{"id":3841,"date":"2017-12-18T18:34:53","date_gmt":"2017-12-18T18:34:53","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-18-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:53","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:53","slug":"lukasargudspjall-18-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-18-kafli\/","title":{"rendered":"L\u00fakasargu\u00f0spjall 18. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XVIII.<\/p>\n<p>En hann sag\u00f0i eftirl\u00edking til \u00feeirra hvernin v\u00e9r skyldum jafnan bi\u00f0ja og ei \u00fereytast og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ I\u00f0uglega skulu menn bi\u00f0ja\">[<\/span> &#8222;S\u00e1 d\u00f3mari var \u00ed nokkri borg sem eigi \u00f3tta\u00f0ist Gu\u00f0 og eigi skeytti um menn. En ekkja nokkur var \u00fear \u00ed s\u00f6mu borg og h\u00fan kom til hans og sag\u00f0i: Leys mig af m\u00ednum m\u00f3tst\u00f6\u00f0um\u00f6nnum. Og um langan t\u00edma vildi hann eigi. En eftir \u00e1 sag\u00f0i hann me\u00f0 sj\u00e1lfum s\u00e9r: \u00de\u00f3 eg \u00f3ttist eigi Gu\u00f0 n\u00e9 skeyti um \u00f6ngvan \u00fe\u00f3 fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feessi ekkja gj\u00f6rir m\u00e9r \u00f3n\u00e1\u00f0 mikla \u00fe\u00e1 vil eg leysa hana so a\u00f0 h\u00fan komi ei a\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu og of\u00fereyti mig.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn: &#8222;Heyri \u00fe\u00e9r hva\u00f0 s\u00e1 rangl\u00e1ti d\u00f3mari segir. Skyldi Gu\u00f0 n\u00fa eigi gj\u00f6ra frelsan sinna \u00fatvaldra, \u00feeirra sem n\u00f3tt og dag til hans kalla, og \u00feolinm\u00e6\u00f0i yfir \u00feeim hafa? En eg segi y\u00f0ur \u00fea\u00f0 hann mun br\u00e1\u00f0lega gj\u00f6ra \u00feeirra frelsan. En \u00fe\u00e1 n\u00e6r Mannsins sonur kemur, meinar \u00fe\u00fa a\u00f0 hann muni tr\u00fa finna \u00e1 j\u00f6r\u00f0u?&#8220;<\/p>\n<p>\tEn hann sag\u00f0i til nokkra \u00feeirra sem tr\u00fa\u00f0u sig sj\u00e1lfa r\u00e9ttl\u00e1ta vera og forsm\u00e1\u00f0u a\u00f0ra \u00feessa eftirl\u00edking: <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Tr\u00fana\u00f0artraust sj\u00e1anlegra verka straffast\">[<\/span> &#8222;Tveir menn \u00fe\u00e1 gengu upp \u00ed musteri\u00f0 a\u00f0 bi\u00f0jast fyrir. Einn var Phariseus en annar tollheimtuma\u00f0ur. Far\u00edsearinn st\u00f3\u00f0 og ba\u00f0st \u00feannin fyrir me\u00f0 sj\u00e1lfum s\u00e9r: Gu\u00f0, eg \u00feakka \u00fe\u00e9r a\u00f0 eg em eigi so sem a\u00f0rir menn, r\u00e6ningjar, \u00f3r\u00e9ttfer\u00f0ugir og h\u00f3rd\u00f3msmenn e\u00f0a so sem \u00feessi tollheimtuma\u00f0ur. Eg fasta tvisvar \u00ed viku og gef t\u00edundir af \u00f6llu \u00fev\u00ed eg \u00e1. Og tollheimtuma\u00f0urinn st\u00f3\u00f0 langt \u00ed fr\u00e1 og vildi eigi upphefja s\u00edn augu til himins heldur bar\u00f0i hann \u00e1 sitt brj\u00f3st og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Vi\u00f0urkenning syndanna og traust til miskunnar Gu\u00f0s\">[<\/span> Gu\u00f0, vertu m\u00e9r syndugum l\u00edknsamur. Eg segi y\u00f0ur fyrir sann a\u00f0 \u00feessi f\u00f3r meir r\u00e9ttl\u00e1tur \u00ed sitt h\u00fas en hinn. \u00dev\u00ed hver sig sj\u00e1lfur upphefur hann mun ni\u00f0url\u00e6gjast og hver sj\u00e1lfan sig ni\u00f0url\u00e6gir hann mun upphafinn ver\u00f0a.