{"id":3816,"date":"2017-12-18T18:34:46","date_gmt":"2017-12-18T18:34:46","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/markusargudspjall-10-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:46","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:46","slug":"markusargudspjall-10-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/markusargudspjall-10-kafli\/","title":{"rendered":"Mark\u00fasargu\u00f0spjall 10. kafli"},"content":{"rendered":"<p>X.<\/p>\n<p>Og er hann reis upp \u00fea\u00f0an kom hann \u00ed endim\u00f6rk J\u00fadalands hinumegin J\u00f3rdanar. <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ Um hj\u00faskap og hj\u00f3naskilna\u00f0\">[<\/span> \u00dear kom og enn aftur margt f\u00f3lk til hans og sem hann plaga\u00f0i \u00fe\u00e1 t\u00f3k hann enn aftur til a\u00f0 kenna \u00feeim.<\/p>\n<p>\tPharisei gengu og til hans, spur\u00f0u hann a\u00f0 ef manninum leyf\u00f0ist a\u00f0 forl\u00e1ta s\u00edna h\u00fasfr\u00fa, freistandi hans so. En hann svara\u00f0i og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Hva\u00f0 hefir M\u00f3ses bo\u00f0i\u00f0 y\u00f0ur?&#8220; \u00deeir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;M\u00f3ses leyf\u00f0i skilna\u00f0arbr\u00e9f a\u00f0 skrifa og vi\u00f0 a\u00f0 skilja.&#8220; Hverju Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i: &#8222;Fyrir har\u00f0leik hjarta y\u00f0vars \u00fe\u00e1 skrifa\u00f0i hann y\u00f0ur \u00feetta bo\u00f0or\u00f0 en af upphafi skepnunnar gj\u00f6r\u00f0i Gu\u00f0 einn kallmann og eina konu. Af \u00fev\u00ed forl\u00e6tur ma\u00f0urinn f\u00f6\u00f0ur og m\u00f3\u00f0ur og heldur til vi\u00f0 konu s\u00edna go eru svo \u00feau tv\u00f6 eitt hold. Af \u00fev\u00ed eru \u00feau n\u00fa eigi tv\u00f6 heldur eitt hold. \u00dev\u00ed hva\u00f0 Gu\u00f0 hefur samtengt \u00fea\u00f0 skal ma\u00f0urinn eigi sundurskilja.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00ed h\u00fasinu spur\u00f0u hans l\u00e6risveinar aftur a\u00f0 um hi\u00f0 sama. Og hann sag\u00f0i \u00feeim: &#8222;Hver sem forl\u00e6tur s\u00edna eiginkonu og fastnar a\u00f0ra s\u00e1 dr\u00fdgir h\u00f3r \u00e1 henni. Og ef konan forl\u00e6tur sinn eiginmann og giftist \u00f6\u00f0rum, s\u00fa h\u00f3rast.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00feeir f\u00e6r\u00f0u ungb\u00f6rn til hans a\u00f0 hann \u00e1hr\u00e6r\u00f0i \u00feau. <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Af me\u00f0kenningu sm\u00e1barna\">[<\/span> En l\u00e6risveinarnir \u00e1t\u00f6ldu \u00fe\u00e1 sem \u00feau b\u00e1ru. Og er Jes\u00fas s\u00e1 \u00fea\u00f0 l\u00edka\u00f0i honum \u00fea\u00f0 eigi vel og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Leyfi\u00f0 b\u00f6rnunum til m\u00edn a\u00f0 koma og banni\u00f0 \u00feeim \u00fea\u00f0 eigi \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fev\u00edl\u00edkra er Gu\u00f0s r\u00edki. <span class=\"athugasemd\" title=\"Exo. 20\">[<\/span> Sannlega segi eg y\u00f0ur: Hver hann me\u00f0tekur eigi Gu\u00f0s r\u00edki sem anna\u00f0 ungbarn s\u00e1 mun eigi innganga \u00ed \u00fea\u00f0.&#8220; Og hann t\u00f3k \u00feau \u00ed fang og lag\u00f0i s\u00ednar hendur yfir \u00feau og blessa\u00f0i \u00feau.