{"id":3815,"date":"2017-12-18T18:34:46","date_gmt":"2017-12-18T18:34:46","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/markusargudspjall-9-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:46","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:46","slug":"markusargudspjall-9-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/markusargudspjall-9-kafli\/","title":{"rendered":"Mark\u00fasargu\u00f0spjall 9. kafli"},"content":{"rendered":"<p>IX.<\/p>\n<p>Og eftir sex daga t\u00f3k Jes\u00fas me\u00f0 s\u00e9r Petrum, Jacobum, Johannem og veik \u00feeim einums\u00f6mum upp \u00e1 eitt h\u00e1tt fjall og forkl\u00e1ra\u00f0ist fyrir \u00feeim. <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ Forkl\u00e1ran Christi \u00e1 fjallinu \/ Mat. 17 \/ Luc. 9\">[<\/span> Hans kl\u00e6\u00f0i ur\u00f0u sk\u00ednandi og n\u00e6sta hv\u00edt sem snj\u00e1r so a\u00f0 enginn litunarma\u00f0ur \u00e1 j\u00f6r\u00f0u kann so hv\u00edtt a\u00f0 gj\u00f6ra. \u00deeim birtist og El\u00edas me\u00f0 Moyse og voru \u00fear talandi vi\u00f0 Jes\u00fam. P\u00e9tur svara\u00f0i og sag\u00f0i til Jes\u00fa: &#8222;Rabb\u00ed, gott er oss h\u00e9r a\u00f0 vera. Og gj\u00f6rum h\u00e9r \u00ferj\u00e1r tjaldb\u00fa\u00f0ir, \u00fe\u00e9r eina, Moyse eina og Elie eina.&#8220; En hann vissi eigi sj\u00e1lfur hva\u00f0 hann sag\u00f0i af \u00fev\u00ed \u00feeir voru \u00f3ttaslegnir. \u00dear var\u00f0 og eitt sk\u00fd sem \u00fe\u00e1 yfirskygg\u00f0i. Og r\u00f6dd kom \u00far sk\u00fdinu, segjandi: <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Gu\u00f0s f\u00f6\u00f0urs r\u00f6dd\">[<\/span> &#8222;\u00deessi er minn elskulegur sonur, heyri \u00fe\u00e9r honum.&#8220; Og strax \u00fear eftir er \u00feeir litu um sig s\u00e1u \u00feeir \u00f6ngvan meir nema Jes\u00fam hj\u00e1 s\u00e9r.<\/p>\n<p>\tOg er \u00feeir gengu ofan af fjallinu bau\u00f0 hann \u00feeim a\u00f0 \u00feeir seg\u00f0i \u00fea\u00f0 \u00f6ngum hva\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u s\u00e9\u00f0 \u00feanga\u00f0 til a\u00f0 Mannsins sonur v\u00e6ri upprisinn af dau\u00f0a. \u00deeir h\u00e9ldu og \u00fev\u00ed or\u00f0i hj\u00e1 s\u00e9r, spyrjandi s\u00edn \u00e1 milli hva\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri er hann sag\u00f0i: &#8222;Upprisinn af dau\u00f0a&#8220;. Og \u00feeir spur\u00f0u hann a\u00f0 og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Hva\u00f0 er \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 sem hinir skriftl\u00e6r\u00f0u segja, a\u00f0 El\u00edas byrjar fyrri a\u00f0 koma?&#8220; En hann svara\u00f0i og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;El\u00edas skal a\u00f0 v\u00edsu fyrri koma og allt til lags f\u00e6ra. \u00dear a\u00f0 auk mun Mannsins son margt l\u00ed\u00f0a og forsm\u00e1\u00f0ur ver\u00f0a so sem skrifa\u00f0 er. En eg segi y\u00f0ur \u00fea\u00f0 El\u00edas er kominn og \u00feeir hafa gj\u00f6rt honum hva\u00f0 helst \u00feeir vildu so sem skrifa\u00f0 er af honum.