{"id":3765,"date":"2017-12-18T18:34:39","date_gmt":"2017-12-18T18:34:39","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-makkabeabok-3-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:39","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:39","slug":"onnur-makkabeabok-3-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-makkabeabok-3-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur Makkabeab\u00f3k 3. kafli"},"content":{"rendered":"<p>III.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 menn bjuggu n\u00fa \u00ed g\u00f3\u00f0um fri\u00f0i a\u00f0 n\u00fdju \u00ed Jer\u00fasalem og l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 haf\u00f0i g\u00f3\u00f0an framgang me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00f6fu\u00f0presturinn Onias var so fr\u00f3mur og g\u00e6tti \u00fear a\u00f0 so kostg\u00e6filega \u00fe\u00e1 ur\u00f0u og konungarnir hr\u00e6r\u00f0ir a\u00f0 veita sta\u00f0num hei\u00f0ur og sendu veglegar prestentur musterinu so a\u00f0 Seleucus k\u00f3ngur \u00ed Asia l\u00e9t skikka af sinni inntekt allan kostna\u00f0 sem \u00feurfti til f\u00f3rnf\u00e6ringanna. <span class=\"athugasemd\" title=\"Onias h\u00e6\u00f0sti kennima\u00f0ur\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tN\u00fa var \u00ed \u00fea\u00f0 sinn einn f\u00f3viti yfir musterinu s\u00e1 S\u00edmon h\u00e9t af Benjam\u00edns \u00e6tt. <span class=\"athugasemd\" title=\"S\u00edmon\">[<\/span> Hann haf\u00f0i \u00f3vinskap \u00e1 \u00feeim \u00e6\u00f0sta kennimanni af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann vildi ekki leyfa honum hans \u00f3hlutvendi \u00ed sta\u00f0num. En af \u00fev\u00ed a\u00f0 Onias var honum megtugri \u00fe\u00e1 f\u00f3r hann til Apollonium Traseisonar h\u00f6fu\u00f0smanns \u00ed Ne\u00f0ra-S\u00fdrlandi og Phenice og sag\u00f0i honum fr\u00e1 hversu a\u00f0 Gu\u00f0s kistan \u00ed Jer\u00fasalem v\u00e6ri \u00far h\u00f3fi full fj\u00e1r og a\u00f0 \u00fear v\u00e6ri langtu meira en \u00fe\u00f6rf gj\u00f6r\u00f0i til f\u00f3rnf\u00e6ringanna og k\u00f3ngurinn m\u00e6tti vel taka \u00fea\u00f0 til s\u00edn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Apollonius\">[<\/span> Og Apollonius kom n\u00fa til k\u00f3ngsins. \u00de\u00e1 sk\u00fdr\u00f0i hann honum fr\u00e1 or\u00f0um S\u00edmonar um f\u00e9\u00f0. \u00de\u00e1 sendi k\u00f3ngurinn sinn dr\u00f3ttseta Heliodorum og gaf honum \u00fe\u00e1 b\u00edfalning a\u00f0 hann skyldi s\u00e6kja \u00fe\u00e1 s\u00f6mu peninga. Hann t\u00f3k sig upp jafnsnart og l\u00e9t so sem a\u00f0 hann skyldi taka rentu \u00ed Ne\u00f0ri-Syria og Phenice en hans meining var a\u00f0 fullkomna k\u00f3ngsins skipun. <\/p>\n<p>\tSem Heliodorus kom n\u00fa til Jer\u00fasalem og h\u00f6fu\u00f0kennima\u00f0urinn t\u00f3k honum vingjarnlega og sag\u00f0i honum fr\u00e1 hva\u00f0 hans herra haf\u00f0i honum b\u00edfala\u00f0 og hvar fyrir hann v\u00e6ri \u00fear kominn og spur\u00f0i hann a\u00f0 ef \u00feetta v\u00e6ri so e\u00f0ur ekki. <span class=\"athugasemd\" title=\"Heliodorus\">[<\/span> \u00de\u00e1 