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 hann var \u00fatgenginn upp \u00e1 veginn hlj\u00f3p \u00fear einn fram fyrir, bugta\u00f0i sig fyrir honum og spur\u00f0i hann a\u00f0, segjandi: <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Hvernin ma\u00f0ur skuli eil\u00edft l\u00edf \u00f6\u00f0last\">[<\/span> &#8222;G\u00f3\u00f0i meistari, hva\u00f0 skal eg gj\u00f6ra so a\u00f0 eg eignist eil\u00edft l\u00edf?&#8220; En Jes\u00fas svara\u00f0i honum: &#8222;Hv\u00ed segir \u00fe\u00fa mig g\u00f3\u00f0an? Enginn er g\u00f3\u00f0ur nema Gu\u00f0 einn. Bo\u00f0or\u00f0in muntu kunna? \u00de\u00fa skalt ei h\u00f3rd\u00f3m dr\u00fdgja, eigi mann vega, eigi stela, eigi skaltu lj\u00fagvitni m\u00e6la, eigi svik gj\u00f6ra, hei\u00f0ra f\u00f6\u00f0ur og m\u00f3\u00f0ur.&#8220; En hann svara\u00f0i og sag\u00f0i til hans: &#8222;Meistari, allt \u00feetta hefi eg var\u00f0veitt \u00ed fr\u00e1 barn\u00e6sku minni.&#8220; En Jes\u00fas horf\u00f0i \u00e1 hann, elska\u00f0i hann og sag\u00f0i til hans: &#8222;Eitt \u00fe\u00e1 brestur \u00feig. Far, sel allt \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fa hefur og gef f\u00e1t\u00e6kum og \u00fe\u00e1 muntu hafa einn f\u00e9sj\u00f3\u00f0 \u00e1 himnum. Kom og fylg svo m\u00e9r eftir og legg kross \u00fe\u00e9r \u00e1 her\u00f0ar.&#8220; En hann var\u00f0 hryggur vi\u00f0 \u00feessi or\u00f0, gekk \u00fea\u00f0an syrgjandi \u00fev\u00ed a\u00f0 hann haf\u00f0i miklar eignir.<\/p>\n<p>\tJes\u00fas leit \u00ed kringum sig og sag\u00f0i til sinna l\u00e6risveina: <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Um \u00fe\u00e1 r\u00edku \u00e1gj\u00f6rnu\">[<\/span> &#8222;Hversu torvelt er \u00feeim r\u00edku inn a\u00f0 ganga \u00ed Gu\u00f0s r\u00edki!&#8220; En hans l\u00e6risveinar setti tvista vi\u00f0 \u00feessi hans or\u00f0. Jes\u00fas ansa\u00f0i enn aftur og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Sonakorn m\u00edn, hversu torvelt er \u00feeim sem treystandi eru peningum inn a\u00f0 ganga \u00ed Gu\u00f0s r\u00edki. Au\u00f0veldara er \u00falfaldanum a\u00f0 ganga \u00ed gegnum n\u00e1larauga en r\u00edkum inn a\u00f0 ganga \u00ed Gu\u00f0s r\u00edki.&#8220; \u00deeir undru\u00f0ust enn meir og s\u00f6g\u00f0u s\u00edn \u00e1 milli: &#8222;Hver f\u00e6r \u00fe\u00e1 hj\u00e1lpast?&#8220; En Jes\u00fas horf\u00f0i \u00e1 \u00fe\u00e1 og sag\u00f0i: &#8222;Hj\u00e1 m\u00f6nnum er \u00fea\u00f0 \u00f3m\u00f6gulegt en eigi hj\u00e1 Gu\u00f0i. \u00dev\u00ed a\u00f0 hj\u00e1 Gu\u00f0i er allt m\u00f6gulegt.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg eftir \u00fea\u00f0 t\u00f3k P\u00e9tur til a\u00f0 segja honum: <span class=\"athugasemd\" title=\"Matt. 19 \/ Luc. 14\">[<\/span> &#8222;Sj\u00e1\u00f0u, v\u00e9r forl\u00e9tum allt og erum \u00fe\u00e9r eftirfylgjandi.&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Huggun f\u00e1t\u00e6kra gu\u00f0hr\u00e6ddra\">[<\/span> &#8222;Sannlega segi eg y\u00f0ur a\u00f0 enginn er s\u00e1 hver a\u00f0 fyrirl\u00e6tur h\u00fas e\u00f0ur br\u00e6\u00f0ur e\u00f0ur systur e\u00f0ur f\u00f6\u00f0ur e\u00f0ur m\u00f3\u00f0ur e\u00f0ur eiginkonu e\u00f0ur b\u00f6rn e\u00f0ur akra fyrir m\u00ednar sakir e\u00f0ur evangelii s\u00e1 er ei me\u00f0tekur hundra\u00f0falt aftur n\u00fa \u00e1 \u00feessari t\u00ed\u00f0, h\u00fas, br\u00e6\u00f0ur og systur og m\u00f3\u00f0ur og b\u00f6rn og akra me\u00f0 ofs\u00f3knum og \u00ed eftirkomandi heimi eil\u00edft l\u00edf. Og margir ver\u00f0a \u00feeir seinastir sem eru fyrstir og \u00feeir fyrstir sem seinastir eru.