{"id":3847,"date":"2017-12-18T18:34:53","date_gmt":"2017-12-18T18:34:53","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-24-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:53","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:53","slug":"lukasargudspjall-24-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-24-kafli\/","title":{"rendered":"L\u00fakasargu\u00f0spjall 24. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXIIII.<\/p>\n<p>En einn \u00fevottdaganna mj\u00f6g snemma komu \u00fe\u00e6r til grafarinnar og b\u00e1ru \u00feau smyrsl er \u00fe\u00e6r h\u00f6f\u00f0u tilb\u00fai\u00f0 og enn nokkrar a\u00f0rar me\u00f0 \u00feeim. <span class=\"athugasemd\" title=\"Math. 28 \/ Marc. 16 \/ J\u00f3h. 20\">[<\/span> \u00de\u00e6r fundu a\u00f0 steininum haf\u00f0i velt veri\u00f0 af gr\u00f6finni og stigu \u00fear inn og fundu ekki l\u00edkama herrans Jes\u00fa. <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ \u00dat af Christi upprisu\">[<\/span> Og sem \u00fe\u00e6r voru hugsj\u00fakar um \u00feetta, sj\u00e1, \u00fe\u00e1 st\u00f3\u00f0u tveir menn hj\u00e1 \u00feeim \u00ed leiftrandi kl\u00e6\u00f0um. En \u00fe\u00e6r ur\u00f0u \u00fe\u00e1 hr\u00e6ddar og f\u00e9llu \u00e1 s\u00edna \u00e1sj\u00f3nu til jar\u00f0ar. Og \u00feeir s\u00f6g\u00f0u til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Englarnir bo\u00f0a Christum upprisinn\">[<\/span> &#8222;Hva\u00f0 leiti \u00fe\u00e9r hins lifanda hj\u00e1 dau\u00f0um? Hann er eigi h\u00e9r heldur er hann upprisinn. Huglei\u00f0i\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed hva\u00f0 hann tala\u00f0i fyrir y\u00f0ur \u00fe\u00e1 hann var n\u00fa enn \u00ed Galilea er hann sag\u00f0i \u00fea\u00f0 Mannsins syni byrja\u00f0i a\u00f0 seljast \u00ed syndugra hendur og krossfestur ver\u00f0a og \u00e1 \u00feri\u00f0ja degi upp a\u00f0 r\u00edsa.&#8220; Og \u00fe\u00e6r minntust \u00e1 hans or\u00f0.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e6r gengu burt \u00far gr\u00f6finni aftur og kunngj\u00f6r\u00f0u allt \u00feetta \u00feeim ellefu og so \u00f6llum \u00f6\u00f0rum. <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Kvinnur bo\u00f0a postulunum Christi upprisu\">[<\/span> En \u00feetta var Mar\u00eda Magdalena og J\u00f3hanna og Mar\u00eda Jacobi og \u00fe\u00e6r a\u00f0rar er me\u00f0 \u00feeim voru sem \u00feetta s\u00f6g\u00f0u postulunum. Og \u00feeirra or\u00f0 virtist \u00feeim sem v\u00e6ri \u00fea\u00f0 sj\u00f3nhverfingar og tr\u00fa\u00f0u eigi. En P\u00e9tur st\u00f3\u00f0 upp og hlj\u00f3p til grafarinnar og laut \u00fear inn og s\u00e1 l\u00ednl\u00f6kin eins\u00f6m liggja, gekk burt og undra\u00f0i me\u00f0 sj\u00e1lfum s\u00e9r hvernin \u00fea\u00f0 v\u00e6ri ske\u00f0.