{"id":3854,"date":"2017-12-18T18:34:53","date_gmt":"2017-12-18T18:34:53","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-7-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:53","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:53","slug":"johannesargudspjall-7-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-7-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3hannesargu\u00f0spjall 7. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VII.<\/p>\n<p>Eftir \u00fea\u00f0 gekk Jes\u00fas um Galileam \u00fev\u00ed a\u00f0 hann vildi eigi ganga um Judeam af \u00fev\u00ed a\u00f0 Gy\u00f0ingar vildu \u00ed hel sl\u00e1 hann. <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ Tjaldb\u00fa\u00f0arh\u00e1t\u00ed\u00f0 hver e\u00f0 byrjast xv decembris og var\u00f0i \u00ed sj\u00f6 daga\">[<\/span> \u00de\u00e1 var og n\u00e1l\u00e6g tjaldb\u00fa\u00f0arh\u00e1t\u00ed\u00f0 Gy\u00f0inga. Br\u00e6\u00f0ur hans s\u00f6g\u00f0u \u00fe\u00e1 til hans: &#8222;Tak \u00feig upp og gakk til J\u00fadalands so a\u00f0 \u00fe\u00ednir l\u00e6risveinar sj\u00e1i \u00feau verk er \u00fe\u00fa gj\u00f6rir. \u00dev\u00ed a\u00f0 sannlega gj\u00f6rir enginn s\u00e1 nokku\u00f0 leynilega sem sj\u00e1lfur hann eftirleitar kunnur a\u00f0 ver\u00f0a. Ef \u00fe\u00fa gj\u00f6rir \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 opinbera \u00fe\u00fa sj\u00e1lfan \u00feig heiminum.&#8220; \u00dev\u00ed hans br\u00e6\u00f0ur tr\u00fa\u00f0u ei \u00e1 hann.<\/p>\n<p>\tJes\u00fas sag\u00f0i til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Hvar fyrir Kristur er hata\u00f0ur\">[<\/span> &#8222;Minn t\u00edmi er eigi enn kominn en y\u00f0ar t\u00edmi er jafnan rei\u00f0ub\u00fainn. Heimurinn f\u00e6r y\u00f0ur eigi hata\u00f0 en mig hatar hann \u00fev\u00ed a\u00f0 eg ber vitnisbur\u00f0 af honum \u00fea\u00f0 hans verk eru vond. Fari \u00fe\u00e9r upp til h\u00e1t\u00ed\u00f0ardagsins, eg vil enn eigi fara upp til \u00feessarar h\u00e1t\u00ed\u00f0ar \u00fea\u00f0 minn t\u00edmi er enn eigi uppfylldur.&#8220; En \u00fe\u00e1 hann haf\u00f0i sagt \u00feeim \u00feetta bleif hann samt \u00ed Galilea.<\/p>\n<p>\tN\u00fa sem hans br\u00e6\u00f0ur voru uppfarnir \u00fe\u00e1 f\u00f3r hann og sj\u00e1lfur upp til h\u00e1t\u00ed\u00f0arinnar, eigi opinberlega heldur so sem nokku\u00f0 \u00e1 laun. J\u00fa\u00f0ar spur\u00f0u a\u00f0 honum um h\u00e1t\u00ed\u00f0ina og s\u00f6g\u00f0u: <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ \u00ddmislegir \u00farskur\u00f0ir um Christum\">[<\/span> &#8222;Hver er hann?&#8220; Og mikill krytur var \u00ed l\u00fd\u00f0num um hann. Sumir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;G\u00f3\u00f0ur er hann&#8220; en a\u00f0rir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Nei, heldur lei\u00f0ir hann l\u00fd\u00f0inn afvega.&#8220; Enginn tala\u00f0i \u00fe\u00f3 bert um hann fyrir hr\u00e6\u00f0slu sakir vi\u00f0 Gy\u00f0inga.