{"id":3800,"date":"2017-12-18T18:34:46","date_gmt":"2017-12-18T18:34:46","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/matteusargudspjall-22-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:46","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:46","slug":"matteusargudspjall-22-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/matteusargudspjall-22-kafli\/","title":{"rendered":"Matteusargu\u00f0spjall 22. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXII.<\/p>\n<p>Og Jes\u00fas svara\u00f0i og tala\u00f0i \u00ed anna\u00f0 sinn \u00ed eftirl\u00edkingum til \u00feeirra og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"Luc. 14 \/ 1 \/ Eftirl\u00edking \u00fat af pr\u00e9dikan evangelii og br\u00fa\u00f0kaupi\">[<\/span> &#8222;Himnar\u00edki er l\u00edkt \u00feeim konungi sem br\u00fa\u00f0kaup gj\u00f6r\u00f0i syni s\u00ednum og sendi \u00fat s\u00edna \u00fej\u00f3na a\u00f0 kalla bo\u00f0smennina til br\u00fa\u00f0kaupsins. Og \u00feeir vildu eigi koma. \u00cd anna\u00f0 sinn sendi hann a\u00f0ra \u00fej\u00f3na \u00fat og sag\u00f0i: Segi\u00f0 bo\u00f0sm\u00f6nnunum: Sj\u00e1i\u00f0, m\u00edna m\u00e1lt\u00ed\u00f0 hefi eg tilb\u00fai\u00f0, m\u00ednir uxar og ali\u00f0f\u00e9 eru sl\u00e1tra\u00f0ir og allt er rei\u00f0ub\u00fai\u00f0. Komi\u00f0 til br\u00fa\u00f0kaupsins. En \u00feeir forsm\u00e1nu\u00f0u \u00fea\u00f0 og gengu burt, einn \u00e1 sinn b\u00fasta\u00f0 en annar til sinnar s\u00fdslunar en sumir gripu hans \u00fej\u00f3na, d\u00e1ru\u00f0u \u00fe\u00e1 og dr\u00e1pu. En \u00fe\u00e1 konungurinn heyr\u00f0i \u00fea\u00f0 var\u00f0 hann rei\u00f0ur og sendi \u00fat sinn her og fyrirf\u00f3r \u00feessum mor\u00f0ingjum og brenndi upp borg \u00feeirra.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i hann til sinna \u00fej\u00f3na: <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Kallan hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a\">[<\/span> Brullaupi\u00f0 er a\u00f0 s\u00f6nnu rei\u00f0ub\u00fai\u00f0 en \u00feeim sem bo\u00f0i\u00f0 var \u00feeir voru \u00feess ei ver\u00f0ugir. Fyrir \u00fev\u00ed fari\u00f0 \u00fat \u00e1 str\u00e6tin og bj\u00f3\u00f0i\u00f0 til br\u00fa\u00f0kaupsins hverjum sem \u00fe\u00e9r finni\u00f0. Og hans \u00fej\u00f3nar gengu \u00fat \u00e1 str\u00e6tin og samans\u00f6fnu\u00f0u \u00f6llum \u00feeim \u00feeir fundu, vondum og g\u00f3\u00f0um, og br\u00fa\u00f0laupi\u00f0 var\u00f0 alskipa\u00f0 af m\u00f6nnum. \u00de\u00e1 gekk konungurinn inn a\u00f0 sj\u00e1 gestina og hann s\u00e1 \u00fear mann eigi kl\u00e6ddam me\u00f0 br\u00fa\u00f0laupskl\u00e6\u00f0um og sag\u00f0i til hans: Vinur, hvernin gekkstu inn hinga\u00f0 hafandi ekki br\u00fa\u00f0kaupskl\u00e6\u00f0i? En hann \u00feag\u00f0i. Konungurinn sag\u00f0i \u00fe\u00e1 til sinna \u00fe\u00e9nara: <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Refsing \u00feeirra sem forsm\u00e1 evangelium\">[<\/span> Bindi\u00f0 hans hendur og f\u00e6tur og varpi\u00f0 honum \u00ed ystu myrkur. \u00dear mun vera \u00f3p og tannagn\u00edstran. \u00dev\u00ed a\u00f0 margir eru kalla\u00f0ir en f\u00e1ir \u00fatvaldir.