{"id":3749,"date":"2017-12-18T18:34:35","date_gmt":"2017-12-18T18:34:35","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-makkabeabok-3-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:35","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:35","slug":"fyrsta-makkabeabok-3-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-makkabeabok-3-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta Makkabeab\u00f3k 3. kafli"},"content":{"rendered":"<p>III.<\/p>\n<p>Og J\u00fadas Machabeus kom \u00ed s\u00edns f\u00f6\u00f0urs sta\u00f0. Og hans br\u00e6\u00f0ur og allir \u00feeir sem s\u00e9r h\u00f6f\u00f0u haldi\u00f0 til hans f\u00f6\u00f0urs hj\u00e1lpu\u00f0u honum \u00ed m\u00f3ti \u00f3vinunum og \u00feeir sl\u00f3gu \u00fe\u00e1 gla\u00f0lega. J\u00fadas afla\u00f0i f\u00f3lkinu mikillrar \u00e6ru. Hann t\u00f3k \u00e1 sig s\u00edna brynju so sem einn kappi og hl\u00edf\u00f0i s\u00ednu herli\u00f0i s\u00ednu sver\u00f0i. Hann var fullhuga\u00f0ur sem eitt le\u00f3n og djarfur sem einn grenjandi le\u00f3nshvelpur \u00fe\u00e1 hann hefur nokkra br\u00e1\u00f0.<\/p>\n<p>\tHann leita\u00f0i \u00feeirra aff\u00f6llnu og \u00f3gu\u00f0legu sem nau\u00f0gu\u00f0u f\u00f3lkinu til a\u00f0 falla fr\u00e1 l\u00f6gm\u00e1linu og hann straffa\u00f0i og uppbrenndi \u00fe\u00e1 so a\u00f0 \u00f3vinirnir ur\u00f0u hr\u00e6ddir fyrir honum alla vegana og fl\u00fd\u00f0u og n\u00ed\u00f0ingarnir ur\u00f0u ni\u00f0url\u00e6kka\u00f0ir og hann haf\u00f0i lukku og sigur. \u00deetta misl\u00edka\u00f0i m\u00f6rgum konungum. En Jakob var \u00fea\u00f0 einn f\u00f6gnu\u00f0ur og \u00feeim eil\u00edfur pr\u00eds og \u00e6ra. Hann dr\u00f3 \u00ed gegnum borgirnar J\u00fada og afm\u00e1\u00f0i \u00fear inni \u00fe\u00e1 \u00f3gu\u00f0legu til a\u00f0 sn\u00faa rei\u00f0inni fr\u00e1 \u00cdsrael. Og hann haf\u00f0i mikinn lofst\u00edr alla vegana \u00ed landinu so a\u00f0 allir ni\u00f0ur\u00ferykktir hlupu til hans.<\/p>\n<p>\t\u00dear \u00ed m\u00f3t dr\u00f3 Apollonius einn mikinn her til samans af hei\u00f0ingjum og af Samaria a\u00f0 berjast \u00ed m\u00f3t \u00cdsrael. <span class=\"athugasemd\" title=\"Apollonius \u00ed hel sleginn\">[<\/span> \u00de\u00e1 J\u00fadas \u00fea\u00f0 heyr\u00f0i f\u00f3r hann honum \u00ed m\u00f3ti og bar\u00f0ist vi\u00f0 hann og \u00ed hel sl\u00f3 hann og mikinn fj\u00f6lda \u00f3vinanna me\u00f0 honum. En \u00feeir sem undan komust \u00feeir fl\u00fd\u00f0u. Og J\u00fadas f\u00e9kk herfangi\u00f0 og hann t\u00f3k Apollonii sver\u00f0. \u00dea\u00f0 bar hann s\u00ed\u00f0an so lengi hann lif\u00f0i.<\/p>\n<p>\tEftir \u00feetta, \u00fe\u00e1 e\u00f0 Seron h\u00f6fu\u00f0sma\u00f0ur \u00ed S\u00fdrlandi heyr\u00f0i a\u00f0 \u00feeir g\u00f3\u00f0u h\u00e9ldu s\u00e9r til J\u00fada og a\u00f0 \u00fear var fj\u00f6ldi f\u00f3lks til samans, \u00fe\u00e1 sag\u00f0i hann: <span class=\"athugasemd\" title=\"Seron\">[<\/span> &#8222;Eg vil vinna fr\u00e6g\u00f0arverk so a\u00f0 eg ver\u00f0i pr\u00edsa\u00f0ur \u00ed \u00f6llu k\u00f3ngsr\u00edkinu og eg vil sl\u00e1 Judam og hans selskap sem forakta k\u00f3ngsins bo\u00f0.