{"id":3833,"date":"2017-12-18T18:34:50","date_gmt":"2017-12-18T18:34:50","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-10-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:50","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:50","slug":"lukasargudspjall-10-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-10-kafli\/","title":{"rendered":"L\u00fakasargu\u00f0spjall 10. kafli"},"content":{"rendered":"<p>X.<\/p>\n<p>En eftir \u00fea\u00f0 \u00fatvaldi Drottinn og a\u00f0ra sj\u00f6t\u00edgi og sendi \u00fe\u00e1 \u00fat p\u00f6rum saman fyrir s\u00e9r \u00ed allar \u00fe\u00e6r borgir og \u00e1lfur er hann vildi koma og sag\u00f0i til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ Jes\u00fas sendir \u00fe\u00e1 sj\u00f6t\u00edgir l\u00e6risveina \u00fat\">[<\/span> &#8222;A\u00f0 s\u00f6nnu er kornskeran mikil en verkmennirnir f\u00e1ir. \u00dev\u00ed bi\u00f0ji\u00f0 herrann kornskerunnar a\u00f0 hann sendi verkmenn \u00ed s\u00edna kornskeru. Fari \u00fe\u00e9r. Sj\u00e1i\u00f0, eg sendi y\u00f0ur so sem l\u00f6mb \u00e1 me\u00f0al varga. Beri\u00f0 eigi pung n\u00e9 t\u00f6sku og eigi sk\u00f3. Heilsi\u00f0 og \u00f6ngum \u00e1 str\u00e6ti og \u00ed hvert \u00fea\u00f0 h\u00fas \u00fe\u00e9r inngangi\u00f0 \u00fe\u00e1 segi\u00f0 fyrst: Fri\u00f0ur s\u00e9 \u00feessu h\u00fasi. Og ef \u00fear er sonur fri\u00f0arins \u00fe\u00e1 hv\u00edlist y\u00f0ar fri\u00f0ur yfir honum. En ef eigi er \u00fe\u00e1 sn\u00fdst hann til y\u00f0ar aftur. Bl\u00edfi\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed sama h\u00fasi, eti\u00f0 og drekki\u00f0 hva\u00f0 \u00fear veitist \u00fev\u00ed a\u00f0 ver\u00f0ur er verkma\u00f0urinn sinna launa.<\/p>\n<p>\tEigi skulu \u00fe\u00e9r r\u00e1fa h\u00fas af h\u00fasi. <span class=\"athugasemd\" title=\"Math. 10\">[<\/span> Og \u00ed hverja borg sem \u00fe\u00e9r inngangi\u00f0 og \u00feeir me\u00f0taka y\u00f0ur \u00fe\u00e1 eti\u00f0 \u00fea\u00f0 sem fyrir y\u00f0ur ver\u00f0ur fram sett. Og l\u00e6kni\u00f0 sj\u00faka \u00fe\u00e1 sem \u00fear eru og segi\u00f0 \u00feeim: Gu\u00f0s r\u00edki er n\u00e1l\u00e6gt y\u00f0ur. En ef \u00fe\u00e9r gangi\u00f0 \u00ed nokkra borg \u00fear \u00feeir me\u00f0taka y\u00f0ur ei gangi\u00f0 \u00fat \u00e1 hennar str\u00e6ti og segi\u00f0: Einnin \u00fea\u00f0 duft sem loddi \u00e1 oss \u00far y\u00f0vari borg hristum v\u00e6r af y\u00f0ur. \u00de\u00f3 skulu \u00fe\u00e9r vita a\u00f0 Gu\u00f0s r\u00edki var n\u00e1l\u00e6gt y\u00f0ur. Eg segi y\u00f0ur \u00fea\u00f0 Sodoma mun b\u00e6rilegra vera \u00e1 \u00feeim degi en \u00feeirri borg. <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Refsing \u00feeirra sem or\u00f0i\u00f0 forsm\u00e1\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tVei \u00fe\u00e9r K\u00f3ras\u00edn! Vei \u00fe\u00e9r Betsa\u00edda! \u00dev\u00ed a\u00f0 ef ske\u00f0 hef\u00f0i \u00ed Tyro og Sidon \u00feau kraftaverk sem hj\u00e1 y\u00f0ur hafa gj\u00f6r\u00f0 veri\u00f0 hef\u00f0i \u00feeir for\u00f0um seti\u00f0 \u00ed sekk og \u00f6sku og gj\u00f6rt so i\u00f0ran. \u00de\u00f3 mun Tyro og Sidone b\u00e6rilegra vera \u00e1 efsta d\u00f3mi en y\u00f0ur. Og \u00fe\u00fa Kapernaum sem upphafin ert allt til himins munt ni\u00f0urs\u00f6kkva til helv\u00edtis. Hver y\u00f0ur heyrir, hann heyrir m\u00e9r og hver y\u00f0ur forsm\u00e1r hann forsm\u00e1r mig. En hver mig forsm\u00e1r hann forsm\u00e1r \u00feann er mig sendi.