{"id":3857,"date":"2017-12-18T18:34:53","date_gmt":"2017-12-18T18:34:53","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-10-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:53","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:53","slug":"johannesargudspjall-10-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-10-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3hannesargu\u00f0spjall 10. kafli"},"content":{"rendered":"<p>X.<\/p>\n<p>Sannlega, sannlega segi eg y\u00f0ur: <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ Grein \u00e1 milli g\u00f3\u00f0ra og vondra hir\u00f0ara\">[<\/span> Hver hann gengur eigi inn um dyrnar \u00ed sau\u00f0ah\u00fasi\u00f0 heldur st\u00edgur hann inn me\u00f0 \u00f6\u00f0rum h\u00e6tti, s\u00e1 er \u00fej\u00f3fur og spillvirki. En s\u00e1 sem gengur inn um dyrnar, hann er hir\u00f0ir sau\u00f0anna. Fyrir honum l\u00fdkur dyrav\u00f6r\u00f0urinn upp og sau\u00f0irnir heyra hans r\u00f6dd og hann kallar s\u00edna sau\u00f0i me\u00f0 nafni, lei\u00f0ir \u00fe\u00e1 og \u00fat. Og \u00fe\u00e1 hann hefur s\u00edna sau\u00f0i \u00fat l\u00e1ti\u00f0 gengur hann frammi fyrir \u00feeim. Sau\u00f0irnir fylgja honum og eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00feekkja hans r\u00f6dd. En \u00f6\u00f0rum annarlegum fylgja \u00feeir ei eftir heldur fl\u00fdja \u00feeir fr\u00e1 honum \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir kenna eigi annarlega r\u00f6dd.&#8220; \u00deennan m\u00e1lsh\u00e1tt tala\u00f0i Jes\u00fas til \u00feeirra en \u00feeir vissu eigi hva\u00f0 hann sag\u00f0i \u00feeim.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i Jes\u00fas enn aftur til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ \u00datlegging m\u00e1lsh\u00e1ttarins\">[<\/span> &#8222;Sannlega, sannlega segi eg y\u00f0ur: Eg em dyr sau\u00f0anna. Allir hverjir helst fyri m\u00e9r komu \u00feeir voru \u00fej\u00f3far og spillvirkjar og sau\u00f0irnir hl\u00fdddu \u00feeim eigi. Eg em dyrnar. Ef nokkur gengur inn um mig, s\u00e1 mun frelsast. Hann mun og ganga \u00fat og inn og finna sitt f\u00f3\u00f0ur. \u00dej\u00f3furinn kemur ei til annars en hann steli, drepi og fordjarfi. Eg em kominn til \u00feess a\u00f0 \u00feeir skyldu hafa l\u00edf og fulla gn\u00e6g\u00f0.<\/p>\n<p>\tEg em g\u00f3\u00f0ur hir\u00f0ir. <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Greinarmunur \u00e1 milli Christi \u00feess \u00e6\u00f0sta hir\u00f0is og annarra g\u00f3\u00f0ra hir\u00f0ara\">[<\/span> G\u00f3\u00f0ur hir\u00f0ir gefur sitt l\u00edf \u00fat fyrir s\u00edna sau\u00f0i. En leiguma\u00f0urinn, s\u00e1 eigi er hir\u00f0ir og hvers sau\u00f0irnir eru eigi eiginlegir, hann s\u00e9r \u00falfinn komanda og yfirgefur sau\u00f0ina og fl\u00fdr en \u00falfurinn gr\u00edpur og sundurdreifir sau\u00f0unum. En leiguma\u00f0urinn fl\u00fdr af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann er leiguma\u00f0ur og hir\u00f0ir ekki um sau\u00f0ina. Eg em g\u00f3\u00f0ur hir\u00f0ir og eg \u00feekki m\u00edna sau\u00f0i og eg \u00feekkjunst af m\u00ednum, so sem a\u00f0 \u00feekkir mig minn fa\u00f0ir og eg \u00feekki f\u00f6\u00f0urinn. Og mitt l\u00edf legg eg \u00fat fyrir m\u00edna sau\u00f0i. Eg hefi og a\u00f0ra sau\u00f0i sem eigi eru af \u00feessu