{"id":3767,"date":"2017-12-18T18:34:39","date_gmt":"2017-12-18T18:34:39","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-makkabeabok-5-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:39","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:39","slug":"onnur-makkabeabok-5-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-makkabeabok-5-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur Makkabeab\u00f3k 5. kafli"},"content":{"rendered":"<p>V.<\/p>\n<p>Um \u00feennan t\u00edma reisti Antiochus \u00ed anna\u00f0 sinn til Egyptalands. Og menn s\u00e1u um alla borgina fj\u00f6rut\u00edgu daga \u00ed samt \u00ed loftinu riddara \u00ed forgylltum brynjum me\u00f0 l\u00f6ngum spj\u00f3tum, \u00ed fylkingum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Dan xi. \/ Hr\u00e6\u00f0ilegar sj\u00f3nir \u00ed loftinu\">[<\/span> Og menn s\u00e1u hversu a\u00f0 \u00feeir renndu til samans og hl\u00edf\u00f0u s\u00e9r me\u00f0 skj\u00f6ldunum og spj\u00f3tunum og hversu a\u00f0 \u00feeir rykktu sver\u00f0unum og skutu hvorir a\u00f0 \u00f6\u00f0rum og hversu a\u00f0 skein \u00e1 \u00feau forgylltu vopn og hversu a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u mislitar brynjur. \u00de\u00e1 ba\u00f0 hver ma\u00f0ur a\u00f0 \u00fea\u00f0 skyldi ekki merkja neitt illt.  <\/p>\n<p>\tEn \u00fear komu upp \u00f3s\u00f6nn t\u00ed\u00f0indi, hversu a\u00f0 Antiochus skykldi vera dau\u00f0ur. \u00de\u00e1 t\u00f3k Jason til s\u00edn \u00fe\u00fasund manns og f\u00e9ll \u00f3forvarandis yfir sta\u00f0inn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jason\">[<\/span> Og \u00fe\u00e1 hann st\u00e9 upp \u00e1 m\u00farinn me\u00f0 s\u00edna menn og haf\u00f0i unni\u00f0 sta\u00f0inn \u00fe\u00e1 fl\u00fd\u00f0i Menelaus \u00ed kastalann. <span class=\"athugasemd\" title=\"Menelaus\">[<\/span> En Jason myrti s\u00edna borgarmenn s\u00e1rgr\u00e6tilega og hugsa\u00f0i ei a\u00f0 \u00feetta var hans eigin \u00f3lukka a\u00f0 hann haf\u00f0i soddan lukku \u00ed m\u00f3ti s\u00ednum vinum heldur l\u00e9t hann s\u00e9r \u00feykja a\u00f0 hann ynni sigur \u00e1 s\u00ednum fjandm\u00f6nnum \u00fear hann vann sigur \u00e1 s\u00ednum borgarm\u00f6nnum. Og \u00fe\u00f3 gat hann ei n\u00e1\u00f0 valdstj\u00f3rninni heldur f\u00e9kk hann s\u00edn for\u00fe\u00e9nu\u00f0 laun og fl\u00fd\u00f0i me\u00f0 sneypu aftur til Amor\u00edtalands. A\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu var\u00f0 hann klaga\u00f0ur fyrir Areta Arabiak\u00f3ngi so a\u00f0 hann var\u00f0 a\u00f0 fl\u00fdja fr\u00e1 einum sta\u00f0 til annars og var hvergi \u00f3hr\u00e6ddur. <span class=\"athugasemd\" title=\"Aretas\">[<\/span> Og hver ma\u00f0ur var honum gramur svo sem \u00feeim e\u00f0 fallinn var fr\u00e1 s\u00ednu l\u00f6gm\u00e1li og hver ma\u00f0ur form\u00e6lti honum svo sem \u00f6\u00f0rum forr\u00e6\u00f0ara og fjandmanni s\u00edns eigin f\u00f6\u00f0urlands og so var\u00f0 hann \u00fatfl\u00e6mdur til Egyptalands. Og so sem hann haf\u00f0i marga reki\u00f0 af s\u00ednu f\u00f6\u00f0urlandi so var\u00f0 hann og sj\u00e1lfur a\u00f0 deyja \u00ed \u00fatleg\u00f0 \u00ed Lacedemonia \u00fear hann vona\u00f0i a\u00f0 hann mundi finna uppheldi so d\u00f3 hann a\u00f0 enginn bar harm eftir hann. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jasonis afgangur\">[<\/span> Og hann haf\u00f0i ekki a\u00f0eins \u00fe\u00e1 \u00f3g\u00e6fu a\u00f0 hann var ei grafinn \u00ed s\u00ednu f\u00f3sturlandi heldur f\u00e9kk hann og einnin \u00f6ngva gr\u00f6f \u00ed framanda landi.