{"id":3827,"date":"2017-12-18T18:34:50","date_gmt":"2017-12-18T18:34:50","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-4-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:50","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:50","slug":"lukasargudspjall-4-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-4-kafli\/","title":{"rendered":"L\u00fakasargu\u00f0spjall 4. kafli"},"content":{"rendered":"<p>IIII.<\/p>\n<p>En Jes\u00fas, fullur af heil\u00f6gum anda, kom aftur fr\u00e1 J\u00f3rdan og f\u00e6r\u00f0ist af andanum \u00e1 ey\u00f0im\u00f6rk og freista\u00f0ist af dj\u00f6flinum \u00ed fj\u00f6rut\u00edgir daga. <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ Christus freistast \u00ed ey\u00f0im\u00f6rku\">[<\/span> Og hann neytti einkist \u00e1 \u00feeim d\u00f6gum og a\u00f0 \u00feeim li\u00f0num hungra\u00f0i hann. Dj\u00f6fullinn sag\u00f0i \u00fe\u00e1 til hans: &#8222;Ef \u00fe\u00fa ert Gu\u00f0s sonur seg steini \u00feessum a\u00f0 hann ver\u00f0i a\u00f0 brau\u00f0i.&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i til hans: &#8222;Skrifa\u00f0 er \u00fea\u00f0 ma\u00f0urinn lfir ei af brau\u00f0i einu heldur af s\u00e9rhverju Gu\u00f0s or\u00f0i.&#8220; <\/p>\n<p>\tOg dj\u00f6fullinn flutti hann upp \u00e1 h\u00e1 tinda fjallsins og s\u00fdndi honum \u00e1 augabrag\u00f0i \u00f6ll r\u00edki veraldarinnar og sag\u00f0i til hans: &#8222;Allt \u00feetta veldi og \u00feess pr\u00fd\u00f0i mun eg gefa \u00fe\u00e9r. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feau eru m\u00e9r \u00ed hendur fengin og hverjum eg vil m\u00e1 eg gefa \u00feau. \u00dev\u00ed ef \u00fe\u00fa fellur fram og tilbi\u00f0ur fyrir m\u00e9r skulu \u00feau \u00f6ll \u00fe\u00edn vera.&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i til hans: &#8222;Far burt fr\u00e1 m\u00e9r, \u00fe\u00fa andskoti. Skrifa\u00f0 er: Drottin Gu\u00f0 \u00feinn skalt \u00fe\u00fa tilbi\u00f0ja og honum einum \u00fej\u00f3na.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg hann f\u00e6r\u00f0i hann \u00fe\u00e1 til Jer\u00fasalem og setti hann ofan \u00e1 bust musterisins og sag\u00f0i til hans: &#8222;Ef \u00fe\u00fa ert Gu\u00f0s sonur fleyg \u00fe\u00e9r h\u00e9r ofan af \u00fev\u00ed a\u00f0 skrifa\u00f0 er: <span class=\"athugasemd\" title=\"Psal. 91\">[<\/span> S\u00ednum englum b\u00edfala\u00f0i hann \u00feig a\u00f0 \u00feeir var\u00f0veiti \u00feig og a\u00f0 \u00e1 s\u00ednum h\u00f6ndum beri \u00feeir \u00feig svo a\u00f0 \u00fe\u00fa drepir eigi \u00fe\u00ednum f\u00e6ti vi\u00f0 steini.&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i til hans: <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. 6\">[<\/span> &#8222;Sagt er a\u00f0 eigi skuluir \u00fe\u00fa freista Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns.&#8220; Og er dj\u00f6fullinn haf\u00f0i lykta\u00f0 allar \u00feessar freistanir veik hann fr\u00e1 honum um stundarsakir.<\/p>\n<p>\tOg Jes\u00fas kom aftur \u00ed andakrafti til Galileam og rykti\u00f0 gekk \u00fat um \u00f6ll h\u00e9r\u00f6\u00f0 af honum. Og hann kenndi \u00ed \u00feeirra samkunduh\u00fasum og af \u00f6llum var hann mikla\u00f0ur. <\/p>\n<p>\tOg hann kom til Na\u00f0saret \u00fear hann var uppalinn og gekk inn eftir vana s\u00ednum \u00e1 \u00fevottdegi \u00ed samkunduna, st\u00f3\u00f0 upp og t\u00f3k a\u00f0 lesa. <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Pr\u00e9dikan Christi \u00ed Na\u00f0saret \/ Esai 61\">[<\/span> Og honum var fengin b\u00f3k Esaie sp\u00e1manns. Og er hann fletti um b\u00f3kinni fann hann \u00feann sta\u00f0 hva\u00f0 skrifa\u00f0 var: &#8222;Andi Drottins er yfir m\u00e9r og af \u00fev\u00ed smur\u00f0i hann mig og sendi mig a\u00f0 bo\u00f0a evangelium vol\u00f6\u00f0um og a\u00f0 gr\u00e6\u00f0a sundra\u00f0a \u00ed hj\u00f6rtum, a\u00f0 pr\u00e9dika herteknum endurlausn og s\u00fdn blindum og kramda a\u00f0 kvitta til lausnar og a\u00f0 pr\u00e9dika \u00feakkn\u00e6milegt \u00e1r Drottins.