sau\u00f0ah\u00fasi. \u00de\u00e1 byrjar m\u00e9r og hinga\u00f0 til a\u00f0 lei\u00f0a og \u00feeir munu heyra m\u00edna r\u00f6dd og \u00fear mun ver\u00f0a eitt sau\u00f0ah\u00fas og einn hir\u00f0ir. <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Kallan hei\u00f0ingja\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tFyrir \u00fev\u00ed elskar mig minn fa\u00f0ir a\u00f0 eg legg \u00fat l\u00edf mitt. <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ \u00deetta vald og emb\u00e6tti heyrir Christo alleina til\">[<\/span> Eg tek \u00fea\u00f0 og aftur. Enginn tekur \u00fea\u00f0 og af m\u00e9r heldur legg eg \u00fea\u00f0 \u00fat af m\u00e9r sj\u00e1lfur. Eg hefi vald til \u00fea\u00f0 af a\u00f0 leggja, eg hefi og vald til \u00fea\u00f0 aftur a\u00f0 taka. \u00deetta bo\u00f0or\u00f0 f\u00e9kk eg af m\u00ednum f\u00f6\u00f0ur.&#8220; \u00de\u00e1 var\u00f0 enn sundur\u00feykkja \u00ed millum Gy\u00f0inga fyrir sakir \u00feessara or\u00f0a. En margir af \u00feeim s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Dj\u00f6fulinn hefur hann og \u00f3\u00f0ur er hann, til hvers heyri \u00fe\u00e9r honum?&#8220; A\u00f0rir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;\u00deessi or\u00f0 eru einskis \u00f3\u00f0s manns. F\u00e6r dj\u00f6fullinn nokku\u00f0 blinds manns augum upploki\u00f0?&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 gj\u00f6r\u00f0ist musterisv\u00edgsla til Jer\u00fasalem. <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ Tjaldb\u00fa\u00f0arh\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00feann xv novembris\">[<\/span> \u00dea\u00f0 var um vetur. Og Jes\u00fas gekk \u00ed musterinu \u00ed forbyrgi Salomonis. \u00de\u00e1 umkringdu hann J\u00fa\u00f0ar og s\u00f6g\u00f0u til hans: &#8222;Hversu lengi \u00fe\u00e1 heldur \u00fe\u00fa vorri s\u00e1lu upp? Ef \u00fe\u00fa ert Christus \u00fe\u00e1 seg oss \u00fea\u00f0 berlega.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ Spurning: Ert \u00fe\u00fa Christus?\">[<\/span> Jes\u00fas svara\u00f0i \u00feeim: <span class=\"athugasemd\" title=\"8 \/ Vitnisbur\u00f0ur um gu\u00f0d\u00f3minn Christi\">[<\/span> &#8222;Eg sag\u00f0a y\u00f0ur \u00fea\u00f0 en \u00fe\u00e9r tr\u00fai\u00f0 eigi. \u00deau verk er eg gj\u00f6ri \u00ed m\u00edns f\u00f6\u00f0urs nafni bera vitni af m\u00e9r. En \u00fe\u00e9r tr\u00fai\u00f0 eigi \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r eru\u00f0 eigi af m\u00ednum sau\u00f0um so sem eg sag\u00f0a y\u00f0ur. \u00dev\u00ed m\u00ednir sau\u00f0ir heyra m\u00edna r\u00f6dd. Eg \u00feekki \u00fe\u00e1 og \u00feeir fylgja m\u00e9r eftir og eg gef \u00feeim eil\u00edft l\u00edf og eigi skulu \u00feeir fyrifarast a\u00f0 eil\u00edfu. Enginn skal \u00fe\u00e1 og gr\u00edpa \u00far minni hendi. Fa\u00f0ir minn, s\u00e1 e\u00f0 m\u00e9r gaf \u00fe\u00e1, hann er \u00f6llum meiri og enginn f\u00e6r \u00fe\u00e1 gripi\u00f0 af m\u00edns f\u00f6\u00f0urs hendi. Eg og fa\u00f0irinn erum eitt.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 t\u00f3ku Gy\u00f0ingar enn steina upp a\u00f0 gr\u00fdta hann. Jes\u00fas svara\u00f0i \u00feeim \u00fe\u00e1: &#8222;M\u00f6rg g\u00f3\u00f0verk s\u00fdndi eg y\u00f0ur af m\u00ednum f\u00f6\u00f0ur. Fyrir hvers verks sakir \u00fe\u00e1 vilji \u00fe\u00e9r gr\u00fdta mig?