{"id":3835,"date":"2017-12-18T18:34:50","date_gmt":"2017-12-18T18:34:50","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-12-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:50","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:50","slug":"lukasargudspjall-12-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-12-kafli\/","title":{"rendered":"L\u00fakasargu\u00f0spjall 12. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XII.<\/p>\n<p>En er mikill og \u00f3t\u00f6lulegur l\u00fd\u00f0ur flykktist \u00fear saman so a\u00f0 n\u00e1lega tra\u00f0 hver annan undir h\u00f3f hann upp og sag\u00f0i til sinna l\u00e6risveina: <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ Phariseis s\u00fardeig a\u00f0 for\u00f0ast\">[<\/span> &#8222;\u00cd fyrstu vakti\u00f0 y\u00f0ur fyrir s\u00fardeigi Phariseorum, hva\u00f0 er hr\u00e6sni. \u00dev\u00ed a\u00f0 ekkert er so huli\u00f0 a\u00f0 ei ver\u00f0i auglj\u00f3st n\u00e9 nokku\u00f0 so leynt a\u00f0 eigi vitist. Fyrir \u00fev\u00ed hva\u00f0 \u00fe\u00e9r segi\u00f0 \u00ed myrkrum \u00fea\u00f0 mun \u00ed lj\u00f3si heyrast og hva\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ed svefnh\u00fasum hv\u00edsli\u00f0 \u00ed eyra mun \u00e1 r\u00e6frum uppi pr\u00e9dika\u00f0.<\/p>\n<p>\tEn eg segi y\u00f0ur, vinum m\u00ednum: <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Huggun \u00ed krossi og ofs\u00f3knum\">[<\/span> Hr\u00e6\u00f0ist eigi \u00fe\u00e1 sem l\u00edkamann afl\u00edfa og eftir \u00fea\u00f0 f\u00e1 \u00feeir eigi meir a\u00f0 gj\u00f6rt. En eg vil s\u00fdna y\u00f0ur hvern \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 hr\u00e6\u00f0ast: Hr\u00e6\u00f0ist \u00feann sem eftir \u00fea\u00f0 er hann hefir l\u00edfl\u00e1ti\u00f0 \u00fe\u00e1 hefir hann magt til a\u00f0 senda \u00ed helv\u00edti. A\u00f0 v\u00edsu segi eg y\u00f0ur, \u00fe\u00e1 hr\u00e6\u00f0ist hann. Seljast eigi fimm sk\u00f3gar\u00ferestir tveimur peningum og einn af \u00feeim er eigi gleymdur fyrir Gu\u00f0i. So eru og \u00f6ll h\u00f6fu\u00f0h\u00e1r y\u00f0ar talin. Fyrir \u00fev\u00ed skulu \u00fe\u00e9r eigi \u00f3ttast \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r eru\u00f0 d\u00fdrri en margir sk\u00f3gar\u00ferestir.<\/p>\n<p>\tEn eg segi y\u00f0ur: Hver helst han vi\u00f0urkennir mig h\u00e9r fyrir m\u00f6nnum \u00feann mun Mannsins son vi\u00f0urkenna fyrir englum Gu\u00f0s. En hver hann afneitar m\u00e9r h\u00e9r fyrir m\u00f6nnum honum mun afneita\u00f0 ver\u00f0a fyrir Gu\u00f0s englum. Og hver e\u00f0 talar or\u00f0 \u00ed gegn Gu\u00f0s syni \u00fe\u00e1 mun honum fyrirgefast en hver han h\u00e6\u00f0ir a\u00f0 heil\u00f6gum anda honum skal eigi fyrirgefast. <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Af gu\u00f0l\u00f6stunarsynd\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEn n\u00e6r \u00feeir draga y\u00f0ur inn \u00ed samkunduh\u00fas og fyrir s\u00edna yfirbo\u00f0ara og valdsmenn \u00fe\u00e1 veri\u00f0 eigi hugsj\u00fakir um hvernin e\u00f0a hverju \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 svara e\u00f0a hva\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 segja \u00fev\u00ed a\u00f0 heilagur andi mun fr\u00e6\u00f0a y\u00f0ur \u00e1 s\u00f6mu stundu hva\u00f0 y\u00f0ur byrjar a\u00f0 segja.