{"id":3859,"date":"2017-12-18T18:34:57","date_gmt":"2017-12-18T18:34:57","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-12-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:57","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:57","slug":"johannesargudspjall-12-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-12-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3hannesargu\u00f0spjall 12. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XII.<\/p>\n<p>Sex d\u00f6gum fyrir p\u00e1ska kom Jes\u00fas \u00ed Bethania \u00fear sem Lasarus hinn framli\u00f0ni var hvern e\u00f0 Jes\u00fas haf\u00f0i uppvaki\u00f0 af dau\u00f0a. <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ Kveldm\u00e1lt\u00ed\u00f0in \u00ed Bethania\">[<\/span> En \u00feeir bjuggu honum \u00fear eina kveldm\u00e1lt\u00ed\u00f0 og Marta \u00fej\u00f3na\u00f0i. Lasarus var einn af \u00feeim sem til bor\u00f0sins s\u00e1tu me\u00f0 honum. \u00de\u00e1 t\u00f3k Mar\u00eda eitt pund smyrsla af hinu sk\u00e6rasta og d\u00fdrm\u00e6tasta narden og smur\u00f0i me\u00f0 f\u00e6turnar Jes\u00fa og \u00feurrka\u00f0i so hans f\u00e6tur me\u00f0ur s\u00ednum h\u00e1rlokkum. <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Mar\u00eda smyr f\u00e6tur Jes\u00fa\">[<\/span> H\u00fasi\u00f0 fylltist og upp af ilm smyrslanna. \u00de\u00e1 sag\u00f0i einn af hans l\u00e6risveinum, J\u00fadas S\u00edmonsson \u00cdskar\u00edot, s\u00e1 er hann sveik \u00fear eftir: &#8222;Fyrir \u00fev\u00ed eru \u00feessi smyrsl ekki seld fyrir \u00ferj\u00fa hundru\u00f0 peninga og gefi\u00f0 f\u00e1t\u00e6kum?&#8220; \u00deetta sag\u00f0i hann eigi af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hirti um f\u00e1t\u00e6ka heldur af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann var \u00fej\u00f3fur og haf\u00f0i f\u00e9pyngjuna og bar \u00fea\u00f0 sem gefi\u00f0 var. \u00de\u00e1 sag\u00f0i Jes\u00fas: &#8222;L\u00e1t hana \u00ed fri\u00f0i. \u00deetta geymdi h\u00fan til m\u00edns greftrunardags. Vola\u00f0a hafi \u00fe\u00e9r jafnan hj\u00e1 y\u00f0ur en mig hafi \u00fe\u00e9r eigi a\u00f0 jafna\u00f0i.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn er fj\u00f6ldi mikill af Gy\u00f0ingum fornam a\u00f0 hann var \u00fear sj\u00e1lfur komu \u00feeir ei einasta \u00feanga\u00f0 fyrir Jes\u00fa sakir heldur a\u00f0 \u00feeir s\u00e6i Lazarum \u00feann sem hann haf\u00f0i af dau\u00f0a reist. <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ R\u00e1\u00f0agj\u00f6r\u00f0 a\u00f0 l\u00edfl\u00e1ta b\u00e6\u00f0i Jes\u00fam og Lazarum\">[<\/span> En prestah\u00f6f\u00f0ingjar samt\u00f3ku og \u00fea\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta \u00ed hel sl\u00e1 Lazarum \u00fev\u00ed a\u00f0 fyrir hans sakir gengu margir af Gy\u00f0ingum \u00feanga\u00f0 og tr\u00fa\u00f0u \u00e1 Jes\u00fam.