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn \u00feeir sj\u00f6t\u00edgir komu aftur me\u00f0 fagna\u00f0i og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;L\u00e1var\u00f0ur, einnin hafa dj\u00f6flar oss undirgefnir veri\u00f0 \u00ed \u00fe\u00ednu nafni.&#8220; Hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Eg s\u00e1 andskotann so sem elding hrapa af himni. Sj\u00e1i\u00f0, eg gef y\u00f0ur vald til a\u00f0 st\u00edga yfir h\u00f6ggorma og flugorma og yfir allan kraft \u00f3vinarins og y\u00f0ur mun ekkert granda mega. En \u00fe\u00f3 skulu \u00fe\u00e9r eigi gle\u00f0jast af \u00feessu \u00fea\u00f0 andarnir eru y\u00f0ur undirgefnir heldur fagni\u00f0 af \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 y\u00f0ar n\u00f6fn eru skrifu\u00f0 \u00e1 himnum.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg samt\u00edmis gladdist Jes\u00fas \u00ed anda og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ \u00deakkargj\u00f6r\u00f0 fyrir evangelium\">[<\/span> &#8222;Eg pr\u00edsa \u00feig, fa\u00f0ir og Drottinn himins og jar\u00f0ar, a\u00f0 \u00fe\u00fa huldir \u00feetta fyrir spekingum og forvitringum og opinbera\u00f0ir \u00fea\u00f0 sm\u00e6lingjum. J\u00e1, a\u00f0 s\u00f6nnu, fa\u00f0ir, \u00fev\u00ed a\u00f0 so \u00fe\u00f3kna\u00f0ist \u00fea\u00f0 fyrir \u00fe\u00e9r. Allir hlutir eru m\u00e9r \u00ed hendur fengnir af m\u00ednum f\u00f6\u00f0ur. Enginn veit hver e\u00f0 sonurinn er nema fa\u00f0irinn e\u00f0a hver e\u00f0 fa\u00f0irinn er nema sonurinn og hverjum e\u00f0 sonurinn vill \u00fea\u00f0 opinbera.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg hann snerist til sinna l\u00e6risveina og sag\u00f0i \u00feeim s\u00e9rdeilis: <span class=\"athugasemd\" title=\"Mat. 13\">[<\/span> &#8222;S\u00e6l eru \u00feau augu sem sj\u00e1 hva\u00f0 \u00fe\u00e9r sj\u00e1i\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg segi y\u00f0ur \u00fea\u00f0 margir sp\u00e1menn og konungar vildu s\u00e9\u00f0 hafa hva\u00f0 \u00fe\u00e9r sj\u00e1i\u00f0 og s\u00e1u \u00fea\u00f0 eigi og heyra hva\u00f0 \u00fe\u00e9r heyri\u00f0 og heyr\u00f0u \u00fea\u00f0 eigi.<\/p>\n<p>\tOg sj\u00e1, a\u00f0 nokkur l\u00f6gvitringur st\u00f3\u00f0 upp, freista\u00f0i hans og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Hvernin ma\u00f0ur au\u00f0last eil\u00edft l\u00edf\">[<\/span> &#8222;Meistari, hva\u00f0 skal eg gj\u00f6ra so a\u00f0 eg eignist eil\u00edft l\u00edf?&#8220; En hann sag\u00f0i til hans: &#8222;Hva\u00f0 er skrifa\u00f0 \u00ed l\u00f6gm\u00e1linu? Hvernin les \u00fe\u00fa?&#8220; Hann svara\u00f0i og sag\u00f0u: &#8222;Elska skaltu Drottin Gu\u00f0 \u00feinn af \u00f6llu hjarta \u00fe\u00ednu og af allri \u00f6nd \u00feinni og af \u00f6llum m\u00e6tti \u00fe\u00ednum og af \u00f6llu hugskoti \u00fe\u00ednu og n\u00e1unga \u00feinn sem sj\u00e1lfan \u00feig.&#8220; Hann sag\u00f0i \u00fe\u00e1 til hans: &#8222;R\u00e9tt svara\u00f0ir \u00fe\u00fa. Gj\u00f6r \u00fea\u00f0 og muntu lifa.&#8220; En hann vildi r\u00e9ttl\u00e6ta sj\u00e1lfan sig og sag\u00f0i til Jes\u00fa: &#8222;Hver er \u00fe\u00e1 minn n\u00e1ungi?