{"id":3863,"date":"2017-12-18T18:34:57","date_gmt":"2017-12-18T18:34:57","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-16-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:57","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:57","slug":"johannesargudspjall-16-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-16-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3hannesargu\u00f0spjall 16. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XVI.<\/p>\n<p>En \u00feetta tala eg til y\u00f0ar so a\u00f0 \u00fe\u00e9r hneykslist eigi \u00fev\u00ed \u00feeir munu forbo\u00f0a y\u00f0ur. <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ \u00c1minning um kross og m\u00f3tgang fyrir or\u00f0sins sakir\">[<\/span> Og s\u00e1 t\u00edmi kemur a\u00f0 hver y\u00f0ur l\u00edfl\u00e6tur hann meinar sig gj\u00f6ra \u00fe\u00e6gt verk Gu\u00f0i. Og \u00feetta gj\u00f6ra \u00feeir y\u00f0ur af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00feekkja hverki f\u00f6\u00f0urinn n\u00e9 mig. En \u00feetta tala eg \u00fev\u00ed til y\u00f0ar a\u00f0 n\u00e6r s\u00fa stund kemur \u00fe\u00e1 skulu \u00fe\u00e9r minnast \u00fear \u00e1 a\u00f0 eg sag\u00f0a y\u00f0ur \u00fea\u00f0. En \u00feetta sag\u00f0a eg y\u00f0ur eigi \u00ed upphafi \u00fev\u00ed eg var hj\u00e1 y\u00f0ur.<\/p>\n<p>\tOg n\u00fa fer eg til hans sem mig sendi og enginn y\u00f0ar spyr mig: Hvert fer \u00fe\u00fa? Heldur af \u00fev\u00ed eg tala\u00f0i \u00feetta til y\u00f0ar \u00fe\u00e1 uppfylldist y\u00f0art hjarta af hrygg\u00f0. En eg segi y\u00f0ur \u00fe\u00f3 sannleikinn: <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Huggan vegna hans burtfarar\">[<\/span> \u00dea\u00f0 batar y\u00f0ur a\u00f0 eg fari h\u00e9\u00f0an \u00fev\u00ed a\u00f0 ef eg fer eigi h\u00e9\u00f0an \u00fe\u00e1 kemur eigi huggarinn til y\u00f0ar. En ef eg fer h\u00e9\u00f0an \u00fe\u00e1 mun eg senda hann til y\u00f0ar. Og \u00fe\u00e1 hann kemur straffar hann heiminn fyrir synd og fyrir r\u00e9ttl\u00e6ti og fyrir d\u00f3m. <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Um emb\u00e6tti heilags anda\">[<\/span> Fyrir syndina \u00fev\u00ed \u00feeir tr\u00fa\u00f0u ei \u00e1 mig. En fyrir r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 eg fer til f\u00f6\u00f0ursins og \u00fea\u00f0an af sj\u00e1i \u00fe\u00e9r mig eigi. En fyrir d\u00f3minn \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feessa heims h\u00f6f\u00f0ingi er d\u00e6mdur.<\/p>\n<p>\tEnn hefi eg margt a\u00f0 segja y\u00f0ur en \u00fe\u00e9r f\u00e1i\u00f0 eigi allt bori\u00f0 a\u00f0 sinni. <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Sami l\u00e6rd\u00f3mur Christi og heilags anda\">[<\/span> N\u00e6r a\u00f0 kemur s\u00e1 sannleiksandi \u00fe\u00e1 mun hann kenna y\u00f0ur allan sannleik. \u00dev\u00ed a\u00f0 eigi talar hann af sj\u00e1lfum s\u00e9r heldur hva\u00f0 hann heyr\u00f0i \u00fea\u00f0 talar hann og hva\u00f0 \u00f3komi\u00f0 er \u00fea\u00f0 kunngj\u00f6rir hann y\u00f0ur. Hann sami mun og augl\u00fdsa mig \u00fev\u00ed a\u00f0 af m\u00ednu mun hann \u00fea\u00f0 taka og kunngj\u00f6ra y\u00f0ur. Allt hva\u00f0 minn fa\u00f0ir hefur \u00fea\u00f0 er mitt. Fyrir \u00fea\u00f0 sag\u00f0a eg a\u00f0 af m\u00ednu mun hann \u00fea\u00f0 taka og kunngj\u00f6ra y\u00f0ur.