{"id":3797,"date":"2017-12-18T18:34:42","date_gmt":"2017-12-18T18:34:42","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/matteusargudspjall-19-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:42","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:42","slug":"matteusargudspjall-19-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/matteusargudspjall-19-kafli\/","title":{"rendered":"Matteusargu\u00f0spjall 19. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XIX.<\/p>\n<p>Og \u00fea\u00f0 ske\u00f0i sem Jes\u00fas haf\u00f0i lykta\u00f0 \u00feessar r\u00e6\u00f0ur a\u00f0 hann f\u00f3r af Galilea og kom \u00ed endimerkur Gy\u00f0ingalands, \u00f6\u00f0rumegin J\u00f3rdanar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Marc. 1\">[<\/span> Og margt f\u00f3lk fylgdi honum eftir og \u00fear l\u00e6kna\u00f0i hann \u00fe\u00e1. <\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 gengu Pharisei til hans, freistu\u00f0u hans og s\u00f6g\u00f0u: <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ Um hj\u00faskaparbandi\u00f0\">[<\/span> &#8222;Leyfist nokku\u00f0 manninum a\u00f0 forl\u00e1ta s\u00edna eiginkonu fyrir hverja sem eina s\u00f6k?&#8220; En hann svara\u00f0i og sag\u00f0i til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"Gen. 1. 2\">[<\/span> &#8222;Hafi \u00fe\u00e9r eigi lesi\u00f0 a\u00f0 s\u00e1 er \u00ed upphafi skapa\u00f0i manninn hann gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera skyldi ma\u00f0ur og kona og sag\u00f0i: Fyrir \u00fev\u00ed mun ma\u00f0urinn forl\u00e1ta f\u00f6\u00f0ur og m\u00f3\u00f0ur og vi\u00f0tengjast eiginkonu sinni og \u00feau tv\u00f6 munu eitt hold vera. So eru \u00feau n\u00fa eigi tv\u00f6 heldur eitt hold. En hva\u00f0 Gu\u00f0 hefur samantengt \u00fea\u00f0 skal ma\u00f0urinn eigi \u00ed sundur skilja.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u \u00feeir: <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. 14\">[<\/span> &#8222;Fyrir \u00fev\u00ed bau\u00f0 Moyses \u00fe\u00e1 a\u00f0 gefa skyldi skilna\u00f0arskr\u00e1 og hana a\u00f0 forl\u00e1ta?&#8220; Hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Moyses hefur fyrir har\u00f0\u00fa\u00f0 y\u00f0vars hjarta leyft y\u00f0ur a\u00f0 forl\u00e1ta h\u00fasfreyjur y\u00f0rar en af upphafi var \u00fea\u00f0 eigi so. En eg segi y\u00f0ur \u00fea\u00f0: <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Um skilna\u00f0 hj\u00f3nanna\">[<\/span> Hver s\u00edna eiginkonu forl\u00e6tur (nema \u00fea\u00f0 s\u00e9 fyrir h\u00f3runars\u00f6k) og giftist annarri s\u00e1 dr\u00fdgir h\u00f3r. Og hver fr\u00e1skilinni giftist s\u00e1 dr\u00fdgir og h\u00f3r.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u l\u00e6risveinarnir til hans: &#8222;Ef so er h\u00e1tta\u00f0 mannsins m\u00e1lefnum vi\u00f0 eignarkonuna \u00fe\u00e1 er eigi gagn \u00ed a\u00f0 giftast.