{"id":3855,"date":"2017-12-18T18:34:53","date_gmt":"2017-12-18T18:34:53","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-8-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:53","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:53","slug":"johannesargudspjall-8-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-8-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3hannesargu\u00f0spjall 8. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VIII.<\/p>\n<p>Jes\u00fas gekk \u00fe\u00e1 \u00ed fjalli\u00f0 Oliveti. Og a\u00f0 morni \u00ed d\u00f6gun kom hann aftur \u00ed musteri\u00f0 og allt f\u00f3lki\u00f0 kom til hans. Hann setti sig og l\u00e6r\u00f0i \u00fea\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00d6nnur pr\u00e9dikan a\u00f0 enda\u00f0ri h\u00e1t\u00ed\u00f0inni\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEn hinir l\u00f6gkl\u00f3ku og far\u00edsear leiddu fram fyrir hann \u00fe\u00e1 konu sem \u00ed h\u00f3rd\u00f3mi var gripin og settu hana \u00fear \u00ed mi\u00f0i\u00f0 og s\u00f6g\u00f0u til hans: <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ Af \u00feeirri kvinnu sem fallin var \u00ed h\u00f3rd\u00f3m\">[<\/span> &#8222;Meistari, \u00feessi kona er n\u00fa fundin \u00ed h\u00f3rd\u00f3mi en Moyses b\u00fd\u00f0ur oss \u00ed l\u00f6gm\u00e1linu a\u00f0 berja \u00feess h\u00e1ttar menn grj\u00f3ti. E\u00f0a hva\u00f0 segir \u00fe\u00fa til?&#8220; En \u00feetta s\u00f6g\u00f0u \u00feeir af \u00fev\u00ed \u00feeir freistu\u00f0u hans a\u00f0 \u00feeir m\u00e6ttu so \u00e1k\u00e6ra hann. En Jes\u00fas laut ni\u00f0ur og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Hver y\u00f0ar sem er \u00e1n syndar kasti s\u00e1 fyrstur steini \u00e1 hana.&#8220; \u00de\u00e1 laut hann ni\u00f0ur aftur og rita\u00f0i \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina. \u00de\u00e1 \u00feeir heyr\u00f0u \u00feetta og \u00feeirra samviska straffa\u00f0i \u00fe\u00e1 gekk einn eftir \u00f6\u00f0rum \u00fat, fyrstir \u00fe\u00f3 \u00f6ldungarnir. Jes\u00fas var \u00fe\u00e1 einn eftir og konan \u00fear standandi mitt fyrir honum. En \u00fe\u00e1 Jes\u00fas r\u00e9tti sig upp og s\u00e1 \u00fear \u00f6ngvan nema konuna sag\u00f0i hann til hennar: <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Greinarmunur \u00e1 milli andlegs valds og veraldlegs\">[<\/span> &#8222;Kona, hvar eru \u00feeir sem \u00feig \u00e1klaga? Hefir nokkur ford\u00e6mt \u00feig?&#8220; En h\u00fan sag\u00f0i: &#8222;Herra, enginn.&#8220; Jes\u00fas sag\u00f0i henni \u00fe\u00e1: &#8222;Eigi mun eg ford\u00e6ma \u00feig heldur. Gakk h\u00e9\u00f0an og syndga n\u00fa ei oftar h\u00e9\u00f0an af.&#8220;<\/p>\n<p>\tJes\u00fas tala\u00f0i enn aftur til \u00feeirra so segandi: <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Greinarmunur \u00e1 milli Mosen, sp\u00e1mannanna, postulanna og Christum\">[<\/span> &#8222;Eg em lj\u00f3s heimsins. Hver hann fylgir m\u00e9r eftir s\u00e1 gengur ei \u00ed myrkrunum heldur hefur hann lj\u00f3s l\u00edfsins.