{"id":3763,"date":"2017-12-18T18:34:39","date_gmt":"2017-12-18T18:34:39","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-makkabeabok-1-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:39","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:39","slug":"onnur-makkabeabok-1-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-makkabeabok-1-kafli\/","title":{"rendered":"\u00d6nnur Makkabeab\u00f3k 1. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Aunnur b\u00f3k Macchabeorum<\/p>\n<p>I. <\/p>\n<p>V\u00e9r Gy\u00f0ingar, y\u00f0ar br\u00e6\u00f0ur, sem erum til Jer\u00fasalem og um allt Gy\u00f0ingaland, \u00f3skum y\u00f0ur Gy\u00f0ingum, vorum br\u00e6\u00f0rum sem eru \u00ed Egyptalandi, lukku og velfer\u00f0.<\/p>\n<p>\tGu\u00f0 blessi y\u00f0ur og minnist \u00e1 sinn s\u00e1ttm\u00e1la sem hann hefur lofa\u00f0 Abraham, \u00cdsaak og Jakob s\u00ednum tr\u00faum \u00fe\u00e9nurum og gefi y\u00f0ur eitt r\u00e9ttilegt hjarta so a\u00f0 \u00fe\u00e9r bl\u00edfi\u00f0 st\u00f6\u00f0ugir og sta\u00f0fastir \u00ed hans l\u00f6gm\u00e1li og unni y\u00f0ur \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e9r stundi\u00f0 hans bo\u00f0or\u00f0 og huggi y\u00f0ur. Hann heyri y\u00f0ar b\u00e6n og s\u00e9 y\u00f0ur l\u00edknsamur og yfirgefi y\u00f0ur ekki \u00ed ney\u00f0inni. So bi\u00f0jum v\u00e9r fyrir y\u00f0ur me\u00f0 jafna\u00f0i.<\/p>\n<p>\tV\u00e9r h\u00f6fum skrifa\u00f0 y\u00f0ur til \u00ed vorri st\u00e6rstu ney\u00f0 \u00fe\u00e1 Jason og hans selskapur sneri s\u00e9r fr\u00e1 \u00fev\u00ed heilaga landi og fr\u00e1 r\u00edkinu og uppbrenndi vor borgarhli\u00f0 og \u00fathellti saklausu bl\u00f3\u00f0i. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jason\">[<\/span> \u00de\u00e1 b\u00e1\u00f0um v\u00e9r og Drottinn b\u00e6nheyr\u00f0i oss og v\u00e9r offru\u00f0um honum simlamj\u00f6li og kveiktum \u00e1 l\u00f6mpunum og l\u00f6g\u00f0um upp sko\u00f0unabrau\u00f0in. Og v\u00e9r \u00f3skum a\u00f0 \u00fe\u00e9r vildu\u00f0 n\u00fa halda kirkjuv\u00edgsluna me\u00f0 oss \u00ed m\u00e1na\u00f0inum kaslev. Gefi\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed hundra\u00f0asta og sextugasta og n\u00edunda \u00e1ri, \u00ed k\u00f3ng Demetrii t\u00ed\u00f0.<\/p>\n<p>\tV\u00e9r \u00ed Jer\u00fasalem og \u00f6llu Gy\u00f0ingalandi \u00e1samt me\u00f0 \u00f6ldungunum og J\u00f3hannes \u00f3skum Aristobulo, konungsins Ptolomei sk\u00f3lameistar, hver a\u00f0 er af kennimannlegu kyni, og \u00feeim \u00f6\u00f0rum Gy\u00f0ingum sem eru \u00ed Egyptalandi, lukku og velfer\u00f0ar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Demetrius \/ Aristobolus\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tV\u00e9r \u00fe\u00f6kkum Gu\u00f0i sem vel er ver\u00f0ugt a\u00f0 hann hefur frelst oss \u00far so st\u00f3rri ney\u00f0 \u00fear sem v\u00e9r ur\u00f0um a\u00f0 verja oss fyrir so megtugum k\u00f3ngi. \u00dev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 hefur burtreki\u00f0 vorn \u00f3vin \u00far \u00feeim heilaga sta\u00f0 allt \u00ed Persialand. \u00dear var\u00f0 k\u00f3ngurinn me\u00f0 s\u00ednum \u00f3yfirvinnanlegum her myrtur \u00ed musterinu Nane me\u00f0 kl\u00f3kskap prestsins Nane. <span class=\"athugasemd\" title=\"H\u00e9r segir \u00f6\u00f0ruv\u00eds fr\u00e1 Antiochi dau\u00f0a en i. b\u00f3k Macchabeorum vi. og ii. Mach. ix.