<\/p>\n<p>\tEn a\u00f0 h\u00e1lfna\u00f0ri h\u00e1t\u00ed\u00f0inni st\u00e9 Jes\u00fas upp \u00ed musteri\u00f0 og kenndi. <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Pr\u00e9dikan og l\u00e6rd\u00f3mur Christi\">[<\/span> J\u00fa\u00f0ar undru\u00f0ust, so segjandi: &#8222;Hvernin veit hann Ritningarnar \u00fear hann hefur \u00fe\u00f3 eigi l\u00e6rt \u00fe\u00e6r?&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i \u00feeim og sag\u00f0i: &#8222;Minn l\u00e6rd\u00f3mur er eigi minn heldur hans sem mig sendi. Ef s\u00e1 er nokkur sem gj\u00f6ra vill hans vilja hann reynir hvert \u00feessi l\u00e6rd\u00f3mur er af Gu\u00f0i e\u00f0ur hvert eg talaaf m\u00e9r sj\u00e1lfum. Hver sem af sj\u00e1lfum s\u00e9r talar s\u00e1 leitar sinnar eiginnar d\u00fdr\u00f0ar en hver hann leitar \u00feess d\u00fdr\u00f0ar sem hann sendi s\u00e1 er sannur og ekker rangl\u00e6ti er me\u00f0 honum.<\/p>\n<p>\tGaf Moyses y\u00f0ur eigi l\u00f6g \u00fe\u00f3 enginn y\u00f0ar haldi l\u00f6gin? <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ \u00c1v\u00edtan \u00feeirra r\u00f6ngu meiningar um \u00fevottdaginn \u00fea\u00f0 \u00feeir vildu ei l\u00e1ta l\u00e6kna \u00e1 honum\">[<\/span> E\u00f0ur \u00fev\u00ed s\u00e6ki \u00fe\u00e9r eftir a\u00f0 l\u00edfl\u00e1ta mig?&#8220; L\u00fd\u00f0urinn svara\u00f0i og sag\u00f0i: &#8222;Dj\u00f6fulinn hefir \u00fe\u00fa. Hver s\u00e6kir til a\u00f0 l\u00edfl\u00e1ta \u00feig?&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i: &#8222;Eitt verk gj\u00f6r\u00f0a eg og \u00fea\u00f0 undri \u00fe\u00e9r allir. Moyses gaf y\u00f0ur \u00fev\u00ed umskurnarsk\u00edrn, eigi \u00fea\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri af Moyse komin heldur af forfe\u00f0runum. Og \u00fe\u00f3 umskeri \u00fe\u00e9r manninn \u00e1 \u00fevottdegi. N\u00fa ef ma\u00f0urinn me\u00f0tekur umskur\u00f0arsk\u00edrn \u00e1 \u00fevottdegi so a\u00f0 eigi brj\u00f3tist Moyses l\u00f6gm\u00e1l. En \u00fe\u00e9r rei\u00f0ist \u00fe\u00f3 vi\u00f0 mig \u00fea\u00f0 eg gj\u00f6r\u00f0i allan manninn heilan \u00e1 \u00fevottdegi. \u00de\u00e9r skulu\u00f0 eigi d\u00e6ma eftir yfirlitum heldur d\u00e6mi\u00f0 r\u00e9ttum d\u00f3mi.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u nokkrir af \u00feeim sem voru af Jer\u00fasalem: <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ H\u00e1skasemd Christi og \u00fdmislegar r\u00e6\u00f0ur um hann\">[<\/span> &#8222;Er \u00fea\u00f0 ekki s\u00e1 sem \u00feeir s\u00f3ttu til a\u00f0 l\u00edfl\u00e1ta? Sj\u00e1i\u00f0, n\u00fa talar hann opinberlega og enginn \u00feeirra segir honum grand. E\u00f0a vita vorir h\u00f6f\u00f0ingjar \u00fea\u00f0 v\u00edst a\u00f0 \u00feessi er sannur Kristur? En v\u00e9r vitum \u00fe\u00f3 hva\u00f0an \u00feessi er. \u00de\u00e1 Kristur kemur veit enginn hva\u00f0an hann er.