<\/p>\n<p>\tOg sj\u00e1, a\u00f0 tveir af \u00feeim gengu \u00feann sama dag til nokkurs kaupt\u00fans \u00fea\u00f0 er var fr\u00e1 Jer\u00fasalem r\u00fams sextigi skei\u00f0a, hvert e\u00f0 Emmahus var a\u00f0 nafni. <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Christus birtist \u00feeim tveimur \u00ed einu\">[<\/span> Og \u00feeir voru a\u00f0 tala s\u00edn \u00e1 milli um alla \u00fe\u00e1 hluti sem vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0u bori\u00f0. Og \u00fea\u00f0 ske\u00f0i \u00fe\u00e1 \u00feeir r\u00e6ddust vi\u00f0 og spur\u00f0ust s\u00edn \u00e1 millum a\u00f0 sj\u00e1lfur Jes\u00fas n\u00e1l\u00e6g\u00f0ist \u00fe\u00e1 og gekk jafnframt \u00feeim. En \u00feeirra augu voru so haldin a\u00f0 \u00feeir \u00feekktu hann ei. En hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Hva\u00f0 er \u00fea\u00f0 fyrir r\u00e6\u00f0u sem \u00fei\u00f0 h\u00f6ndli\u00f0 reikandi ykkar \u00e1 milli og eru\u00f0 hryggvir \u00fat af?&#8220; \u00de\u00e1 svara\u00f0i einn er Kle\u00f3pas var a\u00f0 nafni og sag\u00f0i til hans: &#8222;Ertu alleina so \u00f3kenndur til Jer\u00fasalem a\u00f0 \u00fe\u00fa veist eigi hva\u00f0 \u00e1 \u00feessum d\u00f6gum \u00fear inni gj\u00f6rst hefur?&#8220; Til hverra hann sag\u00f0i: &#8222;Hva\u00f0 \u00fe\u00e1?&#8220;<\/p>\n<p>\tEn \u00feeir s\u00f6g\u00f0u til hans: &#8222;\u00dea\u00f0 af Jes\u00fa hinum na\u00f0verska, hver e\u00f0 var sp\u00e1d\u00f3msma\u00f0ur, megtugur \u00ed verkum og or\u00f0um fyri Gu\u00f0i og \u00f6llu f\u00f3lki, hversu a\u00f0 vorir h\u00f6fu\u00f0prestar og h\u00f6f\u00f0ingjar seldu hann \u00ed ford\u00e6ming dau\u00f0ans og krossfestu hann. En v\u00e9r vonu\u00f0um a\u00f0 hann mundi endurleysa \u00cdsrael. Og yfir allt \u00feetta er n\u00fa hinn \u00feri\u00f0ji dagur \u00ed dag er \u00feetta ske\u00f0i. So hafa og skelft oss nokkrar konur af oss til \u00fe\u00e6r e\u00f0 fyrir l\u00fdsingina h\u00f6f\u00f0u hj\u00e1 gr\u00f6finni veri\u00f0 og ekki fundi\u00f0 hans l\u00edkama, komu og s\u00f6g\u00f0u sig einnin s\u00e9\u00f0 hafa englanna sj\u00f3nir \u00feeir e\u00f0 s\u00f6g\u00f0u hann lifa. Og nokkrir af oss gengu til grafarinnar og fundu eins l\u00edka sem konurnar h\u00f6f\u00f0u sagt en hann fundu \u00feeir ekki.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00d3 \u00fe\u00e9r heimskir og tregir \u00ed hjarta a\u00f0 tr\u00faa \u00fev\u00ed \u00f6llu hva\u00f0 sp\u00e1mennirnir hafa tala\u00f0! hlaut Christus ei \u00feetta a\u00f0 l\u00ed\u00f0a og innganga so \u00ed s\u00edna d\u00fdr\u00f0?&#8220; Og hann t\u00f3k til fr\u00e1 Moise og \u00f6llum sp\u00e1m\u00f6nnum og lag\u00f0i \u00fat fyrir \u00feeim allar Ritningar \u00fe\u00e6r af honum voru. Og \u00feeir t\u00f3ku a\u00f0 n\u00e1l\u00e6gast kaupt\u00fani\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feeir gengu til og hann l\u00e9t \u00fe\u00e1 sem vildi hann lengra ganga. \u00deeir neyddu hann og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Ver hj\u00e1 oss, herra, \u00fev\u00ed a\u00f0 kvelda tekur og \u00e1 daginn l\u00ed\u00f0ur.