{"id":3798,"date":"2017-12-18T18:34:46","date_gmt":"2017-12-18T18:34:46","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/matteusargudspjall-20-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:46","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:46","slug":"matteusargudspjall-20-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/matteusargudspjall-20-kafli\/","title":{"rendered":"Matteusargu\u00f0spjall 20. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XX.<\/p>\n<p>Himnar\u00edki er l\u00edkt \u00feeim h\u00fasf\u00f6\u00f0ur sem \u00fatgekk snemma morguns verkmenn a\u00f0 leigja \u00ed v\u00edngar\u00f0 sinn. <span class=\"athugasemd\" title=\"I \/ \u00dat\u00fe\u00fd\u00f0ing \u00feeirra seinustu m\u00e1lsgreinar me\u00f0 eftirl\u00edkingu\">[<\/span> En a\u00f0 gj\u00f6r\u00f0um samningi vi\u00f0 verkmennina af daglegu peningsgjaldi sendi hann \u00fe\u00e1 \u00ed sinn v\u00edngar\u00f0. Og n\u00e6r \u00feri\u00f0ju stund gekk hann \u00fat og leit a\u00f0ra i\u00f0julausa standa \u00e1 torginu og sag\u00f0i til \u00feeirra: Fari \u00fe\u00e9r \u00ed minn v\u00edngar\u00f0 og hva\u00f0 r\u00e9tt er mun eg gefa y\u00f0ur. \u00deeir gengu og \u00feanga\u00f0. Og enn gekk hann \u00fat aftur um s\u00e9ttu og n\u00edundu stund og gj\u00f6r\u00f0i so l\u00edka. En um elleftu stund gekk hann \u00fat og fann enn a\u00f0ra standa i\u00f0julausa og sag\u00f0i til \u00feeirra: Hvar fyrir standi \u00fe\u00e9r h\u00e9r allan dag i\u00f0julausir? \u00deeir s\u00f6g\u00f0u til hans: \u00dev\u00ed a\u00f0 enginn hefur leigt oss. Hann sag\u00f0i til \u00feeirra: Fari \u00fe\u00e9r og \u00ed minn v\u00edngar\u00f0 og hva\u00f0 r\u00e9tt er skulu \u00fe\u00e9r f\u00e1.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00e1 kveld var komi\u00f0 sag\u00f0i herrann v\u00edngar\u00f0sins til s\u00edns r\u00e1\u00f0amanns: Kalla\u00f0u verkamennina og gjald \u00feeim ver\u00f0kaupi\u00f0. Og hann t\u00f3k til \u00ed fr\u00e1 inum seinasta og allt til hins fyrsta. \u00de\u00e1 komu \u00feeir sem um elleftu stund leig\u00f0ir voru og hver \u00feeirra me\u00f0t\u00f3k sinn pening. En er hinir fyrstu komu meintu \u00feeir \u00fea\u00f0 \u00feeir mundu f\u00e1 meira og hver \u00feeirra me\u00f0t\u00f3k sinn pening. Og \u00fe\u00e1 er \u00feeir h\u00f6f\u00f0u hann me\u00f0teki\u00f0 m\u00f6glu\u00f0u \u00feeir \u00ed m\u00f3ti h\u00fasf\u00f6\u00f0urnum og s\u00f6g\u00f0u: \u00deessir seinustu hafa eina stund erfi\u00f0a\u00f0 og \u00fe\u00fa gj\u00f6rir \u00fe\u00e1 oss jafna, v\u00e9r sem bori\u00f0 h\u00f6fum \u00feunga og hita dagsins.