<\/p>\n<p>\tAnnan dag eftir \u00fe\u00e1 e\u00f0 l\u00fd\u00f0urinn heyr\u00f0i sem til h\u00e1t\u00ed\u00f0ardagsins var kominn a\u00f0 Jes\u00fas kom til Jer\u00fasalem \u00fe\u00e1 t\u00f3ku \u00feeir s\u00e9r kvistu af p\u00e1lmvi\u00f0i og gengu \u00fat \u00ed m\u00f3ti honum og hr\u00f3pu\u00f0u: <span class=\"athugasemd\" title=\"Innrei\u00f0in Christi \u00ed Jer\u00fasalem, \u00feess sanna p\u00e1skalambs gefandi sig viljuglega til f\u00f3rnf\u00e6ringarinnar\">[<\/span> &#8222;H\u00f3s\u00edanna! Blessa\u00f0ur s\u00e9 s\u00e1 sem kemur \u00ed nafni Drottins, konungur \u00cdsraels!&#8220; En Jes\u00fas f\u00e9kk eina \u00f6snu og rei\u00f0 \u00fear \u00e1, so sem skrifa\u00f0 er: &#8222;\u00d3ttast \u00fe\u00fa eigi, d\u00f3ttir S\u00edon. S\u00e9, \u00feinn konungur kemur r\u00ed\u00f0andi \u00e1 einum \u00f6snufola.&#8220; En \u00feetta skildi eigi hans l\u00e6risveinar \u00ed fyrstu heldur \u00fe\u00e1 e\u00f0 Jes\u00fas var augl\u00fdstur \u00fe\u00e1 hugleiddu \u00feeir a\u00f0 \u00feetta var af honum skrifa\u00f0 og \u00feeir h\u00f6f\u00f0u honum \u00feetta gj\u00f6rt.<\/p>\n<p>\tEn \u00fea\u00f0 f\u00f3lk bar honum vitni sem hj\u00e1 var \u00fe\u00e1 hann kalla\u00f0i Lazarum \u00far gr\u00f6finni og af dau\u00f0a upp vakti. Af \u00fev\u00ed gekk m\u00fagaf\u00f3lki\u00f0 \u00fat \u00ed m\u00f3ti honum \u00fea\u00f0 heyr\u00f0i a\u00f0 hann haf\u00f0i gj\u00f6rt soddan teikn. En Pharisei s\u00f6g\u00f0u s\u00edn \u00e1 milli: &#8222;\u00de\u00e9r sj\u00e1i\u00f0 n\u00fa a\u00f0 v\u00e9r orkum \u00f6ngu. S\u00e9, allur heimur fer eftir honum.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00dear voru og nokkrir Grikkir me\u00f0ur \u00feeim sem upp h\u00f6f\u00f0u fari\u00f0 a\u00f0 tilbi\u00f0ja um h\u00e1t\u00ed\u00f0ina. <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Metna\u00f0ur postulanna hugsandi jafnan um holdlegt r\u00edki Christi\">[<\/span> \u00deeir gengu til Philippo hver e\u00f0 var af Betsa\u00edda \u00far Galilea, b\u00e1\u00f0u hann og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Herra, v\u00e9r vildum f\u00e1 a\u00f0 sj\u00e1 Jes\u00fam.&#8220; Philippus kom og sag\u00f0i \u00fea\u00f0 Andrea en Andreas og Philippus s\u00f6g\u00f0u \u00fea\u00f0 Jes\u00fa. En Jes\u00fas ansa\u00f0i \u00feeim og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ \u00c1v\u00edtan og fyrirs\u00f6gn um hans dau\u00f0a, um kross kristninnar og hennar forklaran\">[<\/span> &#8222;S\u00e1 t\u00edmi er n\u00fa kominn a\u00f0 Sonur mannsins augl\u00fdsist. Sannlega, sannlega segi eg y\u00f0ur: Nema \u00fea\u00f0 a\u00f0 fr\u00e6korni\u00f0 falli \u00ed j\u00f6r\u00f0ina og deyi \u00fe\u00e1 bl\u00edfur \u00fea\u00f0 einsaman allt. En ef \u00fea\u00f0 deyr \u00fe\u00e1 f\u00e6rir \u00fea\u00f0 mikinn \u00e1v\u00f6xt. Hver hann elskar sitt l\u00edf hann glatar \u00fev\u00ed en hver hann hatar sitt l\u00edf \u00ed \u00feessum heimi s\u00e1 var\u00f0veitir \u00fea\u00f0 til eil\u00edfs l\u00edfs. Ef nokkur vill m\u00e9r \u00fej\u00f3na \u00fe\u00e1 fylgi hann m\u00e9r eftir. Og hvar eg em \u00fear skal og minn \u00fe\u00e9nari vera. Ef nokkur \u00fej\u00f3nar m\u00e9r \u00fe\u00e1 mun minn fa\u00f0ir hann hei\u00f0ra.<\/p>\n<p>\tM\u00edn s\u00e1la er n\u00fa hrygg. <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ Hrygg\u00f0 og angist Christi\">[<\/span> Og hva\u00f0 skal eg segja? Fa\u00f0ir, frelsa \u00fe\u00fa mig af \u00feessum t\u00edma? En fyrir \u00fev\u00ed kom eg \u00fe\u00f3 \u00ed \u00feennan t\u00edma. Fa\u00f0ir, birtu nafn \u00feitt.