{"id":3821,"date":"2017-12-18T18:34:50","date_gmt":"2017-12-18T18:34:50","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/markusargudspjall-14-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:50","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:50","slug":"markusargudspjall-14-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/markusargudspjall-14-kafli\/","title":{"rendered":"Mark\u00fasargu\u00f0spjall 14. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XIIII.<\/p>\n<p>En eftir tvo dagta \u00fe\u00e1 voru p\u00e1skar og s\u00e6tubrau\u00f0sdagar. Og h\u00f6fu\u00f0prestar og skriftl\u00e6r\u00f0ir s\u00f3ttu eftir hvernin \u00feeir g\u00e6tu h\u00f6ndla\u00f0 hann me\u00f0 v\u00e9lum og l\u00edfl\u00e1ti\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ R\u00e1\u00f0agj\u00f6r\u00f0 \u00ed m\u00f3ti Christo \/ J\u00f3h. 13\">[<\/span> En \u00feeir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Eigi \u00fe\u00f3 um h\u00e1t\u00ed\u00f0ina so a\u00f0 eigi ver\u00f0i upphlaup me\u00f0 f\u00f3lkinu.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 hann var \u00ed Bethania \u00ed h\u00fasi S\u00edmonar vanheila og sat vi\u00f0 bor\u00f0 kom kona, hafandi alabastrumbu\u00f0k og kostulegt smyrslavatn. <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Gestabo\u00f0 \u00ed Bethania og smurning Christi til greftrunar\">[<\/span> H\u00fan braut bu\u00f0kinn og hellti \u00fev\u00ed yfir h\u00f6fu\u00f0 honum. En \u00fear voru nokkrir sem stuggu\u00f0ust vi\u00f0 og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Til hvers er \u00feessi smyrslaspilling gj\u00f6r? \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feetta smyrslavatn m\u00e1tti seljast meir en fyrir \u00ferj\u00fa hundru\u00f0 peninga og gefast f\u00e1t\u00e6kum.&#8220; Og \u00feeir deildu \u00e1 hana.<\/p>\n<p>\tEn Jes\u00fas sag\u00f0i: &#8222;L\u00e1ti\u00f0 hana kyrra. Til hvers styggi \u00fe\u00e9r hana? Gott verk gj\u00f6r\u00f0i h\u00fan \u00e1 m\u00e9r. F\u00e1t\u00e6ka hafi \u00fe\u00e9r jafnan hj\u00e1 y\u00f0ur og n\u00e6r \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 megi \u00fe\u00e9r gj\u00f6ra \u00feeim gott en mig \u00fe\u00e1 hafi \u00fe\u00e9r eigi jafnan. Hva\u00f0 h\u00fan haf\u00f0i til \u00fea\u00f0 gj\u00f6r\u00f0i h\u00fan. H\u00fan kom og fyrir fram a\u00f0 smyrja minn l\u00edkama til graftrar. Sannlega segi eg y\u00f0ur: Hvar helst \u00ed heimi \u00f6llum er \u00feetta gu\u00f0spjall ver\u00f0ur pr\u00e9dika\u00f0 \u00fe\u00e1 mun segjast \u00ed hennar minning hva\u00f0 h\u00fan n\u00fa gj\u00f6r\u00f0i.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg J\u00fadas \u00cdskar\u00edot, einn af t\u00f3lf, gekk burt til h\u00f6fu\u00f0prestanna a\u00f0 hann forr\u00e9\u00f0i hann fyrir \u00fe\u00e1. <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ J\u00fadas \u00cdskar\u00edot\">[<\/span> Og er \u00feeir heyr\u00f0u \u00fea\u00f0 gl\u00f6ddust \u00feeir og \u00feeir lofu\u00f0u a\u00f0 gefa honum peninga. Hann leita\u00f0i og eftir hvernin skapfellegast hann g\u00e6ti forr\u00e1\u00f0i\u00f0 hann.<\/p>\n<p>\tOg \u00e1 hinum fyrsta s\u00e6tubrau\u00f0sdegi, \u00fe\u00e1 p\u00e1skalambi\u00f0 f\u00f3rna\u00f0ist, sega hans l\u00e6risveinar til hans: <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ \u00dea\u00f0 gamla p\u00e1skalamb\">[<\/span> &#8222;Hvert viltu v\u00e9r f\u00f6rum og rei\u00f0um til a\u00f0 \u00fe\u00fa neytir p\u00e1skanna?