svara\u00f0i kennimannah\u00f6f\u00f0inginn honum: &#8222;Sumt er oss til tr\u00faa\u00f0 og \u00ed hendur fengi\u00f0 til g\u00f3\u00f0rar geymslu sem heyrir til ekkjum og f\u00f6\u00f0urlausum b\u00f6rnum. Sumt heyrir T\u00f3b\u00edas Hircani til&#8220;,  hver e\u00f0 var einn merkilegur ma\u00f0ur, <span class=\"athugasemd\" title=\"T\u00f3b\u00edas Hircani\">[<\/span> &#8222;og \u00fea\u00f0 er \u00ed \u00f6ngvan m\u00e1ta so sem s\u00e1 svikari S\u00edmon hefur sagt \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fear er ekki meira en fj\u00f6gur hundru\u00f0 centener silfurs og tv\u00f6 hundru\u00f0 centener gulls. So v\u00e6ri \u00fea\u00f0 mikil rangindi a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 so \u00ed burt og sv\u00edkja af \u00feeim sem \u00fev\u00ed heilaga musteri hafa tr\u00faa\u00f0 til s\u00edns hvert a\u00f0 \u00ed \u00f6llum heimi hefur so st\u00f3ran hei\u00f0ur og fr\u00edheit.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn Heliodorus st\u00f3\u00f0 fast \u00e1 k\u00f3ngsins skipun, hann yr\u00f0i a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 til s\u00edn. Og hann kom \u00e1 tilsettum degi \u00ed musterinu og vildi sko\u00f0a \u00fea\u00f0. \u00de\u00e1 h\u00f3fst ein mikil h\u00f6rmung um allan sta\u00f0inn. Kennimennirnir l\u00e1gu frammi fyrir altarinu \u00ed \u00feeim heilaga skr\u00fa\u00f0a og k\u00f6llu\u00f0u til Gu\u00f0s \u00e1 himnum hver e\u00f0 sj\u00e1lfur hefur skipa\u00f0 a\u00f0 menn skulu ekki \u00f3tr\u00falega var\u00f0veita \u00fea\u00f0 sem \u00feeim er til geymslu fengi\u00f0 og a\u00f0 hann vildi l\u00e1ta f\u00f3lki\u00f0 halda s\u00ednu \u00fev\u00ed sem \u00fea\u00f0 haf\u00f0i til tr\u00farrar geymslu burt lagt \u00ed \u00feann sta\u00f0. En h\u00e6\u00f0sti kennima\u00f0urinn bar sig so aumlega a\u00f0 enginn leit hann so a\u00f0 hann kenndi ei \u00ed brj\u00f3sti um hann \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 m\u00e1tti sj\u00e1 \u00e1 honum a\u00f0 hann var \u00ed st\u00f3rri angist me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann var svo f\u00f6lur \u00ed s\u00ednu andliti. \u00dev\u00ed a\u00f0 hann var me\u00f0 \u00f6llu skelfdur og \u00fea\u00f0 skalf allt sem \u00e1 honum var hvar af au\u00f0veldlega m\u00e1tti marka hversu illt honum var \u00ed sinni. Og f\u00f3lki\u00f0 hlj\u00f3p hinga\u00f0 og \u00feanga\u00f0 til samans \u00ed h\u00fasunum og b\u00e1\u00f0ust fyrir hver me\u00f0 \u00f6\u00f0rum af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir s\u00e1u a\u00f0 musteri\u00f0 skyldi koma \u00ed fyrirlitning. Og kvinnurnar \u00edkl\u00e6ddust sekkjum og hlupu um kring \u00e1 str\u00e6tunum og jungfr\u00farnar (sem annars ekki gengu \u00fat \u00e1 me\u00f0al f\u00f3lksins) hlupu undir portin og upp \u00e1 m\u00farveggina. Sumir l\u00e1gu \u00fat um gluggana og upplyftu s\u00ednum h\u00f6ndum til himins og b\u00e1\u00f0ust fyrir. \u00dea\u00f0 var b\u00e6\u00f0i h\u00f6rmuegt a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 var\u00f0 so skelft innbyr\u00f0is og a\u00f0 \u00e6\u00f0sti kennima\u00f0urinn var \u00ed sl\u00edkri angist.