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 \u00feetta kom fyrir k\u00f3nginn \u00fe\u00e1 hugsa\u00f0i hann a\u00f0 allt Gy\u00f0ingaland mundi falli\u00f0 vera fr\u00e1 honum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jer\u00fasalem yfirfallin af \u00feeim grimma Antiocho \/ Dan. xi.\">[<\/span> Og hann reisti me\u00f0 grimmum huga burt \u00far Egyptalandi og innt\u00f3k Jer\u00fasalem me\u00f0 valdi og bau\u00f0 str\u00ed\u00f0sm\u00f6nnunum \u00ed hel a\u00f0 sl\u00e1 \u00e1n allrar v\u00e6g\u00f0ar allt hva\u00f0 \u00feeir fyndu \u00e1 str\u00e6tunum og \u00ed h\u00fasunum. \u00de\u00e1 voru \u00ed hel slegnir ungir og gamlir, menn og kvinnur, b\u00f6rn og jungfr\u00far, j\u00e1 og so b\u00f6rnin \u00ed v\u00f6ggunum, so a\u00f0 \u00e1 \u00feremur d\u00f6gum l\u00e9tust \u00fear \u00e1ttat\u00edgu \u00fe\u00fasund manna, fj\u00f6rut\u00edgu \u00fe\u00fasund voru herteknir og n\u00e6r \u00e1ttat\u00edgu \u00fe\u00fasund seldir.<\/p>\n<p>\tEn Antiochus l\u00e9t s\u00e9r ekki \u00feetta n\u00e6gja heldur yfirf\u00e9ll hann og svo \u00feann helgasta sta\u00f0 \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni og svikarinn Menelaus leiddi hann inn \u00feanga\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Musteri\u00f0 r\u00e6nt og rupla\u00f0 \/ Menelaus\">[<\/span> \u00de\u00e1 r\u00e6nti hann me\u00f0 s\u00ednum b\u00f6lv\u00f6\u00f0um h\u00f6ndum \u00feeim heil\u00f6gu kerum og \u00f6llu \u00fev\u00ed sem a\u00f0rir konungar h\u00f6f\u00f0u gefi\u00f0 musterinu til fegur\u00f0ar og pr\u00fd\u00f0i \u00fea\u00f0 reif hann \u00ed burt me\u00f0 s\u00ednum syndugum h\u00f6ndum og upph\u00f3f sig mj\u00f6g og s\u00e1 ei a\u00f0 Drottinn leyf\u00f0i a\u00f0 sl\u00edkt k\u00e6mi yfir \u00fe\u00e1 sem \u00ed sta\u00f0num voru vegna \u00feeirra synda.<\/p>\n<p>\t\u00deetta var s\u00f6kin a\u00f0 Gu\u00f0 l\u00e9t so skammlega fara me\u00f0 \u00feann heilaga sta\u00f0, elligar skyldi \u00fea\u00f0 svo hafa gengi\u00f0 Antiocho so sem \u00fea\u00f0 gekk Heliodoro hver e\u00f0 \u00fatsendur var af Seleuco k\u00f3ngi a\u00f0 rannsaka fj\u00e1rsj\u00f3\u00f0aherbergi\u00f0 og var\u00f0 har\u00f0lega sleginn \u00fear fyrir so a\u00f0 hann neyddist til a\u00f0 l\u00e1ta af sinni djarflegri upptekt. <span class=\"athugasemd\" title=\"Supra iii.\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 hefur ei \u00fatvali\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 sta\u00f0arins vegna heldur sta\u00f0inn f\u00f3lksins vegna. \u00dear fyrir hlaut og \u00fea\u00f0 heilaga musteri\u00f0 a\u00f0 l\u00ed\u00f0a einnin \u00fe\u00e1 f\u00f3lki\u00f0 var straffa\u00f0 l\u00edka so sem \u00fea\u00f0 \u00fear \u00ed m\u00f3ti haf\u00f0i gagn af f\u00f3lkinu. \u00dev\u00ed a\u00f0 l\u00edka so sem musteri\u00f0 var\u00f0 unni\u00f0 af \u00f3vinunum \u00fe\u00e1 Drottinn var rei\u00f0ur l\u00edka so f\u00e9kk \u00fea\u00f0 aftur hei\u00f0ur og r\u00e9tt \u00fe\u00e1 Drottinn var\u00f0 \u00feeim aftur l\u00edknsamur.