&#8220; Og hann sendi tvo af s\u00ednum l\u00e6risveinum og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Gangi\u00f0 inn \u00ed sta\u00f0inn. Ma\u00f0ur mun renna \u00ed m\u00f3t y\u00f0ur berandi vatsskj\u00f3lu. Fylgi\u00f0 honum eftir og hvar helst hann gengur inn segi \u00fe\u00e9r h\u00fasherranum: Meistarinn segir: Hvar er \u00fea\u00f0 herbergi er eg skal neyta p\u00e1skanna \u00ed me\u00f0ur m\u00ednum l\u00e6risveinum? Og hann mun s\u00fdna y\u00f0ur afraka\u00f0an sal st\u00f3ran tilb\u00fainn. Rei\u00f0i \u00fe\u00e9r \u00fear til fyrir oss.&#8220; Og hans l\u00e6risveinar gengu burt og komu inn \u00ed sta\u00f0inn og fundu so sem hann haf\u00f0i sagt \u00feeim og bjuggu til p\u00e1skalambi\u00f0.<\/p>\n<p>\tOg er kvelda t\u00f3k kom hann me\u00f0ur \u00fe\u00e1 t\u00f3lf. Og er \u00feeir voru ni\u00f0ur sestir og \u00e1tu sag\u00f0i Jes\u00fas: <span class=\"athugasemd\" title=\"Matt. 17 \/ Luc. 9\">[<\/span> &#8222;Sannlega segi eg y\u00f0ur a\u00f0 einn af y\u00f0ur, s\u00e1 er etur me\u00f0 m\u00e9r, forr\u00e6\u00f0ur mig.&#8220; En \u00feeir ur\u00f0u hryggvir vi\u00f0 og s\u00f6g\u00f0u hver eftir \u00f6\u00f0rum til hans: &#8222;Er eg \u00fea\u00f0 nokku\u00f0?&#8220; En hann svara\u00f0i og sag\u00f0i til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ Kveldm\u00e1lt\u00ed\u00f0arinnar innsetning\">[<\/span> &#8222;Einn af t\u00f3lf, s\u00e1 er drepur hendinni \u00ed fati\u00f0 me\u00f0ur m\u00e9r. A\u00f0 s\u00f6nnu fer Mannsins sonur h\u00e9\u00f0an so sem skrifa\u00f0 er af honum en vei \u00feeim manni af hverjum Mannsins sonur framselst! Betra v\u00e6ri \u00feeim manni a\u00f0 eigi hef\u00f0i hann f\u00e6ddur veri\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg er \u00feeir neyttu t\u00f3k Jes\u00fas brau\u00f0i\u00f0, gj\u00f6r\u00f0i \u00feakkir og braut \u00fea\u00f0 og gaf \u00feeim og sag\u00f0i: &#8222;Taki \u00fe\u00e9r, neyti\u00f0. \u00deetta er mitt hold.&#8220; Hann t\u00f3k og kaleikinn, blessa\u00f0i og gaf \u00feeim og \u00feeir drukku allir afhonum. Hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00deetta er mitt bl\u00f3\u00f0 eins n\u00fds testaments sem fyrir marga \u00fathellist. Sannlega seg eg y\u00f0ur a\u00f0 eg mun ei h\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1 drekka af \u00feessum v\u00ednvi\u00f0ar\u00e1vexti allt til \u00feess dags \u00fe\u00e1 e\u00f0 eg drekk \u00fea\u00f0 n\u00fdtt \u00ed Gu\u00f0s r\u00edki.&#8220; Og a\u00f0 s\u00f6g\u00f0um lofs\u00f6ngnum gengu \u00feeir til fjallsins Oliveti.<\/p>\n<p>\tJes\u00fas sag\u00f0i til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ Um fl\u00f3tta l\u00e6risveinanna\">[<\/span> &#8222;Allir munu \u00fe\u00e9r skammfyllast vi\u00f0 mig \u00e1 \u00feessari n\u00f3tt. \u00dev\u00ed a\u00f0 skrifa\u00f0 er: Eg mun sl\u00e1 hir\u00f0irinn og sau\u00f0irnir skulu tv\u00edstrast. En eftir \u00fea\u00f0 er eg r\u00eds upp skal eg ganga frammi fyrir y\u00f0ur \u00ed Galileam.&#8220; En P\u00e9tur sag\u00f0i til hans: <span class=\"athugasemd\" title=\"8 \/ Hreysti Petri\">[<\/span> &#8222;Og \u00fe\u00f3 allir skammfyllist \u00e1 \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 skal eg \u00fe\u00f3 ei hneykslast.