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 l\u00e9t hann saman b\u00f3kina og f\u00e9kk hana \u00fe\u00e9naranum aftur og setti sig. Og allir \u00feeir sem \u00ed samkunduh\u00fasinu voru horf\u00f0u \u00e1 hann. En hann h\u00f3f a\u00f0 segja til \u00feeirra: &#8222;\u00cd dag er \u00feessi Ritning uppfylld \u00ed y\u00f0rum eyrum.&#8220; Og allir g\u00e1fu vitnisbur\u00f0 af honum og undru\u00f0ust \u00feau n\u00e1\u00f0arsamleg or\u00f0 sem gengu fram af hans munni og s\u00f6g\u00f0u: <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Christus forsm\u00e1\u00f0ur \u00ed s\u00ednu f\u00f3sturlandi\">[<\/span> &#8222;Er \u00feessi eigi sonur J\u00f3sefs?&#8220; Hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00de\u00e9r munu\u00f0 fullkomlega til m\u00edn segja \u00feennan or\u00f0skvi\u00f0: L\u00e6knir, bjarga sj\u00e1lfum \u00fe\u00e9r. \u00dev\u00ed hve miki\u00f0 a\u00f0 v\u00e9r h\u00f6fum heyrt a\u00f0 gj\u00f6rt var til Kapernaum gj\u00f6r \u00fe\u00fa og h\u00e9r \u00e1 \u00feinni f\u00f3sturj\u00f6r\u00f0.&#8220; En hann sag\u00f0i: &#8222;Sannlega segi eg y\u00f0ur a\u00f0 enginn sp\u00e1ma\u00f0ur er \u00feakkn\u00e6mur \u00e1 sinni f\u00f3sturj\u00f6r\u00f0u.<\/p>\n<p>\t\u00cd sannleik segi eg y\u00f0ur: <span class=\"athugasemd\" title=\"3. Reg. 17\">[<\/span> Margar ekkjur voru \u00e1 d\u00f6gum Elie \u00ed \u00cdsrael \u00fe\u00e1 himinninn var luktur \u00ed \u00ferj\u00fa \u00e1r og sex m\u00e1nu\u00f0i, \u00fe\u00e1 gj\u00f6r\u00f0ist og mikill sultur um allt landi\u00f0, og til \u00f6ngrar \u00feeirra var El\u00edas sendur nema \u00ed Sarefta Sidonie til einnrar ekkju. Og margir l\u00edk\u00fer\u00e1ir voru \u00ed \u00cdsrael \u00e1 d\u00f6gum Elisei sp\u00e1manns og enginn \u00feeirra var\u00f0 hreinsa\u00f0ur nema Naaman af Syria.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"4. Reg. 5\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tOg allir fylldust \u00feeir rei\u00f0i sem \u00ed samkunduh\u00fasinu voru er \u00feeir heyr\u00f0u \u00fea\u00f0, st\u00f3\u00f0u upp og hnepptu hann \u00fat af borginni og leiddu hann allt upp \u00e1 fjallgn\u00edpuna \u00fear e\u00f0 \u00feeirra borg var yfirbygg\u00f0 a\u00f0 \u00feeir hryndi honum \u00fear af fram. <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Grimmd og rei\u00f0i borgarmanna \u00ed Na\u00f0saret \u00ed gegn Christo\">[<\/span> Og hann gekk burt mitt \u00e1 milli \u00feeirra. Og hann f\u00f3r ofan til Kapernaumborgar \u00ed Galilea og kenndi \u00feeim \u00fear \u00e1 \u00fevottd\u00f6gum. Og allir undru\u00f0ust hans kenning \u00fev\u00ed h\u00fan var voldug. <span class=\"athugasemd\" title=\"Math. 7 \/ Mac. 1\">[<\/span> \u00cd samkunduh\u00fasinu var ma\u00f0ur s\u00e1 er haf\u00f0i \u00f3hreinan dj\u00f6fulsanda og kalla\u00f0i upp h\u00e1rri r\u00f6ddu og sag\u00f0i:&#8222;Hei, hva\u00f0 h\u00f6fum v\u00e6r me\u00f0 \u00feig, Jes\u00fas af Na\u00f0saret! \u00de\u00fa komt a\u00f0 fyrirfara oss! Eg veit vel a\u00f0 \u00fe\u00fa ert hinn heilagi Gu\u00f0s!&#8220; Og Jes\u00fas straffa\u00f0i hann og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Dj\u00f6ful\u00f3\u00f0a frelsast\">[<\/span> &#8222;\u00deegi \u00fe\u00fa og far \u00fat af honum.