&#8220; \u00de\u00e1 kom r\u00f6dd af himni, so segjandi: <span class=\"athugasemd\" title=\"8 \/ F\u00f6\u00f0ursins vitnan \u00fat af Christo\">[<\/span> &#8222;Eg hefi \u00fea\u00f0 uppbirt og eg skal \u00fea\u00f0 enn uppbirta.&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i f\u00f3lki\u00f0 sem hj\u00e1 st\u00f3\u00f0 og \u00e1heyr\u00f0i: &#8222;\u00dear ur\u00f0u rei\u00f0ar\u00ferumur.&#8220; A\u00f0rir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Engill tala\u00f0i vi\u00f0 hann.&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i: &#8222;Eigi kom \u00feessi r\u00f6dd fyrir m\u00ednar sakir heldur fyrir sakir y\u00f0ar.<\/p>\n<p>\tN\u00fa er kominn d\u00f3mur \u00feessa heims. N\u00fa mun og \u00feessa heims h\u00f6f\u00f0ingi \u00fatrekast. Og fyrst eg ver\u00f0 upphafinn af j\u00f6r\u00f0u \u00fe\u00e1 mun eg draga allt til m\u00edn sj\u00e1lfs.&#8220; En \u00feetta sag\u00f0i hann, teiknandi me\u00f0 hverjum dau\u00f0a er hann skyldi deyja. \u00de\u00e1 svara\u00f0i f\u00f3lki\u00f0 honum: &#8222;V\u00e9r h\u00f6fum heyrt \u00far l\u00f6gunum a\u00f0 Kristur bl\u00edfi a\u00f0 eil\u00edfu. Hvernin segir \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 a\u00f0 Mannsins syni byrjar upp a\u00f0 hefjast? Hver er s\u00e1 Mannsins sonur?&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i Jes\u00fas til \u00feeirra: &#8222;Lj\u00f3si\u00f0 er stutta stund hj\u00e1 y\u00f0ur. Gangi\u00f0 \u00fev\u00ed \u00e1 me\u00f0an \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 lj\u00f3si\u00f0 svo a\u00f0 myrkurin gr\u00edpi y\u00f0ur eigi. S\u00e1 er gengur \u00ed myrkrunum hann veiti eigi hvert hann fer. \u00c1 me\u00f0an \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 lj\u00f3si\u00f0 \u00fe\u00e1 tr\u00fai\u00f0 \u00e1 lj\u00f3si\u00f0 upp \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 synir lj\u00f3ssins.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00deetta tala\u00f0i Jes\u00fas og gekk burt s\u00ed\u00f0an og for\u00f0a\u00f0i s\u00e9r fyrir \u00feeim. Og \u00fe\u00f3tt hann gj\u00f6r\u00f0i sl\u00edk teikn fyrir \u00feeim \u00fe\u00e1 tr\u00fa\u00f0u \u00feeir \u00fe\u00f3 eigi \u00e1 hann so a\u00f0 uppfylldist or\u00f0saga Esaja sp\u00e1manns \u00fe\u00e1 hann sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"9 \/ Vantr\u00fa og fr\u00e1leitur blindleiki Gy\u00f0inga\">[<\/span> &#8222;Herra, hver tr\u00fa\u00f0i vorri pr\u00e9dikan og hverjum er armleggur Drottins opinbera\u00f0ur?&#8220; Fyrir \u00fea\u00f0 m\u00e1ttu \u00feeir eigi tr\u00faa \u00fea\u00f0 Esajas segir enn \u00ed \u00f6\u00f0rum sta\u00f0: &#8222;Hann blinda\u00f0i augu \u00feeirra og forherti hj\u00f6rtu \u00feeirra so a\u00f0 \u00feeir sj\u00e1i eigi me\u00f0 augunum n\u00e9 skilji me\u00f0 hjartanu a\u00f0 \u00feeir umsn\u00faist svo eg gr\u00e6\u00f0i \u00fe\u00e1.