{"id":3807,"date":"2017-12-18T18:34:46","date_gmt":"2017-12-18T18:34:46","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/markusargudspjall-1-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:46","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:46","slug":"markusargudspjall-1-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/markusargudspjall-1-kafli\/","title":{"rendered":"Mark\u00fasargu\u00f0spjall 1. kafli"},"content":{"rendered":"<p>S. Marcus evangelium <\/p>\n<p>I. <\/p>\n<p>\u00deetta er upphaf evangelii Jes\u00fa Christi, Gu\u00f0s sonar, so sem skrifa\u00f0 er \u00ed hj\u00e1 sp\u00e1m\u00f6nnunum: <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ J\u00f3hannes uppbyrjari hins N\u00fdja testamentis \/ Malach. 3 \/ Esaie 40\">[<\/span> &#8222;Sj\u00e1, eg sendi minn engil fyrir \u00fe\u00ednu augliti, s\u00e1 e\u00f0 tilrei\u00f0i \u00feinn veg fyrir \u00fe\u00e9r. \u00dear er ein hr\u00f3pandi r\u00f6dd \u00ed ey\u00f0im\u00f6rku: Grei\u00f0i \u00fe\u00e9r vegu Drottins og gj\u00f6ri\u00f0 hans stigu r\u00e9tta.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Matth. 2 \/ Luc. 3\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tJ\u00f3hannes var \u00ed ey\u00f0im\u00f6rku, sk\u00edr\u00f0i og pr\u00e9dika\u00f0i i\u00f0runarsk\u00edrn til syndanna fyrirgefningar. <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Kallan og emb\u00e6tti Johannis\">[<\/span> Og \u00fear gengu \u00fat til hans allir af J\u00fada og af Jer\u00fasalem a\u00f0 \u00feeir sk\u00edr\u00f0ust af honum \u00ed J\u00f3rdan, j\u00e1tandi s\u00ednar syndir.<\/p>\n<p>\tEn J\u00f3hannes var kl\u00e6ddur me\u00f0 \u00fafaldsh\u00e1rum og eitt \u00f3larbelti um hans lendar og hann \u00e1t engisprettur og sk\u00f3garhunang. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3h. 1\">[<\/span> Hann pr\u00e9dika\u00f0i og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Fyrirs\u00f6gn \u00fat af tilkomu Christi\">[<\/span> &#8222;S\u00e1 kemur eftir mig sem m\u00e9r er styrkri hvers a\u00f0 eg em eigi ver\u00f0ugur framfallandi upp a\u00f0 leysa \u00fevengi hans sk\u00f3fata. Eg sk\u00edri y\u00f0ur me\u00f0 vatni en hann mun sk\u00edra y\u00f0ur me\u00f0 helgum anda.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Grein \u00e1 milli Christi og Johannis sk\u00edrnar\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00dea\u00f0 var\u00f0 og \u00e1 \u00feeim d\u00f6gum a\u00f0 Jes\u00fas af Na\u00f0saret \u00far Galilea kom og sk\u00edr\u00f0ist af Johanne \u00ed J\u00f3rdan. <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Christus sk\u00edrist\">[<\/span> Og strax \u00fe\u00e1 hann st\u00e9 upp \u00far vatninu s\u00e1 hann himnana opna og helgan anda \u00ed d\u00faful\u00edki ofanst\u00edgandi yfir hann. \u00de\u00e1 var\u00f0 og r\u00f6dd af himnum: &#8222;\u00de\u00fa ert sonur minn elskulegur a\u00f0 hverjum m\u00e9r vel \u00fe\u00f3knast.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 strax dreif andinn hann \u00e1 ey\u00f0im\u00f6rk. <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ Christus freistast af andskotanum\">[<\/span> \u00dear var hann \u00ed fj\u00f6rut\u00edgi dag og fj\u00f6rut\u00edgi n\u00e1tta og freista\u00f0ist af andskotanum. Hann var \u00fear og me\u00f0 villud\u00fdrum. Og englar \u00fej\u00f3nu\u00f0u honum \u00fear.<\/p>\n<p>\tEn eftir \u00fea\u00f0 er J\u00f3hannes var gripinn kom Jes\u00fas \u00ed Galileam og pr\u00e9dika\u00f0i evangelium af Gu\u00f0s r\u00edki, so segjandi: <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ Kristur hefur upp a\u00f0 pr\u00e9dika\">[<\/span> &#8222;S\u00e1 t\u00edmi er n\u00fa uppfylldur og Gu\u00f0s r\u00edki n\u00e1lgast. I\u00f0rist \u00fe\u00e9r og tr\u00fai\u00f0 evangelio.