{"id":3764,"date":"2017-12-18T18:34:39","date_gmt":"2017-12-18T18:34:39","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-makkabeabok-2-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:39","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:39","slug":"onnur-makkabeabok-2-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-makkabeabok-2-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur Makkabeab\u00f3k 2. kafli"},"content":{"rendered":"<p>II.<\/p>\n<p>Menn finna og \u00ed skriftinni a\u00f0 Jeremias sp\u00e1ma\u00f0ur bau\u00f0 \u00feeim sem burt voru fluttir a\u00f0 \u00feeir skyldu taka me\u00f0 s\u00e9r eldinn sem \u00e1\u00f0ur er sagt. Og hann f\u00e9kk \u00feeim \u00ed hendur l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 og bau\u00f0 \u00feeim a\u00f0 \u00feeir ekki skyldu bo\u00f0or\u00f0um Drottins og l\u00e1ta ekki villa sig \u00fe\u00e1 \u00feeir s\u00e6i afgu\u00f0i af gulli og silfri og \u00feeirra pr\u00fd\u00f0i. Og hann bau\u00f0 \u00feeim margt fleira \u00fev\u00edl\u00edkt a\u00f0 \u00feeir skyldu ei l\u00e1ta l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 koma \u00far s\u00ednu hjarta. \u00dea\u00f0 st\u00f3\u00f0 og \u00ed \u00feeirri s\u00f6mu skrift a\u00f0 sp\u00e1ma\u00f0urinn bau\u00f0 \u00feeim eftir Gu\u00f0s b\u00edfalningu a\u00f0 \u00feeir skyldu taka me\u00f0 s\u00e9r vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0 og \u00f6rkina.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 \u00feeir komu n\u00fa til fjallsins \u00e1 hverju Moyses haf\u00f0i veri\u00f0 og s\u00e9\u00f0 erf\u00f0arland Drottins, \u00fear fann Jeremias einn hellir. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. xxxiiii.\">[<\/span> \u00dear geymdi hann \u00ed tjaldb\u00fa\u00f0ina og \u00f6rkina og reykelsisaltari\u00f0 og byrg\u00f0i aftur munnann. En nokkrir \u00fat af \u00feeim sem me\u00f0 f\u00f3ru vildu marka og gj\u00f6ra teikn hj\u00e1 munnanum en \u00feeir g\u00e1tu hann ekki fundi\u00f0. Og \u00fe\u00e1 Jeremias fornam \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e1v\u00edta\u00f0i hann \u00fe\u00e1 og sag\u00f0i: &#8222;Enginn ma\u00f0ur skal finna e\u00f0ur vita af \u00feessum sta\u00f0 fyrr en Drottinn samansafnar s\u00ednu f\u00f3lki a\u00f0 n\u00fdju og ver\u00f0ur \u00fev\u00ed n\u00e1\u00f0ugur. \u00de\u00e1 mun Drottinn opinbera \u00feeim hann. Og \u00fe\u00e1 mun d\u00fdr\u00f0 Drottins sj\u00e1st \u00ed einu sk\u00fdi so sem hann birtist \u00ed Moyses t\u00ed\u00f0 og so sem Sal\u00f3mon ba\u00f0 a\u00f0 hann vildi helga \u00feann sta\u00f0.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Exo. xii \/ iii. Reg. viii.\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tOg Jeremias sag\u00f0i \u00feeim og so fr\u00e1 hvernin Sal\u00f3mon offra\u00f0i \u00fe\u00e1 kirkjan var v\u00edg\u00f0 og musteri\u00f0 var b\u00fai\u00f0, so og hvernin M\u00f3ses ba\u00f0 til Drottins og eldur f\u00e9ll af himnum og uppbrenndi f\u00f3rnina. <span class=\"athugasemd\" title=\"Levi. ix. \/ iii. Reg. ii. \/ ii. Para. vi.