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00deeir f\u00e6r\u00f0u \u00fe\u00e1 til hans ungb\u00f6rn a\u00f0 hann t\u00e6ki \u00e1 \u00feeim. <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Um sm\u00e1b\u00f6rnin\">[<\/span> En er \u00fea\u00f0 s\u00e1u hans l\u00e6risveinar \u00e1v\u00edtu\u00f0u \u00feeir \u00fe\u00e1. En Jes\u00fas kalla\u00f0i \u00feau til s\u00edn og sag\u00f0i: &#8222;Leyfi\u00f0 b\u00f6rnunum til m\u00edn a\u00f0 koma og banni\u00f0 \u00feeim \u00fea\u00f0 eigi \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fev\u00edl\u00edkra er Gu\u00f0s r\u00edki. Sannlega segi eg y\u00f0ur: Hver hann me\u00f0tekur eigi Gu\u00f0s r\u00edki sem ungbarn hann mun eigi innganga \u00ed \u00fea\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg h\u00f6f\u00f0ingi nokkur spur\u00f0i hann a\u00f0 og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Hvernin ma\u00f0ur megi au\u00f0last eil\u00edft l\u00edf\">[<\/span> &#8222;G\u00f3\u00f0i meistari, hva\u00f0 skal eg gj\u00f6ra a\u00f0 eg eignist eil\u00edft l\u00edf?&#8220; En Jes\u00fas sag\u00f0i til hans: &#8222;Hva\u00f0 kallar \u00fe\u00fa mig g\u00f3\u00f0an? Enginn er g\u00f3\u00f0ur nema Gu\u00f0 einn. Bo\u00f0or\u00f0in veitstu a\u00f0 eigi skulir \u00fe\u00fa mann vega, eigi h\u00f3rd\u00f3m dr\u00fdgja, eigi \u00fej\u00f3nfa\u00f0 fremja, ekkert lj\u00fagvitni bera, hei\u00f0ra skaltu f\u00f6\u00f0ur og m\u00f3\u00f0ur.&#8220; En hann sag\u00f0i: &#8222;Allt \u00feetta hefi eg haldi\u00f0 fr\u00e1 barn\u00e6sku minni.&#8220; \u00de\u00e1 Jes\u00fas heyr\u00f0i \u00fea\u00f0 sag\u00f0i hann til hans: &#8222;Eitt brestur \u00feig enn. Sel allt hva\u00f0 \u00fe\u00fa hefur og gef f\u00e1t\u00e6kum og muntu \u00fe\u00e1 hafa sj\u00f3\u00f0 \u00e1 himni og kom og fylg m\u00e9r eftir.&#8220; \u00de\u00e1 hann heyr\u00f0i \u00fea\u00f0 var\u00f0 hann hryggur af \u00fev\u00ed hann var mj\u00f6g au\u00f0igur.<\/p>\n<p>\tEn er Jes\u00fas s\u00e1 hann hryggvan or\u00f0inn sag\u00f0i hann: <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ Um \u00fe\u00e1 r\u00edku \u00e1gj\u00f6rnu\">[<\/span> &#8222;Hversu torvelt er \u00feeim inn a\u00f0 ganga \u00ed Gu\u00f0s r\u00edki sem r\u00edkd\u00f3m hafa! H\u00e6gra er \u00falfaldanum a\u00f0 ganga \u00ed gegnum n\u00e1larauga en r\u00edkum manni inn a\u00f0 ganga \u00ed Gu\u00f0s r\u00edki.&#8220; \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u \u00feeir sem til heyr\u00f0u: &#8222;Hver f\u00e6r \u00fe\u00e1 hj\u00e1lpast?&#8220; En hann sag\u00f0i: &#8222;Hva\u00f0 \u00f3m\u00e1ttugt er fyrir m\u00f6nnum \u00fea\u00f0 er m\u00f6gulegt fyrir Gu\u00f0i.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i P\u00e9tur: <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ Huggun f\u00e1t\u00e6kra\">[<\/span> &#8222;Sj\u00e1\u00f0u, v\u00e6r forl\u00e9tum allt og fylgdum \u00fe\u00e9r eftir.&#8220; En hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Sannlega segi eg y\u00f0ur: Enginn er s\u00e1 hver sitt heimili e\u00f0ur foreldra e\u00f0a br\u00e6\u00f0ur, konu e\u00f0a b\u00f6rn forl\u00e6tur vegna Gu\u00f0s r\u00edkis a\u00f0 hann me\u00f0taki eigi miklu fleira aftur \u00e1 \u00feessum t\u00edma og \u00ed \u00f6\u00f0rum heimi eil\u00edft l\u00edf.