&#8220; Hann gekk og inn og var hj\u00e1 \u00feeim.<\/p>\n<p>\t\u00dea\u00f0 ske\u00f0i og \u00fe\u00e1 hann sat me\u00f0 \u00feeim til bor\u00f0s a\u00f0 hann t\u00f3k brau\u00f0i\u00f0, blessa\u00f0i \u00fea\u00f0 og braut og r\u00e9tti a\u00f0 \u00feeim. \u00de\u00e1 opnu\u00f0ust \u00feeirra augu so \u00feeir \u00feekktu hann. Og hann hvarf \u00far \u00feeirra augs\u00fdn. Og \u00feeir s\u00f6g\u00f0u s\u00edn \u00e1 milli: &#8222;Brann ei okkart hjarta \u00ed okkur \u00fe\u00e1 hann tala\u00f0i vi\u00f0 okkur \u00e1 veginum og opna\u00f0i fyrir okkur Ritningarnar?&#8220; Og \u00feeir st\u00f3\u00f0u upp \u00e1 s\u00f6mu stundu og sneru aftur til Jer\u00fasalem og fundu \u00fe\u00e1 ellefu samansafna\u00f0a og \u00fe\u00e1 sem me\u00f0 \u00feeim voru, hverjir e\u00f0 s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Drottinn er sannarlega upprisinn og hefur birst S\u00edmoni!&#8220; Og \u00feeir tj\u00e1\u00f0u \u00feeim hva\u00f0 gj\u00f6rst haf\u00f0i \u00e1 veginum og hvernin \u00feeir hef\u00f0u \u00feekkt hann \u00ed \u00fev\u00ed hann braut brau\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 \u00feeir voru n\u00fa enn a\u00f0 tala um \u00feetta st\u00e9 Jes\u00fas mitt \u00ed millum \u00feeirra og sag\u00f0i til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Christus birtist \u00feeim ellefu a\u00f0 kveldi\">[<\/span> &#8222;Fri\u00f0ur s\u00e9 me\u00f0 y\u00f0ur.&#8220; En \u00feeir f\u00e6ldust og ur\u00f0u hr\u00e6ddir og meinu\u00f0u a\u00f0 \u00feeir s\u00e6i anda nokkurn. Og hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Hva\u00f0 f\u00e6list \u00fe\u00e9r og hv\u00ed koma sl\u00edkir \u00feankar \u00ed y\u00f0ar hj\u00f6rtu? Sj\u00e1i\u00f0 m\u00ednar hendur og m\u00edna f\u00e6tur a\u00f0 eg em hann sj\u00e1lfur. \u00dereifi \u00fe\u00e9r og sko\u00f0i\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 andi hefur ei hold n\u00e9 bein so sem \u00fe\u00e9r sj\u00e1i\u00f0 mig hafa.&#8220; Og \u00fe\u00e1 hann sag\u00f0i \u00fea\u00f0 s\u00fdndi hann \u00feeim hendur og f\u00e6tur. Og er \u00feeir tr\u00fa\u00f0u enn eigi fyrir fagna\u00f0arsakir og undrandi \u00fea\u00f0 sag\u00f0i hann til \u00feeirra: &#8222;Hafi \u00fe\u00e9r nokku\u00f0 matlegt?&#8220; Og \u00feeir l\u00f6g\u00f0u fyrir hann stykki af steiktum fiski og hunangsseim. Og hann t\u00f3k \u00fea\u00f0 og \u00e1t fyrir \u00feeirra augum.<\/p>\n<p>\tOg hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00deetta eru \u00fea\u00f0 or\u00f0 hver eg tala\u00f0i til y\u00f0ar \u00fe\u00e1 eg var enn n\u00fa hj\u00e1 y\u00f0ur \u00fea\u00f0 \u00fea\u00f0 hlaut allt a\u00f0 fullkomnast hva\u00f0 af m\u00e9r var skrifa\u00f0 \u00ed Moises l\u00f6gm\u00e1li og \u00ed sp\u00e1mannab\u00f3kum og s\u00e1lmum.