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 gengu Pharisei burt og settu r\u00e1\u00f0 saman a\u00f0 \u00feeir g\u00e6ti veitt hann \u00ed or\u00f0um og sendu til hans s\u00edna l\u00e6risveina me\u00f0 Herodis \u00fe\u00e9nurum og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Meistari, v\u00e9r vitum a\u00f0 \u00fe\u00fa ert sanns\u00f6gull og kennir Gu\u00f0s g\u00f6tu \u00ed sannleika, skeytir ei nokkrum \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fa fer ei a\u00f0 mannvir\u00f0ingum. Fyrir \u00fev\u00ed seg oss hva\u00f0 \u00fe\u00e9r l\u00edki: Hvort leyfist a\u00f0 gefa keisaranum skatt e\u00f0ur eigi?&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Um skattgjald keisarans\">[<\/span> En \u00fe\u00e1 Jes\u00fas formerkti \u00feeirra fl\u00e1tskap sag\u00f0i hann: &#8222;Hva\u00f0 freisti \u00fe\u00e9r m\u00edn, hr\u00e6snarar? S\u00fdni\u00f0 m\u00e9r myntina peningsins.&#8220; Og \u00feeir fengu honum peninginn. Jes\u00fas sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Hvers er \u00feessi mynd og yfirskrift?&#8220; \u00deeir s\u00f6g\u00f0u honum: &#8222;Keisarans.&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i hann til \u00feeirra: &#8222;Gefi\u00f0 \u00fe\u00e1 keisaranum hva\u00f0 keisarans er og \u00fea\u00f0 Gu\u00f0i sem Gu\u00f0s er.&#8220; Og er \u00feeir heyr\u00f0u \u00fea\u00f0 undru\u00f0ust \u00feeir, forl\u00e9tu hann og gengu \u00ed burt.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00feeim sama degi gengu Saducei til hans hverjir e\u00f0 segja upprisuna eigi vera, spur\u00f0u hann a\u00f0 og s\u00f6g\u00f0u: <span class=\"athugasemd\" title=\"Marc. 12 \/ Luc. 20 \/ Deut. 25\">[<\/span> &#8222;Meistari, Moyses hefir sagt a\u00f0 ef nokkur anda\u00f0ist og hef\u00f0i eigi barn eftir \u00fe\u00e1 skyldi br\u00f3\u00f0ir hans eiga hans eiginkonu og uppvekja s\u00ednum br\u00f3\u00f0ur s\u00e6\u00f0i. En hj\u00e1 oss voru sj\u00f6 br\u00e6\u00f0ur. Hinn fyrsti fastna\u00f0i s\u00e9r konu og hann anda\u00f0ist. Og af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann haf\u00f0i ekkert s\u00e1\u00f0 l\u00e9t hann br\u00f3\u00f0ur s\u00ednum eftir s\u00edna eiginkonu. L\u00edka s\u00e1 annar og hinn \u00feri\u00f0ji, allt til hins sj\u00f6unda. En s\u00ed\u00f0ast allra anda\u00f0ist og konan. Hvers \u00feeirra sj\u00f6 ver\u00f0ur h\u00fan n\u00fa eignarkona \u00ed upprisunni? <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Um upprisu framli\u00f0inna\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 allir \u00feeir hafa hana haft.&#8220; En Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00de\u00e9r villist og viti\u00f0 eigi Ritningarnar n\u00e9 heldur Gu\u00f0s kraft. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00ed upprisunni munu \u00feeir hverki kvongast n\u00e9 sig kvonga l\u00e1ta heldur eru \u00feeir sem englar Gu\u00f0s \u00e1 himni.<\/p>\n<p>\tEn hafi \u00fe\u00e9r eigi lesi\u00f0 hva\u00f0 af Gu\u00f0i er sagt af upprisu framli\u00f0inna er hann segir: Eg er Gu\u00f0 Abrahams og Gu\u00f0 \u00cdsaaks og Gu\u00f0 Jakobs? <span class=\"athugasemd\" title=\"Exo. 3\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 er eigi Gu\u00f0 dau\u00f0ra heldur lifandi manna.&#8220; Og er f\u00f3lki\u00f0 heyr\u00f0i \u00feetta undra\u00f0ist \u00fea\u00f0 hans kenning.