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Math. 10 \/ Math. 12\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEn nokkur af f\u00f3lkinu sag\u00f0i til hans: <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ \u00c1girni a\u00f0 for\u00f0ast\">[<\/span> &#8222;Meistari, seg br\u00f3\u00f0ur m\u00ednum a\u00f0 hann skipti vi\u00f0 mig arfleif\u00f0 minni.&#8220; En hann sag\u00f0i honum: &#8222;\u00de\u00fa ma\u00f0ur, hver setti mig fyrir d\u00f3mara e\u00f0a arfskiptismann yfir y\u00f0ur?&#8220; Og hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Sj\u00e1i\u00f0 til og vari\u00f0 y\u00f0ur vi\u00f0 allri \u00e1girni \u00fev\u00ed a\u00f0 enginn lifir \u00fear af \u00fea\u00f0 hann hafi mikil au\u00f0\u00e6fi.&#8220; Og hann tala\u00f0i \u00fe\u00e1 eina eftirl\u00edking til \u00feeira og sag\u00f0i: <\/p>\n<p>\t&#8222;Au\u00f0ugur ma\u00f0ur nokkur var s\u00e1 hvers akur e\u00f0 f\u00e6rt haf\u00f0i frj\u00f3van \u00e1v\u00f6xt. Hann hugsa\u00f0i \u00fe\u00e1 me\u00f0 s\u00e9r og sag\u00f0i: Hva\u00f0 skal eg til gj\u00f6ra? Eg hefi ei \u00fea\u00f0 h\u00fas hvert eg megi m\u00ednum \u00e1vexti \u00ed safna, og sag\u00f0i: \u00dea\u00f0 vil eg gj\u00f6ra: Eg vil m\u00edna hl\u00f6\u00f0u ni\u00f0urr\u00edfa og gj\u00f6ra upp a\u00f0ra meiri og safna \u00feanga\u00f0 \u00f6llu \u00fev\u00ed er m\u00e9r hefir gr\u00f3i\u00f0 og so m\u00ednum au\u00f0\u00e6fum. Og \u00fe\u00e1 mun eg segja til s\u00e1lu minnar: S\u00e1la m\u00edn, \u00fe\u00fa hefur mikinn au\u00f0 samandregi\u00f0 til margra \u00e1ra. Hv\u00edl \u00feig n\u00fa, et og drekk og haf allsn\u00e6gtir og vert gl\u00f6\u00f0. En Gu\u00f0 sag\u00f0i til hans: \u00de\u00fa d\u00e1ri, \u00e1 \u00feessari n\u00f3tt munu \u00feeir \u00fe\u00edna s\u00e1l af \u00fe\u00e9r krefja og hvers ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 er \u00fe\u00fa hefur tilreitt? So er me\u00f0 \u00feeim er s\u00e9r draga sj\u00f3\u00f0 saman og eru eigi \u00ed Gu\u00f0i r\u00edkir.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i hann til sinna l\u00e6risveina: <span class=\"athugasemd\" title=\"Math. 6 \/ 5 \/ B\u00faksorg og hugs\u00fdki fyrirbo\u00f0in\">[<\/span> &#8222;Fyrir \u00fev\u00ed segi eg y\u00f0ur: Sturli\u00f0 eigi fyrir l\u00edfd\u00f6gum y\u00f0ar, hva\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 eta, og eigi fyrir l\u00edkama y\u00f0ar, hverju hann skuli kl\u00e6\u00f0ast. L\u00edfi\u00f0 er meira en f\u00e6\u00f0an og l\u00edkaminn meiri en f\u00f6tin. Hyggi\u00f0 a\u00f0 hr\u00f6fnunum. \u00deeir s\u00e1 hverki n\u00e9 uppskera, eigi hafa \u00feeir hl\u00f6\u00f0u n\u00e9 kjallara, og \u00fe\u00f3 f\u00e6\u00f0ir Gu\u00f0 \u00fe\u00e1. Miklum mun meiri eru \u00fe\u00e9r \u00fe\u00f3 fuglunum.