{"id":3845,"date":"2017-12-18T18:34:53","date_gmt":"2017-12-18T18:34:53","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-22-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:53","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:53","slug":"lukasargudspjall-22-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-22-kafli\/","title":{"rendered":"L\u00fakasargu\u00f0spjall 22. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXII.<\/p>\n<p>En \u00fe\u00e1 t\u00f3k a\u00f0 n\u00e1lgast h\u00e1t\u00ed\u00f0ardagur ins s\u00e6ta brau\u00f0s hver e\u00f0 kalla\u00f0ist p\u00e1skar. <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ Historian p\u00ednunnar Jes\u00fa Christi\">[<\/span> Og kennimannah\u00f6f\u00f0ingjar og skriftl\u00e6r\u00f0ir eftirleitu\u00f0u hvernin \u00feeir g\u00e6ti hann l\u00edfl\u00e1ti\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00f3ttu\u00f0ust l\u00fd\u00f0inn. <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ R\u00e1\u00f0agj\u00f6r\u00f0 um Christi l\u00edfl\u00e1t\">[<\/span> En andskotinn var hlaupinn \u00ed J\u00fadas \u00feann kalla\u00f0ur var \u00cdskar\u00edot hver e\u00f0 var einn af t\u00f3lf. Og hann f\u00f3r burt og tala\u00f0i vi\u00f0 kennimannah\u00f6f\u00f0ingjana og h\u00f6fu\u00f0smennina hvernin hann vildi selja \u00feeim hann. \u00deeir gl\u00f6ddust vi\u00f0 og h\u00e9tu a\u00f0 gefa honum peninga til. Og hann lofa\u00f0i \u00feeim \u00fev\u00ed og leita\u00f0i lags a\u00f0 hann fengi selt \u00feeim hann \u00e1n upphlaups.<\/p>\n<p>\tEn er kom dagur ins s\u00e6ta brau\u00f0s \u00e1 hverjum s\u00e6fast skyldi p\u00e1skalambi\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Math. 26 \/ Marc. 14 \/ 3 \/ Tilb\u00faning p\u00e1skalambsins\">[<\/span> Og hann sendi \u00fat Petrum og Johannem og sag\u00f0i: &#8222;Fari \u00fei\u00f0, b\u00fai\u00f0 til p\u00e1skalambi\u00f0 so a\u00f0 v\u00e9r neytum.&#8220; En \u00feeir s\u00f6g\u00f0u til hans: &#8222;Hvar viltu a\u00f0 v\u00e9r rei\u00f0um \u00fea\u00f0 til?&#8220; Hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Sj\u00e1i\u00f0, n\u00e6r \u00fe\u00e9r gangi\u00f0 inn \u00ed borgina mun ma\u00f0ur m\u00e6ta ykkur berandi vatsskj\u00f3lu. Fylgi\u00f0 honum eftir \u00ed \u00fea\u00f0 h\u00fas hvert hann gengur inn og segi\u00f0 h\u00fasb\u00f3ndanum: Meistarinn l\u00e6tur segja \u00fe\u00e9r: Hvar er \u00fea\u00f0 herbergi \u00fear eg megi p\u00e1skalambi\u00f0 \u00ed eta me\u00f0 m\u00ednum l\u00e6risveinum? Og hann mun v\u00edsa y\u00f0ur st\u00f3ran sal \u00e1str\u00e1\u00f0an. Rei\u00f0i\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fear til.&#8220; \u00deeir gengu burt og fundu so sem hann haf\u00f0i sagt \u00feeim og reiddu til p\u00e1skalambi\u00f0.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 er s\u00fa stund kom setti hann sig ni\u00f0ur og \u00feeir t\u00f3lf postular me\u00f0 honum. <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Neysla \u00feess gamla p\u00e1skalambsins\">[<\/span> Og hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Mig hefur af hjarta n\u00e6sta eftirlanga\u00f0 a\u00f0 eta \u00feetta p\u00e1skalamb me\u00f0 y\u00f0ur \u00e1\u00f0ur en eg l\u00ed\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg segi y\u00f0ur a\u00f0 h\u00e9r eftir mun eg eigi oftar af \u00fev\u00ed neyta \u00fear til a\u00f0 \u00fea\u00f0 fullkomnast \u00ed Gu\u00f0s r\u00edki.