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 kalla\u00f0i Jes\u00fas \u00ed musterinu, l\u00e6randi og so segandi: &#8222;\u00de\u00e9r kenni\u00f0 mig og viti\u00f0 hva\u00f0an eg em. Og eg kom eigi af sj\u00e1lfum m\u00e9r heldur er hann sannor\u00f0ur s\u00e1 mig sendi hvern \u00fe\u00e9r \u00feekki\u00f0 eigi. En eg \u00feekki hann \u00fev\u00ed a\u00f0 eg em af honum og hann hefur sent mig.&#8220; \u00de\u00e1 s\u00f3ttu \u00feeir til a\u00f0 gr\u00edpa hann en enginn lag\u00f0i \u00fe\u00f3 hendur \u00e1 hann \u00fev\u00ed a\u00f0 eigi var hans t\u00edmi enn kominnn. Margt af f\u00f3lkinu tr\u00fa\u00f0i \u00e1 hann og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;\u00de\u00e1 Kristur kemur mun hann nokku\u00f0 gj\u00f6ra fleiri teikn en \u00feessi gj\u00f6rir?&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 Pharisei heyr\u00f0u n\u00fa l\u00fdu\u00f0inn krytja \u00feetta um hann \u00fe\u00e1 sendu prestah\u00f6f\u00f0ingjar og Pharisei \u00fe\u00e9nara \u00fat a\u00f0 \u00feeir handt\u00e6ki hann. Jes\u00fas sag\u00f0i \u00fe\u00e1 til \u00feeirra: &#8222;Litla stund eg em enn hj\u00e1 y\u00f0ur og \u00fe\u00e1 fer eg til hans sem mig sendi. \u00de\u00e9r leiti\u00f0 m\u00edn og finni\u00f0 mig eigi og \u00fear sem eg er \u00feanga\u00f0 f\u00e1i \u00fe\u00e9r eigi a\u00f0 koma.&#8220; \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u Gy\u00f0ingar s\u00edn \u00e1 milli: &#8222;Hvert vill hann fara so a\u00f0 v\u00e9r finnum hann eigi? E\u00f0ur vill hann ganga \u00ed sundurdreifing hei\u00f0inna manna og l\u00e6ra \u00fear hei\u00f0nar \u00fej\u00f3\u00f0ir? Hvernin er s\u00fa r\u00e6\u00f0a sem hann sag\u00f0i: \u00de\u00e9r leiti\u00f0 m\u00edn og finni\u00f0 eigi og \u00fear sem eg er \u00feanga\u00f0 f\u00e1i \u00fe\u00e9r eigi a\u00f0 koma?&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00c1 s\u00ed\u00f0asta degi hinnar miklu h\u00e1t\u00ed\u00f0ar st\u00f3\u00f0 Jes\u00fas upp og kalla\u00f0i, so segjandi: <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ Pr\u00e9dikan Christi \u00ed musterinu \u00e1 \u00feann seinasta tjaldb\u00fa\u00f0arh\u00e1t\u00ed\u00f0ardag\">[<\/span> &#8222;Ef nokkurn \u00feyrstir komi hann til m\u00edn og drekki. Hver hann tr\u00fair \u00e1 mig, so sem Ritningin segir: Af hans kvi\u00f0i skulu framflj\u00f3ta v\u00f6tn lifanda vats.&#8220; En \u00feetta sag\u00f0i hann af \u00feeim anda hvern \u00feeir skyldu me\u00f0taka sem \u00e1 hann try\u00f0u. \u00dev\u00ed a\u00f0 heilagur andi var \u00fe\u00e1 ei (\u00fatgefinn) af \u00fev\u00ed a\u00f0 Jes\u00fas var enn eigi augl\u00fdstur. <\/p>\n<p>\tOg margir af l\u00fd\u00f0num sem heyr\u00f0u \u00feessa hans r\u00e6\u00f0u s\u00f6g\u00f0u: &#8222;\u00deessi er sannur sp\u00e1ma\u00f0ur.&#8220; A\u00f0rir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Hann er Kristur.&#8220; En sumir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Skal Kristur nokku\u00f0 koma af Galilea? Segir eigi Ritningin a\u00f0 Kristur komi af Dav\u00ed\u00f0s s\u00e6\u00f0i og \u00far kastalanum Betlehem \u00fear sem Dav\u00ed\u00f0 var?