<\/p>\n<p>\tEn hver y\u00f0ar f\u00e6r me\u00f0 sinni hugs\u00fdki auki\u00f0 lengd s\u00edna alin einni? \u00dev\u00ed ef \u00fe\u00e9r orki\u00f0 eigi hins minnsta, hva\u00f0 fyrir sturli \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 fyrir hinu \u00f6\u00f0ru? Huglei\u00f0i\u00f0 hvernin liljugr\u00f6sin vaxa. \u00deau vinna eigi n\u00e9 spinna. En eg segi y\u00f0ur \u00fea\u00f0 Sal\u00f3mon \u00ed allri sinni pr\u00fd\u00f0i var ei so skr\u00fdddur sem eitt af \u00feeim.<\/p>\n<p>\tN\u00fa fyrst Gu\u00f0 skr\u00fd\u00f0ir so \u00fea\u00f0 gras er \u00ed dag stendur \u00e1 akri og \u00e1 morgun ver\u00f0ur \u00ed baksturofn l\u00e1ti\u00f0, miklu meir mun hann \u00fe\u00f3 kl\u00e6\u00f0a y\u00f0ur, \u00f3 \u00fe\u00e9r vesaltr\u00faa\u00f0ir! \u00de\u00e9r skulu\u00f0 og eigi eftirspyrja hva\u00f0 \u00fe\u00e9r eti\u00f0 e\u00f0a drekki\u00f0 og eigi hefja y\u00f0ur h\u00e1tt. \u00dev\u00ed a\u00f0 eftir \u00feessu \u00f6llu s\u00e6kir hei\u00f0in \u00fej\u00f3\u00f0 veraldar en fa\u00f0ir y\u00f0ar veit vel a\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00feurfi\u00f0 \u00feessa vi\u00f0. \u00dev\u00ed leiti\u00f0 fyrst a\u00f0 Gu\u00f0s r\u00edki og hans r\u00e9ttl\u00e6ti og mun y\u00f0ur \u00fe\u00e1 allt tilfalla.<\/p>\n<p>\tHr\u00e6\u00f0st eigi, \u00fe\u00fa veskul hj\u00f6r\u00f0, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3kna\u00f0ist f\u00f6\u00f0ur y\u00f0ar a\u00f0 gefa y\u00f0ur r\u00edki\u00f0. Selji\u00f0 hva\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 og gefi\u00f0 \u00f6lmusu. Gj\u00f6ri\u00f0 y\u00f0ur og \u00fe\u00e1 sekki er eigi eldast og \u00feann sj\u00f3\u00f0 er eigi minnkar \u00e1 himnum, a\u00f0 hverjum \u00fej\u00f3far f\u00e1 eigi komist n\u00e9 melur skori\u00f0. \u00dev\u00ed hvar y\u00f0ar sj\u00f3\u00f0ur er \u00fear er og y\u00f0art hjarta.<\/p>\n<p>\tY\u00f0rar lendar s\u00e9 umgyrtar og logandi lj\u00f3s \u00ed h\u00f6ndum y\u00f0rum. <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ Bo\u00f0an a\u00f0 menn skuli vaka og vera athugalausir\">[<\/span> Veri\u00f0 og l\u00edkir \u00feeim m\u00f6nnum er b\u00ed\u00f0a eftir s\u00ednum l\u00e1nardrottni hvenar hann muni aftur koma af brullaupum, so a\u00f0 \u00fe\u00e1 hann kemur og ber s\u00e9 strax fyrir honum upploki\u00f0. S\u00e6lir eru \u00feeir \u00fej\u00f3nar hverja e\u00f0 (\u00fe\u00e1 er herrann kemur) finnur hann vakandi. Sannlega segi eg y\u00f0ur \u00fea\u00f0 hann mun upp stytta sig, l\u00e6tur og \u00fe\u00e1 til bor\u00f0s sitja, gengur fyrir \u00feeim og \u00fej\u00f3nar.