&#8220; Hann t\u00f3k og kaleikinn, gj\u00f6r\u00f0i \u00feakkir og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Kveldm\u00e1lt\u00ed\u00f0arinnsetning \/ Math. 26 \/ Marc. 14\">[<\/span> &#8222;Me\u00f0taki\u00f0 hann og skipti\u00f0 honum \u00e1 milli y\u00f0ar. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg segi y\u00f0ur: Eg mun eigi drekka af v\u00ednvi\u00f0ar\u00e1vexti \u00fear til a\u00f0 Gu\u00f0s r\u00edki kemur.&#8220; Og hann t\u00f3k brau\u00f0i\u00f0, gj\u00f6r\u00f0i \u00feakkir og braut \u00fea\u00f0 og gaf \u00feeim og sag\u00f0i: &#8222;\u00deetta er mitt hold \u00fea\u00f0 fyrir y\u00f0ur gefi\u00f0 ver\u00f0ur. Gj\u00f6ri\u00f0 \u00feetta \u00ed m\u00edna minning.&#8220; L\u00edka einnin og kaleikinn eftir kveldm\u00e1lt\u00ed\u00f0ina og sag\u00f0i: &#8222;\u00deessi er kaleikur hins n\u00fdja testamentis \u00ed m\u00ednu bl\u00f3\u00f0i hvert fyrir y\u00f0ur \u00fathellist.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00f3, sj\u00e1i\u00f0, a\u00f0 h\u00f6nd \u00feess er mig sv\u00edkur er me\u00f0ur m\u00e9r \u00e1 bor\u00f0i. <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ Um svikarann J\u00fadas\">[<\/span> Og a\u00f0 s\u00f6nnu fer Mannsin son eftir \u00fev\u00ed sem \u00e1lykta\u00f0 er. \u00de\u00f3 ve \u00feeim manni fyrir hvern hann ver\u00f0ur svikinn!&#8220; Og \u00feeir t\u00f3ku a\u00f0 spyrja s\u00edn \u00e1 milli hver af \u00feeim v\u00e6ri s\u00e1 er \u00feetta mundi gj\u00f6ra.<\/p>\n<p>\tEn \u00fear h\u00f3fst upp \u00fer\u00e6ta \u00feeirra \u00e1 milli hver \u00feeirra mundi mestur haldinn ver\u00f0a. <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ \u00der\u00e1ttan hver \u00feeirra s\u00e9 mestur\">[<\/span> En hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Veraldlegir konungar drottna og hverjir yfirmagtina hafa \u00fe\u00e1 kallast n\u00e1\u00f0ugir herrar. En \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 eigi svo. Heldur s\u00e1 sem mestur er y\u00f0ar \u00e1 milli veri hann svo sem hinn minnsti og hinn \u00e6\u00f0sti sem annar \u00fe\u00e9nari. \u00dev\u00ed hver er meiri, s\u00e1 sem til bor\u00f0sins situr e\u00f0ur s\u00e1 sem \u00fej\u00f3nar? Er eigi so a\u00f0 hann sem vi\u00f0 bor\u00f0i\u00f0 situr? En eg em \u00e1 millum y\u00f0ar sem s\u00e1 er \u00fej\u00f3nar. En \u00fe\u00e9r eru\u00f0 \u00feeir hverjir hj\u00e1 m\u00e9r voru \u00ed m\u00ednum freistingum. Og eg vil tileinka y\u00f0ur r\u00edki so sem minn fa\u00f0ir hefir m\u00e9r \u00fea\u00f0 tileinka\u00f0 so a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 eta og drekka yfir mitt bor\u00f0 \u00ed m\u00ednu r\u00edki og sitja \u00e1 st\u00f3lum, d\u00e6mandi t\u00f3lf kynkv\u00edslir \u00cdsraels.