&#8220; \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u Pharisei til hans: &#8222;\u00de\u00fa ber vitni af sj\u00e1lfum \u00fe\u00e9r, \u00feinn vitnisbur\u00f0ur er eigi sannur.&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Ef eg ber af sj\u00e1lfum m\u00e9r vitni \u00fe\u00e1 er minn vitnisbur\u00f0ur sannur \u00fev\u00ed eg veit hva\u00f0an eg kom og hvert a\u00f0 eg fer. En \u00fe\u00e9r viti\u00f0 eigi hva\u00f0an eg kom e\u00f0ur hvert eg fer. \u00de\u00e9r d\u00e6mi\u00f0 eftir holdinu. Eg d\u00e6mi \u00f6ngvan en ef eg d\u00e6mi \u00fe\u00e1 er minn d\u00f3mur r\u00e9ttur \u00fev\u00ed a\u00f0 eg er eigi einnsaman heldur eg og s\u00e1 fa\u00f0ir er mig sendi. So er og skrifa\u00f0 \u00ed l\u00f6gum y\u00f0ar a\u00f0 tveggja manna vitnisbur\u00f0ur s\u00e9 sannur. Eg em s\u00e1 sem af m\u00e9r sj\u00e1lfum ber vitni og fa\u00f0irinn s\u00e1 mig sendi hann ber og af m\u00e9r vitni.&#8220; \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u \u00feeir til hans: <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ H\u00e6\u00f0ni Gy\u00f0inga vi\u00f0 Christum\">[<\/span> &#8222;Hver er fa\u00f0ir \u00feinn?&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i: &#8222;Eigi kenni \u00fe\u00e9r mig n\u00e9 minn f\u00f6\u00f0ur. Ef \u00fe\u00e9r \u00feekktu\u00f0 mig \u00fe\u00e1 \u00feekktu \u00fe\u00e9r og minn f\u00f6\u00f0ur.&#8220; \u00deessi or\u00f0 tala\u00f0i Jes\u00fas vi\u00f0 \u00f6lm\u00f6sukistuna \u00fe\u00e1 hann kenndi \u00ed musterinu. Og enginn t\u00f3k hann \u00fev\u00ed hans stund var enn eigi komin.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i Jes\u00fas enn til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Hefnd fyrirlitningar Christi og evangelii\">[<\/span> &#8222;Eg fer og \u00fe\u00e9r leiti\u00f0 m\u00edn og \u00ed synd y\u00f0vari deyi \u00fe\u00e9r. Hvert eg fer \u00feanga\u00f0 f\u00e1i \u00fe\u00e9r eigi a\u00f0 koma.&#8220; \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u Gy\u00f0ingar: <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ Sp\u00e9skaparfull spurning Gy\u00f0inga\">[<\/span> &#8222;Mun hann vilja drepa sj\u00e1lfan sig \u00fea\u00f0 hann segir: Hvert a\u00f0 eg fer \u00feanga\u00f0 f\u00e1i \u00fe\u00e9r eigi a\u00f0 koma?&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i hann \u00feeim: &#8222;\u00de\u00e9r eru\u00f0 h\u00e9r ne\u00f0an a\u00f0, eg em a\u00f0 ofan. \u00de\u00e9r eru\u00f0 af \u00feessum heimi, eg em ei af \u00feessum heimi. \u00dev\u00ed sag\u00f0i eg y\u00f0ur a\u00f0 \u00fe\u00e9r mundu\u00f0 deyja \u00ed syndum y\u00f0rum. \u00dev\u00ed ef \u00fe\u00e9r tr\u00fai\u00f0 ei a\u00f0 eg s\u00e9 hann \u00fe\u00e1 munu \u00fe\u00e9r deyja \u00ed y\u00f0rum syndum.&#8220; \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u \u00feeir til hans: &#8222;Hver ert \u00fe\u00fa?