&#8220; Jes\u00fas sag\u00f0i til hans: &#8222;Sannlega segi eg \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00ed dag \u00e1 \u00feessari n\u00f3tt \u00e1\u00f0ur en haninn gelur tvisvar muntu afneita m\u00e9r \u00ferisvar.&#8220; Hann tala\u00f0i \u00fe\u00e1 enn framar: &#8222;\u00de\u00f3 a\u00f0 m\u00e9r byrja\u00f0i a\u00f0 deyja jafnframt \u00fe\u00e9r skyldi eg \u00fe\u00f3 eigi neita \u00fe\u00e9r.&#8220; Og l\u00edka einnin s\u00f6g\u00f0u allir \u00feeir.<\/p>\n<p>\tOg \u00feeir komu \u00ed \u00fea\u00f0 ger\u00f0ist\u00fan er h\u00e9t Getsemane. <span class=\"athugasemd\" title=\"9 \/ Hva\u00f0 \u00ed grasgar\u00f0inum ske\u00f0i\">[<\/span> Og hann sag\u00f0i til sinna l\u00e6risveina: &#8222;Sitji \u00fe\u00e9r h\u00e9r \u00e1 me\u00f0an eg bi\u00f0st fyrir.&#8220; Og hann t\u00f3k me\u00f0 s\u00e9r Petrum, Jacob og Johannem og t\u00f3k til a\u00f0 skj\u00e1lfa og angrast og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;S\u00e1la m\u00edn er hrygg allt \u00ed dau\u00f0ann. Bl\u00edfi\u00f0 h\u00e9r og vaki\u00f0.&#8220; Og \u00fe\u00e1 gekk hann l\u00edtt lengra fram, f\u00e9ll \u00e1 j\u00f6r\u00f0 og t\u00f3k a\u00f0 bi\u00f0ja ef \u00fea\u00f0 v\u00e6ri m\u00f6gulegt a\u00f0 s\u00fa stund li\u00f0i hj\u00e1 honum og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"10 \/ B\u00e6nin Christi\">[<\/span> &#8222;Abba, fa\u00f0ir minn, allt er \u00fe\u00e9r m\u00f6gulegt. Tak burt \u00feennan kaleik af m\u00e9r. En eigi sem eg vil heldur sem \u00fe\u00fa vilt.&#8220;<\/p>\n<p>\tHann kom og fann \u00fe\u00e1 sofandi og sag\u00f0i til Petro: &#8222;S\u00edmon, sefur \u00fe\u00fa? Kunnir \u00fe\u00fa eigi a\u00f0 vaka eina stund me\u00f0ur m\u00e9r? Vaki\u00f0 og bi\u00f0ji\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e9r falli\u00f0 eigi \u00ed freistni. Andinn er a\u00f0 s\u00f6nnu rei\u00f0ub\u00fainn en holdi\u00f0 er breyskt.&#8220; Hann gekk og enn burt aftur og tala\u00f0i hin s\u00f6mu or\u00f0. Hann kom aftur og fann \u00fe\u00e1 enn sofandi \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra augu voru b\u00f3lgin af svefni. Og eigi vissu \u00feeir hv\u00f6rju \u00feeir sv\u00f6ru\u00f0u honum. Og hann kom \u00ed \u00feri\u00f0ja sinn og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Sofi\u00f0 n\u00fa og hv\u00edli\u00f0 y\u00f0ur. \u00dea\u00f0 n\u00e6gist. Stundin er komin \u00fea\u00f0 Mannsins sonur framseljist \u00ed syndugra hendur. Standi\u00f0 upp, g\u00f6ngum h\u00e9\u00f0an. Sj\u00e1i\u00f0 a\u00f0 s\u00e1 er mig forr\u00e6\u00f0ur, hann er \u00ed n\u00e1nd.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg strax sem hann var a\u00f0 tala um \u00feetta kom J\u00fadas \u00cdskar\u00edot, einn af t\u00f3lf, og me\u00f0 honum mikil sveit me\u00f0ur sver\u00f0um og st\u00f6ngum, \u00fatsendir af h\u00f6f\u00f0ingsprestum, skriftl\u00e6r\u00f0um og \u00f6ldungum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Math. 26 \/ Luc. 22 \/ J\u00f3h. 18\">[<\/span> En svikarinn haf\u00f0i gefi\u00f0 \u00feeim eitt teikn og sagt: &#8222;Hvern helst eg kyssi, s\u00e1 er \u00fea\u00f0, haldi\u00f0 honum og lei\u00f0i\u00f0 varyg\u00f0arlega.&#8220; Og \u00fe\u00e1 hann kom gekk hann strax til hans og sag\u00f0i: &#8222;Heill s\u00e9rtu, rabb\u00ed!