<\/p>\n<p>\tEn hann svara\u00f0i og sag\u00f0i til eins \u00feeirra: Vinur, ei gj\u00f6ri eg \u00fe\u00e9r \u00f3r\u00e9tt. Ertu ekki \u00e1s\u00e1ttur or\u00f0inn vi\u00f0 mig um einn pening? Tak hva\u00f0 \u00feitt er og far burt. En \u00feessum seinasta vil eg gefa so sem \u00fe\u00e9r. E\u00f0a lofast m\u00e9r ekki a\u00f0 gj\u00f6ra af m\u00ednu hva\u00f0 eg vil? E\u00f0a ertu um \u00fea\u00f0 rangeyg\u00f0ur \u00fe\u00f3 a\u00f0 eg s\u00e9 g\u00f3\u00f0gjarn? So ver\u00f0a n\u00fa s\u00ed\u00f0astir hinir fyrstu og fyrstir hinir s\u00ed\u00f0ustu. \u00dev\u00ed a\u00f0 margir eru kalla\u00f0ir en f\u00e1ir \u00fatvaldir.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg hann fer\u00f0a\u00f0ist upp til Jer\u00fasalem og t\u00f3k \u00fe\u00e1 t\u00f3lf l\u00e6risveina heimuglega til s\u00edn \u00e1 veginum og sag\u00f0i til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ \u00d6nnur fyrirs\u00f6gn um hans dau\u00f0a og upprisu\">[<\/span> &#8222;V\u00e9r reisum n\u00fa upp til Jer\u00fasalem og Mannsins son mun ofurseljast kennimannah\u00f6f\u00f0ingjum og skriftl\u00e6r\u00f0um og \u00feeir munu hann ford\u00e6ma til dau\u00f0a og ofurselja hann hei\u00f0ingjum til spottunar og h\u00fa\u00f0strokunar og til krossfestingar. Og \u00e1 \u00feri\u00f0ja degi mun hann upp aftur r\u00edsa.&#8220; <\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 gekk m\u00f3\u00f0ir sona Zebedei til hans me\u00f0ur syni s\u00edna, kallandi fyrir hann fram og ba\u00f0 nokkurs af honum. <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ \u00d3vitmannleg vir\u00f0ingar\u00e1girni\">[<\/span> Og hann sag\u00f0i til hennar: &#8222;Hva\u00f0 viltu?&#8220; H\u00fan sag\u00f0i til hans: &#8222;L\u00e1t \u00feessa m\u00edna sonu sitja \u00ed r\u00edki \u00fe\u00ednu, \u00feann eina til \u00feinnar h\u00e6gri handar og annan til \u00feinnar vinstri handar.&#8220; En Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i: &#8222;\u00de\u00e9r viti\u00f0 eigi hva\u00f0 \u00fe\u00e9r bi\u00f0ji\u00f0. Geti \u00fei\u00f0 \u00feann kaleik drukki\u00f0 hvern eg mun drekka og \u00feeirri sk\u00edrn sk\u00edrast l\u00e1ti\u00f0 hverri eg mun sk\u00edrast?&#8220; \u00deeir s\u00f6g\u00f0u til hans: &#8222;\u00dea\u00f0 getum vi\u00f0.&#8220; Og hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Minn kaleik munu \u00fei\u00f0 a\u00f0 s\u00f6nnu drekka og \u00feeirr sk\u00edrn hverri eg sk\u00edrunst munu \u00fei\u00f0 sk\u00edrast. En \u00fea\u00f0 a\u00f0 sitja til minnar h\u00e6gri handar og vinstri handar er eigi m\u00edn y\u00f0ur a\u00f0 gefa heldur \u00feeim hverjum \u00fea\u00f0 er fyrirb\u00fai\u00f0 af m\u00ednum f\u00f6\u00f0ur.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg er \u00feeir t\u00edu heyr\u00f0u \u00fea\u00f0 \u00feykktust \u00feeir \u00feeim tveimur br\u00e6\u00f0rum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Marc. 10 \/ Luc. 22\">[<\/span> En Jes\u00fas kalla\u00f0i \u00fe\u00e1 til s\u00edn og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Grein \u00e1 milli kristninnar og veraldlegs valds\">[<\/span> &#8222;\u00de\u00e9r viti\u00f0 a\u00f0 veraldarmannah\u00f6f\u00f0ingja drottna yfir \u00feeim og \u00feeir e\u00f0 voldugir