&#8220; \u00deeir voru \u00fe\u00e1 enn \u00e1 veginum a\u00f0 fara upp til Jer\u00fasalem og Jes\u00fas gekk fyrir \u00feeim. \u00de\u00e1 setti hlj\u00f3\u00f0a vi\u00f0, fylgjandi honum \u00fe\u00f3 eftir og \u00f3ttu\u00f0ust hann.<\/p>\n<p>\tHann t\u00f3k og \u00fe\u00e1 t\u00f3lf til s\u00edn og h\u00f3f upp a\u00f0 segja \u00feeim hva\u00f0 yfir hann mundi koma: <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ \u00deri\u00f0ja fyrirs\u00f6gn um hans upprisu og dau\u00f0a\">[<\/span> &#8222;Sj\u00e1i\u00f0 \u00fea\u00f0, a\u00f0 v\u00e6r f\u00f6rum n\u00fa upp til Jer\u00fasalem og Mannsins sonur mun seljast kennimannah\u00f6f\u00f0ingjum, skriftl\u00e6r\u00f0um og \u00f6ldungum. \u00deeir munu og ford\u00e6ma hann \u00ed dau\u00f0a og selja hei\u00f0ingjum. \u00deeir munu og spotta hann og flengja, sp\u00fdta \u00e1 hann og l\u00edfl\u00e1ta. Og \u00e1 \u00feri\u00f0ja degi mun hann upp aftur r\u00edsa.&#8220; \u00de\u00e1 gengu \u00feeir Jacobus og J\u00f3hannes, synir Zebedei, til hans og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Meistari, vi\u00f0 viljum a\u00f0 \u00fe\u00fa gj\u00f6rir fyrir okkur hvers sem vi\u00f0 bi\u00f0jum \u00feig.&#8220; Hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Hva\u00f0 vilji \u00fei\u00f0 a\u00f0 eg skuli gj\u00f6ra ykkur?&#8220; \u00deeir s\u00f6g\u00f0u \u00fe\u00e1 til hans: <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ F\u00e1v\u00edsleg metna\u00f0argirnd postulanna \/ Luc. 22\">[<\/span> &#8222;Gef okkur \u00fea\u00f0 vi\u00f0 sitjum \u00ed \u00feinni d\u00fdr\u00f0 einn til h\u00e6gri handar \u00fe\u00e9r og annar til hinnar vinstri.&#8220; En Jes\u00fas sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00dei\u00f0 viti\u00f0 eigi hvers \u00fe\u00e9r bi\u00f0ji\u00f0. Kunni \u00fei\u00f0 a\u00f0 drekka \u00feann kaleik hvern eg mun drekka og sk\u00edrast me\u00f0 \u00feeirri sk\u00edrn hverri eg mun sk\u00edrast?&#8220; En \u00feeir s\u00f6g\u00f0u honum: &#8222;\u00dea\u00f0 getu vi\u00f0.&#8220; Jes\u00fas sag\u00f0i \u00fe\u00e1 til \u00feeirra: &#8222;A\u00f0 s\u00f6nnu munu \u00fei\u00f0 drekka \u00feann kaleik hvern eg mun drekka og me\u00f0ur \u00feeirri sk\u00edrn sk\u00edr\u00f0ir ver\u00f0a hverri eg mun sk\u00edrast. En a\u00f0 sitja til minnar h\u00e6gri handar e\u00f0ur til vinstri er eigi m\u00edn a\u00f0 gefa ykkur heldur \u00feeim sem \u00fea\u00f0 er fyrirb\u00fai\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 er \u00feeir t\u00edu heyr\u00f0u \u00fea\u00f0 voru \u00feeir gramir upp \u00e1 Jacobum og Johannem. En Jes\u00fas kalla\u00f0i \u00fe\u00e1 til s\u00edn og sag\u00f0i til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"8 \/ Grein \u00e1 milli veraldlegs valds og andlegs\">[<\/span> &#8222;\u00de\u00e9r viti\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feeir sem s\u00fdnast hafa stj\u00f3rnan \u00fej\u00f3\u00f0anna \u00fe\u00e1 drottna yfir \u00fe\u00e6r og \u00feeir sem eru \u00feeirra formenn \u00fe\u00e1 hafa \u00feeir vald yfir \u00feeim. En \u00fea\u00f0 skal eigi svo vera y\u00f0ar \u00e1 milli. Heldur hver hann vill vera y\u00f0ar \u00e1 milli \u00f6\u00f0rum meiri s\u00e1 skal y\u00f0ar \u00fe\u00e9nari vera og hver hann vill y\u00f0ar \u00e1 milli fremstur vera s\u00e1 skal allra \u00fej\u00f3n vera. \u00dev\u00ed a\u00f0 Mannsins sonur er eigi kominn til \u00feess a\u00f0 honum \u00fej\u00f3na\u00f0ist heldur \u00fea\u00f0 hann \u00fej\u00f3na\u00f0i og g\u00e6fi s\u00edna \u00f6nd \u00fat til endurlausnar fyrir marga.