&#8220; \u00dear fyrir bj\u00f3 hann sig til og dr\u00f3 fram me\u00f0 mikilli magt a\u00f0 hefnast \u00e1 \u00cdsrael og \u00feeir komu allt til Bet H\u00f3ron.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 f\u00f3r J\u00fadas \u00ed m\u00f3ti honum me\u00f0 einn l\u00edtinn flokk manna. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00fadas talar fyrir s\u00ednu li\u00f0i\">[<\/span> Og er \u00feeir s\u00e1u \u00f3vinina \u00fe\u00e1 s\u00f6g\u00f0u \u00feeir: &#8222;V\u00e9r erum f\u00e1ir og \u00fear me\u00f0 erum v\u00e9r vanmegna af f\u00f6stu. Hvernin getum v\u00e9r barist vi\u00f0 so megtugan og mikinn fj\u00f6lda?&#8220; En J\u00fadas sag\u00f0i: &#8222;Vel m\u00e1 \u00fea\u00f0 ske a\u00f0 f\u00e1ir geti sigra\u00f0 marga \u00fev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 kann so vel a\u00f0 gefa sigur fyrir f\u00e1 so sem fyrir marga. \u00dev\u00ed a\u00f0 sigurinn kemur af himnum og ei f\u00e6st hann me\u00f0 miklum mannfj\u00f6lda. \u00deeir treysta upp \u00e1 s\u00edna mikla magt og vilja dey\u00f0a oss og r\u00e6na vorum kvinnum og b\u00f6rnum. En v\u00e9r ney\u00f0unst til a\u00f0 verja oss og a\u00f0 berjast fyrir voru l\u00edfi og l\u00f6gm\u00e1li. \u00dear fyrir mun Gu\u00f0 afm\u00e1 \u00fe\u00e1 fyrir vorum augum. \u00de\u00e9r skulu\u00f0 ei \u00fe\u00e1 hr\u00e6\u00f0ast.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 hann haf\u00f0i \u00feetta tala\u00f0 f\u00e9ll hann yfir fjandmennina \u00e1\u00f0ur en \u00fe\u00e1 var\u00f0i og sl\u00f3 Seron og hans f\u00f3lk \u00e1 fl\u00f3tta og rak fl\u00f3ttann fr\u00e1 Bet H\u00f3ron ofan \u00e1 sl\u00e9ttlendi\u00f0 og sl\u00f3 \u00ed hel \u00e1tta hundru\u00f0 en hinir a\u00f0rir fl\u00fa\u00f0u \u00ed Philisteisland. <span class=\"athugasemd\" title=\"Seron og hans f\u00f3lk ver\u00f0ur \u00ed hel slegi\u00f0 dccc\">[<\/span> So kom ein hr\u00e6\u00f0sla yfir allt f\u00f3lk umhverfis \u00fe\u00e1 fyrir J\u00fada og hans br\u00e6\u00f0rum og ryktin af J\u00fada og hans verkum barst \u00fat um \u00f6ll l\u00f6nd. \u00dea\u00f0 kom og so fyrir k\u00f3nginn.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 Antiochus heyr\u00f0i n\u00fa allt \u00feetta var\u00f0 hann \u00e6varei\u00f0ur og sendi \u00fat og l\u00e9t \u00fatbj\u00f3\u00f0a lei\u00f0angri um allt sitt k\u00f3ngar\u00edki og samansafna\u00f0i st\u00f3rmiklum her. Og hann t\u00f3k \u00e1 s\u00ednum f\u00e9sj\u00f3\u00f0um og gaf m\u00e1la til eins \u00e1rs og bau\u00f0 a\u00f0 menn skyldu \u00e6t\u00ed\u00f0 vera \u00fatb\u00fanir. En \u00fe\u00e1 hann s\u00e1 a\u00f0 hann haf\u00f0i ekki n\u00f3ga peninga