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Um hinga\u00f0komu Elie\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tHann kom til sinna l\u00e6risveina og s\u00e1 \u00fear margt f\u00f3lk kringum \u00fe\u00e1 og hina skriftl\u00e6r\u00f0u er spur\u00f0ust \u00e1 vi\u00f0 \u00fe\u00e1. <span class=\"athugasemd\" title=\"Mat. 17 \/ Luc. 9\">[<\/span> Og strax er allt f\u00f3lki\u00f0 leit Jes\u00fam felmtra\u00f0i \u00fev\u00ed og hr\u00e6ddust, hlupu og heilsu\u00f0u honum. Og hann spur\u00f0i \u00fe\u00e1 hina skriftl\u00e6r\u00f0u: &#8222;A\u00f0 hverju spyrjist \u00fe\u00e9r um vi\u00f0 \u00fe\u00e1?&#8220; En einn af f\u00f3lkinu svara\u00f0i og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Tunglsj\u00fakur ver\u00f0ur heilbrig\u00f0ur\">[<\/span> &#8222;Meistari, eg flutti son minn hinga\u00f0 til \u00fe\u00edn. Hann hefir m\u00e1llausan anda og n\u00e6r helst er hann h\u00f6ndlast af honum \u00fe\u00e1 sl\u00edtur hann hann og hann fro\u00f0ufellir og n\u00edstrar t\u00f6nnum og \u00feornar upp. Og eg tala\u00f0i til \u00feinna l\u00e6risveina a\u00f0 \u00feeir r\u00e6ki hann \u00fat og \u00fea\u00f0 g\u00e1tu \u00feeir eigi.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn hann svara\u00f0i og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Postularnir straffast fyrir vantr\u00faar \u00feeirra sakir\">[<\/span> &#8222;\u00d3 \u00fe\u00fa vantr\u00faa\u00f0a kynsl\u00f3\u00f0, hversu lengi \u00fe\u00e1 skal eg hj\u00e1 y\u00f0ur vera e\u00f0a hversu lengi \u00e1 eg a\u00f0 l\u00ed\u00f0a y\u00f0ur? F\u00e6ri\u00f0 hann hinga\u00f0 til m\u00edn.&#8220; Og \u00feeir f\u00e6r\u00f0u hann \u00feanga\u00f0 til hans. Og er andinn leit hann sleit hann hann, f\u00e9ll \u00e1 j\u00f6r\u00f0 og veltist um og fro\u00f0ufelldi. Hann spur\u00f0i og hans f\u00f6\u00f0ur a\u00f0: &#8222;Hversu langur t\u00edmi er fr\u00e1 \u00fev\u00ed er hann hreppti \u00feetta?&#8220; En hann sag\u00f0i: &#8222;Fr\u00e1 barn\u00e6sku. Og oftlega hefur hann fleygt honum \u00e1 eld og \u00ed vatn a\u00f0 hann fyrirf\u00e6ri honum so. Ef \u00fe\u00fa orkar nokkru \u00e1 sj\u00e1 aumur \u00e1 og hj\u00e1lpa okkur.&#8220; En Jes\u00fas sag\u00f0i til hans: &#8222;Ef \u00fe\u00fa g\u00e6tir tr\u00faa\u00f0. \u00dev\u00ed tr\u00fau\u00f0um er allt m\u00f6gulegt.&#8220; Og strax \u00fe\u00e1 kalla\u00f0i fa\u00f0ir barnsins upp me\u00f0 t\u00e1rum og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ B\u00e6n um tr\u00faaraukninguna\">[<\/span> &#8222;Eg tr\u00fai, herra, hj\u00e1lpa \u00fe\u00fa minni vantr\u00fa!&#8220;<\/p>\n<p>\tOg e\u00f0 Jes\u00fas s\u00e1 a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 hlj\u00f3p a\u00f0 \u00e1v\u00edta\u00f0i hann hinn \u00f3hreina anda og sag\u00f0i til hans: &#8222;\u00de\u00fa daufi og hinn dumbi andi, eg b\u00fd\u00f0 \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00fa farir \u00fat af honum og farir ei meir \u00ed hann \u00fea\u00f0an \u00ed fr\u00e1.&#8220; Og hann kalla\u00f0i upp, sleit hann mj\u00f6g og f\u00f3r \u00fat af honum. Og hann var\u00f0 sem v\u00e6ri hann dau\u00f0ur svo a\u00f0 margir s\u00f6g\u00f0u \u00fea\u00f0 hann v\u00e6ri dau\u00f0ur. En Jes\u00fas h\u00e9lt hans h\u00f6nd og reisti hann upp. Hann reis \u00fe\u00e1 upp. Og \u00fe\u00e1 hann var til h\u00fass genginn spur\u00f0u hans l\u00e6risveinar hann leynilega a\u00f0: &#8222;\u00dev\u00ed g\u00e1tu v\u00e6r eigi drifi\u00f0 hann \u00fat?