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00f3 ef hann komi \u00e1 annarri eykt e\u00f0a \u00e1 hinni \u00feri\u00f0ju og finni \u00fea\u00f0 l\u00edka so, s\u00e6lir eru \u00feeir \u00fej\u00f3nar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Math. 14\">[<\/span> En \u00fea\u00f0 skulu \u00fe\u00e9r vita a\u00f0 ef h\u00fasb\u00f3ndinn vissi \u00e1 hverri stundu e\u00f0 \u00fej\u00f3furinn k\u00e6mi \u00fe\u00e1 vekti hann og l\u00e9ti eigi grafa sitt h\u00fas. Fyrir \u00fev\u00ed veri\u00f0 og rei\u00f0ub\u00fanir \u00fev\u00ed a\u00f0 Mannsins sonur mun \u00e1 \u00feeirri stundu koma er \u00fe\u00e9r \u00e6tli\u00f0 eigi.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i P\u00e9tur til hans: <span class=\"athugasemd\" title=\"Math. 14\">[<\/span> &#8222;Herra, segir \u00fe\u00fa \u00feessa eftirl\u00edking til vor e\u00f0a til allra?&#8220; En Drottinn sag\u00f0i: &#8222;Hve mikils er vert um tr\u00faan og forsj\u00e1lan fyrirsj\u00f3narmann hvern e\u00f0 herrann setur finnur so gj\u00f6randi \u00fe\u00e1 e\u00f0 hann kemur! Sannlega segi eg y\u00f0ur \u00fea\u00f0 hann mun setja hann yfir allt hva\u00f0 hann eignast. En ef s\u00e1 sami \u00fej\u00f3n segir \u00ed hjarta s\u00ednu: Herra minn gj\u00f6rir dv\u00f6l \u00e1 a\u00f0 koma, og tekur a\u00f0 berja vinnumenn og amb\u00e1ttir og a\u00f0 eta og drekka og sig drukkinn a\u00f0 gj\u00f6ra, og \u00fe\u00e1 kemur herrann \u00feess \u00fej\u00f3ns \u00e1 \u00feeim degi er hann vonar eigi og \u00e1 \u00feeirri stundu er hann veit eigi og skiptir honum sundur og leggur honum s\u00edn laun me\u00f0ur \u00f3tr\u00fau\u00f0um.<\/p>\n<p>\tEn hver s\u00e1 \u00fej\u00f3n er veit s\u00edns herrans vilja og bj\u00f3 sig eigi til, gj\u00f6r\u00f0i og eigi eftir hans vilja, hann mun mikla refsing f\u00e1. En s\u00e1 hann veit eigi og gj\u00f6rir \u00fea\u00f0 hegningar er vert, hann mun minni hirting f\u00e1. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeim sem miki\u00f0 er veitt, af honum \u00e6skist miki\u00f0, og hverjum miki\u00f0 ver\u00f0ur \u00ed hendur selt, af honum heimtist miki\u00f0.<\/p>\n<p>\tEg kom a\u00f0 sn\u00e6ra upp eld \u00e1 j\u00f6r\u00f0u \u0096 hva\u00f0 eg gjarna vilda a\u00f0 hann brynni n\u00fa \u00feegar! En eg hl\u00fdt \u00e1\u00f0ur me\u00f0 sk\u00edrn a\u00f0 sk\u00edrast. Og hversu eg \u00ferengjunst \u00feanga\u00f0 til h\u00fan fullkomnast! Meini \u00fe\u00e9r a\u00f0 eg k\u00e6mi a\u00f0 senda fri\u00f0 \u00e1 j\u00f6r\u00f0u? <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ \u00c1minning um hneykslan \u00f3sam\u00feykkis\">[<\/span> Eg segi y\u00f0ur: Nei, heldur sundur\u00feykkju. \u00dev\u00ed a\u00f0 h\u00e9\u00f0an fr\u00e1 munu fimm ver\u00f0a \u00ed einu h\u00fasi sundur\u00feykkir, \u00fer\u00edr \u00ed m\u00f3ti tveimur og tveir \u00ed m\u00f3ti \u00feremur. Fa\u00f0irinn mun ver\u00f0a \u00ed m\u00f3ti syninum og sonurinn \u00ed m\u00f3ti f\u00f6\u00f0urnum, m\u00f3\u00f0urin \u00ed m\u00f3ti d\u00f3tturinni og d\u00f3tturin \u00ed m\u00f3ti m\u00f3\u00f0urinni, og m\u00f3\u00f0ir konu manns \u00ed m\u00f3ti sonarkonunni og sonarkona \u00ed m\u00f3ti m\u00f3\u00f0urkonu mannsins.