og a\u00f0 \u00fea\u00f0 land kunni ekki miki\u00f0 a\u00f0 gefa vegna \u00feess str\u00ed\u00f0s sem hann haf\u00f0i n\u00fa lengi f\u00e6rt \u00ed m\u00f3ti l\u00f6gm\u00e1linu \u00fe\u00e1 \u00f3tta\u00f0ist hann a\u00f0 hann mundi ekki lengur geta haft so st\u00f3ran kostna\u00f0 sem hann haf\u00f0i haft allt \u00feanga\u00f0 til \u00fe\u00e1 hann haf\u00f0i m\u00e1la og g\u00e1fur \u00fatgefi\u00f0 meir en allir a\u00f0rir k\u00f3ngar fyrir honum. \u00dear fyrir var\u00f0 hann hryggur og f\u00f3r \u00ed Persialand a\u00f0 skatta \u00fea\u00f0 sama land og f\u00e9 til samans a\u00f0 draga.<\/p>\n<p>\tOg hann l\u00e9t einn h\u00f6f\u00f0ingja \u00ed landinu eftir. <span class=\"athugasemd\" title=\"L\u00fds\u00edas\">[<\/span> S\u00e1 h\u00e9t L\u00fds\u00edas. \u00deennan gj\u00f6r\u00f0i hann a\u00f0 h\u00f6fu\u00f0smanni yfir allt k\u00f3ngsr\u00edki\u00f0 fr\u00e1 Euphrates allt a\u00f0 Egyptalandi og b\u00edfala\u00f0i honum sinn son, \u00feann unga Antiochum, \u00e1 me\u00f0an hann v\u00e6ri \u00far landi. Og hann l\u00e9t eftir hj\u00e1 honum helming hersins og f\u00edlana og gaf honum b\u00edfalning yfir \u00f6llum m\u00e1laefnum, l\u00edka einnin yfir J\u00fada og Jer\u00fasalem a\u00f0 hann skyldi senda \u00feanga\u00f0 meira li\u00f0 a\u00f0 ey\u00f0ileggja \u00fea\u00f0 f\u00f3lk sem eftir var \u00ed \u00cdsrael og Jer\u00fasalem og a\u00f0 skipta landinu me\u00f0 framandi m\u00f6nnum og innsetja hei\u00f0ingja \u00fear \u00ed alla sta\u00f0i.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00fev\u00ed hundra\u00f0asta fertugasta og sj\u00f6unda \u00e1ri reisti k\u00f3ngurinn \u00fat af sinni borg Antiochia yfir um Euphrates upp \u00ed uppl\u00f6ndin. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ptolomeus \/ Nicanor \/ Gorgias\">[<\/span> En L\u00fds\u00edas \u00fatvaldi nokkra h\u00f6f\u00f0ingja af konungsins vinum til h\u00f6fu\u00f0smanna, einkum Ptolomeum son Dorimenis, Nicanor og Gorgiam. Og hann f\u00e9kk \u00feeim fj\u00f6rut\u00edgir \u00fe\u00fashundir f\u00f3tg\u00f6nguli\u00f0s og sj\u00f6 \u00fe\u00fashund riddara so a\u00f0 \u00feeir skyldu draga inn \u00ed Gy\u00f0ingaland og afm\u00e1 Gy\u00f0ingana so sem k\u00f3ngurinn haf\u00f0i b\u00edfala\u00f0. \u00de\u00e1 e\u00f0 \u00feeir voru n\u00fa af sta\u00f0 farnir me\u00f0 \u00feennan her \u00fe\u00e1 settu \u00feeir fyrst s\u00ednar tjaldb\u00fa\u00f0ir hj\u00e1 Ammao \u00e1 \u00feeim v\u00ed\u00f0um v\u00f6llum. En sem kaupmennirnir \u00ed l\u00f6ndunum allt um kring heyr\u00f0u \u00feetta komu \u00feeir til herb\u00fa\u00f0anna, hafandi me\u00f0 s\u00e9r n\u00e6g\u00f0 fj\u00e1r a\u00f0 kaupa \u00cdsraelssonu s\u00e9r til \u00fer\u00e6la. Og af S\u00fdrlandi og fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum hei\u00f0ingjum \u00fe\u00e1 kom til \u00feeirra enn meira li\u00f0.