&#8220; Jes\u00fas sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00dea\u00f0 upphaf sem n\u00fa talar vi\u00f0 y\u00f0ur. Margt hefi eg a\u00f0 tala og d\u00e6ma um y\u00f0ur en s\u00e1 mig sendi hann er sannor\u00f0ur og hva\u00f0 eg heyr\u00f0a af honum \u00fea\u00f0 tala eg fyrir heiminum.&#8220; En \u00feeir skildu \u00fea\u00f0 eigi a\u00f0 hann sag\u00f0i \u00feeim af Gu\u00f0i f\u00f6\u00f0ur.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i Jes\u00fas til \u00feeirra: &#8222;N\u00e6r \u00fe\u00e9r upphefi\u00f0 Mannsins son \u00fe\u00e1 skilji \u00fe\u00e9r a\u00f0 eg s\u00e9 hann. Og af m\u00e9r sj\u00e1lfum gj\u00f6ri eg ekkert heldur \u00fea\u00f0 sem mig l\u00e6r\u00f0i minn fa\u00f0ir \u00fea\u00f0 tala eg og s\u00e1 er mig sendi hann er me\u00f0ur m\u00e9r. Fa\u00f0irinn l\u00e9t mig ei einnsaman \u00fev\u00ed a\u00f0 eg gj\u00f6ri jafnan \u00fea\u00f0 honum er \u00fe\u00e6gt.&#8220; \u00de\u00e1 hann tala\u00f0i \u00feetta tr\u00fa\u00f0u margir \u00e1 hann.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i Jes\u00fas til \u00feeirra Gy\u00f0inga sem \u00e1 hann tr\u00fa\u00f0u: <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ \u00c1minning a\u00f0 \u00feeir standi \u00ed tr\u00fanni\">[<\/span> &#8222;Ef \u00fe\u00e9r bl\u00edfi\u00f0 vi\u00f0 m\u00edna r\u00e6\u00f0u \u00fe\u00e1 eru \u00fe\u00e9r m\u00ednir sannir l\u00e6risveinar og \u00fe\u00e1 \u00feekki \u00fe\u00e9r sannleikinn og sannleikurinn mun y\u00f0ur frelsa.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"8 \/ Frelsi fyrir Christum\">[<\/span> \u00de\u00e1 sv\u00f6ru\u00f0u \u00feeir honum: &#8222;V\u00e9r erum Abrahams s\u00e6\u00f0i og aldrei h\u00f6fum v\u00e9r nokkurs manns \u00fer\u00e6lar veri\u00f0. Hvernin segir \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1: \u00de\u00e9r skulu\u00f0 frj\u00e1lsir ver\u00f0a?&#8220;<\/p>\n<p>\tJes\u00fas svara\u00f0i \u00feeim og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"9 \/ Ofs\u00f3knarmenn og \u00f3vinir Gu\u00f0s or\u00f0s eru eigi kristileg kirkja\">[<\/span> &#8222;Sannlega, sannlega segi eg y\u00f0ur: Her helst sem syndina gj\u00f6rir hann er syndarinnar \u00fer\u00e6ll. \u00der\u00e6llinn bl\u00edfur eigi eil\u00edflega \u00ed h\u00fasinu en sonurinn bl\u00edfur \u00fear eil\u00edflega. N\u00fa ef sonurinn frelsar y\u00f0ur \u00fe\u00e1 eru \u00fe\u00e9r r\u00e9ttlega frj\u00e1lsir. Eg veit a\u00f0 \u00fe\u00e9r eru\u00f0 Abrahams synir. \u00de\u00f3 s\u00e6ki \u00fe\u00e9r til a\u00f0 dey\u00f0a mig \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00edn r\u00e6\u00f0a gr\u00edpur \u00f6ngvan sta\u00f0 hj\u00e1 y\u00f0ur. Eg tala \u00fea\u00f0 sem eg s\u00e9\u00f0 hefi hj\u00e1 m\u00ednum f\u00f6\u00f0ur. Og hva\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e1u\u00f0 hj\u00e1 y\u00f0rum f\u00f6\u00f0ur, \u00fea\u00f0 gj\u00f6ri \u00fe\u00e9r.