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn Drottinn sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"8 \/ B\u00e6nin Christi fyrir s\u00f6fnu\u00f0inum\">[<\/span> &#8222;S\u00edmon, S\u00edmon, sj\u00e1\u00f0u, a\u00f0 andskotinn hefir bei\u00f0st y\u00f0ar a\u00f0 hann m\u00e6tti s\u00e6lda y\u00f0ur sem hveiti. En eg ba\u00f0 fyrir \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00edn tr\u00faa \u00ferotna\u00f0i eigi. Og hvenar \u00fe\u00fa sn\u00fdst um aftur \u00fe\u00e1 styrk \u00fe\u00fa br\u00e6\u00f0ur \u00fe\u00edna.&#8220; En hann sag\u00f0i til hans: <span class=\"athugasemd\" title=\"9 \/ Hreysti P\u00e9turs\">[<\/span> &#8222;Herra, rei\u00f0ub\u00fainn em eg me\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ed fj\u00f6tur og dau\u00f0a a\u00f0 ganga.&#8220; En hann sag\u00f0i P\u00e9tri: &#8222;Eg segi \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00ed dag gelur haninn eigi \u00e1\u00f0ur \u00fe\u00fa hefir \u00ferisva\u00f0 afneita\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00feekktir mig.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg hann sag\u00f0i til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"10 \/ \u00deolinm\u00e6\u00f0innar \u00e1minning\">[<\/span> &#8222;\u00de\u00e1 eg senda y\u00f0ur \u00fat \u00e1n pungs e\u00f0ur t\u00f6sku e\u00f0a sk\u00f3fata, hvort brast y\u00f0ur \u00fe\u00e1 nokku\u00f0?&#8220; En \u00feeir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Alls ekkert.&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i hann til \u00feeirra: &#8222;En n\u00fa hver e\u00f0 pung hefir s\u00e1 taki hann, l\u00edka og einnin t\u00f6skuna og s\u00e1 er eigi hefur selji hann kyrtil sinn og kaupi sver\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg segi y\u00f0ur a\u00f0 \u00fea\u00f0 hl\u00fdtur \u00e1 m\u00e9r a\u00f0 fullkomnast hva\u00f0 skrifa\u00f0 er: \u00dea\u00f0 hann er me\u00f0ur illvirkjum reikna\u00f0ur. \u00dev\u00ed hva\u00f0 af m\u00e9r skrifa\u00f0 er hefir n\u00fa enda.&#8220; En \u00feeir s\u00f6g\u00f0u: Herra, sj\u00e1, tv\u00f6 sver\u00f0 eru h\u00e9r.&#8220; Hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00dea\u00f0 er n\u00f3g.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg hann gekk eftir vana til fjallsins Olivetum og hans l\u00e6risveinar fylgdu honum eftir. <span class=\"athugasemd\" title=\"Math. 26 \/ Marc. 14 \/ J\u00f3h. 18 \/ 11 \/ Hva\u00f0 \u00ed grasgar\u00f0inum ske\u00f0i\">[<\/span> Og \u00fe\u00e1 hann kom til \u00feess sta\u00f0ar sag\u00f0i hann til \u00feeirra: &#8222;Bi\u00f0ji\u00f0 a\u00f0 eigi falli \u00fe\u00e9r \u00ed freistanir.&#8220; Og hann veik s\u00e9r fr\u00e1 \u00feeim mestu steinsnari, f\u00e9ll \u00e1 kn\u00e9 og t\u00f3k a\u00f0 bi\u00f0ja og sag\u00f0i: &#8222;Fa\u00f0ir, ef \u00fe\u00fa vilt \u00fe\u00e1 tak \u00feennan kaleik af m\u00e9r. En \u00fe\u00f3 eigi minn heldur ver\u00f0i \u00feinn vilji.&#8220; En honum birtist engill af himni, styrkjandi hann. Og \u00fear kom a\u00f0 hann \u00fereytti vi\u00f0 dau\u00f0ann og t\u00f3k \u00e1kafar a\u00f0 bi\u00f0ja. En hans sveiti var\u00f0 so sem bl\u00f3\u00f0sdropar \u00feeir e\u00f0 f\u00e9llu \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina. Og hann st\u00f3\u00f0 upp af b\u00e6ninni og kom til sinna l\u00e6risveina og fann \u00fe\u00e1 sofandi af hrygg\u00f0 og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Hva\u00f0 sofi \u00fe\u00e9r? Standi\u00f0 upp og bi\u00f0ji\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e9r falli\u00f0 eigi \u00ed freistni.