<\/p>\n<p>\t\u00c1 me\u00f0an \u00feeir \u00e1k\u00f6llu\u00f0u so \u00feann alm\u00e1ttuga Gu\u00f0 a\u00f0 hann vildi var\u00f0veita \u00feeim sitt f\u00e9 sem \u00fea\u00f0 h\u00f6f\u00f0u \u00feanga\u00f0 til geymslu lagt \u00fe\u00e1 hugsa\u00f0i Heliodorus s\u00e9r a\u00f0 framkv\u00e6ma sinn \u00e1setning. Og sem hann st\u00f3\u00f0 hj\u00e1 Gu\u00f0s kistunni me\u00f0 str\u00ed\u00f0sm\u00f6nnunum \u00fe\u00e1 gj\u00f6r\u00f0i alm\u00e1ttigur Gu\u00f0 eitt miki\u00f0 teikn svo a\u00f0 hann og \u00feeir sem \u00ed kringum hann voru skelfdust fyrir Gu\u00f0s magt og \u00fear f\u00e9ll yfir \u00fe\u00e1 st\u00f3r \u00f3tti og hr\u00e6\u00f0sla. <span class=\"athugasemd\" title=\"Heliodorus straffast af Gu\u00f0i\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir s\u00e1u einn hest sem var vel pr\u00fdddur. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00f3gurleg s\u00fdn\">[<\/span> \u00dear \u00e1 sat einn \u00f3gnarlegur riddari. Hann renndi me\u00f0 \u00f6llu afli a\u00f0 Heliodoro og steytti \u00e1 hann me\u00f0 framf\u00f3tunum og riddarinn \u00e1 hestinum var \u00ed einni forgylltri harneskju. \u00deeir s\u00e1u og tvo unga menn sem b\u00e6\u00f0i voru sterkir og d\u00e6ilegir og mj\u00f6g vel kl\u00e6ddir. \u00deeir st\u00f3\u00f0u sinn til hvorrar handar Heliodoro og b\u00f6r\u00f0u hann kasklega so a\u00f0 hann f\u00e9ll af \u00f3viti til jar\u00f0ar og var\u00f0 sj\u00f3nlaus. \u00de\u00e1 t\u00f3ku \u00feeir hann sem n\u00fdlega var inngenginn \u00ed peningaherbergi\u00f0 me\u00f0 miklu skrauti og me\u00f0 \u00f6llum s\u00ednum str\u00ed\u00f0sm\u00f6nnum og b\u00e1ru hann \u00fea\u00f0an \u00ed einn st\u00f3l. Og hans magt hj\u00e1lpa\u00f0i honum alls ekki (so a\u00f0 menn m\u00e1ttu opinberlega merkja kraft Drottins) og hann l\u00e1 so hart n\u00e6r sem dau\u00f0ur og tala\u00f0i ekkert or\u00f0. En Gy\u00f0ingar pr\u00edsu\u00f0u Gu\u00f0 a\u00f0 hann haf\u00f0i so vegsama\u00f0 sitt musteri. Og musteri\u00f0 sem \u00e1\u00f0ur var fullt af hr\u00e6\u00f0slu og \u00f3tta \u00fea\u00f0 var\u00f0 fullt af f\u00f6gnu\u00f0i og gle\u00f0i eftir \u00feetta teikn alm\u00e1ttugs Gu\u00f0s.<\/p>\n<p>\tEn nokkrir af vinum Heliodori komu og b\u00e1\u00f0u Oniam a\u00f0 hann vildi bi\u00f0ja til Drottins fyrir Heliodoro hver n\u00fa var a\u00f0framkominn. En af \u00fev\u00ed a\u00f0 kennimannah\u00f6f\u00f0inginn var hr\u00e6ddur a\u00f0 k\u00f3ngurinn mundi hafa misgrun \u00e1 Gy\u00f0ingum a\u00f0 \u00feeir hef\u00f0i gj\u00f6rt Heliodoro nokku\u00f0 \u00fe\u00e1 offra\u00f0i hann fyrir honum a\u00f0 hann m\u00e6tti ver\u00f0a heilbrig\u00f0ur. <span class=\"athugasemd\" title=\"Onias bi\u00f0ur fyrir Heliodoros\">[<\/span> Og \u00e1 me\u00f0an hann ba\u00f0st fyrir \u00fe\u00e1 birtust \u00ed anna\u00f0 sinn \u00feau tv\u00f6 ungmenni \u00ed \u00feeirra fyrra kl\u00e6\u00f0na\u00f0i og s\u00f6g\u00f0u til Heliodorum: &#8222;Gj\u00f6r \u00fe\u00fa hugarl\u00e1tlegar \u00feakkir \u00feeim h\u00e6\u00f0sta kennimanni Onia \u00fev\u00ed a\u00f0 hans vegna hefur Drottinn gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r l\u00edfi\u00f0. Og kunngj\u00f6r hvervetna \u00feann mikla kraft Drottins me\u00f0 \u00fev\u00ed \u00fe\u00fa ert af himnum ofan h\u00fa\u00f0str\u00fdktur.