{"id":3747,"date":"2017-12-18T18:34:35","date_gmt":"2017-12-18T18:34:35","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-makkabeabok-1-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:35","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:35","slug":"fyrsta-makkabeabok-1-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-makkabeabok-1-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrsta Makkabeab\u00f3k 1. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Fyrsta b\u00f3k Machabeorum<\/p>\n<p>I. <\/p>\n<p>Alexander Philippison k\u00f3ngur \u00ed Macedonia, s\u00e1 fyrsti monarcha af Grikklandi, hann \u00fatdr\u00f3 af landi Kit\u00edm og \u00e1tti margar orr\u00f6stur. <span class=\"athugasemd\" title=\"Alexander \/ Monarcha \/ kallast einvaldsk\u00f3ngur\">[<\/span> Hann vann sterkar borgir og hann \u00ed hel sl\u00f3 Darium k\u00f3ng af Persia. \u00dear eftir braut hann undir sig a\u00f0ra k\u00f3nga \u00ed \u00f6llum l\u00f6ndum og hann reisti jafnan \u00e1fram og vann \u00f6ll l\u00f6nd og k\u00f3ngar\u00edki og enginn \u00feor\u00f0i \u00ed m\u00f3ti honum a\u00f0 standa. Og hann haf\u00f0i megtugt gott str\u00ed\u00f0sf\u00f3lk.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 hann haf\u00f0i n\u00fa unni\u00f0 k\u00f3ngar\u00edkin var\u00f0 hann drambsamur og f\u00e9kk s\u00f3tt. <span class=\"athugasemd\" title=\"Alexander r\u00edkti xii \u00e1r\">[<\/span> En \u00fe\u00e1 hann s\u00e1 a\u00f0 hann mundi deyja \u00fe\u00e1 kalla\u00f0i hann til s\u00edn s\u00edna h\u00f6f\u00f0ingja, \u00feeir sem upp h\u00f6f\u00f0u alist me\u00f0 honum fr\u00e1 barnd\u00f3mi, og hann gj\u00f6r\u00f0i \u00fe\u00e1 a\u00f0 h\u00f6fu\u00f0sm\u00f6nnum yfir l\u00f6ndin \u00fe\u00e1 stund hann lif\u00f0i. \u00dev\u00ed n\u00e6rst anda\u00f0ist Alexander \u00fe\u00e1 hann haf\u00f0i r\u00edkt \u00ed t\u00f3lf \u00e1r.<\/p>\n<p>\tEftir hans dau\u00f0a kom r\u00edki\u00f0 til hans h\u00f6f\u00f0ingja. \u00deeir eignu\u00f0ust l\u00f6ndin, hver h\u00f6fu\u00f0sma\u00f0ur s\u00edna borg, og \u00feeir gj\u00f6r\u00f0u sig allir a\u00f0 k\u00f3ngum og \u00feeir og \u00feeirra eftirkomendur r\u00edktu langa t\u00edma. Og \u00feeir \u00e1ttu margar orrostur s\u00edn \u00e1 milli og \u00fear voru miklar h\u00f6rmungar alls sta\u00f0ar um allan heiminn.<\/p>\n<p>\t\u00dat af einum \u00feessara h\u00f6f\u00f0ingja er getin ein ska\u00f0samleg ill r\u00f3t, Antiochus sem kalla\u00f0ist hinn g\u00f6fgi. <span class=\"athugasemd\" title=\"Upphaf r\u00edkis Antiochi hins g\u00f6fga var \u00e1 cxxxvii \u00e1ri Grikklandsr\u00edkis en fyrir hinga\u00f0bur\u00f0inn Christi clxxxvii \u00e1r\">[<\/span> Hann var settur \u00ed g\u00edsling \u00ed R\u00f3m af f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum Antiocho hinum mikla. Og \u00feessi Antiochus hinn g\u00f6fgi h\u00f3f s\u00edna r\u00edkisstj\u00f3rnan \u00e1 \u00fev\u00ed hundra\u00f0asta seytj\u00e1nda og tuttugasta \u00e1ri r\u00edkisstj\u00f3rnar Grikkja.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00feeim t\u00edma voru vondir menn \u00ed \u00cdsrael sem r\u00e1\u00f0l\u00f6g\u00f0u f\u00f3lkinu og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;L\u00e1tum oss gj\u00f6ra s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 hei\u00f0nar \u00fej\u00f3\u00f0ir sem eru \u00ed kringum oss og uppt\u00f6kum \u00feeirra gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustu \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r h\u00f6fum miki\u00f0 li\u00f0i\u00f0 s\u00ed\u00f0an v\u00e9r settum oss upp \u00ed m\u00f3ti hei\u00f0ingjum.