&#8220; En hann sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00deetta or\u00f0 f\u00e1 eigi allir h\u00f6ndla\u00f0 heldur \u00feeir hverjum \u00fea\u00f0 er gefi\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fear eru \u00feeir geldingar sem so ver\u00f0a af m\u00f3\u00f0urkvi\u00f0i f\u00e6ddir og \u00feeir geldingar er hverjir af m\u00f6nnunum eru geldir og \u00fear eru og l\u00edka \u00feeir geldingar sem sj\u00e1lfa sig hafa gelt fyrir himnar\u00edkis sakir. <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Um geldinga\">[<\/span> S\u00e1 gripi\u00f0 getur hann gr\u00edpi \u00fea\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 voru sm\u00e1b\u00f6rn til hans h\u00f6f\u00f0 so a\u00f0 hann leg\u00f0i hendur yfir \u00feau og b\u00e6\u00f0ist fyrir. En l\u00e6risveinarnir \u00e1v\u00edtu\u00f0u \u00fe\u00e1. Jes\u00fas sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;L\u00e1ti\u00f0 b\u00f6rnin kyrr og fyrirbj\u00f3\u00f0i\u00f0 \u00feeim eigi til m\u00edn a\u00f0 koma \u00fev\u00ed a\u00f0 sl\u00edkra er himnar\u00edki.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ \u00dea\u00f0 himnar\u00edki s\u00e9 sm\u00e1barnanna\">[<\/span> Og er hann haf\u00f0i hendur yfir \u00feau lagt gekk hann \u00fea\u00f0an. <\/p>\n<p>\tOg sj\u00e1, a\u00f0 einn gekk a\u00f0 honum og sag\u00f0i til hans: &#8222;G\u00f3\u00f0i meistari, hva\u00f0 skal eg \u00feess gott gj\u00f6ra a\u00f0 eg hafi eil\u00edft l\u00edf?&#8220; Hverjum hann svara\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Hvernin menn megi au\u00f0last eil\u00edft l\u00edf\">[<\/span> &#8222;Hva\u00f0 kallar \u00fe\u00fa mig g\u00f3\u00f0an? Enginn er g\u00f3\u00f0ur nema einn, sem er Gu\u00f0. En ef \u00fe\u00fa vilt til l\u00edfsins inn ganga svo var\u00f0veit \u00fe\u00fa bo\u00f0or\u00f0in.&#8220; Hann sag\u00f0i \u00fe\u00e1 til hans: &#8222;Hver helst?&#8220; En Jes\u00fas sag\u00f0i: &#8222;Ei skaltu mann vega, ei skaltu h\u00f3rast, ei skaltu stela, eigi skaltu lj\u00fagvitni m\u00e6la, hei\u00f0ra skaltu f\u00f6\u00f0ur \u00feinn og m\u00f3\u00f0ur og elska skalt \u00fe\u00fa n\u00e1unga \u00feinn so sem sj\u00e1lfan \u00feig.&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i ungi ma\u00f0urinn til hans: &#8222;\u00deetta allt hef eg var\u00f0veitt \u00ed fr\u00e1 barn\u00e6sku minni. Hva\u00f0 brestur mig \u00fe\u00e1?&#8220; Jes\u00fas sag\u00f0i til hans: <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ Ef nokkur vill vera algj\u00f6r\u00f0ur\">[<\/span> &#8222;Ef \u00fe\u00fa vilt algj\u00f6r\u00f0ur ver\u00f0a far burt og sel allt hva\u00f0 \u00fe\u00fa hefir og gef f\u00e1t\u00e6kum og munt \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 sto\u00f0 hafa \u00e1 himni. Kom \u00fe\u00e1 og fylg m\u00e9r so eftir.&#8220; Og er hinn ungi ma\u00f0ur heyr\u00f0i \u00fea\u00f0 or\u00f0 gekk hann hryggur \u00ed burt \u00fev\u00ed a\u00f0 hann haf\u00f0i miklar eignir.<\/p>\n<p>\tEn Jes\u00fas sag\u00f0i til sinna l\u00e6risveina: <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ Um \u00fe\u00e1 r\u00edku, \u00e1gj\u00f6rnu \/ Mar. 01 \/ Luc. 18\">[<\/span> &#8222;Sannlega segi eg y\u00f0ur a\u00f0 torvelt er r\u00edkum inn a\u00f0 anga \u00ed himnar\u00edki. Og enn segi eg y\u00f0ur \u00fea\u00f0 au\u00f0veldara er \u00falfaldanum a\u00f0 smj\u00faga \u00ed gegnum n\u00e1larauga en r\u00edkum inn a\u00f0 ganga \u00ed Gu\u00f0s r\u00edki.