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn er hann gekk me\u00f0 sj\u00f3num \u00ed Galilea s\u00e1 hann Simonem og Andream br\u00f3\u00f0ur hans l\u00e1tandi s\u00edn net \u00ed sj\u00f3inn \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir voru fiskarar. <span class=\"athugasemd\" title=\"8 \/ Kallan postulanna\">[<\/span> Jes\u00fas sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Fylgi\u00f0 m\u00e9r eftir og eg mun gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e9r ver\u00f0i\u00f0 fiskendur manna.&#8220; Strax forl\u00e9tu \u00feeir s\u00edn net og fylgdu honum eftir.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 hann var skammt \u00ed burt \u00fea\u00f0an genginn s\u00e1 hann Jakob son Zebedei og Johannem br\u00f3\u00f0ur hans og \u00feeir voru \u00e1 skipi b\u00e6ta a\u00f0 neti. Og strax \u00fe\u00e1 kalla\u00f0i hann \u00e1 \u00fe\u00e1. Og \u00feeir forl\u00e9tu sinn f\u00f6\u00f0ur Zebedeum \u00ed skipinu eftir hj\u00e1 leiguli\u00f0unum og fylgdu honum eftir.<\/p>\n<p>\t\u00deeir gengu \u00fe\u00e1 til Kapernaum. Og strax um \u00fevottdaginn gekk hann inn \u00ed samkunduh\u00fasi\u00f0 og l\u00e6r\u00f0i \u00fe\u00e1. Og \u00feeim \u00e6g\u00f0i hans kenning \u00fea\u00f0 hann kenndi \u00feeim sem af valdi en eigi so sem hinir skriftl\u00e6r\u00f0u. <span class=\"athugasemd\" title=\"9 \/ Kenning Christi \u00fev\u00edl\u00edk veri\u00f0 hefur \/ Luc. 4\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tOg einn ma\u00f0ur var \u00fear \u00ed \u00feeirra samkunduh\u00fasi haldinn af \u00f3hreinum anda. <span class=\"athugasemd\" title=\"10 \/ \u00d3hreinn andi ver\u00f0ur \u00fatdrifinn\">[<\/span> S\u00e1 kalla\u00f0i og sag\u00f0i: &#8222;Hei, hva\u00f0 h\u00f6fum v\u00e6r me\u00f0 \u00feig, Jes\u00fas af Na\u00f0saret? Komtu a\u00f0 glata oss? Eg veit a\u00f0 \u00fe\u00fa ert hinn heilagi Gu\u00f0s.&#8220; Jes\u00fas straffa\u00f0i hann og sag\u00f0i: &#8222;\u00deegi \u00fe\u00fa og far \u00fat af manninum.&#8220; Og s\u00e1 \u00f3hreini andi hreif hann og kalla\u00f0i upp h\u00e1rri r\u00f6ddu og f\u00f3r \u00fat fr\u00e1 honum. Og \u00feeir undru\u00f0ust allir so a\u00f0 \u00feeir spur\u00f0u a\u00f0 s\u00edn \u00e1 millum, so segjandi: &#8222;Hva\u00f0 er \u00feetta? E\u00f0a hver er \u00feessi hin n\u00fdja kenning? \u00dev\u00ed a\u00f0 af valdi skipar hann \u00f3hreinum \u00f6ndum og \u00feeir hl\u00fd\u00f0a honum.&#8220; Og hans rykti gekk strax \u00fat um Galileah\u00e9ra\u00f0.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 gengu \u00feeir strax \u00fat af samkunduh\u00fasinu og komu til h\u00fasa S\u00edmonar og Andree me\u00f0 Jacobo og Johanne. En m\u00f3\u00f0ir h\u00fasfreyju P\u00e9turs l\u00e1 \u00fear kr\u00f6nk \u00ed k\u00f6ldu og strax \u00fe\u00e1 s\u00f6g\u00f0u \u00feeir honum til hennar. <span class=\"athugasemd\" title=\"10 \/ M\u00f3\u00f0ir konu Petri\">[<\/span> Hann gekk \u00fe\u00e1 til, reisti hana upp og h\u00e9lt \u00ed h\u00f6nd hennar og strax \u00fe\u00e1 mistti h\u00fan k\u00f6ldunnar og \u00fej\u00f3na\u00f0i \u00feeim.<\/p>\n<p>\tEn a\u00f0 kveldi komnu \u00fe\u00e1 s\u00f3lsett var fluttu \u00feeir alls kyns sj\u00faka menn og dj\u00f6ful\u00f3\u00f0a til hans. Og allur borgarm\u00fagur safna\u00f0ist fyrir dyrunum. Og hann l\u00e6kna\u00f0i marga sem kv\u00f6ldust af \u00fdmsum s\u00f3ttum. <span class=\"athugasemd\" title=\"11 \/ Fj\u00f6ldi sj\u00fakra f\u00e6r heilsu\">[<\/span> Hann rak og \u00fat marga dj\u00f6fla. Og eigi leyf\u00f0i hann dj\u00f6flunum a\u00f0 m\u00e6la \u00fea\u00f0 \u00feeir \u00feekktu hann.