\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e1 Antiochus kom \u00feanga\u00f0 me\u00f0 s\u00ednum vinum til gy\u00f0junnar Diane so sem vildi hann giftast henni og taka allt f\u00e9 \u00far musterinu til morgung\u00e1fu og \u00fe\u00e1 presturinn Nane bar \u00fea\u00f0 fram og hann var genginn me\u00f0 nokkrum m\u00f6nnum \u00ed kapelluna \u00fe\u00e1 l\u00e9tu \u00feeir kirkjuna aftur eftir honum og l\u00f6mdu hann til dau\u00f0s me\u00f0 grj\u00f3ti og alla \u00fe\u00e1 sem me\u00f0 honum v\u00e6ru. \u00dev\u00ed n\u00e6rst hjuggu \u00feeir \u00fe\u00e1 \u00ed stykki og k\u00f6stu\u00f0u \u00feeim \u00fat. Gu\u00f0i s\u00e9 \u00e6t\u00ed\u00f0 lof a\u00f0 hann hefur burt d\u00e6mt \u00fe\u00e1 \u00f3gu\u00f0legu.<\/p>\n<p>\tEftir \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r hugsum a\u00f0 halda hreinsunarh\u00e1t\u00ed\u00f0 musterisins \u00e1 \u00feeim tuttugasta og fimmta degi m\u00e1na\u00f0arins kaslec \u00fe\u00e1 h\u00f6fum v\u00e9r vilja\u00f0 l\u00e1ta y\u00f0ur \u00fea\u00f0 vita so a\u00f0 \u00fe\u00e9r h\u00e9ldu\u00f0 me\u00f0 oss \u00fe\u00e1 s\u00f6mu h\u00e1t\u00ed\u00f0. L\u00edka sem s\u00e1 dagur er haldinn \u00e1 hverjum Nehem\u00edas fann eldinn \u00fe\u00e1 hann uppbygg\u00f0i musteri\u00f0 og altari\u00f0 og f\u00f3rnf\u00e6r\u00f0i a\u00f0 n\u00fdju.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e1 vorir fe\u00f0ur voru burtfluttir \u00ed Persialand \u00fe\u00e1 geymdu kennimennirnir og f\u00f6ldu eldinn altarisins \u00ed einnri dj\u00fapri gryfju so a\u00f0 enginn vissi \u00fear af. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hvernin Nehem\u00edas fann eldinn\">[<\/span> \u00de\u00e1 Nehem\u00edas var n\u00fa nokkrum \u00e1rum seinna eftir Gu\u00f0s vilja heim sendur af k\u00f3ngunum \u00fe\u00e1 skipa\u00f0i hann eftirkomendum \u00feeirra kennimanna sem eldinn h\u00f6f\u00f0u fali\u00f0 a\u00f0 \u00feeir skyldu leita hann upp. En eftir \u00fev\u00ed sem \u00feeir hafa sagt oss \u00fe\u00e1 fundu \u00feeir \u00f6ngvan eld heldur eitt \u00feykkt vatn. \u00dea\u00f0 sama bau\u00f0 hann \u00feeim upp a\u00f0 ausa og fram a\u00f0 bera. \u00de\u00e1 allir hlutir voru n\u00fa b\u00fanir til offursins \u00fe\u00e1 bau\u00f0 Nehem\u00edas a\u00f0 \u00feeir skyldu \u00fathella vatninu \u00e1 vi\u00f0inn og yfir offri\u00f0 sem l\u00e1 \u00e1 vi\u00f0num. \u00deegar \u00feeir h\u00f6f\u00f0u \u00fea\u00f0 gj\u00f6rt og s\u00f3lin var vel uppkomin og sk\u00fdin li\u00f0u \u00ed burtu \u00fe\u00e1 kvikna\u00f0i einn mikill eldur. \u00dea\u00f0 undru\u00f0ust \u00feeir allir. \u00de\u00e1 t\u00f3ku kennimennirnir og f\u00f3lki\u00f0 til a\u00f0 bi\u00f0jast fyrir \u00feanga\u00f0 til e\u00f0 f\u00f3rnin var uppbrennd. Og Jonathas s\u00f6ng fyrir en hinir a\u00f0rir t\u00f6lu\u00f0u eftir honum me\u00f0 Nehem\u00eda.