&#8220;<\/p>\n<p>\tEn Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Af \u00feeim sem f\u00e9ll \u00e1 me\u00f0al r\u00e6ningja\">[<\/span> &#8222;Ma\u00f0ur nokkur f\u00f3r fr\u00e1 Jer\u00fasalem ofan til Jer\u00edk\u00f3 og hrasa\u00f0i \u00ed bland r\u00e6ningja hverjir e\u00f0 r\u00e6ntu hann kl\u00e6\u00f0um og lemstru\u00f0u hann s\u00e1rum, gengu burt og l\u00e9tu hann \u00fear eftir h\u00e1lfdau\u00f0an liggja. En so bar til a\u00f0 kennima\u00f0ur nokkur f\u00f3r ofan sama veg og er hann leit hann gekk hann fram hj\u00e1 honum, l\u00edka og Lev\u00edtinn \u00fe\u00e1 hann kom n\u00e6r \u00feeim sta\u00f0. Og er hann s\u00e1 hann gekk hann og fram hj\u00e1. En samverskur ma\u00f0ur fer\u00f0a\u00f0ist  og kom \u00ed n\u00e1nd honum. Og er hann leit hann s\u00e1 hann aumur \u00e1 honum, gekk a\u00f0 og batt um s\u00e1r hans, hellandi \u00ed \u00feau vi\u00f0smj\u00f6ri og v\u00edni og lag\u00f0i hann \u00e1 sinn eyk og flutti til herbergis og gaf g\u00e6tur a\u00f0 honum. En annars dags fer\u00f0a\u00f0ist hann burt og t\u00f3k upp tvo peninga og f\u00e9kk h\u00fasb\u00faandanum og sag\u00f0i: &#8222;Haf g\u00e1tur \u00e1 honum og hva\u00f0 helst \u00fe\u00fa leggur meira \u00fat \u00fe\u00e1 skal eg borga \u00fe\u00e9r n\u00e6r eg kem aftur.&#8220; Hver \u00feeirra \u00feriggja s\u00fdnist \u00fe\u00e9r vera \u00feess n\u00e1ungi sem hrasa\u00f0ur var \u00ed bland r\u00e6ningjanna?&#8220; En hann sag\u00f0i: &#8222;S\u00e1 er miskunnsemdina gj\u00f6r\u00f0i \u00e1 honum.&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i Jes\u00fas til hans: &#8222;Far \u00fe\u00fa og gj\u00f6r sl\u00edkt hi\u00f0 sama.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn \u00fea\u00f0 ske\u00f0i er \u00feeir fer\u00f0u\u00f0ust a\u00f0 hann gekk inn \u00ed nokkurt kaupt\u00fan. <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ Af \u00feeim tveimur systrum, Maria og Marta\">[<\/span> Og s\u00fa kvinna er Marta h\u00e9t me\u00f0t\u00f3k hann \u00ed sitt h\u00fas. Og h\u00fan \u00e1tti \u00fe\u00e1 systur er Mar\u00eda h\u00e9t hver e\u00f0 setti sig fyrir f\u00e6tur Jes\u00fa og heyr\u00f0i hans or\u00f0. En Marta braust mj\u00f6g fyrir a\u00f0 \u00fej\u00f3na honum. H\u00fan gekk a\u00f0 og sag\u00f0i: &#8222;L\u00e1var\u00f0ur, hir\u00f0ir \u00fe\u00fa ei um \u00fea\u00f0 a\u00f0 systir m\u00edn l\u00e6tur mig einasaman \u00fej\u00f3na? Sweg henni a\u00f0 h\u00fan hj\u00e1lpi m\u00e9r.&#8220; En Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i til hennar: &#8222;Marta, Marta, \u00fe\u00fa ert so \u00e1hyggjufull og m\u00e6\u00f0ist \u00ed m\u00f6rgu. Eitt er \u00fe\u00f3 nau\u00f0synlegt. Mar\u00eda hefir kj\u00f6ri\u00f0 s\u00e9r gott hlutskipti hva\u00f0 er eigi skal fr\u00e1 henni takast.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>X. En eftir \u00fea\u00f0 \u00fatvaldi Drottinn og a\u00f0ra sj\u00f6t\u00edgi og sendi \u00fe\u00e1 \u00fat p\u00f6rum saman fyrir s\u00e9r \u00ed allar \u00fe\u00e6r borgir og \u00e1lfur er hann vildi koma og sag\u00f0i til \u00feeirra: [ &#8222;A\u00f0 s\u00f6nnu er kornskeran mikil en verkmennirnir f\u00e1ir. \u00dev\u00ed bi\u00f0ji\u00f0 herrann kornskerunnar a\u00f0 hann sendi verkmenn \u00ed s\u00edna kornskeru. Fari \u00fe\u00e9r. Sj\u00e1i\u00f0, eg sendi y\u00f0ur so sem l\u00f6mb \u00e1 me\u00f0al varga. Beri\u00f0 eigi pung n\u00e9 t\u00f6sku og eigi sk\u00f3. Heilsi\u00f0 og \u00f6ngum \u00e1 str\u00e6ti og \u00ed hvert \u00fea\u00f0 h\u00fas \u00fe\u00e9r inngangi\u00f0 \u00fe\u00e1 segi\u00f0 fyrst: Fri\u00f0ur s\u00e9 \u00feessu h\u00fasi. Og ef \u00fear er sonur fri\u00f0arins \u00fe\u00e1 hv\u00edlist y\u00f0ar fri\u00f0ur <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-10-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3833","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3833","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3833"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3833\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3833"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}