<\/p>\n<p>\tSem J\u00fadas og br\u00e6\u00f0ur hans s\u00e1u n\u00fa a\u00f0 ofs\u00f3knin var\u00f0 st\u00e6rri og a\u00f0 \u00f3vinirnir l\u00e1gu vi\u00f0 landamerkin og fornumu a\u00f0 k\u00f3ngurinn hef\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 ey\u00f0ileggja allan J\u00fada \u00fe\u00e1 voru \u00feeir \u00f3hr\u00e6ddir og h\u00f6f\u00f0u samt\u00f6k me\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 \u00feeir vildu hj\u00e1lpa s\u00ednu f\u00f3lki og berjast fyrir \u00fe\u00e1 inu heil\u00f6gu. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00fadas\">[<\/span> \u00dear fyrir k\u00f6llu\u00f0u \u00feeir \u00fea\u00f0 str\u00ed\u00f0sf\u00f3lki\u00f0 til samans a\u00f0 \u00feeir v\u00e6ri hver hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum og g\u00e6fi g\u00e6tur a\u00f0 n\u00e6r e\u00f0 \u00feeir skyldu yfirfalla \u00f3vinina og a\u00f0 \u00feeir b\u00e6\u00f0i hver me\u00f0 \u00f6\u00f0rum til Gu\u00f0s um n\u00e1\u00f0 og hj\u00e1lp.<\/p>\n<p>\tEn \u00e1 \u00feeim t\u00edma var Jer\u00fasalem \u00ed ey\u00f0i og enginn borgari haf\u00f0i \u00fear sinn b\u00fasta\u00f0 og helgid\u00f3murinn var saurga\u00f0ur me\u00f0 sk\u00fargo\u00f0um sem \u00feanga\u00f0 voru sett og hei\u00f0ingjarnir h\u00f6f\u00f0u kastalann inni a\u00f0 halda og \u00f6ll vegsemdin var burt tekin fr\u00e1 Jakob og men heyr\u00f0u hverki p\u00edpnahlj\u00f3\u00f0 n\u00e9 h\u00f6rpuslag. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jer\u00fasalem \u00ed ey\u00f0i og helgid\u00f3murinn saurga\u00f0ur\">[<\/span>  <\/p>\n<p>\t\u00dear fyrir safna\u00f0ist f\u00f3lki\u00f0 til samans \u00ed Mispat gagnvart Jer\u00fasalem. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00ed fyrndinni pl\u00f6gu\u00f0u menn a\u00f0 bi\u00f0jast fyrir \u00ed Mispat. \u00cd \u00feessum sta\u00f0 komu \u00feeir n\u00fa til samans, f\u00f6stu\u00f0u \u00fear og \u00edkl\u00e6ddust sekkjum, jusu \u00f6sku yfir h\u00f6fu\u00f0 s\u00e9r og sundurrifu s\u00edn kl\u00e6\u00f0i. Og \u00feeir b\u00e1ru fram l\u00f6gm\u00e1lsb\u00e6kurnar eftir hverjum hei\u00f0ingjarnir s\u00f3ttu a\u00f0 skrifa og uppm\u00e1la \u00fear \u00e1 s\u00edn sk\u00fargo\u00f0. \u00deeir h\u00f6f\u00f0u \u00feanga\u00f0 \u00feau kennimannlegu kl\u00e6\u00f0i, frumbur\u00f0i og t\u00edundir og gj\u00f6r\u00f0u Nazareos sem halda skyldu \u00feeirra tilsetta t\u00edma og \u00feeir b\u00e1ru sig illa, kallandi upp \u00ed himininn: &#8222;Hvert skulum v\u00e9r fl\u00fdja \u00feetta? \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feinn helgid\u00f3mur er saurga\u00f0ur, \u00fe\u00ednir kennimenn eru \u00ed burt reknir og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, allir hei\u00f0ingjarnir reisa sig upp \u00ed m\u00f3t oss so a\u00f0 \u00feeir afm\u00e1 oss me\u00f0 \u00f6llu. \u00de\u00fa veist hva\u00f0 \u00feeim b\u00fdr \u00ed skapi \u00ed gegn oss. Hvernin getum v\u00e9r sta\u00f0ist fyrir \u00feeim utan \u00fe\u00fa hj\u00e1lpir oss, vor Gu\u00f0?