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"9 \/ \u00dev\u00ed Christus er kominn\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00deeir komu og til Jer\u00edk\u00f3 og a\u00f0 honum burtfarandi \u00far Jer\u00edk\u00f3 og hans l\u00e6risveinum og miklum \u00f6\u00f0rum f\u00f3lksfj\u00f6lda sat Bart\u00edmeus, blindur son Timei, vi\u00f0 veginn og ba\u00f0st \u00f6lmusu. <span class=\"athugasemd\" title=\"Math. 20 \/ Luc. 18\">[<\/span> Og er hann heyr\u00f0i a\u00f0 \u00fea\u00f0 var Jes\u00fas af Na\u00f0saret t\u00f3k hann til a\u00f0 kalla og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"10 \/ Blindur f\u00e6r s\u00fdn\">[<\/span> &#8222;Jes\u00fas, sonur Dav\u00ed\u00f0s, miskunna \u00fe\u00fa m\u00e9r!&#8220; Og margir \u00e1t\u00f6ldu hann a\u00f0 hann \u00feeg\u00f0i. En hann kalla\u00f0i \u00feess miklu meir: &#8222;Sonur Dav\u00ed\u00f0s, miskunna \u00fe\u00fa m\u00e9r!&#8220; Jes\u00fas st\u00f3\u00f0 vi\u00f0 og bau\u00f0 a\u00f0 kalla \u00e1 hann. Og \u00feeir k\u00f6llu\u00f0u \u00e1 hann blinda, segjandi til hans: &#8222;Vertu me\u00f0 g\u00f3\u00f0um hug. Statt upp. Hann kallar \u00feig.&#8220; Og hann snara\u00f0i sinni yfirh\u00f6fn af s\u00e9r, st\u00f3\u00f0 upp og kom til Jes\u00fa. Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i til hans: &#8222;Hva\u00f0 viltu a\u00f0 eg skuli gj\u00f6ra \u00fe\u00e9r?&#8220; En hinn blindi sag\u00f0i honum: &#8222;Rabb\u00f3n\u00ed, \u00fea\u00f0 eg s\u00e6i.&#8220; Jes\u00fas sag\u00f0i \u00fe\u00e1 til hans: &#8222;Gakk h\u00e9\u00f0an, \u00fe\u00edn tr\u00faa gj\u00f6r\u00f0i \u00feig h\u00f3lpinn.&#8220; Og strax \u00fe\u00e1 s\u00e1 hann og fylgdi honum eftir \u00e1 veginum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>X. Og er hann reis upp \u00fea\u00f0an kom hann \u00ed endim\u00f6rk J\u00fadalands hinumegin J\u00f3rdanar. [ \u00dear kom og enn aftur margt f\u00f3lk til hans og sem hann plaga\u00f0i \u00fe\u00e1 t\u00f3k hann enn aftur til a\u00f0 kenna \u00feeim. Pharisei gengu og til hans, spur\u00f0u hann a\u00f0 ef manninum leyf\u00f0ist a\u00f0 forl\u00e1ta s\u00edna h\u00fasfr\u00fa, freistandi hans so. En hann svara\u00f0i og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Hva\u00f0 hefir M\u00f3ses bo\u00f0i\u00f0 y\u00f0ur?&#8220; \u00deeir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;M\u00f3ses leyf\u00f0i skilna\u00f0arbr\u00e9f a\u00f0 skrifa og vi\u00f0 a\u00f0 skilja.&#8220; Hverju Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i: &#8222;Fyrir har\u00f0leik hjarta y\u00f0vars \u00fe\u00e1 skrifa\u00f0i hann y\u00f0ur \u00feetta bo\u00f0or\u00f0 en af upphafi skepnunnar gj\u00f6r\u00f0i Gu\u00f0 einn <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/markusargudspjall-10-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3816","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3816","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3816"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3816\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3816"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}