eru hafa yfirv\u00f6ld. So skal eigi vera y\u00f0ar \u00e1 milli heldur hver hann vill y\u00f0ar \u00e1 milli voldugur vera s\u00e9 s\u00e1 y\u00f0ar \u00fe\u00e9nari. Og hver y\u00f0ar sem fremstur vill vera veri hann y\u00f0ar \u00fej\u00f3n. L\u00edka so sem Mannsins son kom eigi a\u00f0 hann l\u00e9ti s\u00e9r \u00fej\u00f3na heldur upp \u00e1 \u00fea\u00f0 hann \u00fej\u00f3na\u00f0i og g\u00e6fi sitt l\u00edf til endurlausnar fyrir marga.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 er \u00feeir gengu \u00fat af Jer\u00edk\u00f3 fylgdi honum margt f\u00f3lk eftir. Og sj\u00e1, a\u00f0 tveir blindir s\u00e1tu vi\u00f0 veginn. Og \u00fe\u00e1 \u00feeir heyr\u00f0u \u00fea\u00f0 a\u00f0 Jes\u00fas gekk \u00fear fram hj\u00e1 k\u00f6llu\u00f0u \u00feeir og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;\u00d3 herra, sonur Dav\u00ed\u00f0s, miskunna \u00fe\u00fa okkur!&#8220; En f\u00f3lki\u00f0 hasta\u00f0i \u00e1 \u00fe\u00e1 a\u00f0 \u00feeir \u00feeg\u00f0i. En \u00feeir k\u00f6llu\u00f0u \u00fev\u00ed meir og s\u00f6g\u00f0u: <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Tveir blindir f\u00e1 s\u00fdn\">[<\/span> &#8222;\u00d3 herra, sonur Dav\u00ed\u00f0s, miskunna \u00fe\u00fa okkur!&#8220; Og Jes\u00fas sta\u00f0n\u00e6mdist, kalla\u00f0i \u00e1 \u00fe\u00e1 og sag\u00f0i: &#8222;Hva\u00f0 vilji \u00fei\u00f0 a\u00f0 eg skuli gj\u00f6ra ykkur?&#8220; \u00deeir s\u00f6g\u00f0u til hans: &#8222;Herra, \u00fea\u00f0 a\u00f0 okkar augu uppl\u00fakist.&#8220; En Jes\u00fas s\u00e1 aumur \u00e1 \u00feeim, snart augu \u00feeirra og \u00feeir s\u00e1u jafnskj\u00f3tt og fylgdu honum eftir.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XX. Himnar\u00edki er l\u00edkt \u00feeim h\u00fasf\u00f6\u00f0ur sem \u00fatgekk snemma morguns verkmenn a\u00f0 leigja \u00ed v\u00edngar\u00f0 sinn. [ En a\u00f0 gj\u00f6r\u00f0um samningi vi\u00f0 verkmennina af daglegu peningsgjaldi sendi hann \u00fe\u00e1 \u00ed sinn v\u00edngar\u00f0. Og n\u00e6r \u00feri\u00f0ju stund gekk hann \u00fat og leit a\u00f0ra i\u00f0julausa standa \u00e1 torginu og sag\u00f0i til \u00feeirra: Fari \u00fe\u00e9r \u00ed minn v\u00edngar\u00f0 og hva\u00f0 r\u00e9tt er mun eg gefa y\u00f0ur. \u00deeir gengu og \u00feanga\u00f0. Og enn gekk hann \u00fat aftur um s\u00e9ttu og n\u00edundu stund og gj\u00f6r\u00f0i so l\u00edka. En um elleftu stund gekk hann \u00fat og fann enn a\u00f0ra standa i\u00f0julausa og sag\u00f0i til \u00feeirra: Hvar <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/matteusargudspjall-20-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3798","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3798","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3798"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3798\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3798"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}