{"id":3820,"date":"2017-12-18T18:34:50","date_gmt":"2017-12-18T18:34:50","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/markusargudspjall-13-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:50","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:50","slug":"markusargudspjall-13-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/markusargudspjall-13-kafli\/","title":{"rendered":"Mark\u00fasargu\u00f0spjall 13. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XIII.<\/p>\n<p>Og \u00fe\u00e1 hann gekk \u00fat af musterinu sag\u00f0i einn af hans l\u00e6risveinum: <span class=\"athugasemd\" title=\"Math. 14 \/ Luc. 21\">[<\/span> &#8222;Meistari, sko\u00f0a hv\u00edl\u00edkir steinar og hv\u00edl\u00edkt sm\u00ed\u00f0i \u00feetta er.&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i til hans: &#8222;S\u00e9r \u00fe\u00fa allar \u00feessar miklu byggingar? H\u00e9r mun eigi eftir l\u00e1tast steinn yfir steini s\u00e1 er eigi ver\u00f0i ni\u00f0urbrotinn.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 hann sat \u00e1 fjallinu Oliveti gegnt musterinu spur\u00f0u hann a\u00f0 s\u00e9r \u00ed lagi P\u00e9tur og Jakob og J\u00f3hannes og Andreas: <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ \u00dat af forey\u00f0slu Jer\u00fasalem og enda veraldar\">[<\/span> &#8222;Seg \u00fe\u00fa oss n\u00e6r \u00feetta skal ske og hvert teikn ver\u00f0ur \u00fe\u00e1 \u00feetta skal allt til taka a\u00f0 fullkomnast.&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i \u00feeim og t\u00f3k til a\u00f0 segja: &#8222;Sj\u00e1i\u00f0 til a\u00f0 eigi f\u00e1i nokkur villt y\u00f0ur. \u00dev\u00ed a\u00f0 margir munu koma \u00ed m\u00ednu nafni og segja: Eg em Kristur, og munu marga villa.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00e1 \u00fe\u00e9r heyri\u00f0 af bard\u00f6gum og herna\u00f0art\u00ed\u00f0indum \u00f3ttist eigi \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feessu byrjar a\u00f0 ske, endinn er \u00fe\u00f3 enn eigi \u00fe\u00e1. <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Fyrirfarandi teikn\">[<\/span> Ein \u00fej\u00f3\u00f0 mun reisa sig og upp \u00ed m\u00f3t annarri og r\u00edki \u00e1 m\u00f3ti r\u00edki og landskj\u00e1lftar munu vera \u00ed s\u00e9rhverjum st\u00f6\u00f0um, hungur og hrellingar munu og ver\u00f0a. \u00deetta er upphaf hrygg\u00f0anna.<\/p>\n<p>\tEn sj\u00e1i\u00f0 til um sj\u00e1lfa y\u00f0ur \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu f\u00e6ra y\u00f0ur \u00e1 r\u00e1\u00f0stefnur og samkunduh\u00fas og \u00fe\u00e9r munu\u00f0 str\u00fdktir ver\u00f0a og fyrir konungum og h\u00f6f\u00f0ingjum munu \u00fe\u00e9r standa minna vegna til vitnisbur\u00f0ar yfir \u00fe\u00e1. Og gu\u00f0spj\u00f6llum byrjar \u00e1\u00f0ur a\u00f0 pr\u00e9dikast \u00e1 me\u00f0al allra \u00fej\u00f3\u00f0a.