Gy\u00f0ingar vi\u00f0 Pilatum: &#8222;Skrifa \u00fe\u00fa eigi: Konungur Gy\u00f0inga, heldur \u00fea\u00f0 hann hef\u00f0i sagt: Eg em konungur Gy\u00f0inga.&#8220; P\u00edlatus svara\u00f0i: &#8222;Hva\u00f0 eg skrifa\u00f0i \u00fea\u00f0 hefi eg skrifa\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 str\u00ed\u00f0smenn h\u00f6f\u00f0u krossfest Jes\u00fam t\u00f3ku \u00feeir hans kl\u00e6\u00f0na\u00f0 og gj\u00f6r\u00f0u \u00e1 fj\u00f6gra hluta skipti, s\u00e9rhverjum str\u00ed\u00f0smanni sinn hlut, og \u00fear me\u00f0 kyrtilinn. <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ Hlutskipti kl\u00e6\u00f0anna Christi \/ Psal. 22\">[<\/span> En kyrtillinn var eigi sauma\u00f0ur heldur fr\u00e1 ofanver\u00f0u allur prj\u00f3na\u00f0ur. \u00de\u00e1 t\u00f6lu\u00f0u \u00feeir s\u00edn \u00ed milli: &#8222;Skeru v\u00e6r hann ei, hlutust heldur um e\u00f0 hvers hann skal vera.&#8220; So a\u00f0 Ritningin uppfylldist er segir: &#8222;\u00deeir skiptu me\u00f0 s\u00e9r kl\u00e6\u00f0um m\u00ednum og \u00e1 mitt fat \u00fe\u00e1 l\u00f6g\u00f0u \u00feeir hlutkesti.&#8220; Og \u00feetta gj\u00f6r\u00f0u n\u00fa str\u00ed\u00f0smennirnir.<\/p>\n<p>\tEn \u00fear st\u00f3\u00f0u vi\u00f0 krossinn hj\u00e1 Jes\u00fa m\u00f3\u00f0ir hans og m\u00f3\u00f0irsystir hans Mar\u00eda h\u00fasfr\u00fa Kle\u00f3fas og Mar\u00eda Magdalena. <span class=\"athugasemd\" title=\"8 \/ M\u00f3\u00f0urin \u00e1 hendur falin Johanni\">[<\/span> \u00de\u00e1 Jes\u00fas s\u00e1 n\u00fa s\u00edna m\u00f3\u00f0ur og \u00feann l\u00e6risvein n\u00e6rstandandi er hann elska\u00f0i segir hann til sinnar m\u00f3\u00f0ur: &#8222;Kona, sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fear er \u00feinn sonur.&#8220; Eftir \u00fea\u00f0 segir hann til l\u00e6risveinsins: &#8222;S\u00e9, \u00fea\u00f0 er \u00fe\u00edn m\u00f3\u00f0ir.&#8220; Og upp fr\u00e1 \u00feeirri stundu t\u00f3k l\u00e6risveinninn hana a\u00f0 s\u00e9r.<\/p>\n<p>\tEftir \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 Jes\u00fas vissi a\u00f0 allt var n\u00fa fullkomna\u00f0 og a\u00f0 Ritningin uppfylldist \u00fe\u00e1 segir hann: <span class=\"athugasemd\" title=\"9 \/ Jes\u00fam \u00feyrstir\">[<\/span> &#8222;\u00deystir mig.&#8220; \u00dear var sett eitt ker fullt af ediki en \u00feeir t\u00f3ku \u00fea\u00f0 og fylltu einn njar\u00f0arv\u00f6tt me\u00f0 edik og l\u00f6g\u00f0u \u00ed \u00fds\u00f3p, settu s\u00ed\u00f0an fyrir munn honum. En \u00fe\u00e1 Jes\u00fas haf\u00f0i ediki\u00f0 til s\u00edn teki\u00f0 sag\u00f0i hann: &#8222;\u00dea\u00f0 er fullkomna\u00f0.&#8220; Og a\u00f0 hneig\u00f0u h\u00f6f\u00f0i \u00fe\u00e1 l\u00e9t hann sinn anda. <span class=\"athugasemd\" title=\"10 \/ Jes\u00fas andast \/ Deut. 16\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEn af \u00fev\u00ed a\u00f0 tilfangadagur Gy\u00f0inga var og a\u00f0 l\u00edkamarnir v\u00e6ri eigi \u00e1 krossinum um \u00fevottdaginn \u0096 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 var hinn mikli dagur \u00fevottdagshelginnar \u0096 \u00fe\u00e1 b\u00e1\u00f0u \u00feeir Pilatum a\u00f0 \u00feeirra bein brytust og \u00ed burt t\u00e6kist. <span class=\"athugasemd\" title=\"11 \/ Spillvirkjanna bein brj\u00f3tast\">[<\/span> \u00de\u00e1 komu str\u00ed\u00f0smenn og brutu sundur bein hins fyrra og so hins annars sem me\u00f0 honum voru krossfestir. En \u00fe\u00e1 \u00feeir komu til Jes\u00fa, s\u00e1u hann n\u00fa og dau\u00f0an, \u00fe\u00e1 brutu \u00feeir ei hans bein heldur lag\u00f0i einn af