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn Jes\u00fas t\u00f3k \u00fe\u00e1 t\u00f3lf til s\u00edn og sag\u00f0i til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"8 \/ Fyrirs\u00f6gn um dau\u00f0a og upprisu Christi \u00ed \u00feri\u00f0ja sinni\">[<\/span> &#8222;Sj\u00e1i\u00f0, a\u00f0 v\u00e9r f\u00f6rum n\u00fa upp til Jer\u00fasalem og \u00fea\u00f0 mun allt fullkomna\u00f0 ver\u00f0a hva\u00f0 skrifa\u00f0 er fyrir sp\u00e1mennina af Mannsins syni. \u00dev\u00ed a\u00f0 hann mun framseldur ver\u00f0a hei\u00f0ingjum og hann mun hleginn, sp\u00fdttur og sp\u00e9a\u00f0ur ver\u00f0a og \u00feeir munu hann h\u00fa\u00f0fletta og l\u00edfl\u00e1ta og eftir \u00fea\u00f0 \u00e1 hinum \u00feri\u00f0ja degi mun hann upp aftur r\u00edsa.&#8220; Og \u00feeir forst\u00f3\u00f0u ekkert af \u00feessum or\u00f0um og \u00feau voru hulin fyrir \u00feeim og eigi vissu \u00feeir hva\u00f0 \u00feau h\u00f6f\u00f0u a\u00f0 segja.<\/p>\n<p>\tEn \u00fea\u00f0 ske\u00f0i \u00fe\u00e1 hann t\u00f3k a\u00f0 n\u00e1lgast Jer\u00edk\u00f3 a\u00f0 nokkur mann blindur var vi\u00f0 veginn og ba\u00f0 \u00f6lmusu. <span class=\"athugasemd\" title=\"9 \/ Blindur ma\u00f0ur f\u00e6r s\u00fdn\">[<\/span> Og er hann heyr\u00f0i a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 gekk \u00fear fram hj\u00e1 spur\u00f0i hann a\u00f0 hva\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri. \u00deeir s\u00f6g\u00f0u honum \u00fe\u00e1 a\u00f0 Jes\u00fas af Na\u00f0saret gengi \u00fear hj\u00e1. \u00de\u00e1 kalla\u00f0i hann og sag\u00f0i: &#8222;Jes\u00fas, sonur Dav\u00ed\u00f0s, miskunna \u00fe\u00fa m\u00e9r!&#8220; En \u00feeir sem undan gengu h\u00f6stu\u00f0u \u00e1 hann a\u00f0 hann \u00feeg\u00f0i. Hann kalla\u00f0i \u00fev\u00ed meir og sag\u00f0i: &#8222;Sonur Dav\u00ed\u00f0s, miskunna \u00fe\u00fa m\u00e9r!&#8220; En Jes\u00fas st\u00f3\u00f0 kyrr og bau\u00f0 \u00feeim a\u00f0 lei\u00f0a hann til s\u00edn. Og er hann var kominn hart n\u00e6r honum t\u00f3k hann a\u00f0 spyrja hann a\u00f0: &#8222;Hva\u00f0 viltu eg gj\u00f6ri \u00fe\u00e9r?&#8220; Hann sag\u00f0i: &#8222;Herra, \u00fea\u00f0 eg m\u00e6tti sj\u00e1.&#8220; Jes\u00fas sag\u00f0i til hans: <span class=\"athugasemd\" title=\"10 \/ Kraftur tr\u00faarinnar\">[<\/span> &#8222;Vert skyggn, \u00fe\u00edn tr\u00faa gj\u00f6r\u00f0i \u00feig h\u00f3lpinn.&#8220; Og jafnsnart f\u00e9kk hann s\u00fdnina, fylgdi honum og eftir, vegsamandi Gu\u00f0. Og allt \u00fea\u00f0 f\u00f3lk er \u00feetta s\u00e1 gaf Gu\u00f0i lof.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XVIII. En hann sag\u00f0i eftirl\u00edking til \u00feeirra hvernin v\u00e9r skyldum jafnan bi\u00f0ja og ei \u00fereytast og sag\u00f0i: [ &#8222;S\u00e1 d\u00f3mari var \u00ed nokkri borg sem eigi \u00f3tta\u00f0ist Gu\u00f0 og eigi skeytti um menn. En ekkja nokkur var \u00fear \u00ed s\u00f6mu borg og h\u00fan kom til hans og sag\u00f0i: Leys mig af m\u00ednum m\u00f3tst\u00f6\u00f0um\u00f6nnum. Og um langan t\u00edma vildi hann eigi. En eftir \u00e1 sag\u00f0i hann me\u00f0 sj\u00e1lfum s\u00e9r: \u00de\u00f3 eg \u00f3ttist eigi Gu\u00f0 n\u00e9 skeyti um \u00f6ngvan \u00fe\u00f3 fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feessi ekkja gj\u00f6rir m\u00e9r \u00f3n\u00e1\u00f0 mikla \u00fe\u00e1 vil eg leysa hana so a\u00f0 h\u00fan komi ei a\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-18-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3841","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3841","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3841"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3841\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3841"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}