&#8220; En hann sag\u00f0i: &#8222;\u00deetta kyn f\u00e6st me\u00f0 \u00f6ngu \u00f6\u00f0ru \u00fatreki\u00f0 nema fyrir b\u00e6nir og f\u00f6stu.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn \u00feeir gengu og burt \u00fea\u00f0an og fer\u00f0u\u00f0ust um Galileam. <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ Aunnur fyrirs\u00f6gn um hans p\u00ednu og upprisu\">[<\/span> Hann vildi og eigi a\u00f0 \u00fea\u00f0 skyldi nokkur vita. Hann l\u00e6r\u00f0i s\u00edna l\u00e6risveina og sag\u00f0i \u00feeim \u00fea\u00f0 Mannsins sonur skyldi seljast \u00ed manna hendur og \u00feeir mundu afl\u00edfa hann og \u00fe\u00e1 hann v\u00e6ri afl\u00edfa\u00f0ur mundi hann \u00e1 \u00feri\u00f0ja degi upp aftur r\u00edsa. \u00deeir undirst\u00f3\u00f0u eigi \u00feessi or\u00f0 og \u00feor\u00f0u \u00fe\u00f3 eigi a\u00f0 spyrja hann a\u00f0.<\/p>\n<p>\tHann kom til Kapernaum og sem hann var til h\u00fas kominn spur\u00f0i hann \u00fe\u00e1 a\u00f0: <span class=\"athugasemd\" title=\"8 \/ \u00der\u00e6ta l\u00e6risveinanna hver \u00feeirra mestur v\u00e6ri\">[<\/span> &#8222;Hva\u00f0 handt\u00e9ru\u00f0u \u00fe\u00e9r y\u00f0ar \u00e1 milli \u00e1 veginum?&#8220; En \u00feeir \u00fe\u00f6g\u00f0u \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u metist um \u00e1 veginum hver \u00feeirra mestur v\u00e6ri. Og er hann setti sig kalla\u00f0i hann \u00fe\u00e1 t\u00f3lf og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Ef nokkur vill fyrstur vera s\u00e1 skal \u00f6llum s\u00ed\u00f0astur vera og allra \u00fej\u00f3n.&#8220; Og hann t\u00f3k eitt barn og setti \u00fea\u00f0 mitt \u00e1 millum \u00feeirra. Og er hann h\u00e9lt um \u00fea\u00f0 sag\u00f0i hann til \u00feeirra: &#8222;Hver s\u00e1 me\u00f0tekur eitt \u00fevil\u00edkt barn \u00ed m\u00ednu nafni hann me\u00f0tekur mig og hver helst hann me\u00f0tekur mig s\u00e1 me\u00f0tekur ei mig heldur hann sem mig sendi.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn J\u00f3hannes svara\u00f0i honum og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"Luc. 9\">[<\/span> &#8222;Meistari, v\u00e9r s\u00e1um einn \u00feann sem rak \u00fat dj\u00f6fla \u00ed \u00fe\u00ednu nafni hver e\u00f0 eigi fylgir oss eftir og v\u00e6r fyrirbu\u00f0um h\u00f6num \u00fea\u00f0 af \u00fev\u00ed hann fylgdi oss eigi eftir.&#8220; En Jes\u00fas sag\u00f0i: &#8222;Eigi skulu \u00fe\u00e9r fyrirbj\u00f3\u00f0a honum \u00fea\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 enginn s\u00e1 ef hann gj\u00f6rir kraftaverk \u00ed m\u00ednu nafni og kunni \u00fe\u00e1 strax illa a\u00f0 tala um mig. \u00dev\u00ed a\u00f0 hver hann er eigi \u00ed m\u00f3ti oss hann er me\u00f0 oss \u00fev\u00ed hver sem y\u00f0ur gefur a\u00f0 drekka einn bikar vats \u00ed m\u00ednu nafni af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r eru\u00f0 Krists, sannlega \u00fe\u00e1 segi eg y\u00f0ur a\u00f0 \u00fea\u00f0 skal honum ekki \u00f3launa\u00f0 ver\u00f0a. <span class=\"athugasemd\" title=\"9 \/ Ver\u00f0laun \u00feeirra sem or\u00f0sins \u00fej\u00f3num gj\u00f6ra til g\u00f3\u00f0a\">[<\/span> Og