&#8220; Og dj\u00f6fullinn fleyg\u00f0i honum mitt fram \u00ed milli \u00feeirra og f\u00f3r \u00fat af honum og granda\u00f0i honum a\u00f0 \u00f6ngu. \u00d3tta sl\u00f3 og yfir alla \u00fe\u00e1 og t\u00f6lu\u00f0ust vi\u00f0 s\u00edn \u00e1 milli og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Hva\u00f0a orde er \u00feetta a\u00f0 hann b\u00fd\u00f0ur \u00f3hreinum aundum af valdi og krafti og \u00feeir fara \u00fat?&#8220; Og hans rykti barst alls sta\u00f0ar \u00fat um \u00f6ll n\u00e1l\u00e6g h\u00e9r\u00f6\u00f0.<\/p>\n<p>\tEn er Jes\u00fas st\u00f3\u00f0 upp af samkundunni gekk hann \u00ed h\u00fas S\u00edmonar. <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ M\u00f3\u00f0ir konu Petri missir k\u00f6ldu\">[<\/span> Verm\u00f3\u00f0ir S\u00edmonar var haldin af mikilli k\u00f6ldu og \u00feeir b\u00e1\u00f0u hann fyrir henni. Hann gekk til hennar og bau\u00f0 k\u00f6ldunni og h\u00fan forl\u00e9t hana. Og jafnskj\u00f3tt reis h\u00fan upp og \u00fej\u00f3na\u00f0i \u00feeim.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00e1 s\u00f3lin var undirgengin fluttu \u00feeir til hans alla \u00fe\u00e1 sj\u00faka menn sem margh\u00e1tta\u00f0ar s\u00f3ttir h\u00f6f\u00f0u. En hann lag\u00f0i hendur yfir s\u00e9rhvern \u00feeirra og l\u00e6kna\u00f0i \u00fe\u00e1. Dj\u00f6flar f\u00f3ru og \u00fat af m\u00f6rgum, kallandi upp og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;\u00de\u00fa ert Kristur, sonur Gu\u00f0s!&#8220; Hann hasta\u00f0i \u00e1 \u00fe\u00e1 og leyf\u00f0i \u00feeim ekki a\u00f0 m\u00e6la \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir vissu \u00fea\u00f0 hann var Kristur.<\/p>\n<p>\tEn e\u00f0 dagur var f\u00f3r hann og gekk \u00fat \u00e1 eitt ey\u00f0ib\u00f3l. F\u00f3lki\u00f0 leita\u00f0i a\u00f0 honum og kom til hans og haf\u00f0i g\u00e1t \u00e1 h\u00f6num a\u00f0 hann f\u00e6ri eigi \u00ed fr\u00e1 \u00feeim, hverjum hann sag\u00f0i: &#8222;M\u00e9r byrjar og \u00ed \u00f6\u00f0rum borgum a\u00f0 bo\u00f0a evangelium \u00fat af Gu\u00f0s r\u00edki \u00fev\u00ed a\u00f0 til \u00feess em eg sendur.&#8220; Og hann pr\u00e9dika\u00f0i \u00ed samkunduh\u00fasum \u00ed Galilea.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>IIII. En Jes\u00fas, fullur af heil\u00f6gum anda, kom aftur fr\u00e1 J\u00f3rdan og f\u00e6r\u00f0ist af andanum \u00e1 ey\u00f0im\u00f6rk og freista\u00f0ist af dj\u00f6flinum \u00ed fj\u00f6rut\u00edgir daga. [ Og hann neytti einkist \u00e1 \u00feeim d\u00f6gum og a\u00f0 \u00feeim li\u00f0num hungra\u00f0i hann. Dj\u00f6fullinn sag\u00f0i \u00fe\u00e1 til hans: &#8222;Ef \u00fe\u00fa ert Gu\u00f0s sonur seg steini \u00feessum a\u00f0 hann ver\u00f0i a\u00f0 brau\u00f0i.&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i til hans: &#8222;Skrifa\u00f0 er \u00fea\u00f0 ma\u00f0urinn lfir ei af brau\u00f0i einu heldur af s\u00e9rhverju Gu\u00f0s or\u00f0i.&#8220; Og dj\u00f6fullinn flutti hann upp \u00e1 h\u00e1 tinda fjallsins og s\u00fdndi honum \u00e1 augabrag\u00f0i \u00f6ll r\u00edki veraldarinnar og sag\u00f0i til hans: &#8222;Allt \u00feetta veldi <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/lukasargudspjall-4-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3827","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3827","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3827"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3827\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3827"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}