<\/p>\n<p>\tEn er Pharisei heyr\u00f0u \u00fea\u00f0 hann haf\u00f0i \u00feagga\u00f0 Saduceos s\u00f6fnu\u00f0ust \u00feeir saman \u00ed eitt og einn l\u00f6gvitringur af \u00feeim spur\u00f0i hann a\u00f0, freistandi hans og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ \u00dat af \u00fev\u00ed st\u00e6rsta bo\u00f0or\u00f0i\">[<\/span> &#8222;Meistari, hvert er hi\u00f0 mesta bo\u00f0or\u00f0 \u00ed l\u00f6gm\u00e1linu?&#8220; En Jes\u00fas sag\u00f0i til hans: &#8222;Elska skaltu Drottin Gu\u00f0 \u00feinn af \u00f6llu \u00fe\u00ednu hjarta og af alri \u00f6nd \u00feinni og af \u00f6llu \u00fe\u00ednu hugskoti. \u00deetta er hi\u00f0 helsta og mesta bo\u00f0or\u00f0. En anna\u00f0 er \u00feessu l\u00edkt: Elska skaltu n\u00e1unga \u00feinn so sem sj\u00e1lfan \u00feig. \u00cd \u00feessum tveimur bo\u00f0or\u00f0um hengur allt l\u00f6gm\u00e1l og sp\u00e1menn.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00e1 Pharisei voru til samans komnir spur\u00f0i Jes\u00fas \u00fe\u00e1 a\u00f0 og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ Hver Christus s\u00e9\">[<\/span> &#8222;Hva\u00f0 vir\u00f0ist y\u00f0ur af Christo, hvers son e\u00f0 hann s\u00e9?&#8220; \u00deeir s\u00f6g\u00f0u honum: &#8222;Dav\u00ed\u00f0s.&#8220; Hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Hvernin kallar Dav\u00ed\u00f0 hann \u00fe\u00e1 \u00ed anda einn Drottin er hann segir: <span class=\"athugasemd\" title=\"Psal. 120\">[<\/span> Drottinn sag\u00f0i m\u00ednum Drottni: Sit \u00fe\u00fa til minnar h\u00e6gri handar \u00fear til eg set \u00f3vini \u00fe\u00edna til skarar \u00feinna f\u00f3ta. N\u00fa ef Dav\u00ed\u00f0 kallar hann Drottin hvernin er hann \u00fe\u00e1 hans sonur?&#8220; Og enginn gat honum or\u00f0i svara\u00f0 og ei dirf\u00f0ist nokkur upp fr\u00e1 \u00feeim degi hann framar a\u00f0 spyrja.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXII. Og Jes\u00fas svara\u00f0i og tala\u00f0i \u00ed anna\u00f0 sinn \u00ed eftirl\u00edkingum til \u00feeirra og sag\u00f0i: [ &#8222;Himnar\u00edki er l\u00edkt \u00feeim konungi sem br\u00fa\u00f0kaup gj\u00f6r\u00f0i syni s\u00ednum og sendi \u00fat s\u00edna \u00fej\u00f3na a\u00f0 kalla bo\u00f0smennina til br\u00fa\u00f0kaupsins. Og \u00feeir vildu eigi koma. \u00cd anna\u00f0 sinn sendi hann a\u00f0ra \u00fej\u00f3na \u00fat og sag\u00f0i: Segi\u00f0 bo\u00f0sm\u00f6nnunum: Sj\u00e1i\u00f0, m\u00edna m\u00e1lt\u00ed\u00f0 hefi eg tilb\u00fai\u00f0, m\u00ednir uxar og ali\u00f0f\u00e9 eru sl\u00e1tra\u00f0ir og allt er rei\u00f0ub\u00fai\u00f0. Komi\u00f0 til br\u00fa\u00f0kaupsins. En \u00feeir forsm\u00e1nu\u00f0u \u00fea\u00f0 og gengu burt, einn \u00e1 sinn b\u00fasta\u00f0 en annar til sinnar s\u00fdslunar en sumir gripu hans \u00fej\u00f3na, d\u00e1ru\u00f0u \u00fe\u00e1 og dr\u00e1pu. En \u00fe\u00e1 konungurinn <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/matteusargudspjall-22-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3800","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3800","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3800"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3800\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3800"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}