{"id":3789,"date":"2017-12-18T18:34:42","date_gmt":"2017-12-18T18:34:42","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/matteusargudspjall-11-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:42","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:42","slug":"matteusargudspjall-11-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/matteusargudspjall-11-kafli\/","title":{"rendered":"Matteusargu\u00f0spjall 11. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XI.<\/p>\n<p>Og \u00fea\u00f0 ske\u00f0i er Jes\u00fas haf\u00f0i lykta\u00f0 \u00feessar bo\u00f0anir til sinna t\u00f3lf l\u00e6risveina gekk hann \u00fea\u00f0an a\u00f0 kenna og pr\u00e9dika \u00ed \u00feeirra borgum.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 J\u00f3hannes heyr\u00f0i \u00ed myrkvastofunni verkin Christi sendi hann tvo af s\u00ednum l\u00e6risveinum og l\u00e9t segja honum: <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ J\u00f3hannes sendir til Christum\">[<\/span> &#8222;Ertu s\u00e1 sem koma mun e\u00f0a eigum v\u00e9r a\u00f0 annars a\u00f0 b\u00ed\u00f0a?&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Hver e\u00f0 Christus s\u00e9\">[<\/span> &#8222;Fari \u00fe\u00e9r og kunngj\u00f6ri\u00f0 Johanne aftur hva\u00f0 \u00fe\u00e9r sj\u00e1i\u00f0 og heyri\u00f0: Blindir sj\u00e1, haltir ganga, l\u00edk\u00fer\u00e1ir hreinsast, daufir heyra, dau\u00f0ir uppr\u00edsa og f\u00e1t\u00e6kum ver\u00f0ur evangelium bo\u00f0a\u00f0. Og s\u00e6ll er s\u00e1 sem eigi hneykslar sig \u00e1 m\u00e9r.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn a\u00f0 \u00feeim burtgengnum h\u00f3f Jes\u00fas a\u00f0 segja til f\u00f3lksins af Johanne: &#8222;Hva\u00f0 f\u00f3ru \u00fe\u00e9r \u00e1 ey\u00f0im\u00f6rku a\u00f0 sj\u00e1? Vildu \u00fe\u00e9r sj\u00e1 reyr af vindi skekinn? E\u00f0a hva\u00f0 f\u00f3ru \u00fe\u00e9r \u00fat a\u00f0 sj\u00e1? vildu \u00fe\u00e9r sj\u00e1 mann mj\u00fakkl\u00e6ddan? Sj\u00e1i\u00f0, \u00feeir e\u00f0 mj\u00fakan kl\u00e6\u00f0na\u00f0 hafa eru \u00ed k\u00f3nganna h\u00fasum. E\u00f0a hva\u00f0 f\u00f3ru \u00fe\u00e9r \u00fat a\u00f0 sj\u00e1? Vildu \u00fe\u00e9r sp\u00e1mann sj\u00e1? Eg segi y\u00f0ur fyrri sann: \u00deann meiri er en nokkur sp\u00e1mann. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feessi er af hverjum skrifa\u00f0 er: <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Hver J\u00f3hannes s\u00e9 \/ Luc. 16 \/ Mat. 17 \/ Marci 9 \/ Mal. 4\">[<\/span> Sj\u00e1, eg sendi minn engil fyrir \u00fe\u00ednu augliti s\u00e1 er \u00feinn veg skal tilrei\u00f0a fyrir \u00fe\u00e9r.<\/p>\n<p>\tSannlega segi eg y\u00f0ur: \u00c1 me\u00f0al \u00feeirra sem af konum eru f\u00e6ddir er eigi annar um kominn s\u00e1 meiri s\u00e9 en J\u00f3hannes baptista. En hann sem minnstur er \u00ed himnar\u00edki er honum meiri. En \u00ed fr\u00e1 d\u00f6gum Johannis baptista allt til \u00feess n\u00fa er komi\u00f0 \u00feolir himnar\u00edki ofurefli og \u00feeir sem ofurefli\u00f0 gj\u00f6ra hremma \u00fea\u00f0 til s\u00edn. \u00dev\u00ed a\u00f0 allir sp\u00e1menn og l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 sp\u00e1\u00f0u til Johannis. Og ef \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 \u00fea\u00f0 me\u00f0taka \u00fe\u00e1 er hann El\u00edas s\u00e1 er koma skal. Hver eyru hefur a\u00f0 heyra hann heyri.<\/p>\n<p>\tEn vi\u00f0 hva\u00f0 skal eg \u00feessari kynsl\u00f3\u00f0 jafna? <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Or\u00f0sins fyrirl\u00faning\">[<\/span> L\u00edk er h\u00fan \u00feeim b\u00f6rnum sem s\u00e1tu \u00e1 torgi, hver e\u00f0 k\u00f6llu\u00f0u til sinna l\u00edka og s\u00f6g\u00f0u: V\u00e6r h\u00f6fum y\u00f0ur \u00ed p\u00edpur bl\u00e1si\u00f0 og \u00fe\u00e9r vildu\u00f0 eigi dansa. V\u00e6r \u00feuldum y\u00f0ur vorar raunir og \u00fe\u00e9r gr\u00e9tu\u00f0 eigi. J\u00f3hannes er kominn, \u00e1t ei og drakk eigi og \u00feeir segja hann hafi dj\u00f6ful. Mannsins son er kominn, \u00e1t og drakk og \u00feeir segja: Sj\u00e1i\u00f0 of\u00e1tsmanninn og v\u00ednsvelgjarann, vininn tollheimtumanna og syndugra. Og spekin hl\u00fdtur so a\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6tast af s\u00ednum ni\u00f0jum.