&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00dear eftir l\u00e9t J\u00fadas kalla f\u00f3lki\u00f0 til samans me\u00f0 herl\u00fa\u00f0rum og tilskipa\u00f0i fylkingar, h\u00f6fu\u00f0smenn og hertuga \u00fe\u00e1 sem li\u00f0inu skyldu fylkja. Hann l\u00e9t og einnin \u00fathr\u00f3pa a\u00f0 hver sem h\u00fas hef\u00f0i \u00ed byggingu e\u00f0ur sig vildi gifta e\u00f0ur v\u00edngar\u00f0 v\u00e6ri a\u00f0 planta e\u00f0ur v\u00e6ri hr\u00e6ddur a\u00f0 \u00feeir m\u00e6ttu fara heim aftur so sem a\u00f0 l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 sl\u00edkum gefur heimfararleyfi. Eftir \u00feetta reistu \u00feeir fram og settu einnin s\u00ednar herb\u00fa\u00f0ir vi\u00f0 Ammao m\u00f3t su\u00f0rinu. Og J\u00fadas \u00e1minnti sitt f\u00f3lk og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00fadas talar fyrir s\u00ednu li\u00f0i\">[<\/span> &#8222;Tilb\u00fai\u00f0 y\u00f0ur og veri\u00f0 \u00f3skelfdir so a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 \u00e1 morgun rei\u00f0ub\u00fanir a\u00f0 berjast \u00ed m\u00f3ti \u00feessum hei\u00f0ingjum sem atla s\u00e9r \u00ed ey\u00f0i a\u00f0 leggja oss og vorn helgid\u00f3m. Betra er oss a\u00f0 v\u00e9r f\u00f6llum \u00ed orostu en a\u00f0 v\u00e9r sj\u00e1um sl\u00edka h\u00f6rmung \u00e1 voru f\u00f3lki og helgid\u00f3mi. En hva\u00f0 Gu\u00f0 \u00e1 himnum vill, \u00fea\u00f0 ske\u00f0ur.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>III. Og J\u00fadas Machabeus kom \u00ed s\u00edns f\u00f6\u00f0urs sta\u00f0. Og hans br\u00e6\u00f0ur og allir \u00feeir sem s\u00e9r h\u00f6f\u00f0u haldi\u00f0 til hans f\u00f6\u00f0urs hj\u00e1lpu\u00f0u honum \u00ed m\u00f3ti \u00f3vinunum og \u00feeir sl\u00f3gu \u00fe\u00e1 gla\u00f0lega. J\u00fadas afla\u00f0i f\u00f3lkinu mikillrar \u00e6ru. Hann t\u00f3k \u00e1 sig s\u00edna brynju so sem einn kappi og hl\u00edf\u00f0i s\u00ednu herli\u00f0i s\u00ednu sver\u00f0i. Hann var fullhuga\u00f0ur sem eitt le\u00f3n og djarfur sem einn grenjandi le\u00f3nshvelpur \u00fe\u00e1 hann hefur nokkra br\u00e1\u00f0. Hann leita\u00f0i \u00feeirra aff\u00f6llnu og \u00f3gu\u00f0legu sem nau\u00f0gu\u00f0u f\u00f3lkinu til a\u00f0 falla fr\u00e1 l\u00f6gm\u00e1linu og hann straffa\u00f0i og uppbrenndi \u00fe\u00e1 so a\u00f0 \u00f3vinirnir ur\u00f0u hr\u00e6ddir fyrir honum alla vegana og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-makkabeabok-3-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3749","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3749","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3749"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3749\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3749"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}