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00deeir sv\u00f6ru\u00f0u og s\u00f6g\u00f0u til hans: <span class=\"athugasemd\" title=\"10 \/ Dj\u00f6fulsins verk og hans barna er a\u00f0 hata or\u00f0i\u00f0, l\u00edfl\u00e1ta heilaga og tala lygi\">[<\/span> &#8222;Abraham er vor fa\u00f0ir.&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i Jes\u00fas \u00feeim: &#8222;\u00de\u00e9r gj\u00f6ri\u00f0 y\u00f0ar f\u00f6\u00f0urs verk.&#8220; \u00de\u00e1 sv\u00f6ru\u00f0u \u00feeir: &#8222;Eigi erum v\u00e9r \u00ed h\u00f3rd\u00f3mi bornir. Einn Gu\u00f0 h\u00f6fum v\u00e9r fyrir f\u00f6\u00f0ur.&#8220; Jes\u00fas sag\u00f0i \u00fe\u00e1 til \u00feeirra: &#8222;Ef Gu\u00f0 v\u00e6ri y\u00f0ar fa\u00f0ir \u00fe\u00e1 elsku\u00f0u\u00f0 \u00fe\u00e9r mig \u00fev\u00ed eg em af Gu\u00f0i kominn og framgenginn. \u00dev\u00ed eigi kom eg af sj\u00e1lfum m\u00e9r heldur sendi hann mig. Fyrir \u00fev\u00ed \u00feekki \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 ekki mitt m\u00e1l af \u00fev\u00ed \u00fe\u00e9r megi\u00f0 eigi heyra m\u00edna r\u00e6\u00f0u.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e9r eru\u00f0 af f\u00f6\u00f0urnum fjanda og girndum y\u00f0ar f\u00f6\u00f0urs \u00fe\u00e1 vilji \u00fe\u00e9r eftirfylgja. Hann var einn mor\u00f0ingi \u00feegar a\u00f0 upphafi og eigi st\u00f3\u00f0 hann \u00ed sannleiknum. \u00dev\u00ed a\u00f0 sannleikurinn er ei me\u00f0 honum. \u00de\u00e1 hann talar lygi talar hann af s\u00ednu eigin \u00fev\u00ed hann er er einn lj\u00fagari, so og \u00feess hlutar fa\u00f0ir. En m\u00e9r, af \u00fev\u00ed eg segi sannleikinn, \u00fe\u00e1 vilji \u00fe\u00e9r ei tr\u00faa.<\/p>\n<p>\tHver y\u00f0ar kann straffa mig af nokkuri synd? N\u00fa ef eg segi sannleikinn, \u00fev\u00ed tr\u00fai \u00fe\u00e9r m\u00e9r \u00fe\u00e1 eigi? Hver hann er af Gu\u00f0i s\u00e1 heyrir Gu\u00f0s or\u00f0. Af \u00fev\u00ed heyri \u00fe\u00e9r eigi a\u00f0 \u00fe\u00e9r eru\u00f0 eigi af Gu\u00f0i.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sv\u00f6ru\u00f0u J\u00fa\u00f0ar og s\u00f6g\u00f0u honum: &#8222;Segjum v\u00e6r eigi vel a\u00f0 \u00fe\u00fa ert samverskur og hefur dj\u00f6fulinn?&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"11 \/ Mismunur \u00e1 milli sannkristinna og falskristinna\">[<\/span> &#8222;Eigi hefi eg dj\u00f6ful heldur vegsama eg f\u00f6\u00f0ur minn og \u00fe\u00e9r vanhei\u00f0ri\u00f0 mig. Eg leita eigi a\u00f0 minni d\u00fdr\u00f0. S\u00e1 er sem leitar og d\u00e6mir.<\/p>\n<p>\tSannlega, sannlega segi eg y\u00f0ur: <span class=\"athugasemd\" title=\"12 \/ Kraftur tr\u00faarinnar hver e\u00f0 heldur Christi or\u00f0um\">[<\/span> Ef nokkur er s\u00e1 sem geymir m\u00edn or\u00f0 hann mun ei sj\u00e1 dau\u00f0ann a\u00f0 eil\u00edfu.