str\u00ed\u00f0sm\u00f6nnum \u00ed hans s\u00ed\u00f0u me\u00f0 spj\u00f3ti og strax \u00fe\u00e1 rann \u00fat bl\u00f3\u00f0 og vatn. <span class=\"athugasemd\" title=\"12 \/ S\u00ed\u00f0an Jes\u00fa opnast\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tOg s\u00e1 er \u00fea\u00f0 hefur s\u00e9\u00f0 ber \u00fear vitni um og hans vitnisbur\u00f0ur er r\u00e9ttur og hann sami veit \u00fea\u00f0 a\u00f0 hann segir satt svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r tr\u00fai\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feetta var ske\u00f0 svo a\u00f0 Ritningin uppfylldist: <span class=\"athugasemd\" title=\"Exo. 12\">[<\/span> &#8222;Eigi skulu \u00fe\u00e9r brj\u00f3ta nokku\u00f0 hans bein.&#8220; Og enn aftur segir \u00f6nnur Ritning: <span class=\"athugasemd\" title=\"Zacha. 12\">[<\/span> &#8222;\u00deeir munu sj\u00e1 \u00feann \u00ed hvern \u00feeir stungu.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn eftir \u00feetta ba\u00f0 J\u00f3sef af Arimathia (hver e\u00f0 var l\u00e6risveinn Jes\u00fa, \u00fe\u00f3 heimuglegur fyrir \u00f3tta sakir vi\u00f0 Gy\u00f0inga) Pilatum um a\u00f0 hann m\u00e6tti taka burt l\u00edkama Jes\u00fa. <span class=\"athugasemd\" title=\"13 \/ Greftranin Christi\">[<\/span> \u00dea\u00f0 leyf\u00f0i P\u00edlatus. \u00dear kom og Nik\u00f3demus, s\u00e1 er fyrri kom um n\u00f3tt til Jes\u00fa, f\u00e6randi samblanda\u00f0a myrru vi\u00f0 aloe, n\u00e6r hundra\u00f0 punda. \u00de\u00e1 t\u00f3ku \u00feeir l\u00edkamann Jes\u00fa og sveipu\u00f0u \u00ed l\u00edni me\u00f0 ilmandi smyrslum so sem si\u00f0ur er til Gy\u00f0inga a\u00f0 greftra. En \u00fear \u00ed \u00feeim sta\u00f0 sem hann var krossfestur var grasgar\u00f0ur og \u00ed grasgar\u00f0inum var n\u00fd stein\u00fer\u00f3 \u00ed hverja a\u00f0 enginn haf\u00f0i enn veri\u00f0 lag\u00f0ur. \u00deanga\u00f0 l\u00f6g\u00f0u \u00feeir Jes\u00fam fyrir sakir affangadagsins Gy\u00f0inga \u00fea\u00f0 s\u00fa gr\u00f6f var so n\u00e6r.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XIX. \u00de\u00e1 t\u00f3k P\u00edlatus Jes\u00fam og l\u00e9t str\u00fdkja hann. [ Og str\u00ed\u00f0smennirnir fl\u00e9ttu\u00f0u k\u00f3r\u00f3nu af \u00feyrnum og settu \u00e1 hans h\u00f6fu\u00f0, f\u00e6r\u00f0u hann og \u00ed purpurakl\u00e6\u00f0i og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Heill s\u00e9rtu, konungur Gy\u00f0inga!&#8220; og g\u00e1fu honum p\u00fastra. \u00de\u00e1 gekk P\u00edlatus \u00fat aftur og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Sj\u00e1i\u00f0, eg lei\u00f0i hann n\u00fa \u00fat til y\u00f0ar so a\u00f0 \u00fe\u00e9r viti\u00f0 \u00fea\u00f0 eg finn \u00f6ngva s\u00f6k me\u00f0 honum.&#8220; \u00de\u00e1 gekk Jes\u00fas \u00fat berandi \u00feyrnik\u00f3r\u00f3nu og eitt purpurakl\u00e6\u00f0i. Og hann sag\u00f0i til \u00feeirra: [ &#8222;Sj\u00e1i\u00f0 manninn!&#8220; \u00de\u00e1 er kennimannah\u00f6f\u00f0ingjarnir og \u00fe\u00e9nararnir s\u00e1u hann k\u00f6llu\u00f0u \u00feeir, so segjandi: &#8222;Krossfestu, krossfestu hann!&#8220; P\u00edlatus sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Taki <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-19-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3866","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3866","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3866"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3866\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3866"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}