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 hann var \u00feetta a\u00f0 segja, sj\u00e1, \u00fea\u00f0 flokkurinn og einn af t\u00f3lf, s\u00e1 J\u00fadas h\u00e9t, gekk fyrir \u00feeim og vildi n\u00e1lgast Jes\u00fam a\u00f0 hann kyssti hann. <span class=\"athugasemd\" title=\"12 \/ J\u00fadas sv\u00edkur Christum me\u00f0 kossi\">[<\/span> En Jes\u00fas sag\u00f0i til hans: &#8222;J\u00fadas, sv\u00edkur \u00fe\u00fa Mannsin son me\u00f0 kossi?&#8220; En er \u00feeir sem hj\u00e1 honum voru s\u00e1u hva\u00f0 ver\u00f0a vildi s\u00f6g\u00f0u \u00feeir til hans: &#8222;Herra, skulu v\u00e6r eigi sl\u00e1 me\u00f0 sver\u00f0i?&#8220; En einn af \u00feeim sl\u00f3 \u00fej\u00f3n prestah\u00f6f\u00f0ingjans og hj\u00f3 af hans hi\u00f0 h\u00e6gra eyra. Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i: &#8222;Leyfi\u00f0 \u00feeim a\u00f0 gj\u00f6ra allt hi\u00f0 frekasta.&#8220; Og hann snart hans eyra og l\u00e6kna\u00f0i hann.<\/p>\n<p>\tEn Jes\u00fas sag\u00f0i til \u00feeirra prestah\u00f6f\u00f0ingja og h\u00f6fu\u00f0smanna musterisins og \u00f6ldunganna, hverjir eftir honum voru komnir: <span class=\"athugasemd\" title=\"13 \/ Kristur handtekinn\">[<\/span> &#8222;So sem til annars illvirkja gengu \u00fe\u00e9r \u00fat me\u00f0 sver\u00f0um og st\u00f6ngum. \u00de\u00e1 eg var daglega \u00ed musterinu hj\u00e1 y\u00f0ur l\u00f6g\u00f0u \u00fe\u00e9r eigi hendur \u00e1 mig, heldur er \u00feetta y\u00f0ar t\u00edmi og magt myrkranna.&#8220; En \u00feeir gripu hann og leiddu hann \u00ed prestah\u00f6f\u00f0ingjans h\u00fas. En P\u00e9tur fylgdi honum eftir \u00e1lengdar.<\/p>\n<p>\t\u00deeir kveiktu \u00fe\u00e1 upp eld \u00ed mi\u00f0jum forsalnum og settu sig \u00ed kringum hann. <span class=\"athugasemd\" title=\"Math. 16 \/ Marc. 14 \/ J\u00f3h. 18\">[<\/span> Og P\u00e9tur var \u00fear \u00e1 milli \u00feeirra. \u00de\u00e1 s\u00e1 hann amb\u00e1tt nokkur sitja vi\u00f0 logann, horf\u00f0i \u00e1 hann og sag\u00f0i: &#8222;\u00deessi var og me\u00f0 honum.&#8220; En hann afneita\u00f0i honum og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"15 \/ Afneitan Petri \u00feref\u00f6ld\">[<\/span> &#8222;Kona, eigi \u00feekki eg hann.&#8220; Og litlu einu \u00fear eftir s\u00e1 hann annar ma\u00f0ur og sag\u00f0i: &#8222;\u00de\u00fa ert og einn af \u00feeim.&#8220; En P\u00e9tur sag\u00f0i: &#8222;Ei em eg.&#8220; Og er bil var \u00e1 or\u00f0i\u00f0 sem eins t\u00edma tilstyrkti nokkur annar og sag\u00f0i: &#8222;A\u00f0 s\u00f6nnu var og \u00feessi me\u00f0 honum \u00fev\u00ed a\u00f0 hann er Gal\u00edleari.&#8220; En P\u00e9tur sag\u00f0i: &#8222;Ma\u00f0ur, eigi veit eg hva\u00f0 \u00fe\u00fa segir.&#8220; Og jafnsnart a\u00f0 honum n\u00fa \u00feetta enn talandi g\u00f3l haninn. Og Drottinn snerist vi\u00f0 og leit til P\u00e9turs. Og P\u00e9tur minntist or\u00f0a Drottins, hvernin hann haf\u00f0i sagt: &#8222;Fyrr en haninn gelur muntu afneita m\u00e9r \u00ferisvar.