&#8220; \u00deetta sag\u00f0i Esajas \u00fe\u00e1 hann leit hans d\u00fdr\u00f0 og tala\u00f0i af honum. Margir af h\u00f6f\u00f0ingjunum tr\u00fa\u00f0u \u00fe\u00f3 \u00e1 hann en fyrir sakir Phariseis \u00fe\u00e1 me\u00f0kenndu \u00feeir \u00fea\u00f0 eigi svo a\u00f0 \u00feeir v\u00e6ri eigi forbo\u00f0a\u00f0ir. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir elsku\u00f0u meir vegsemd manna en Gu\u00f0s d\u00fdr\u00f0.<\/p>\n<p>\tJes\u00fas kalla\u00f0i \u00fe\u00e1 og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"10 \/ Alvarleg og brennandi \u00e1minning og pr\u00e9dikan til tr\u00faarinnar\">[<\/span> &#8222;Hver sem \u00e1 mig tr\u00fair hann tr\u00fair ei \u00e1 mig heldur \u00e1 hann sem mig sendi. Og hver hann s\u00e9r mig hann s\u00e9r \u00feann sem mig sendi. Eg er lj\u00f3s \u00ed heiminn kominn svo a\u00f0 hver sem \u00e1 mig tr\u00fair bl\u00edfi eigi \u00ed myrkrunum. Og ef nokkur heyrir m\u00edn or\u00f0 og tr\u00fair ekki hann mun eg ei d\u00e6ma. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg kom eigi a\u00f0 d\u00e6ma heiminn heldur a\u00f0 frelsa heiminn. Hver hann fyrirl\u00edtur mig og me\u00f0tekur eigi m\u00edn or\u00f0 hann hefir \u00feann hann d\u00e6mir. <span class=\"athugasemd\" title=\"11 \/ H\u00f3tan Gu\u00f0s or\u00f0s forsm\u00e1nara\">[<\/span> \u00dea\u00f0 or\u00f0 sem eg tala\u00f0i \u00fea\u00f0 mun d\u00e6ma hann \u00e1 efsta degi. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg tala\u00f0i ei af sj\u00e1lfum m\u00e9r heldur fa\u00f0irinn s\u00e1 mig sendi, hann gaf m\u00e9r sj\u00e1lfur bo\u00f0or\u00f0 til hva\u00f0 eg skyldi segja e\u00f0ur m\u00e6la. Og eg veit a\u00f0 hans bo\u00f0or\u00f0 er eil\u00edft l\u00edf. <span class=\"athugasemd\" title=\"12 \/ Ver\u00f0laun r\u00e9tttr\u00faa\u00f0ara er eil\u00edft l\u00edf\">[<\/span> \u00dear fyrir \u00fea\u00f0 eg tala, \u00fea\u00f0 tala eg so so sem fa\u00f0irinn sag\u00f0i m\u00e9r.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XII. Sex d\u00f6gum fyrir p\u00e1ska kom Jes\u00fas \u00ed Bethania \u00fear sem Lasarus hinn framli\u00f0ni var hvern e\u00f0 Jes\u00fas haf\u00f0i uppvaki\u00f0 af dau\u00f0a. [ En \u00feeir bjuggu honum \u00fear eina kveldm\u00e1lt\u00ed\u00f0 og Marta \u00fej\u00f3na\u00f0i. Lasarus var einn af \u00feeim sem til bor\u00f0sins s\u00e1tu me\u00f0 honum. \u00de\u00e1 t\u00f3k Mar\u00eda eitt pund smyrsla af hinu sk\u00e6rasta og d\u00fdrm\u00e6tasta narden og smur\u00f0i me\u00f0 f\u00e6turnar Jes\u00fa og \u00feurrka\u00f0i so hans f\u00e6tur me\u00f0ur s\u00ednum h\u00e1rlokkum. [ H\u00fasi\u00f0 fylltist og upp af ilm smyrslanna. \u00de\u00e1 sag\u00f0i einn af hans l\u00e6risveinum, J\u00fadas S\u00edmonsson \u00cdskar\u00edot, s\u00e1 er hann sveik \u00fear eftir: &#8222;Fyrir \u00fev\u00ed eru \u00feessi smyrsl ekki seld fyrir <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-12-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3859","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3859","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3859"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3859\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3859"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}