\">[<\/span> So ba\u00f0 og Sal\u00f3mon a\u00f0 hans offur uppbrenndist af eldinum og so brennif\u00f3rnina. Og l\u00edka sem M\u00f3ses haf\u00f0i sagt a\u00f0 hans offur uppbrenndist af eldinum og \u00feess var ekki neytt, so f\u00f3rnf\u00e6r\u00f0i Sal\u00f3mon og einnin \u00ed \u00e1tta daga.<\/p>\n<p>\t\u00deetta finnst allt saman \u00ed \u00fev\u00ed skrifi sem \u00ed t\u00ed\u00f0 Nehemie skrifa\u00f0 var. Og l\u00edka so sem hann samansafna\u00f0i b\u00f3kum konunganna, sp\u00e1mannanna og Dav\u00ed\u00f0s og br\u00e9fum k\u00f3nganna um f\u00f3rnf\u00e6ringarnar og tilreiddi fj\u00f6lda b\u00f3ka, so gj\u00f6r\u00f0i og J\u00fadas. Og hva\u00f0 fyrir b\u00e6kur sem fargast h\u00f6f\u00f0u \u00e1 me\u00f0an \u00f3fri\u00f0ur var \u00ed landinu \u00feeim safna\u00f0i hann til samans aftur. Og v\u00e9r h\u00f6fum \u00fe\u00e6r h\u00e9r, vilji \u00fe\u00e9r n\u00fa \u00fe\u00e6r lesa, \u00fe\u00e1 l\u00e1ti\u00f0 s\u00e6kja \u00fe\u00e6r til vor.<\/p>\n<p>\tN\u00fa me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r viljum halda sl\u00edka h\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00fe\u00e1 vildum v\u00e9r hafa skrifa\u00f0 y\u00f0ur \u00fea\u00f0 til \u00fev\u00ed a\u00f0 tilheyrilegt er a\u00f0 \u00fe\u00e9r haldi\u00f0 hana og einnin. Og v\u00e9r vonum til Gu\u00f0s a\u00f0 Drottinn sem hj\u00e1lpar s\u00ednu f\u00f3lki og gefur oss erf\u00f0ina aftur, sem er r\u00edki\u00f0 og kennimannsskapinn, sem hann hefur lofa\u00f0 \u00ed l\u00f6gm\u00e1linu, hann muni snarlega l\u00edkna oss og samansafna oss a\u00f0 n\u00fdju \u00far v\u00ed\u00f0erni veraldarinnar til \u00feess heilaga sta\u00f0ar, l\u00edka sem hann hefur allarei\u00f0u frelst oss fr\u00e1 mikillri \u00f3g\u00e6fu og hreinsa\u00f0 sta\u00f0inn.<\/p>\n<p>\tEn historian um Judas Macchabeus og hans br\u00e6\u00f0ur og um hreinsan h\u00f6fu\u00f0kennimannsins og hversu altari\u00f0 var v\u00edgt og um \u00fe\u00e6r orrostur \u00ed m\u00f3ti Antiocho hinum g\u00f6fga og hans syni Eupator og af \u00feeim t\u00e1knum himinsins er \u00feeim birtust sem Gy\u00f0ingad\u00f3minn mannlega v\u00f6r\u00f0u, a\u00f0 \u00fe\u00e9r f\u00e1ir einir menn r\u00e6ntu\u00f0 allt landi\u00f0 og r\u00e1ku\u00f0 \u00e1 fl\u00f3tta mikinn fj\u00f6lda hei\u00f0ingja og eltu\u00f0 \u00fe\u00e1 og enn framvegis um musteri\u00f0, hversu \u00fea\u00f0 var uppbyggt aftur, hversu menn vita af \u00fev\u00ed alls sta\u00f0ar n\u00fa \u00feegar og a\u00f0 borgin n\u00e1\u00f0i s\u00ednu frelsi aftur, a\u00f0 alls h\u00e1ttar l\u00f6gm\u00e1l skuli afleggjast en Drottins alleina haldast, hver n\u00fa hefur g\u00f3\u00f0an vilja til vor og er oss l\u00edknsamur, \u00feetta og anna\u00f0 fleira sem Jason hefur uppteikna\u00f0 \u00ed fimm b\u00f3kum \u00fea\u00f0 hugsum v\u00e9r a\u00f0 draga h\u00e9r til samans me\u00f0 styttstu m\u00e1li. <span class=\"athugasemd\" title=\"Judas Macchabeus \/ Antiochus hinn g\u00f6fgi \/ Jason\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r sj\u00e1um hvernin t\u00f6lunni er samanslegi\u00f0 so a\u00f0 \u00fea\u00f0 vill vera \u00feungt a\u00f0 semja historiuna r\u00e9tt me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 henni er so samanslengt. \u00dear fyrir viljum v\u00e9r lagf\u00e6ra \u00fea\u00f0 so