&#8220; Og \u00fe\u00e1 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u \u00feetta tala\u00f0 li\u00f0u \u00feeir \u00ed burt.<\/p>\n<p>\tEn Heliodorus f\u00e6r\u00f0i Drottni f\u00f3rnir og h\u00e9t honum miklu a\u00f0 hann haf\u00f0i gefi\u00f0 honum aftur l\u00edfi\u00f0 og \u00feakka\u00f0i Onia og reisti \u00fev\u00ed n\u00e6rst aftur til k\u00f3ngsins og sag\u00f0i hverjum manni fr\u00e1 hvernin hann haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 verk hins h\u00e6\u00f0sta Gu\u00f0s me\u00f0 s\u00ednum augum. En er k\u00f3ngurinn spur\u00f0i hann a\u00f0 hvern hann hugsa\u00f0i a\u00f0 senda skyldi til Jer\u00fasalem sem nokku\u00f0 \u00fatvega\u00f0i \u00fe\u00e1 svara\u00f0i Heliodorus honum: &#8222;Hafir \u00fe\u00fa \u00f3vin e\u00f0ur \u00feann nokkurn sem \u00fe\u00e9r hugsar a\u00f0 hrinda \u00far r\u00edkinu \u00feann send \u00feanga\u00f0. \u00deegar s\u00e1 hinn sami f\u00e6r sl\u00edka h\u00fd\u00f0ing sem eg og kemst me\u00f0 l\u00edfi \u00ed burt \u00fe\u00e1 m\u00e1ttu vel me\u00f0 taka hann aftur. \u00dev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 er kr\u00f6ftugur \u00ed \u00feeim sta\u00f0 og s\u00e1 sem \u00e1 himnum b\u00fdr hefur \u00fear til sj\u00f3n og frelsar hann og straffar \u00fe\u00e1 sem honum vilja mein gj\u00f6ra og sl\u00e6r \u00fe\u00e1 til dau\u00f0s.&#8220; \u00deetta er fulltala\u00f0 um f\u00e9hirsluh\u00fasi\u00f0 og Heliodorum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>III. \u00de\u00e1 menn bjuggu n\u00fa \u00ed g\u00f3\u00f0um fri\u00f0i a\u00f0 n\u00fdju \u00ed Jer\u00fasalem og l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 haf\u00f0i g\u00f3\u00f0an framgang me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00f6fu\u00f0presturinn Onias var so fr\u00f3mur og g\u00e6tti \u00fear a\u00f0 so kostg\u00e6filega \u00fe\u00e1 ur\u00f0u og konungarnir hr\u00e6r\u00f0ir a\u00f0 veita sta\u00f0num hei\u00f0ur og sendu veglegar prestentur musterinu so a\u00f0 Seleucus k\u00f3ngur \u00ed Asia l\u00e9t skikka af sinni inntekt allan kostna\u00f0 sem \u00feurfti til f\u00f3rnf\u00e6ringanna. [ N\u00fa var \u00ed \u00fea\u00f0 sinn einn f\u00f3viti yfir musterinu s\u00e1 S\u00edmon h\u00e9t af Benjam\u00edns \u00e6tt. [ Hann haf\u00f0i \u00f3vinskap \u00e1 \u00feeim \u00e6\u00f0sta kennimanni af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann vildi ekki leyfa honum hans \u00f3hlutvendi \u00ed sta\u00f0num. En af <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-makkabeabok-3-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3765","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3765","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3765"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3765\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3765"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}