&#8220; og kyssti hann. En \u00feeir l\u00f6g\u00f0u strax hendur \u00e1 Jes\u00fam og h\u00e9ldu honum. <span class=\"athugasemd\" title=\"11 \/ Jes\u00fas gripinn\">[<\/span> Og einn af \u00feeim sem hj\u00e1 st\u00f3\u00f0 dr\u00f3 \u00fat sver\u00f0 og sl\u00f3 h\u00f6fu\u00f0prestsins \u00fej\u00f3n og snei\u00f0 af honum eyra\u00f0. Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00de\u00e9r eru\u00f0 \u00fatgengnir so sem til annars spillvirkja me\u00f0 sver\u00f0um og st\u00f6ngum a\u00f0 gr\u00edpa mig. Hversdagslega var eg \u00ed musterinu hj\u00e1 y\u00f0ur og kenndi og eigi gripu \u00fe\u00e9r mig heldur \u00fea\u00f0 Ritningin uppfylldist.&#8220; Og \u00fe\u00e1 forl\u00e9tu hann allir hans l\u00e6risveinar og fl\u00fd\u00f0u. <span class=\"athugasemd\" title=\"12 \/ L\u00e6risveinar fl\u00fd\u00f0u\">[<\/span> En nokkurt ungmenni fylgdi honum eftir kl\u00e6ddur l\u00ednkl\u00e6\u00f0i yfir bert bh\u00f6rund. Og hann gripu \u00f6nnur ungmenni en hann snara\u00f0i l\u00ednkl\u00e6\u00f0inu og fl\u00fd\u00f0i nakinn \u00ed burt fr\u00e1 \u00feeim.<\/p>\n<p>\tOg \u00feeir leiddu Jes\u00fam til h\u00f6fu\u00f0prestsins. \u00dear komu saman allir kennimenn, skriftl\u00e6r\u00f0ir og \u00f6ldungar. <span class=\"athugasemd\" title=\"13 \/ Hva\u00f0 fyrir kennim\u00f6nnunum ske\u00f0i\">[<\/span> En P\u00e9tur fylgdi eftir, \u00fe\u00f3 langt burt fr\u00e1, inn allt \u00ed h\u00f6fu\u00f0prestsins fordyri og sat hj\u00e1 \u00fe\u00e9nurunum vi\u00f0 eldinn og baka\u00f0i sig vi\u00f0 logann.<\/p>\n<p>\tEn h\u00f6fu\u00f0prestarnir og allt r\u00e1\u00f0i\u00f0 leitu\u00f0u vitna \u00ed gegn Jes\u00fa so a\u00f0 \u00feeir g\u00e6tu selt hann til dau\u00f0a og fundu engin. Margir t\u00f6lu\u00f0u falsvitni \u00ed gegn honum en \u00feeirra vitnisbur\u00f0ir voru eigi saml\u00e1tandi. Og \u00fe\u00e1 st\u00f3\u00f0u nokkrir upp og b\u00e1ru falsvitni \u00ed m\u00f3ti honum og s\u00f6g\u00f0u: <span class=\"athugasemd\" title=\"14 \/ Falsvottarnir\">[<\/span> &#8222;V\u00e9r h\u00f6fum heyrt hann segja: Eg vil \u00feetta musteri ni\u00f0ur brj\u00f3ta sem me\u00f0 h\u00f6ndum er gj\u00f6rt og \u00e1 \u00feremur d\u00f6gum uppbyggja anna\u00f0 \u00fea\u00f0 ei er me\u00f0 h\u00f6ndum gj\u00f6rt.&#8220; En \u00feeirra vitnisbur\u00f0ir komu eigi saman.<\/p>\n<p>\tOg h\u00f6fu\u00f0presturinn reis upp \u00ed mi\u00f0i\u00f0, spur\u00f0i Jes\u00fas a\u00f0 og sag\u00f0i: &#8222;Svarar \u00fe\u00fa \u00f6ngvu til \u00feess sem a\u00f0 \u00feessir vitna \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r?&#8220; En hann \u00feag\u00f0i og svara\u00f0i \u00f6ngvu. \u00de\u00e1 spur\u00f0i h\u00f6fu\u00f0presturinn hann enn aftur og sag\u00f0i til hans: &#8222;Ertu Christus, sonur Gu\u00f0s hins blessa\u00f0a?&#8220; En Jes\u00fas sag\u00f0i honum: &#8222;Eg em hann. Og \u00fe\u00e9r munu\u00f0 sj\u00e1 Mannsins son sitjanda \u00e1 hagri h\u00f6nd Gu\u00f0s kraftar og komandi \u00ed sk\u00fdjum himins.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"15 \/ Fyrirs\u00f6gn um \u00feann s\u00ed\u00f0asta dag\">[<\/span> En h\u00f6fu\u00f0presturinn reif \u00fe\u00e1 kl\u00e6\u00f0i s\u00edn og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"16 \/ Christus straffast fyrir gu\u00f0lastan\">[<\/span> &#8222;Hva\u00f0 \u00feurfu v\u00e6r n\u00fa meir a\u00f0 girnast vitnanna? \u00de\u00e9r heyr\u00f0u\u00f0 gu\u00f0l\u00f6stunina. Hva\u00f0 s\u00fdnist y\u00f0ur?