&#8220; Og er l\u00e6risveinarnir heyr\u00f0u \u00fea\u00f0 ur\u00f0u \u00feeir mj\u00f6g \u00f3ttaslegnir og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Hver f\u00e6r \u00fe\u00e1 hj\u00e1lpast?&#8220; En Jes\u00fas leit vi\u00f0 \u00feeim og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Hj\u00e1 m\u00f6nnunum er \u00fea\u00f0 \u00f3m\u00f6gulegt en hj\u00e1 Gu\u00f0i er allt m\u00f6gulegt.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 svara\u00f0i P\u00e9tur og sag\u00f0i til hans: &#8222;Sj\u00e1\u00f0u, a\u00f0 v\u00e9r forl\u00e9tum allt og fylgdum \u00fe\u00e9r eftir. Hva\u00f0 sker oss \u00fear fyrir?&#8220; En Jes\u00fas sag\u00f0i til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"8 \/ Huggun fyrir \u00fe\u00e1 f\u00e1t\u00e6ku\">[<\/span> &#8222;Sannlega segi eg y\u00f0ur a\u00f0 \u00fe\u00e9r hverjir m\u00e9r hafi\u00f0 eftirfylgt: \u00cd endurf\u00e6\u00f0ingunni, \u00fe\u00e1 er Mannsins son situr \u00e1 st\u00f3li sinnar tignar, munu \u00fe\u00e9r og sitja \u00e1 t\u00f3lf st\u00f3lum d\u00e6mandi t\u00f3lf kynkv\u00edslir \u00cdsraels. Og hver hann forl\u00e6tur h\u00fas e\u00f0ur br\u00e6\u00f0ur, systur, f\u00f6\u00f0ur e\u00f0a m\u00f3\u00f0ur e\u00f0ur eiginkonu e\u00f0a b\u00f6rn e\u00f0a akra fyrir m\u00edns nafns sakir s\u00e1 mun hundra\u00f0falt \u00ed sta\u00f0inn taka og erfa eil\u00edft l\u00edf. <span class=\"athugasemd\" title=\"Mar. 10 \/ Luc. 18\">[<\/span> En margir \u00feeir sem eru fyrstir ver\u00f0a s\u00ed\u00f0astir og \u00feeir sem s\u00ed\u00f0astir eru ver\u00f0a hinir fyrstu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XIX. Og \u00fea\u00f0 ske\u00f0i sem Jes\u00fas haf\u00f0i lykta\u00f0 \u00feessar r\u00e6\u00f0ur a\u00f0 hann f\u00f3r af Galilea og kom \u00ed endimerkur Gy\u00f0ingalands, \u00f6\u00f0rumegin J\u00f3rdanar. [ Og margt f\u00f3lk fylgdi honum eftir og \u00fear l\u00e6kna\u00f0i hann \u00fe\u00e1. \u00de\u00e1 gengu Pharisei til hans, freistu\u00f0u hans og s\u00f6g\u00f0u: [ &#8222;Leyfist nokku\u00f0 manninum a\u00f0 forl\u00e1ta s\u00edna eiginkonu fyrir hverja sem eina s\u00f6k?&#8220; En hann svara\u00f0i og sag\u00f0i til \u00feeirra: [ &#8222;Hafi \u00fe\u00e9r eigi lesi\u00f0 a\u00f0 s\u00e1 er \u00ed upphafi skapa\u00f0i manninn hann gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera skyldi ma\u00f0ur og kona og sag\u00f0i: Fyrir \u00fev\u00ed mun ma\u00f0urinn forl\u00e1ta f\u00f6\u00f0ur og m\u00f3\u00f0ur og vi\u00f0tengjast eiginkonu sinni og \u00feau <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/matteusargudspjall-19-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3797","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3797","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3797"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3797\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3797"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}