hver hann hneykslar einn af \u00feeim inum litlu sem \u00e1 mig tr\u00faa honum v\u00e6ri betra a\u00f0 kvarnarsteinn byndist vi\u00f0 h\u00e1ls honum og v\u00e6ri so \u00ed sj\u00e1 kasta\u00f0ur. <span class=\"athugasemd\" title=\"10 \/ Um hneykslan\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tOg ef \u00fe\u00edn h\u00f6nd hneykslar \u00feig \u00fe\u00e1 sn\u00ed\u00f0 \u00fe\u00fa hana af. Betra er \u00fe\u00e9r handarlausum inn a\u00f0 ganga til l\u00edfsins en hafandi tv\u00e6r hendur og fara til helv\u00edtis \u00ed \u00f3sl\u00f6kkvanlegan eld hvar e\u00f0 \u00feeirra ma\u00f0kur deyr eigi og \u00fear \u00feeirra eldur slokknar ekki. Og ef \u00feig hneykslar f\u00f3tur \u00feinn \u00fe\u00e1 h\u00f6gg hann af. Betra er \u00fe\u00e9r h\u00f6ltum inn a\u00f0 ganga \u00ed eil\u00edft l\u00edf en \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fa hafir tvo f\u00e6tur og kastist \u00ed helv\u00edskan eld \u00f3sl\u00f6kkvanlegan hvar a\u00f0 \u00feeirra ma\u00f0kur deyr eigi og \u00fear \u00feeirra eldur slokknar eigi. Hneyksli \u00feig \u00feitt auga \u00fe\u00e1 kasta \u00fe\u00fa \u00fev\u00ed fr\u00e1 \u00fe\u00e9r. Betra er \u00fe\u00e9r eineyg\u00f0um inn a\u00f0 ganga \u00ed Gu\u00f0s r\u00edki en a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir tv\u00f6 augu og sendist \u00ed helv\u00edskan eld hvar e\u00f0 \u00feeirra ma\u00f0kur deyr eigi og \u00fear \u00feeirra eldur slokknar eigi.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 allir hlj\u00f3ta me\u00f0 eldi a\u00f0 saltast og allar f\u00f3rnir salti a\u00f0 saltast. <span class=\"athugasemd\" title=\"11 \/ Af pr\u00e9dikunaremb\u00e6tti\">[<\/span> Salti\u00f0 er gott en ef salti\u00f0 afseltist, me\u00f0 hverju kryddi \u00fe\u00e9r \u00fea? Hafi \u00fe\u00e9r salti\u00f0 me\u00f0 y\u00f0ur og hafi\u00f0 fri\u00f0 y\u00f0ar \u00e1 millum.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>IX. Og eftir sex daga t\u00f3k Jes\u00fas me\u00f0 s\u00e9r Petrum, Jacobum, Johannem og veik \u00feeim einums\u00f6mum upp \u00e1 eitt h\u00e1tt fjall og forkl\u00e1ra\u00f0ist fyrir \u00feeim. [ Hans kl\u00e6\u00f0i ur\u00f0u sk\u00ednandi og n\u00e6sta hv\u00edt sem snj\u00e1r so a\u00f0 enginn litunarma\u00f0ur \u00e1 j\u00f6r\u00f0u kann so hv\u00edtt a\u00f0 gj\u00f6ra. \u00deeim birtist og El\u00edas me\u00f0 Moyse og voru \u00fear talandi vi\u00f0 Jes\u00fam. P\u00e9tur svara\u00f0i og sag\u00f0i til Jes\u00fa: &#8222;Rabb\u00ed, gott er oss h\u00e9r a\u00f0 vera. Og gj\u00f6rum h\u00e9r \u00ferj\u00e1r tjaldb\u00fa\u00f0ir, \u00fe\u00e9r eina, Moyse eina og Elie eina.&#8220; En hann vissi eigi sj\u00e1lfur hva\u00f0 hann sag\u00f0i af \u00fev\u00ed \u00feeir voru \u00f3ttaslegnir. \u00dear var\u00f0 og eitt <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/markusargudspjall-9-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3815","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3815","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3815"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3815\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3815"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}