<\/p>\n<p>\tOg \u00feessi var Nehem\u00edas b\u00e6n: <span class=\"athugasemd\" title=\"Nehemie b\u00e6n\">[<\/span> &#8222;Drottinn vor Gu\u00f0, \u00fe\u00fa sem skapa\u00f0ir alla hluti og ert hr\u00e6\u00f0ilegur, styrkur og r\u00e9ttl\u00e1tur og miskunnsamur og alleina s\u00e1 r\u00e9tti k\u00f3ngur og smur\u00f0ur, \u00fe\u00fa sem alleina gefur allar g\u00e1fur, \u00fe\u00fa sem alleina ert r\u00e9ttl\u00e1tur, alm\u00e1ttugur og eil\u00edfur, \u00fe\u00fa sem frelsa\u00f0ir \u00cdsrael af \u00f6llu illu, \u00fe\u00fa sem \u00fatvaldir vora forfe\u00f0ur og helga\u00f0ir \u00fe\u00e1, me\u00f0tak \u00feetta offur vegna alls \u00cdsraelsf\u00f3lks og var\u00f0veit og helga \u00feinn arf. Kom \u00fe\u00fa oss til samans aftur sem sundurdreif\u00f0ir erum. Frels \u00fe\u00e1 sem \u00fej\u00f3na ver\u00f0a hei\u00f0ingjunum og fyrirl\u00edta oss, \u00e1 hverjum hver ma\u00f0ur hefur andstygg\u00f0, so a\u00f0 hei\u00f0ingjarnir m\u00e6ttu formerkja a\u00f0 \u00fe\u00fa ert vor Gu\u00f0. Straffa \u00fe\u00e1 sem a\u00f0 ni\u00f0ur\u00ferykkja oss og af miklum metna\u00f0i veita oss alla vanvir\u00f0u. Gr\u00f3\u00f0urset \u00fe\u00fa \u00feitt f\u00f3lk a\u00f0 n\u00fdju \u00ed \u00fe\u00ednu helga takmarki sem Moyses hefur tala\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed n\u00e6rst sungu prestarnir lofs\u00f6ngva \u00fear til \u00feanga\u00f0 til a\u00f0 f\u00f3rnin var brunnin. Eftir \u00fea\u00f0 bau\u00f0 Nehem\u00edas a\u00f0 hella \u00fev\u00ed vatni sem eftir var yfir st\u00f3ra steina. \u00dear kom og einn eldur upp en hann var\u00f0 fort\u00e6r\u00f0ur af eldsloganum sem var \u00e1 altarinu. \u00deetta barst strax \u00fat og kom fyrir k\u00f3nginn \u00ed Persia, hversu a\u00f0 fundist hef\u00f0i vatn \u00ed \u00feeim sta\u00f0 sem menn h\u00f6f\u00f0u eld fali\u00f0 og \u00fea\u00f0 sama vatn haf\u00f0i uppbrennt f\u00f3rnina. Og k\u00f3ngurinn l\u00e9t og so reyna \u00fea\u00f0 og hann l\u00e9t fr\u00e1skilja og fr\u00eda \u00feann sta\u00f0 og gaf \u00feanga\u00f0 miki\u00f0 f\u00e9. Og Nehem\u00edas lagsmenn k\u00f6llu\u00f0u \u00feann sta\u00f0 Nekpar, \u00e1 norr\u00e6nu &#8222;Hreinsan&#8220;. Sumir nefndu hann Neftar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Nekpar\">[<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Aunnur b\u00f3k Macchabeorum I. V\u00e9r Gy\u00f0ingar, y\u00f0ar br\u00e6\u00f0ur, sem erum til Jer\u00fasalem og um allt Gy\u00f0ingaland, \u00f3skum y\u00f0ur Gy\u00f0ingum, vorum br\u00e6\u00f0rum sem eru \u00ed Egyptalandi, lukku og velfer\u00f0. Gu\u00f0 blessi y\u00f0ur og minnist \u00e1 sinn s\u00e1ttm\u00e1la sem hann hefur lofa\u00f0 Abraham, \u00cdsaak og Jakob s\u00ednum tr\u00faum \u00fe\u00e9nurum og gefi y\u00f0ur eitt r\u00e9ttilegt hjarta so a\u00f0 \u00fe\u00e9r bl\u00edfi\u00f0 st\u00f6\u00f0ugir og sta\u00f0fastir \u00ed hans l\u00f6gm\u00e1li og unni y\u00f0ur \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e9r stundi\u00f0 hans bo\u00f0or\u00f0 og huggi y\u00f0ur. Hann heyri y\u00f0ar b\u00e6n og s\u00e9 y\u00f0ur l\u00edknsamur og yfirgefi y\u00f0ur ekki \u00ed ney\u00f0inni. So bi\u00f0jum v\u00e9r fyrir y\u00f0ur me\u00f0 jafna\u00f0i. V\u00e9r h\u00f6fum skrifa\u00f0 y\u00f0ur <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/onnur-makkabeabok-1-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3763","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3763","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3763"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3763\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3763"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}