&#8220; \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u J\u00fa\u00f0ar vi\u00f0 hann: &#8222;N\u00fa finnum v\u00e6r a\u00f0 \u00fe\u00fa hefir dj\u00f6fulinn. Abraham er dau\u00f0ur og sp\u00e1mennirnir og \u00fe\u00fa segir: Ef nokkur er s\u00e1 e\u00f0 geymir m\u00edn or\u00f0 hann mun eigi smakka dau\u00f0ann a\u00f0 eil\u00edfu. E\u00f0a ertu meiri f\u00f6\u00f0ur vorum Abraham hver framli\u00f0inn er? Og sp\u00e1mennirnir eru og framli\u00f0nir. Hvern gj\u00f6rir \u00fe\u00fa sj\u00e1lfan \u00feig?&#8220;<\/p>\n<p>\tJes\u00fas svara\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"13 \/ Mismunur \u00e1 milli Christum, Abrahams og sp\u00e1mannanna\">[<\/span> &#8222;Ef eg vegsama mig sj\u00e1lfur \u00fe\u00e1 er m\u00edn d\u00fdr\u00f0 engin. \u00dear er minn fa\u00f0ir s\u00e1 mig vegsamar hvern \u00fe\u00e9r segi\u00f0 y\u00f0varn Gu\u00f0 vera og \u00feekki\u00f0 hann \u00fe\u00f3 ei. En eg \u00feekki hann og ef eg seg\u00f0a \u00fea\u00f0 eg \u00feekkti hann ekki \u00fe\u00e1 v\u00e6ri eg einn lj\u00fagari l\u00edkur y\u00f0ur. Heldur \u00feekki eg han og geymi hans or\u00f0.<\/p>\n<p>\tAbraham fa\u00f0ir y\u00f0ar gladdist a\u00f0 hann skyldi sj\u00e1 minn dag. <span class=\"athugasemd\" title=\"14 \/ Vitnan um gu\u00f0d\u00f3minn Christi\">[<\/span> Og hann s\u00e1 hann og var\u00f0 gla\u00f0ur vi\u00f0.&#8220; \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u J\u00fa\u00f0ar til hans: &#8222;\u00de\u00fa ert enn eigi fimmtugur og \u00fe\u00f3 s\u00e1stu Abraham?&#8220; Jes\u00fas sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Sannlega, sannlega segi eg y\u00f0ur: \u00c1\u00f0ur en Abraham var em eg.&#8220; \u00de\u00e1 t\u00f3ku \u00feeir upp steina a\u00f0 \u00feeir k\u00f6stu\u00f0u \u00e1 hann. En Jes\u00fas for\u00f0a\u00f0i s\u00e9r og gekk \u00far musterinu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VIII. Jes\u00fas gekk \u00fe\u00e1 \u00ed fjalli\u00f0 Oliveti. Og a\u00f0 morni \u00ed d\u00f6gun kom hann aftur \u00ed musteri\u00f0 og allt f\u00f3lki\u00f0 kom til hans. Hann setti sig og l\u00e6r\u00f0i \u00fea\u00f0. [ En hinir l\u00f6gkl\u00f3ku og far\u00edsear leiddu fram fyrir hann \u00fe\u00e1 konu sem \u00ed h\u00f3rd\u00f3mi var gripin og settu hana \u00fear \u00ed mi\u00f0i\u00f0 og s\u00f6g\u00f0u til hans: [ &#8222;Meistari, \u00feessi kona er n\u00fa fundin \u00ed h\u00f3rd\u00f3mi en Moyses b\u00fd\u00f0ur oss \u00ed l\u00f6gm\u00e1linu a\u00f0 berja \u00feess h\u00e1ttar menn grj\u00f3ti. E\u00f0a hva\u00f0 segir \u00fe\u00fa til?&#8220; En \u00feetta s\u00f6g\u00f0u \u00feeir af \u00fev\u00ed \u00feeir freistu\u00f0u hans a\u00f0 \u00feeir m\u00e6ttu so \u00e1k\u00e6ra hann. En Jes\u00fas laut <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-8-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3855","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3855","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3855"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3855\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3855"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}