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 \u00feeir lei\u00f0a y\u00f0ur og framselja skulu \u00fe\u00e9r eigi hugsa fyrir hva\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 tala heldur hva\u00f0 y\u00f0ur gefst \u00e1 \u00feeirri stundu, \u00fea\u00f0 skulu \u00fe\u00e9r tala. <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Huggun \u00ed krossinum og s\u00f3knunum\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 ei tali \u00fe\u00e9r heldur heilagur andi. En einn br\u00f3\u00f0ir mun selja annan \u00ed dau\u00f0a og fa\u00f0ir soninn, b\u00f6rnin munu og reisast upp \u00ed m\u00f3t foreldrunum og styrkja \u00fe\u00e1 \u00ed dau\u00f0a. Og \u00fe\u00e9r ver\u00f0i\u00f0 \u00f6llum a\u00f0 hatri fyrir m\u00edns nafns sakir. En hver hann er sta\u00f0fastur allt til enda, s\u00e1 hj\u00e1lpast.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00e1 \u00fe\u00e9r sj\u00e1i\u00f0 sv\u00edvir\u00f0ing ey\u00f0slunnar (af hverri Dan\u00edel sp\u00e1ma\u00f0ur segir) standandi hvar eigi byrja\u00f0i \u0096 hver e\u00f0 les hann undirstandi \u00fea\u00f0 \u0096 hverjir \u00fe\u00e1 eru \u00e1 Gy\u00f0ingalandi fl\u00fdi \u00feeir \u00e1 fj\u00f6ll. <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Af skurgo\u00f0i forey\u00f0ingarinnar \/ Math. 14 \/ Dan\u00edel 9\">[<\/span> Og hver hann er upp \u00e1 r\u00e6frinu fari s\u00e1 eigi inn a\u00f0 taka nokku\u00f0 \u00far s\u00ednu h\u00fasi og s\u00e1 sem er \u00e1 akri hann sn\u00faist eigi \u00e1 bak s\u00e9r aftur a\u00f0 taka upp f\u00f6t s\u00edn. En vei \u00feungu\u00f0um konum og brj\u00f3stmylkingum \u00e1 \u00feeim t\u00edmum! Bi\u00f0ji\u00f0 heldur a\u00f0 fl\u00f3tti y\u00f0ar ver\u00f0i eigi um vetur. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e1 \u00feeim d\u00f6gum ver\u00f0a sl\u00edkar h\u00f6rmungar hverjar eigi hafa veri\u00f0 fr\u00e1 upphafi skepnunnar \u00fe\u00e1 sem Gu\u00f0 skapa\u00f0i og allt til \u00feessa og eigi heldur mun ver\u00f0a. Og ef Drottinn stytti ekki \u00feessa daga yr\u00f0i enginn ma\u00f0ur h\u00f3lpinn. En fyrir \u00fatvaldra sakir hverja hann \u00fatvaldi hefur hann stytt \u00feessa daga.<\/p>\n<p>\tOg ef nokkur segir \u00fe\u00e1 til y\u00f0ar: S\u00e9, h\u00e9r er Kristur! S\u00e9, \u00fear er hann! \u00fe\u00e1 tr\u00fai\u00f0 \u00fev\u00ed eigi. \u00dev\u00ed a\u00f0 upp munu r\u00edsa falskristar og falskir sp\u00e1menn og munu gj\u00f6ra teikn og st\u00f3rmerki til a\u00f0 villa (ef ver\u00f0a m\u00e6tti) einnin \u00fatvalda. \u00dev\u00ed sj\u00e1i\u00f0 til um y\u00f0ur. S\u00e9, eg sag\u00f0i y\u00f0ur allt \u00feetta fyrir.<\/p>\n<p>\tEn \u00e1 \u00feeim d\u00f6gum eftir \u00feessa h\u00f6rmung mun s\u00f3lin sortna og tungli\u00f0 eigi gefa sitt skin og stj\u00f6rnur munu hrapa af himni, kraftar himins munu og hr\u00e6rast. <span class=\"athugasemd\" title=\"Math. 24 \/ Luc. 21\">[<\/span> Og \u00fe\u00e1 munu \u00feeir sj\u00e1 Mannsins son komandi \u00ed sk\u00fdjunum me\u00f0 d\u00fdr\u00f0 og krafti miklum. Og \u00fe\u00e1 mun hann \u00fatsenda s\u00edna engla a\u00f0 samansafna s\u00ednum \u00fatv\u00f6ldum af fj\u00f3rum vindum allt af enda jar\u00f0ar og til h\u00e6\u00f0ar himins.