<\/p>\n<p>\tUm l\u00edtinn t\u00edma \u00fe\u00e1 munu \u00fe\u00e9r eigi sj\u00e1 mig og enn aftur um l\u00edtinn t\u00edma \u00fe\u00e1 munu \u00fe\u00e9r sj\u00e1 mig \u00fev\u00ed a\u00f0 eg fer til f\u00f6\u00f0ursins.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Fyrirs\u00f6gn um hans dau\u00f0a og upprisu\">[<\/span> \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u hans l\u00e6risveinar s\u00edn \u00e1 milli: <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ Breyskleiki l\u00e6risveinanna\">[<\/span> &#8222;Hva\u00f0 er \u00fea\u00f0 a\u00f0 hann sag\u00f0i oss: Um l\u00edtinn t\u00edma \u00fe\u00e1 munu \u00fe\u00e9r ei sj\u00e1 mig og enn aftur um l\u00edtinn t\u00edma \u00fe\u00e1 munu \u00fe\u00e9r sj\u00e1 mig \u00fev\u00ed a\u00f0 eg fer til f\u00f6\u00f0ursins?&#8220; \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u \u00feeir: &#8222;Hva\u00f0 er \u00fea\u00f0 hann segir: Um l\u00edtinn t\u00edma? V\u00e9r vitum eigi hva\u00f0 hann segir.&#8220; \u00de\u00e1 fornam Jes\u00fas a\u00f0 \u00feeir vildu spyrja hann og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00de\u00e9r spyrji\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed y\u00f0ar \u00e1 milli a\u00f0 eg sag\u00f0a: Um l\u00edtinn t\u00edma \u00fe\u00e1 munu \u00fe\u00e9r ei sj\u00e1 mig og \u00fe\u00e1 aftur um l\u00edtinn t\u00edma munu \u00fe\u00e9r sj\u00e1 mig? Sannlega, sannlega segi eg y\u00f0ur: <span class=\"athugasemd\" title=\"Krossinn\">[<\/span> \u00de\u00e9r munu\u00f0 gr\u00e1ta og syrgja en heimurinn mun fagna. \u00de\u00e9r ver\u00f0i\u00f0 hryggvir en y\u00f0ar hrygg\u00f0 skal sn\u00faast \u00ed f\u00f6gnu\u00f0.<\/p>\n<p>\tKonan n\u00e6r h\u00fan skal f\u00e6\u00f0a \u00fe\u00e1 hefir h\u00fan hrygg\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hennar stund er komin. En \u00fe\u00e1 h\u00fan hefir barni\u00f0 f\u00e6tt minnist h\u00fan eigi \u00feess harmkv\u00e6lis fyrir fagna\u00f0arsakir \u00fev\u00ed ma\u00f0ur er \u00ed heiminn borinn. \u00de\u00e9r hafi n\u00fa hrygg\u00f0 en eg skal sj\u00e1 y\u00f0ur aftur og y\u00f0art hjarta skal fagna og y\u00f0varn f\u00f6gnu\u00f0 skal enginn af y\u00f0ur taka. \u00c1 \u00feeim degi munu \u00fe\u00e9r mig og einkis spyrja. Sannlega, sannlega segi eg y\u00f0ur: <span class=\"athugasemd\" title=\"8 \/ \u00c1minning um b\u00e6nahald og fyrirheit\">[<\/span> Hvers \u00fe\u00e9r bi\u00f0ji\u00f0 f\u00f6\u00f0urinn \u00ed m\u00ednu nafni \u00fea\u00f0 mun hann gefa y\u00f0ur. Hinga\u00f0 til hafi \u00fe\u00e9r einskis be\u00f0i\u00f0 \u00ed m\u00ednu nafni. Bi\u00f0ji\u00f0, \u00fe\u00e1 munu \u00fe\u00e9r me\u00f0taka so a\u00f0 y\u00f0ar f\u00f6gnu\u00f0ur fullkomnist.