{"id":3768,"date":"2017-12-18T18:34:39","date_gmt":"2017-12-18T18:34:39","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-makkabeabok-6-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:39","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:39","slug":"onnur-makkabeabok-6-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-makkabeabok-6-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur Makkabeab\u00f3k 6. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VI.<\/p>\n<p>Skammt eftir \u00feetta \u00fe\u00e1 sendi k\u00f3ngurinn einn gamlan mann fr\u00e1 Antiochia a\u00f0 hann skyldi nau\u00f0ga Gy\u00f0ingum a\u00f0 falla fr\u00e1 l\u00f6gm\u00e1li sinna fe\u00f0ra og halda ei lengur Gu\u00f0s l\u00f6gm\u00e1l og a\u00f0 hann skyldi saurga musteri\u00f0 \u00ed Jer\u00fasalem og skyldi kalla \u00fea\u00f0 J\u00fap\u00edters kirkju Olympii og musteri\u00f0 \u00ed Garis\u00edm skyldi nefnast J\u00fap\u00edters kirkja Xenii af \u00fev\u00ed \u00fear byggi framandi f\u00f3lk. <span class=\"athugasemd\" title=\"Musteri\u00f0 saurgast\">[<\/span> Sl\u00edkt villt ath\u00e6fi f\u00e9kk hverjum manni hugarangurs \u00fev\u00ed a\u00f0 hei\u00f0ingjar \u00e1tu og drukku sig galda \u00ed musterinu og dr\u00fdg\u00f0u me\u00f0 kvinnum alls kyns skammir \u00ed \u00feeim heilaga sta\u00f0 og b\u00e1ru inn \u00feanga\u00f0 margt \u00fea\u00f0 sem ekki var h\u00e6filegt. <\/p>\n<p>\tMenn offru\u00f0u yfir altarinu forbo\u00f0num f\u00f3rnum \u00ed l\u00f6gm\u00e1linu og h\u00e9ldu hverki \u00fevottdaginn n\u00e9 a\u00f0rar vanalegar h\u00e1t\u00ed\u00f0ir. Og enginn \u00feor\u00f0i a\u00f0 l\u00e1ta \u00e1 s\u00e9r merkja a\u00f0 hann v\u00e6ri Gy\u00f0ingur. Og \u00feeir nau\u00f0gu\u00f0u \u00feeim til me\u00f0 valdi a\u00f0 offra \u00ed hverjum manni \u00feegar k\u00f3ngsins f\u00e6\u00f0ingardagur var. Og \u00feegar menn h\u00e9ldu Bachi h\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00fe\u00e1 neyddu \u00feeir Gy\u00f0ingana til a\u00f0 ganga fram me\u00f0 kransa af lauerbertr\u00e9 Bacho til vegsemdar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Bachus h\u00e1t\u00ed\u00f0\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tMenn h\u00f6f\u00f0u og komi\u00f0 Ptolomeo til a\u00f0 l\u00e1ta \u00fatganga eitt bo\u00f0 um hei\u00f0ingjanna sta\u00f0i sem voru kringum Jer\u00fasalem a\u00f0 \u00feeir skyldu hvervetna nau\u00f0ga Gy\u00f0ingunum til a\u00f0 offra. Og ef a\u00f0 nokkrir v\u00e6ri st\u00f6\u00f0ugir \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir vildu ekki halda \u00fea\u00f0 me\u00f0 hei\u00f0ingjunum \u00fe\u00e1 skyldu menn jafnsnart leggja \u00fe\u00e1 til dau\u00f0s. \u00de\u00e1 m\u00e1tti sj\u00e1 eina mikla h\u00f6rmung.<\/p>\n<p>\t\u00dear ur\u00f0u framleiddar tv\u00e6r kvinnur af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e6r h\u00f6f\u00f0u umskori\u00f0 sonu s\u00edna. <span class=\"athugasemd\" title=\"Kvinnur tv\u00e6r\">[<\/span> Vi\u00f0 \u00feeirra brj\u00f3st bundu \u00feeir b\u00f6rnin og leiddu \u00fe\u00e6r um kring \u00ed gegnum allan sta\u00f0inn og a\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu k\u00f6stu\u00f0u \u00feeir \u00feeim ofan fyrir m\u00farinn. Nokkrir h\u00f6f\u00f0u fali\u00f0 sig \u00fear \u00ed n\u00e1nd \u00ed holum svo a\u00f0 \u00feeir m\u00e6tti halda \u00fevottdaginn. \u00deegar \u00fea\u00f0 var sagt Philippo \u00fe\u00e1 l\u00e9t hann brenna \u00fe\u00e1 \u00fev\u00ed \u00feeir vildu ei verjast so a\u00f0 \u00feeir brytu ekki \u00fevottdaginn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Philippus\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEn h\u00e9r ver\u00f0 eg a\u00f0 \u00e1minna lesarann a\u00f0 hann hneyksli sig ekki \u00e1 \u00feessari h\u00f6rmungu heldur hugsi a\u00f0 \u00feetta straff er yfir \u00fe\u00e1 komi\u00f0 ekki \u00feeim til fordj\u00f6rfunar heldur til vi\u00f0v\u00f6runar. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ein st\u00f3r l\u00edkn a\u00f0 Gu\u00f0 hindrar syndarana so a\u00f0 \u00feeir f\u00e1i ekki framgang og straffar \u00fe\u00e1 jafnsnart. \u00dev\u00ed a\u00f0 vor Gu\u00f0 hefur ekki sl\u00edkt langlundarge\u00f0 vi\u00f0 oss svo sem vi\u00f0 a\u00f0ra hei\u00f0ingja hverja hann l\u00e6tur framganga \u00feanga\u00f0 til \u00feeir hafa uppfyllt m\u00e6lir sinna synda so a\u00f0 hann straffi \u00fe\u00e1 \u00fear eftir heldur varnar hann oss vi\u00f0 so a\u00f0 v\u00e9r skulum ei hafa ofmiki\u00f0 vi\u00f0 og a\u00f0 hann a\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu ekki hefni s\u00edn \u00e1 oss. \u00dear fyrir hefur hann n\u00fa aldrei \u00ed burt teki\u00f0 me\u00f0 aullu fr\u00e1 oss s\u00edna miskunnsemi. Og \u00fe\u00f3 hann hafi tytta\u00f0 oss me\u00f0 einni \u00f3g\u00e6fu \u00fe\u00e1 hefur hann \u00fe\u00f3 ei heldur me\u00f0 \u00f6llu yfirgefi\u00f0 sitt f\u00f3lk. \u00deetta hef eg sagt til einnrar \u00e1minningar. N\u00fa viljum v\u00e9r koma aftur til historiunnar.<\/p>\n<p>\t\u00dear var einn mann, einn ypparsti af \u00feeim skriftl\u00e6r\u00f0u. <span class=\"athugasemd\" title=\"Eleasar\">[<\/span> S\u00e1 h\u00e9t Eleasar, einn aldra\u00f0ur ma\u00f0ur og \u00fe\u00f3 mj\u00f6g fr\u00ed\u00f0ur. \u00c1 honum sperrtu \u00feeir munninn upp me\u00f0 valdi a\u00f0 hann skyldi eta sv\u00ednakj\u00f6t. En hann vildi heldur deyja \u00e6rlega heldur en a\u00f0 lifa skammlega og hann lei\u00f0 \u00fea\u00f0 me\u00f0 \u00feolinm\u00e6\u00f0i. Og \u00fe\u00e1 hann gekk til p\u00ednunnar \u00fe\u00e1 \u00e1v\u00edta\u00f0i hann \u00fe\u00e1 sem \u00e1tu forbo\u00f0i\u00f0 kj\u00f6t af elsku \u00feessa stundlega l\u00edfs. \u00deeir sem n\u00fa voru settir til a\u00f0 \u00fevinga f\u00f3lki\u00f0 til a\u00f0 eta sv\u00ednakj\u00f6ti\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti l\u00f6gm\u00e1linu af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u \u00feekkt hann lengi \u00fe\u00e1 t\u00f3ku \u00feeir hann afs\u00ed\u00f0is \u00fat af og s\u00f6g\u00f0ust vilja bera honum \u00fea\u00f0 kj\u00f6t sem honum v\u00e6ri vel etandi en hann skldi l\u00e1ta l\u00edka sem \u00fea\u00f0 v\u00e6ri offra\u00f0 sv\u00ednakj\u00f6t og skyldi eta \u00fea\u00f0 k\u00f3nginum til vilja a\u00f0 hann m\u00e6tti so l\u00edfi halda og nj\u00f3ta gamla vinskapar.<\/p>\n<p>\tEn hann hugsa\u00f0i svo sem s\u00f3mdi hans elli og gr\u00e1h\u00e6r\u00f0u h\u00f6f\u00f0i og eftir hans g\u00f3\u00f0u framfer\u00f0i sem hann haf\u00f0i haft fr\u00e1 ungd\u00f3mi og eftir \u00fev\u00ed heilaga Gu\u00f0s l\u00f6gm\u00e1li og sag\u00f0i berlega fram: &#8222;Sendi\u00f0 mig strax undir j\u00f6r\u00f0ina og \u00ed gr\u00f6fina. \u00dev\u00ed a\u00f0 illa h\u00e6fir \u00fea\u00f0 minni elli a\u00f0 eg skuli soddan hr\u00e6sni hafa so a\u00f0 \u00feeir inu ungu hugsi svo: Eleasar hinn n\u00edr\u00e6\u00f0i er og or\u00f0inn einn hei\u00f0ingi, og mundu \u00fe\u00e1 ver\u00f0a afvegaleiddir fyri minn hr\u00e6snaraskap og a\u00f0 eg heg\u00f0a\u00f0i m\u00e9r so fyrir f\u00f3lkinu og frelsti so mitt l\u00edf um litla stund sem eg hef enn n\u00fa eftir \u00f3lifa\u00f0. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri m\u00e9r ein eil\u00edf sk\u00f6mm. Og a\u00f0 v\u00edsu, hva\u00f0 kann e\u00f0 a\u00f0 hafa \u00fear af \u00fe\u00f3 a\u00f0 eg n\u00fa alla rei\u00f0u komist undan mannanna straffi me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 eg ekki kann a\u00f0 komast undan Gu\u00f0s h\u00f6ndum hvert heldur eg er l\u00edfs e\u00f0ur dau\u00f0ur? \u00dear fyrir vil eg n\u00fa gla\u00f0lega deyja so sem \u00fea\u00f0 h\u00e6fir m\u00e9r, g\u00f6mlum manni, a\u00f0 l\u00e1ta g\u00f3\u00f0 d\u00e6mi eftir mig hj\u00e1 \u00feeim ungu svo a\u00f0 \u00feeir deyi viljugir og hreystilega vegna \u00feess d\u00fdr\u00f0lega og heilaga l\u00f6gm\u00e1ls.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 hann haf\u00f0i tala\u00f0 \u00feessi or\u00f0 \u00fe\u00e1 leiddu \u00feeir hann til p\u00ednunnar. En \u00feeir sem leiddu hann og \u00e1\u00f0ur h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 hans vinir \u00feeir reiddust honum fyrir sl\u00edk or\u00f0 \u00fev\u00ed \u00feeir meintu a\u00f0 hann hef\u00f0i af metna\u00f0i tala\u00f0 \u00feetta. Og \u00fe\u00e1 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u slegi\u00f0 hann so a\u00f0 hann var n\u00fa a\u00f0 dau\u00f0a kominn \u00fe\u00e1 andvarpa\u00f0i hann og sag\u00f0i: &#8222;Drottinn, fyrir hverjum ekkert er huli\u00f0, hann veit a\u00f0 eg m\u00e1tti vera \u00e1n \u00feessara slaga og st\u00f3rrar p\u00ednu sem eg hef \u00e1 m\u00ednum l\u00edkama, hef\u00f0i eg vilja\u00f0. En s\u00e1larinnar vegna l\u00ed\u00f0 eg \u00fea\u00f0 gjarna fyrir Gu\u00f0s skuld.&#8220; Og hann gaf so upp andann og l\u00e9t me\u00f0 s\u00ednum dau\u00f0a eftir sig eitt huggunarsamlegt eftird\u00e6mi hvert ekki alleinasta ungd\u00f3minn \u00e1minna skal til mannkosta heldur og einnin s\u00e9rhvern mann,.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VI. Skammt eftir \u00feetta \u00fe\u00e1 sendi k\u00f3ngurinn einn gamlan mann fr\u00e1 Antiochia a\u00f0 hann skyldi nau\u00f0ga Gy\u00f0ingum a\u00f0 falla fr\u00e1 l\u00f6gm\u00e1li sinna fe\u00f0ra og halda ei lengur Gu\u00f0s l\u00f6gm\u00e1l og a\u00f0 hann skyldi saurga musteri\u00f0 \u00ed Jer\u00fasalem og skyldi kalla \u00fea\u00f0 J\u00fap\u00edters kirkju Olympii og musteri\u00f0 \u00ed Garis\u00edm skyldi nefnast J\u00fap\u00edters kirkja Xenii af \u00fev\u00ed \u00fear byggi framandi f\u00f3lk. [ Sl\u00edkt villt ath\u00e6fi f\u00e9kk hverjum manni hugarangurs \u00fev\u00ed a\u00f0 hei\u00f0ingjar \u00e1tu og drukku sig galda \u00ed musterinu og dr\u00fdg\u00f0u me\u00f0 kvinnum alls kyns skammir \u00ed \u00feeim heilaga sta\u00f0 og b\u00e1ru inn \u00feanga\u00f0 margt \u00fea\u00f0 sem ekki var h\u00e6filegt. Menn offru\u00f0u <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-makkabeabok-6-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3768","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3768","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3768"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3768\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3768"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}