&#8220; En \u00feeir ford\u00e6mdu hann allir sekan vera dau\u00f0ans. Og nokkrir t\u00f3ku a\u00f0 sp\u00fdta \u00e1 hann og byrgja hans \u00e1sj\u00e1n og a\u00f0 dusta hann me\u00f0 hnefum og a\u00f0 segja til hans: &#8222;Sp\u00e1\u00f0u oss!&#8220; Og \u00fej\u00f3narnir sl\u00f3gu hann p\u00fastra \u00ed andliti\u00f0.<\/p>\n<p>\tOg P\u00e9tur var ni\u00f0ur \u00ed fordyrunum. <span class=\"athugasemd\" title=\"17 \/ Petrus afneitar Christo\">[<\/span> \u00de\u00e1 kom ein af amb\u00e1ttum h\u00f6fu\u00f0prestsins. Og \u00fe\u00e1 h\u00fan leit Petrum verma sig horf\u00f0i h\u00fan \u00e1 hann og sag\u00f0i: &#8222;\u00de\u00fa vart og me\u00f0 Jes\u00fa af Na\u00f0saret.&#8220; En hann neita\u00f0i og sag\u00f0i: &#8222;Eg \u00feekki hann eigi og eigi veit eg hva\u00f0 \u00fe\u00fa segir.&#8220; Og er hann gekk \u00fat fyrir dyrnar g\u00f3l haninn. En er amb\u00e1ttin s\u00e1 hann aftur t\u00f3k h\u00fan a\u00f0 segja \u00feeim er kringum st\u00f3\u00f0u: &#8222;\u00deessi er einn af \u00feeim.&#8220; En hann neita\u00f0i n\u00fa enn aftur. Og litlu enn \u00fear eftir s\u00f6g\u00f0u \u00feeir aftur er hj\u00e1 st\u00f3\u00f0u til P\u00e9turs: &#8222;Sannlega ertu einn af \u00feeim \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa ert Gal\u00edleari og \u00feitt m\u00e1l hlj\u00f3\u00f0ar so.&#8220; En hann t\u00f3k a\u00f0 form\u00e6la s\u00e9r og sverja: &#8222;Eigi \u00feekki eg \u00feann mann af hverjum \u00fe\u00e9r segi\u00f0.&#8220; Og strax g\u00f3l haninn aftur. Og P\u00e9tur minntist \u00feess or\u00f0s sem Jes\u00fas haf\u00f0i sagt til hans: &#8222;\u00c1\u00f0ur haninn galar tvisvar muntu neita m\u00e9r \u00ferisvar.&#8220; Og hann t\u00f3k a\u00f0 gr\u00e1ta.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XIIII. En eftir tvo dagta \u00fe\u00e1 voru p\u00e1skar og s\u00e6tubrau\u00f0sdagar. Og h\u00f6fu\u00f0prestar og skriftl\u00e6r\u00f0ir s\u00f3ttu eftir hvernin \u00feeir g\u00e6tu h\u00f6ndla\u00f0 hann me\u00f0 v\u00e9lum og l\u00edfl\u00e1ti\u00f0. [ En \u00feeir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Eigi \u00fe\u00f3 um h\u00e1t\u00ed\u00f0ina so a\u00f0 eigi ver\u00f0i upphlaup me\u00f0 f\u00f3lkinu.&#8220; Og \u00fe\u00e1 hann var \u00ed Bethania \u00ed h\u00fasi S\u00edmonar vanheila og sat vi\u00f0 bor\u00f0 kom kona, hafandi alabastrumbu\u00f0k og kostulegt smyrslavatn. [ H\u00fan braut bu\u00f0kinn og hellti \u00fev\u00ed yfir h\u00f6fu\u00f0 honum. En \u00fear voru nokkrir sem stuggu\u00f0ust vi\u00f0 og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Til hvers er \u00feessi smyrslaspilling gj\u00f6r? \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feetta smyrslavatn m\u00e1tti seljast meir en fyrir \u00ferj\u00fa hundru\u00f0 peninga og gefast <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/markusargudspjall-14-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3821","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3821","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3821"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3821\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3821"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}