<\/p>\n<p>\t\u00deetta hefi eg tala\u00f0 \u00ed or\u00f0skvi\u00f0um til y\u00f0ar. S\u00e1 t\u00edmi kemur a\u00f0 eg tala eigi lengur \u00ed or\u00f0skvi\u00f0i til y\u00f0ar heldur kunngj\u00f6ri eg y\u00f0ur berlega af m\u00ednum f\u00f6\u00f0ur. \u00c1 \u00feeim degi munu \u00fe\u00e9r og bi\u00f0ja \u00ed m\u00ednu nafni. Og eigi segi eg y\u00f0ur a\u00f0 eg muni bi\u00f0ja f\u00f6\u00f0urinn fyrir y\u00f0ur \u00fev\u00ed a\u00f0 sj\u00e1lfur fa\u00f0irinn elskar y\u00f0ur af \u00fev\u00ed \u00fe\u00e9r elski\u00f0 mig og tr\u00fai\u00f0 \u00fea\u00f0 eg s\u00e9 af Gu\u00f0i \u00fatgenginn. <span class=\"athugasemd\" title=\"9 \/ Huggan Gu\u00f0s f\u00f6\u00f0urlegrar elsku\">[<\/span> Eg em af f\u00f6\u00f0urnum \u00fatgenginn og kominn \u00ed \u00feennan heim. Eg fyrirl\u00e6t og aftur \u00feennan heim og fer til f\u00f6\u00f0ursins.&#8220;<\/p>\n<p>\tHans l\u00e6risveinar segja \u00fe\u00e1 til hans: &#8222;S\u00e9, n\u00fa talar \u00fe\u00fa berlega og m\u00e6lir \u00f6ngva or\u00f0skvi\u00f0u. N\u00fa vitum v\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00fa veist alla hluti og \u00fe\u00fa \u00fearft eigi a\u00f0 nokkur spyrji \u00feig. Fyrir \u00fea\u00f0 tr\u00faum v\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00e9rt af Gu\u00f0i \u00fatgenginn.&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i \u00feeim: <span class=\"athugasemd\" title=\"10 \/ Fyrirs\u00f6gn um fl\u00f3tta og tv\u00edstran l\u00e6risveinanna\">[<\/span> &#8222;N\u00fa tr\u00fai \u00fe\u00e9r. Sj\u00e1i\u00f0, s\u00fa stund kemur og er n\u00fa \u00feegar komin a\u00f0 \u00fe\u00e9r sundrist hver til sinna og l\u00e1ti\u00f0 mig einan saman. En eg er \u00fe\u00f3 ei einnsaman \u00fev\u00ed a\u00f0 fa\u00f0irinn er me\u00f0 m\u00e9r. <\/p>\n<p>\t\u00deetta tala eg \u00fev\u00ed til y\u00f0ar a\u00f0 \u00fe\u00e9r hef\u00f0u\u00f0 fri\u00f0 \u00ed m\u00e9r. \u00cd heiminum hafi \u00fe\u00e9r h\u00f6rmung en veri\u00f0 \u00fe\u00f3 hughraustir \u00fev\u00ed eg yfirvann heiminn.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XVI. En \u00feetta tala eg til y\u00f0ar so a\u00f0 \u00fe\u00e9r hneykslist eigi \u00fev\u00ed \u00feeir munu forbo\u00f0a y\u00f0ur. [ Og s\u00e1 t\u00edmi kemur a\u00f0 hver y\u00f0ur l\u00edfl\u00e6tur hann meinar sig gj\u00f6ra \u00fe\u00e6gt verk Gu\u00f0i. Og \u00feetta gj\u00f6ra \u00feeir y\u00f0ur af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00feekkja hverki f\u00f6\u00f0urinn n\u00e9 mig. En \u00feetta tala eg \u00fev\u00ed til y\u00f0ar a\u00f0 n\u00e6r s\u00fa stund kemur \u00fe\u00e1 skulu \u00fe\u00e9r minnast \u00fear \u00e1 a\u00f0 eg sag\u00f0a y\u00f0ur \u00fea\u00f0. En \u00feetta sag\u00f0a eg y\u00f0ur eigi \u00ed upphafi \u00fev\u00ed eg var hj\u00e1 y\u00f0ur. Og n\u00fa fer eg til hans sem mig sendi og enginn y\u00f0ar spyr mig: Hvert fer \u00fe\u00fa? <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-16-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3863","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3863","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3863"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3863\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3863"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}