&#8220; L\u00edka so var\u00f0 ein misgreining me\u00f0 f\u00f3lkinu. En nokkrir af \u00feeim vildu hafa gripi\u00f0 hann en enginn lag\u00f0i \u00fe\u00f3 hendur \u00e1 hann.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e9nararnir komu aftur til Phariseis og prestah\u00f6f\u00f0ingjanna og \u00feeir s\u00f6g\u00f0u \u00fe\u00e1 til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"8 \/ Vitnisbur\u00f0ur \u00f3vinanna Christi um \u00feann sanna l\u00e6rd\u00f3m\">[<\/span> &#8222;\u00dev\u00ed h\u00f6f\u00f0u \u00fe\u00e9r hann eigi hinga\u00f0?&#8220; \u00de\u00e9nararnir sv\u00f6ru\u00f0u: &#8222;\u00dear hefur aldrei nokkur ma\u00f0ur so tala\u00f0 sem \u00feessi ma\u00f0ur.&#8220; \u00de\u00e1 sv\u00f6ru\u00f0u Pharisei \u00feeim: &#8222;E\u00f0a eru \u00fe\u00e9r og villtir? Tr\u00fair nokkur h\u00f6f\u00f0ingjanna e\u00f0ur af Phariseis \u00e1 hann? Heldur \u00fea\u00f0 f\u00f3lk sem ekkert veit af l\u00f6gm\u00e1linu og b\u00f6lva\u00f0 er.&#8220; Nik\u00f3demus sag\u00f0i \u00fe\u00e1 til \u00feeirra, s\u00e1 sem kom til hans um n\u00f3tt, hver e\u00f0 einn var af \u00feeim: &#8222;D\u00e6mir vort l\u00f6gm\u00e1l nokku\u00f0 manninn nema hann s\u00e9 fyrri rannsaka\u00f0ur og s\u00e9 vita\u00f0 hva\u00f0 hann gj\u00f6rir?&#8220; \u00deeir sv\u00f6ru\u00f0u og s\u00f6g\u00f0u til hans: &#8222;Ertu einn af Galileis? Rannsaka \u00fe\u00fa og sko\u00f0a \u00fea\u00f0 af Galilea mun ei sp\u00e1ma\u00f0ur uppr\u00edsa.&#8220; Og hver gekk heim til sinna h\u00fasa.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VII. Eftir \u00fea\u00f0 gekk Jes\u00fas um Galileam \u00fev\u00ed a\u00f0 hann vildi eigi ganga um Judeam af \u00fev\u00ed a\u00f0 Gy\u00f0ingar vildu \u00ed hel sl\u00e1 hann. [ \u00de\u00e1 var og n\u00e1l\u00e6g tjaldb\u00fa\u00f0arh\u00e1t\u00ed\u00f0 Gy\u00f0inga. Br\u00e6\u00f0ur hans s\u00f6g\u00f0u \u00fe\u00e1 til hans: &#8222;Tak \u00feig upp og gakk til J\u00fadalands so a\u00f0 \u00fe\u00ednir l\u00e6risveinar sj\u00e1i \u00feau verk er \u00fe\u00fa gj\u00f6rir. \u00dev\u00ed a\u00f0 sannlega gj\u00f6rir enginn s\u00e1 nokku\u00f0 leynilega sem sj\u00e1lfur hann eftirleitar kunnur a\u00f0 ver\u00f0a. Ef \u00fe\u00fa gj\u00f6rir \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 opinbera \u00fe\u00fa sj\u00e1lfan \u00feig heiminum.&#8220; \u00dev\u00ed hans br\u00e6\u00f0ur tr\u00fa\u00f0u ei \u00e1 hann. Jes\u00fas sag\u00f0i til \u00feeirra: [ &#8222;Minn t\u00edmi er eigi enn kominn en y\u00f0ar t\u00edmi <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/johannesargudspjall-7-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3854","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3854","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3854"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3854\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3854"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}