&#8220; Gy\u00f0ingar sv\u00f6ru\u00f0u honum \u00fe\u00e1 so segjandi: &#8222;Fyrir gott verk gr\u00fdtu v\u00e9r \u00feig eigi heldur fyrir \u00fe\u00e1 gu\u00f0lastan \u00fear sem \u00fe\u00fa ert ma\u00f0ur og gj\u00f6rir \u00feig sj\u00e1lfan a\u00f0 Gu\u00f0i.&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i \u00feeim: <span class=\"athugasemd\" title=\"9 \/ Jes\u00fas bev\u00edsar sig a\u00f0 vera Gu\u00f0s f\u00f6\u00f0urs son\">[<\/span> &#8222;Er eigi so skrifa\u00f0 \u00ed y\u00f0ru l\u00f6gm\u00e1li: Eg sag\u00f0a \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e9r eru\u00f0 gu\u00f0ir? N\u00fa ef \u00fea\u00f0 kalar \u00fe\u00e1 gu\u00f0i til hverra Gu\u00f0s or\u00f0 eru ske\u00f0 \u0096 og Ritningin m\u00e1 eigi rj\u00fafast \u0096 en vi\u00f0 \u00feann sem fa\u00f0irinn helga\u00f0i og \u00ed heiminn sendi \u00fe\u00e1 segi \u00fe\u00e9r: \u00de\u00fa gu\u00f0lastar, af \u00fev\u00ed eg sag\u00f0a: Eg em sonur Gu\u00f0s. Ef eg gj\u00f6ri ekki m\u00edns f\u00f6\u00f0urs verk \u00fe\u00e1 tr\u00fai\u00f0 m\u00e9r ekki. N\u00fa fyrst eg gj\u00f6ri \u00feau \u00fe\u00e1 tr\u00fai\u00f0 verkunum \u00fe\u00f3 \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 m\u00e9r ekki tr\u00faa so a\u00f0 \u00fe\u00e9r kenni\u00f0 og tr\u00fai\u00f0 \u00fea\u00f0 fa\u00f0irinn s\u00e9 me\u00f0ur m\u00e9r og eg me\u00f0ur honum.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00deeir s\u00f3ttu \u00fe\u00e1 enn til a\u00f0 gr\u00edpa hann en hann gekk \u00fat fr\u00e1 \u00feeirra h\u00f6ndum og f\u00f3r aftur \u00ed \u00feann sta\u00f0 hinumegin J\u00f3rdanar sem J\u00f3hannes haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur sk\u00edrt og var \u00fear. Margir komu til hans og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;J\u00f3hannes gj\u00f6r\u00f0i a\u00f0 v\u00edsu ekkert teikn en allt hva\u00f0 J\u00f3hannes sag\u00f0i af \u00feessum \u00fea er satt.&#8220; Og margir tr\u00fa\u00f0u \u00fear \u00e1 hann.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>X. Sannlega, sannlega segi eg y\u00f0ur: [ Hver hann gengur eigi inn um dyrnar \u00ed sau\u00f0ah\u00fasi\u00f0 heldur st\u00edgur hann inn me\u00f0 \u00f6\u00f0rum h\u00e6tti, s\u00e1 er \u00fej\u00f3fur og spillvirki. En s\u00e1 sem gengur inn um dyrnar, hann er hir\u00f0ir sau\u00f0anna. Fyrir honum l\u00fdkur dyrav\u00f6r\u00f0urinn upp og sau\u00f0irnir heyra hans r\u00f6dd og hann kallar s\u00edna sau\u00f0i me\u00f0 nafni, lei\u00f0ir \u00fe\u00e1 og \u00fat. Og \u00fe\u00e1 hann hefur s\u00edna sau\u00f0i \u00fat l\u00e1ti\u00f0 gengur hann frammi fyrir \u00feeim. Sau\u00f0irnir fylgja honum og eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00feekkja hans r\u00f6dd. En \u00f6\u00f0rum annarlegum fylgja \u00feeir ei eftir heldur fl\u00fdja \u00feeir fr\u00e1 honum \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir kenna <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-10-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3857","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3857","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3857"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3857\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3857"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}