a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 betra a\u00f0 lesa og au\u00f0veldara a\u00f0 minnast og a\u00f0 \u00fea\u00f0 megi vera hverjum manni nytsamlegt. Og sannlega merkjum v\u00e9r a\u00f0 \u00fea\u00f0 vill vera oss jafn\u00feungt a\u00f0 v\u00e9r h\u00f6fum teki\u00f0 upp \u00e1 oss sl\u00edkt \u00f3mak \u00fev\u00ed \u00fear heyrir til miki\u00f0 erfi\u00f0i og st\u00f3r i\u00f0ni, so sem \u00fea\u00f0 er ekki erfi\u00f0islaust \u00fe\u00e1 nokkur vill tilb\u00faa eitt gestabo\u00f0 og veita gestunum vel. \u00de\u00f3 viljum v\u00e9r ekki hugsa \u00fear um og viljum gjarna hafa \u00feetta \u00f3mak \u00f6\u00f0rum til \u00fe\u00e9nustu.<\/p>\n<p>\tV\u00e9r viljum \u00f6ngu umbreyta \u00ed s\u00f6gunni sj\u00e1lfri heldur l\u00e1ta hana vera so sem h\u00fan var skrifu\u00f0 fyrr nema a\u00f0 v\u00e9r viljum gj\u00f6ra hana styttri. Og l\u00edka sem einn h\u00fasasmi\u00f0ur \u00fe\u00e1 hann byggir upp n\u00fdtt h\u00fas \u00fe\u00e1 hugsar hann ei lengra fram en a\u00f0 hann geti so gj\u00f6rt \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 kunni a\u00f0 vera st\u00f6\u00f0ugt en hvernin \u00fea\u00f0 skal pr\u00fd\u00f0ast og \u00fatm\u00e1last \u00fear l\u00e6tur hann einn annan hafa umhyggju fyrir, so viljum v\u00e9r og gj\u00f6ra og l\u00e1ta \u00feann sem fyrst skrifa\u00f0i historiuna hafa \u00fear \u00e1hyggju fyrir hvernin hann hefur alla hluti tala\u00f0 og allar greinir sett og sami\u00f0 me\u00f0 g\u00f3\u00f0ri g\u00e6tni allt til enda en viljum ekki anna\u00f0 gj\u00f6ra en samantaka summuna me\u00f0 f\u00e6rstum or\u00f0um. Og viljum n\u00fa uppbyrja historiuna og h\u00f6fum \u00feetta sett so sem annan inngang so a\u00f0 form\u00e1linn ver\u00f0i ei lengri en \u00f6ll sagan.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>II. Menn finna og \u00ed skriftinni a\u00f0 Jeremias sp\u00e1ma\u00f0ur bau\u00f0 \u00feeim sem burt voru fluttir a\u00f0 \u00feeir skyldu taka me\u00f0 s\u00e9r eldinn sem \u00e1\u00f0ur er sagt. Og hann f\u00e9kk \u00feeim \u00ed hendur l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 og bau\u00f0 \u00feeim a\u00f0 \u00feeir ekki skyldu bo\u00f0or\u00f0um Drottins og l\u00e1ta ekki villa sig \u00fe\u00e1 \u00feeir s\u00e6i afgu\u00f0i af gulli og silfri og \u00feeirra pr\u00fd\u00f0i. Og hann bau\u00f0 \u00feeim margt fleira \u00fev\u00edl\u00edkt a\u00f0 \u00feeir skyldu ei l\u00e1ta l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 koma \u00far s\u00ednu hjarta. \u00dea\u00f0 st\u00f3\u00f0 og \u00ed \u00feeirri s\u00f6mu skrift a\u00f0 sp\u00e1ma\u00f0urinn bau\u00f0 \u00feeim eftir Gu\u00f0s b\u00edfalningu a\u00f0 \u00feeir skyldu taka me\u00f0 s\u00e9r vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0 og \u00f6rkina. Og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-makkabeabok-2-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3764","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3764","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3764"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3764\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3764"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}