&#8220; \u00de\u00e1 opna\u00f0i hann \u00feeirra skilning so a\u00f0 \u00feeir forst\u00f3\u00f0u Ritningarnar og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;So er \u00fea\u00f0 skrifa\u00f0 og so byrja\u00f0i Kristi a\u00f0 l\u00ed\u00f0a og upp a\u00f0 r\u00edsa \u00e1 \u00feri\u00f0ja degi af dau\u00f0a og pr\u00e9dikast l\u00e1ta \u00ed s\u00ednu nafni i\u00f0ran og fyrirgefning synda \u00e1 me\u00f0al allra \u00fej\u00f3\u00f0a, upphefjandi til Jer\u00fasalem. En \u00fe\u00e9r eru\u00f0 vottar allra \u00feessara hluta og sj\u00e1i\u00f0, a\u00f0 eg mun senda yfir y\u00f0ur fyrirheit m\u00edns f\u00f6\u00f0urs. En \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 sitja \u00ed borginni Jer\u00fasalem \u00feanga\u00f0 til a\u00f0 \u00fe\u00e9r kl\u00e6\u00f0ist me\u00f0 krafti af h\u00e6\u00f0um.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ Fyrirheit um helgan anda\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEn hann haf\u00f0i \u00fe\u00e1 \u00fat allt til Bethaniam og h\u00f3f upp s\u00ednar hendur og blessa\u00f0i \u00fe\u00e1. Og \u00fea\u00f0 gj\u00f6r\u00f0ist \u00fe\u00e1 hann blessa\u00f0i yfir \u00fe\u00e1 a\u00f0 hann lei\u00f0 fr\u00e1 \u00feeim og var upp numinn til himins. <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ Uppstigning Christi til himins\">[<\/span> En \u00feeir tilb\u00e1\u00f0u hann og sneru aftur til Jer\u00fasalem me\u00f0 miklum fagna\u00f0i og voru jafnan \u00ed musterinu, vegsamandi og lofandi Gu\u00f0.<\/p>\n<p>Endir S. Lucas gu\u00f0sspjalla<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXIIII. En einn \u00fevottdaganna mj\u00f6g snemma komu \u00fe\u00e6r til grafarinnar og b\u00e1ru \u00feau smyrsl er \u00fe\u00e6r h\u00f6f\u00f0u tilb\u00fai\u00f0 og enn nokkrar a\u00f0rar me\u00f0 \u00feeim. [ \u00de\u00e6r fundu a\u00f0 steininum haf\u00f0i velt veri\u00f0 af gr\u00f6finni og stigu \u00fear inn og fundu ekki l\u00edkama herrans Jes\u00fa. [ Og sem \u00fe\u00e6r voru hugsj\u00fakar um \u00feetta, sj\u00e1, \u00fe\u00e1 st\u00f3\u00f0u tveir menn hj\u00e1 \u00feeim \u00ed leiftrandi kl\u00e6\u00f0um. En \u00fe\u00e6r ur\u00f0u \u00fe\u00e1 hr\u00e6ddar og f\u00e9llu \u00e1 s\u00edna \u00e1sj\u00f3nu til jar\u00f0ar. Og \u00feeir s\u00f6g\u00f0u til \u00feeirra: [ &#8222;Hva\u00f0 leiti \u00fe\u00e9r hins lifanda hj\u00e1 dau\u00f0um? Hann er eigi h\u00e9r heldur er hann upprisinn. Huglei\u00f0i\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed hva\u00f0 hann <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-24-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3847","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3847","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3847"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3847\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3847"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}