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 t\u00f3k hann a\u00f0 form\u00e6la borgunum \u00ed hverjum gj\u00f6r\u00f0 voru flest hans kraftaverk og h\u00f6f\u00f0u \u00fe\u00f3 eigi betra\u00f0 sig: <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Hefnd \u00feeirra sem Gu\u00f0s or\u00f0i\u00f0 fyrirl\u00edta\">[<\/span> &#8222;Ve \u00fe\u00e9r Koras\u00edn! Ve \u00fe\u00e9r Betsa\u00edda! \u00dev\u00ed a\u00f0 ef \u00ed Tyro og S\u00eddon hef\u00f0i gj\u00f6rst \u00feau kraftaverk sem \u00ed y\u00f0ur hafa gj\u00f6rst hef\u00f0i \u00feeir for\u00f0um \u00ed sekk og \u00f6sku i\u00f0ran gj\u00f6rt. En \u00fe\u00f3 segi eg y\u00f0ur a\u00f0 Tyro og S\u00eddon mun b\u00e6rilegra vera \u00e1 d\u00f3msdegi heldur en y\u00f0ur. Og \u00fe\u00fa Kapernaum, sem allt til himins ert upphafin, munt ni\u00f0ur\u00ferykkjast allt til helv\u00edtis. \u00dev\u00ed a\u00f0 ef \u00ed Sodoma hef\u00f0i \u00feau kraftaverk gj\u00f6rst sem \u00ed \u00fe\u00e9r hafa gj\u00f6r\u00f0 veri\u00f0 kann vera a\u00f0 \u00fe\u00e6r hef\u00f0i sta\u00f0i\u00f0 allt til \u00feessa dags. En \u00fe\u00f3 segi eg y\u00f0ur \u00fea\u00f0 a\u00f0 b\u00e6rilegra mun vera landi Sodoma \u00e1 d\u00f3madegi en \u00fe\u00e9r.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00feeim sama t\u00edma andsvara\u00f0i Jes\u00fas og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ \u00deakkargj\u00f6r\u00f0 Christi fyrir opinberan evangelii\">[<\/span> &#8222;Eg pr\u00edsa \u00feig, fa\u00f0ir, herra himins og jar\u00f0ar, a\u00f0 \u00fe\u00fa duldir \u00feetta fyrir spekingum og forvitringum og opinbera\u00f0ir \u00fea\u00f0 sm\u00e6lingjum. A\u00f0 s\u00f6nnu, fa\u00f0ir, \u00fev\u00ed a\u00f0 so var \u00fea\u00f0 \u00feekkt fyrir \u00fe\u00e9r. Allir hlutir eru m\u00e9r ofurgefnir af m\u00ednum f\u00f6\u00f0ur og enginn kennir soninn nema fa\u00f0irinn og enginn kennir f\u00f6\u00f0urinn nema sonurinn og hverjum e\u00f0 sonurinn vill \u00fea\u00f0 opinbera.<\/p>\n<p>\tKomi\u00f0 til m\u00edn, allir \u00fe\u00e9r sem erfi\u00f0i\u00f0 og \u00feunga eru\u00f0 hla\u00f0nir, eg mun endurn\u00e6ra y\u00f0ur. <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ Eitt huggunarsamt fyrirheit\">[<\/span> Taki\u00f0 \u00e1 y\u00f0ur mitt ok og l\u00e6ri\u00f0 af m\u00e9r \u00fev\u00ed a\u00f0 eg em h\u00f3gv\u00e6r og af hjarta l\u00edtill\u00e1tur og munu \u00fe\u00e9r hv\u00edld finna s\u00e1lum y\u00f0rum. \u00dev\u00ed a\u00f0 mitt ok er s\u00e6tt og minn \u00feungi er l\u00e9ttur.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XI. Og \u00fea\u00f0 ske\u00f0i er Jes\u00fas haf\u00f0i lykta\u00f0 \u00feessar bo\u00f0anir til sinna t\u00f3lf l\u00e6risveina gekk hann \u00fea\u00f0an a\u00f0 kenna og pr\u00e9dika \u00ed \u00feeirra borgum. Og \u00fe\u00e1 J\u00f3hannes heyr\u00f0i \u00ed myrkvastofunni verkin Christi sendi hann tvo af s\u00ednum l\u00e6risveinum og l\u00e9t segja honum: [ &#8222;Ertu s\u00e1 sem koma mun e\u00f0a eigum v\u00e9r a\u00f0 annars a\u00f0 b\u00ed\u00f0a?&#8220; Jes\u00fas svara\u00f0i og sag\u00f0i til \u00feeirra: [ &#8222;Fari \u00fe\u00e9r og kunngj\u00f6ri\u00f0 Johanne aftur hva\u00f0 \u00fe\u00e9r sj\u00e1i\u00f0 og heyri\u00f0: Blindir sj\u00e1, haltir ganga, l\u00edk\u00fer\u00e1ir hreinsast, daufir heyra, dau\u00f0ir uppr\u00edsa og f\u00e1t\u00e6kum ver\u00f0ur evangelium bo\u00f0a\u00f0. Og s\u00e6ll er s\u00e1 sem eigi hneykslar sig \u00e1 m\u00e9r.&#8220; En a\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/matteusargudspjall-11-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3789","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3789","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3789"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3789\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3789"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}