&#8220; Og P\u00e9tur gekk \u00fat og gr\u00e9t beisklega.<\/p>\n<p>\tEn \u00feeir menn sem h\u00e9ldu Jes\u00fa d\u00e1ru\u00f0u hann og dustu\u00f0u, byrg\u00f0u hann og sl\u00f3gu \u00ed hans andlit, spur\u00f0u hann a\u00f0 og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Hver er s\u00e1 sem \u00feig sl\u00f3?&#8220; Og margt anna\u00f0 h\u00e1\u00f0uglegt s\u00f6g\u00f0u \u00feeir vi\u00f0 hann.<\/p>\n<p>\tOg er dagur var komu saman \u00f6ldungar l\u00fd\u00f0sins og prestah\u00f6f\u00f0ingjar og hinir skriftl\u00e6r\u00f0u og leiddu hann upp fyrir sitt r\u00e1\u00f0 og s\u00f6g\u00f0u: <span class=\"athugasemd\" title=\"Math. 26 \/ Marc. 14\">[<\/span> &#8222;Ef \u00fe\u00fa ert Christus, seg oss \u00fea\u00f0.&#8220; Og hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Ef eg segi y\u00f0ur \u00fe\u00e1 tr\u00fai\u00f0 \u00fe\u00e9r m\u00e9r ei. En ef eg spyr y\u00f0ur \u00fe\u00e1 svari\u00f0 \u00fe\u00e9r m\u00e9r eigi og l\u00e1ti\u00f0 mig ei lausan. Og h\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1 mun Mannsins son sitja til h\u00e6gri handar Gu\u00f0s kraftar.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"16 \/ Fyrirs\u00f6gn um \u00feann s\u00ed\u00f0asta dag\">[<\/span> En \u00feeir s\u00f6g\u00f0u allir: &#8222;Ertu \u00fe\u00e1 Gu\u00f0s sonur?&#8220; Hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00de\u00e9r segi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 eg em hann.&#8220; En \u00feeir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Hva\u00f0 \u00feurfum v\u00e9r n\u00fa vitnisbur\u00f0inn lengur? V\u00e9r sj\u00e1lfir heyr\u00f0um \u00fea\u00f0 af hans munni.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXII. En \u00fe\u00e1 t\u00f3k a\u00f0 n\u00e1lgast h\u00e1t\u00ed\u00f0ardagur ins s\u00e6ta brau\u00f0s hver e\u00f0 kalla\u00f0ist p\u00e1skar. [ Og kennimannah\u00f6f\u00f0ingjar og skriftl\u00e6r\u00f0ir eftirleitu\u00f0u hvernin \u00feeir g\u00e6ti hann l\u00edfl\u00e1ti\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00f3ttu\u00f0ust l\u00fd\u00f0inn. [ En andskotinn var hlaupinn \u00ed J\u00fadas \u00feann kalla\u00f0ur var \u00cdskar\u00edot hver e\u00f0 var einn af t\u00f3lf. Og hann f\u00f3r burt og tala\u00f0i vi\u00f0 kennimannah\u00f6f\u00f0ingjana og h\u00f6fu\u00f0smennina hvernin hann vildi selja \u00feeim hann. \u00deeir gl\u00f6ddust vi\u00f0 og h\u00e9tu a\u00f0 gefa honum peninga til. Og hann lofa\u00f0i \u00feeim \u00fev\u00ed og leita\u00f0i lags a\u00f0 hann fengi selt \u00feeim hann \u00e1n upphlaups. En er kom dagur ins s\u00e6ta brau\u00f0s \u00e1 hverjum s\u00e6fast skyldi <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-22-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3845","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3845","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3845"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3845\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3845"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}