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn hann sag\u00f0i til f\u00f3lksins: &#8222;Hven\u00e6r \u00fe\u00e9r sj\u00e1i\u00f0 sk\u00fd upp ganga \u00ed vestri \u00fe\u00e1 segi \u00fe\u00e9r jafnskj\u00f3tt a\u00f0 regn komi og \u00fea\u00f0 sker. Og n\u00e6r \u00fe\u00e9r sj\u00e1i sunnanvind bl\u00e1sa \u00fe\u00e1 segi \u00fe\u00e9r hita ver\u00f0a, \u00fea\u00f0 sker. Og \u00fe\u00e9r hr\u00e6snarar, \u00e1s\u00fdnd himins og jar\u00f0ar kunni \u00fe\u00e9r a\u00f0 pr\u00f3fa en \u00fev\u00ed pr\u00f3fi \u00fe\u00e9r ei \u00feennan t\u00edma sem n\u00fa er? E\u00f0a fyrir \u00fev\u00ed d\u00e6mi \u00fe\u00e9r eigi af sj\u00e1lfum y\u00f0ur hva\u00f0 r\u00e9ttv\u00edst er?<\/p>\n<p>\tEn n\u00e6r \u00fe\u00fa gengur me\u00f0 \u00fe\u00ednum s\u00f6kud\u00f3lg fyrir valdsmanninn \u00fe\u00e1 kosta kapps \u00e1 veginum a\u00f0 \u00fe\u00fa losir \u00feig fr\u00e1 honum a\u00f0 eigi dragi hann \u00feig nokku\u00f0 sinn fyrir d\u00f3marann og d\u00f3marinn selji \u00feig refsaranum og refsarinn kasti \u00fe\u00e9r so \u00ed d\u00fdflissu. <span class=\"athugasemd\" title=\"8 \/ Um br\u00f3\u00f0urlega forl\u00edkun\">[<\/span> Eg segi \u00fea\u00f0 eigi fer \u00fe\u00fa \u00fat \u00fea\u00f0an \u00fear til \u00fe\u00fa borgar einnin hinn s\u00ed\u00f0asta skarf.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XII. En er mikill og \u00f3t\u00f6lulegur l\u00fd\u00f0ur flykktist \u00fear saman so a\u00f0 n\u00e1lega tra\u00f0 hver annan undir h\u00f3f hann upp og sag\u00f0i til sinna l\u00e6risveina: [ &#8222;\u00cd fyrstu vakti\u00f0 y\u00f0ur fyrir s\u00fardeigi Phariseorum, hva\u00f0 er hr\u00e6sni. \u00dev\u00ed a\u00f0 ekkert er so huli\u00f0 a\u00f0 ei ver\u00f0i auglj\u00f3st n\u00e9 nokku\u00f0 so leynt a\u00f0 eigi vitist. Fyrir \u00fev\u00ed hva\u00f0 \u00fe\u00e9r segi\u00f0 \u00ed myrkrum \u00fea\u00f0 mun \u00ed lj\u00f3si heyrast og hva\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ed svefnh\u00fasum hv\u00edsli\u00f0 \u00ed eyra mun \u00e1 r\u00e6frum uppi pr\u00e9dika\u00f0. En eg segi y\u00f0ur, vinum m\u00ednum: [ Hr\u00e6\u00f0ist eigi \u00fe\u00e1 sem l\u00edkamann afl\u00edfa og eftir \u00fea\u00f0 f\u00e1 \u00feeir eigi meir a\u00f0 gj\u00f6rt. <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-12-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3835","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3835","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3835"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3835\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3835"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}