<\/p>\n<p>\tAf f\u00edkjutr\u00e9nu \u00fe\u00e1 l\u00e6ri\u00f0 eina eftirl\u00edking. <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Eftirl\u00edking um f\u00edkjutr\u00e9\u00f0\">[<\/span> \u00dev\u00ed \u00fe\u00e1 e\u00f0 \u00feess kvistur gj\u00f6rist frj\u00f3r og laufin springa \u00fat \u00fe\u00e1 viti \u00fe\u00e9r a\u00f0 sumari\u00f0 er \u00ed n\u00e1nd. So og n\u00e6r \u00fe\u00e9r sj\u00e1i\u00f0 \u00feetta ske viti\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00fe\u00e1 n\u00e1l\u00e6gt fyrir dyrum. Sannlega segi eg y\u00f0ur: \u00deessi kynsl\u00f3\u00f0 forgengur eigi \u00fear til allt \u00feetta sker. Himinn og j\u00f6r\u00f0 munu forganga en m\u00edn or\u00f0 munu eigi forganga. En af \u00feeim degi og stundu veit enginn, eigi englar \u00e1 himnum og eigi sonurinn, nema fa\u00f0irinn einn.<\/p>\n<p>\tSj\u00e1i\u00f0 til, vaki\u00f0 og bi\u00f0ji\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r viti\u00f0 eigi n\u00e6r t\u00ed\u00f0 er. <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ M\u00e1lslyktan \u00fea\u00f0 v\u00e9r skulum \u00e6t\u00ed\u00f0 rei\u00f0ub\u00fanir \/ Mat. 26 \/ Luc. 13\">[<\/span> So sem s\u00e1 ma\u00f0ur er fer\u00f0a\u00f0ist langt burt, forl\u00e9t sitt h\u00fas og gaf s\u00ednum \u00fej\u00f3num yfirvald s\u00e9rhvers verkna\u00f0ar og bau\u00f0 dyraver\u00f0inum a\u00f0 hann vekti. \u00dev\u00ed vaki\u00f0 n\u00fa \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e9r viti\u00f0 ei n\u00e6r herrann h\u00fassins kemur, hvort hann kemur a\u00f0 kveldi e\u00f0a um mi\u00f0n\u00e6tti e\u00f0ur \u00fe\u00e1 haninn gelur elligar a\u00f0 morni, so a\u00f0 ei komi hann skyndilega og finni y\u00f0ur sofandi. En hva\u00f0 eg segi y\u00f0ur \u00fea\u00f0 segi eg \u00f6llum: Vaki \u00fe\u00e9r.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XIII. Og \u00fe\u00e1 hann gekk \u00fat af musterinu sag\u00f0i einn af hans l\u00e6risveinum: [ &#8222;Meistari, sko\u00f0a hv\u00edl\u00edkir steinar og hv\u00edl\u00edkt sm\u00ed\u00f0i \u00feetta er.&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i til hans: &#8222;S\u00e9r \u00fe\u00fa allar \u00feessar miklu byggingar? H\u00e9r mun eigi eftir l\u00e1tast steinn yfir steini s\u00e1 er eigi ver\u00f0i ni\u00f0urbrotinn.&#8220; Og \u00fe\u00e1 hann sat \u00e1 fjallinu Oliveti gegnt musterinu spur\u00f0u hann a\u00f0 s\u00e9r \u00ed lagi P\u00e9tur og Jakob og J\u00f3hannes og Andreas: [ &#8222;Seg \u00fe\u00fa oss n\u00e6r \u00feetta skal ske og hvert teikn ver\u00f0ur \u00fe\u00e1 \u00feetta skal allt til taka a\u00f0 fullkomnast.&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i \u00feeim og t\u00f3k til a\u00f0 segja: &#8222;Sj\u00e1i\u00f0 til <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/markusargudspjall-13-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3820","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3820","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3820"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3820\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3820"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}