<\/p>\n<p>\tEn a\u00f0 morni fyrir d\u00f6gun st\u00f3\u00f0 hann upp, gekk \u00fat og f\u00f3r burt \u00ed einn ey\u00f0ista\u00f0 og ba\u00f0st \u00fear fyrir. En Petrus og \u00feeir e\u00f0 me\u00f0 honum voru skundu\u00f0u eftir honum og \u00fe\u00e1 \u00feeir fundu hann s\u00f6g\u00f0u \u00feeir honum: &#8222;Allir leita a\u00f0 \u00fe\u00e9r.&#8220; Hann sag\u00f0i \u00fe\u00e1 til \u00feeirra: &#8222;G\u00f6ngu v\u00e6r \u00ed hinar n\u00e6stu borgir og bygg\u00f0arl\u00f6g so a\u00f0 eg pr\u00e9diki og \u00fear \u00fev\u00ed til \u00feess kom eg.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"12 \/ Hvar til Christus er sendur\">[<\/span> Hann pr\u00e9dika\u00f0i og \u00ed \u00feeirra samkunduh\u00fasum og um allt Galileah\u00e9ra\u00f0 og rak \u00fat dj\u00f6fla.<\/p>\n<p>\tOg einn l\u00edk\u00fer\u00e1r ma\u00f0ur kom til hans, bi\u00f0jandi hann me\u00f0 hneig\u00f0u kn\u00e9 og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"Matth. 8 \/ Luc. 5\">[<\/span> &#8222;Ef \u00fe\u00fa vilt \u00fe\u00e1 f\u00e6r \u00fe\u00fa mig hreinsa\u00f0.&#8220; En Jes\u00fas s\u00e1 aumur \u00e1 honum, r\u00e9tti \u00fat s\u00edna h\u00f6nd, \u00e1hr\u00e6r\u00f0i hann og sag\u00f0i honum: <span class=\"athugasemd\" title=\"14 \/ L\u00edk\u00fer\u00e1r hreinsast \/ Luc. 14\">[<\/span> &#8222;Eg vil. Vertu hreinn.&#8220; Og \u00fe\u00e1 hann sag\u00f0i so hvarf strax l\u00edk\u00fer\u00e1in af honum og hann var\u00f0 hreinn. Jes\u00fas hasta\u00f0i \u00e1 hann og l\u00e9t hann strax fr\u00e1 s\u00e9r og sag\u00f0i honum: &#8222;Sj\u00e1 \u00fe\u00fa til a\u00f0 \u00fe\u00fa segir \u00fea\u00f0 \u00f6ngum heldur far \u00fe\u00fa og s\u00fdn \u00feig prestunum og f\u00f3rna fyrir \u00feinni hreinsun sem Moyses ba\u00f0 til vitnisbur\u00f0ar yfir \u00fe\u00e1.&#8220; En \u00fe\u00e1 hann kom \u00fat h\u00f3f hann upp og kunngj\u00f6r\u00f0i margt \u00fear \u00fat af og v\u00ed\u00f0fr\u00e6g\u00f0i \u00feessi or\u00f0 so a\u00f0 hann m\u00e1tti eigi opinberlega innganga \u00ed borgina heldur var hann \u00fear fyrir utan \u00ed ey\u00f0ist\u00f6\u00f0um. Og margir komu til hans \u00far \u00fdmsum \u00e1lfum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>S. Marcus evangelium I. \u00deetta er upphaf evangelii Jes\u00fa Christi, Gu\u00f0s sonar, so sem skrifa\u00f0 er \u00ed hj\u00e1 sp\u00e1m\u00f6nnunum: [ &#8222;Sj\u00e1, eg sendi minn engil fyrir \u00fe\u00ednu augliti, s\u00e1 e\u00f0 tilrei\u00f0i \u00feinn veg fyrir \u00fe\u00e9r. \u00dear er ein hr\u00f3pandi r\u00f6dd \u00ed ey\u00f0im\u00f6rku: Grei\u00f0i \u00fe\u00e9r vegu Drottins og gj\u00f6ri\u00f0 hans stigu r\u00e9tta.&#8220; [ J\u00f3hannes var \u00ed ey\u00f0im\u00f6rku, sk\u00edr\u00f0i og pr\u00e9dika\u00f0i i\u00f0runarsk\u00edrn til syndanna fyrirgefningar. [ Og \u00fear gengu \u00fat til hans allir af J\u00fada og af Jer\u00fasalem a\u00f0 \u00feeir sk\u00edr\u00f0ust af honum \u00ed J\u00f3rdan, j\u00e1tandi s\u00ednar syndir. En J\u00f3hannes var kl\u00e6ddur me\u00f0 \u00fafaldsh\u00e1rum og eitt \u00f3larbelti um hans lendar og hann <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/markusargudspjall-1-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3807","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3807","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3807"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3807\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3807"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}