<\/p>\n<p>\tEn summan \u00e1 \u00f6llu \u00fev\u00ed sem Antiochus r\u00e6nti \u00far musterinu var \u00e1tj\u00e1n hundru\u00f0 centener silfurs sem hann t\u00f3k me\u00f0 s\u00e9r og reisti strax til Antiochiam me\u00f0 svoddan drambsemi og metna\u00f0i a\u00f0 hann hugsa\u00f0i s\u00e9r n\u00fa a\u00f0 gj\u00f6ra j\u00f6r\u00f0ina so a\u00f0 menn m\u00e6ttu sigla um hana so sem um sj\u00f3inn og hafi\u00f0 a\u00f0 menn skyldu ganga \u00fear \u00e1 so sem \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni. Og hann l\u00e9t eftir nokkra b\u00edfalningsmenn \u00ed Jer\u00fasalem, vonda sk\u00e1lka, sem var Philippus \u00far Phrygialandi; s\u00e1 inn var verri og argari en hans herra, Andronichum \u00ed Garis\u00edm, og Menelaus me\u00f0 \u00feeim tveimur, hver e\u00f0 var yfir \u00f6llum \u00f6\u00f0rum so a\u00f0 hann pl\u00e1ga\u00f0i sitt eigi\u00f0 f\u00f3lk. <span class=\"athugasemd\" title=\"Philippus \/ Andronichus \/ Menelaus\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tOg af \u00fev\u00ed a\u00f0 Antiochus var so har\u00f0lega gramur upp \u00e1 Gy\u00f0ingana sendi hann til \u00feeirra einn skammlegan sk\u00e1lk Apollonium \u00ed landi\u00f0 me\u00f0 tv\u00f6 og tuttugu \u00fe\u00fasund manna og bau\u00f0 honum a\u00f0 hann skyldi \u00ed hel sl\u00e1 alla fullvaxna kallmenn en a\u00f0 selja kvinnurnar og \u00fea\u00f0 yngra f\u00f3lki\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Apollonius\">[<\/span> \u00de\u00e1 hann kom n\u00fa fyrir Jer\u00fasalem skikka\u00f0i hann s\u00e9r fri\u00f0samlega allt til \u00fevottdagsins, \u00e1 hverjum Gy\u00f0ingar halda heilagt. \u00de\u00e1 bau\u00f0 hann strax s\u00ednu f\u00f3lki a\u00f0 vopnast. Og sem hver ma\u00f0ur hlj\u00f3p n\u00fa \u00feanga\u00f0 a\u00f0 og vildi sj\u00e1 hva\u00f0 \u00fear skyldi ske \u00fe\u00e1 l\u00e9t hann \u00ed hel sl\u00e1 \u00fe\u00e1 alla og kom so \u00ed sta\u00f0inn me\u00f0 allan sinn her og \u00ed hel sl\u00f3 mikinn fj\u00f6lda f\u00f3lks. <span class=\"athugasemd\" title=\"st\u00f3r h\u00f6rmung \u00ed Jer\u00fasalem\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEn Judas Macchabeus t\u00f3k sig \u00fear fr\u00e1 me\u00f0 s\u00ednum br\u00e6\u00f0rum burt \u00ed ey\u00f0im\u00f6rk og \u00e1 fj\u00f6ll og h\u00e9lt sig \u00fear me\u00f0 \u00f6llum \u00feeim sem sig h\u00f6f\u00f0u gefi\u00f0 til hans og lif\u00f0i vi\u00f0 jurtir so a\u00f0 hann skyldi ekki lifa \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra \u00f3hreinu Gy\u00f0inga. <span class=\"athugasemd\" title=\"Judas Macchabeus\">[<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>V. Um \u00feennan t\u00edma reisti Antiochus \u00ed anna\u00f0 sinn til Egyptalands. Og menn s\u00e1u um alla borgina fj\u00f6rut\u00edgu daga \u00ed samt \u00ed loftinu riddara \u00ed forgylltum brynjum me\u00f0 l\u00f6ngum spj\u00f3tum, \u00ed fylkingum. [ Og menn s\u00e1u hversu a\u00f0 \u00feeir renndu til samans og hl\u00edf\u00f0u s\u00e9r me\u00f0 skj\u00f6ldunum og spj\u00f3tunum og hversu a\u00f0 \u00feeir rykktu sver\u00f0unum og skutu hvorir a\u00f0 \u00f6\u00f0rum og hversu a\u00f0 skein \u00e1 \u00feau forgylltu vopn og hversu a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u mislitar brynjur. \u00de\u00e1 ba\u00f0 hver ma\u00f0ur a\u00f0 \u00fea\u00f0 skyldi ekki merkja neitt illt. En \u00fear komu upp \u00f3s\u00f6nn t\u00ed\u00f0indi, hversu a\u00f0 Antiochus skykldi vera dau\u00f0ur. \u00de\u00e1 t\u00f3k <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-makkabeabok-5-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3767","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3767","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3767"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3767\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3767"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}