&#8220; \u00deessi meining \u00fe\u00f3kna\u00f0ist \u00feeim vel og nokkrir af f\u00f3lkinu voru sendir til k\u00f3ngsins. Hann bau\u00f0 \u00feeim a\u00f0 uppbyrja hei\u00f0na si\u00f0u. \u00de\u00e1 uppreistu \u00feeir hei\u00f0na leika til Jer\u00fasalem og h\u00e9ldu ei lengur umskurnina og \u00feeir f\u00e9llu fr\u00e1 \u00feeim heilaga s\u00e1ttm\u00e1la og h\u00e9ldu sig eins sem hei\u00f0ingjar. Og \u00feeir ur\u00f0u \u00f6ldungis forhertir til a\u00f0 dr\u00fdgja alls kyns skammir og l\u00f6stu.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 Antiochus var n\u00fa fullmegtugur or\u00f0inn \u00ed s\u00ednu r\u00edki \u00e1setti hann s\u00e9r a\u00f0 \u00fevinga undir sig Egyptalands k\u00f3ngar\u00edki svo a\u00f0 hann hef\u00f0i b\u00e6\u00f0i k\u00f3ngsr\u00edkin. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ptolomeus Philometor\">[<\/span> Og hann f\u00f3r til Egyptalands me\u00f0 miklum vi\u00f0urb\u00faningi, me\u00f0 v\u00f6gnum, f\u00edlum, riddarali\u00f0i og skipafj\u00f6lda og bar\u00f0ist vi\u00f0 Ptolomeum Egyptalandsk\u00f3ng. En Ptolomeus \u00f3tta\u00f0ist og fl\u00fd\u00f0i undan og \u00fear f\u00e9ll fj\u00f6ldi egypskra. Og Antiochus vann sterkar borgir Egyptalands og r\u00e6nti \u00fear miklu g\u00f3ssi og flutti \u00ed burt \u00fea\u00f0an.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00e1 Antiochus haf\u00f0i unni\u00f0 sigur \u00ed Egyptalandi og f\u00f3r heim aftur \u00e1 \u00fev\u00ed hundra\u00f0asta fertugasta og \u00feri\u00f0ja \u00e1ri \u00fe\u00e1 reisti hann \u00ed gegnum \u00cdsraelsland og kom til Jer\u00fasalem me\u00f0 miklu li\u00f0i. <span class=\"athugasemd\" title=\"Antiochi \u00e6\u00f0i \u00ed m\u00f3ti musterinu og Jer\u00fasalem\">[<\/span> Og hann gekk drambsamlega inn \u00ed helgid\u00f3minn og l\u00e9t burt taka gullaltari\u00f0, lj\u00f3sastjakann og allt \u00fea\u00f0 sem \u00fear tilheyr\u00f0i, bor\u00f0i\u00f0 \u00e1 hverju sko\u00f0unarbrau\u00f0in l\u00e1gu, bikarana, sk\u00e1lirnar, gullskei\u00f0irnar, fortjaldi\u00f0, k\u00f3r\u00f3nurnar og \u00fe\u00e1 gulllegu fegur\u00f0 musterisins og braut \u00feetta allt saman \u00ed sundur. Og hann t\u00f3k gull og silfur og kostuleg ker og \u00fe\u00e1 f\u00f3lgnu f\u00e9sj\u00f3\u00f0u, allt \u00fea\u00f0 hann fann, og flutti \u00fea\u00f0 burt me\u00f0 s\u00e9r \u00ed sitt land. Og hann l\u00e9t \u00ed hel sl\u00e1 marga menn og l\u00e9t \u00fat ganga sv\u00edvir\u00f0ilegar b\u00edfalningar. \u00de\u00e1 var st\u00f3rt hjartans angur \u00ed \u00f6llu \u00cdsraelslandi og hvar sem \u00feeir bjuggu. H\u00f6f\u00f0ingjarnir voru hryggvir, \u00f6ldungarnir, j\u00f3mfr\u00far og kvinnur voru sorgfullar, menn og kvinnur b\u00e1ru sig illa og allt landi\u00f0 var sorgfullt vegna sl\u00edks yfirgangs sem \u00fear ske\u00f0i og allt Jakobs h\u00fas var fullt af h\u00f6rmung.<\/p>\n<p>\tOg eftir tv\u00f6 \u00e1r li\u00f0in \u00fe\u00e1 sendi k\u00f3ngurinn einn h\u00f6fu\u00f0smann \u00ed Gy\u00f0ingaland. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jer\u00fasalem r\u00e6nd og ruplu\u00f0 og fj\u00f6ldi f\u00f3lks \u00ed hel sleginn\">[<\/span> Hann kom me\u00f0 miklu li\u00f0i fyrir Jer\u00fasalem og ba\u00f0 a\u00f0 \u00feeir skyldu uppl\u00e1ta borgarhli\u00f0in fyrir honum, \u00fe\u00e1 skyldi hann \u00f6ngvan ska\u00f0a gj\u00f6ra. En \u00fea\u00f0 var eins\u00f6mun svik. \u00de\u00e1 \u00feeir tr\u00fa\u00f0u honum og l\u00e9tu hann inn \u00ed borgina \u00fe\u00e1 f\u00e9ll hann yfir sta\u00f0inn sviksamlega og sl\u00f3 \u00ed hel fj\u00f6lda f\u00f3lks af \u00cdsrael og r\u00e6nti sta\u00f0inn og brenndi h\u00fasin, reif ni\u00f0ur m\u00farveggina og burtflutti kvinnur og b\u00f6rn og kvikf\u00e9. Og hann gj\u00f6r\u00f0i Dav\u00ed\u00f0s kastala styrkvan me\u00f0 sterkum m\u00farveggjum og turnum og l\u00e9t \u00feanga\u00f0 flokk \u00f3gu\u00f0legra manna sem \u00fear gj\u00f6r\u00f0u allt illt. Og \u00feeir t\u00f3ku \u00far borginni Jer\u00fasalem \u00f6ll vopn og allar vistir og l\u00e9tu \u00fea\u00f0 upp \u00ed kastalann. Og \u00feeir settust um helgid\u00f3minn og s\u00e1tu um f\u00f3lki\u00f0 sem til musterisins gekk og f\u00e9llu \u00fat \u00far kastalanum inn \u00ed helgid\u00f3minn Gu\u00f0s \u00fej\u00f3nustna a\u00f0 forhindra og \u00feeir \u00fathelltu miklu saklausu bl\u00f3\u00f0i hj\u00e1 helgid\u00f3minum og saurgu\u00f0u hann.<\/p>\n<p>\tOg borgarmennirnir til Jer\u00fasalem fl\u00fa\u00f0u \u00ed burtu og \u00feeir annarlegu voru eftir \u00ed Jer\u00fasalem og \u00feeir sem \u00fear voru \u00f3\u00f0albornir ur\u00f0u a\u00f0 v\u00edkja. <span class=\"athugasemd\" title=\"Helgid\u00f3murinn lag\u00f0ur \u00ed ey\u00f0i\">[<\/span> Helgid\u00f3murinn var\u00f0 \u00ed ey\u00f0i, h\u00e1t\u00ed\u00f0ardagarnir ur\u00f0u einsaman hrygg\u00f0ardagar, hv\u00edldardagarnir ur\u00f0u einsaman h\u00f6rmung og \u00f6ll \u00feeirra pr\u00fd\u00f0i var\u00f0 a\u00f0 \u00f6ngvu. So d\u00fdr\u00f0leg og h\u00e1 sem Jer\u00fasalem haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur veri\u00f0 so hryggileg og aumleg hlaut h\u00fan \u00fe\u00e1 a\u00f0 vera.<\/p>\n<p>\tOg Antiochus l\u00e9t \u00fatganga eitt bo\u00f0 um allt sitt k\u00f3ngsr\u00edki a\u00f0 allt f\u00f3lk skyldi hafa eins h\u00e1tta\u00f0a gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustugj\u00f6r\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Antiochi skipan\">[<\/span> \u00de\u00e1 yfirg\u00e1fu allar \u00fej\u00f3\u00f0ir \u00feeirra l\u00f6gm\u00e1l og ur\u00f0u sam\u00feykkar si\u00f0um Antiochi og margir af \u00cdsrael sam\u00feykktu \u00feessu og f\u00f3rnf\u00e6r\u00f0u sk\u00fargo\u00f0um og saurgu\u00f0u \u00fevottdaginn.<\/p>\n<p>\tAntiochus sendi einnin br\u00e9f til Jer\u00fasalem og um allar borgir J\u00fada hvar inni hann bau\u00f0 \u00feeim upp a\u00f0 taka \u00fej\u00f3nustugj\u00f6r\u00f0ina hei\u00f0inna \u00fej\u00f3\u00f0a og a\u00f0 afleggja brennif\u00f3rnir, matarf\u00f3rnir, syndaf\u00f3rnir \u00ed helgid\u00f3minum, \u00fevottdaginn og a\u00f0rar h\u00e1t\u00ed\u00f0ir og skipa\u00f0i a\u00f0 saurga helgid\u00f3minn og \u00fea\u00f0 heilaga f\u00f3lk \u00cdsrael. <span class=\"athugasemd\" title=\"Saurgan helgid\u00f3msins\">[<\/span> Og hann l\u00e9t uppreisa altari, kirkjur og sk\u00fargo\u00f0 og offra sv\u00ednakj\u00f6ti og \u00f6\u00f0rum \u00f3hreinum d\u00fdrum. Og hann fyrirbau\u00f0 umskurnina og bau\u00f0 a\u00f0 venja menn til allsh\u00e1ttar sv\u00edvir\u00f0inga a\u00f0 \u00feeir skyldu gleyma Gu\u00f0s l\u00f6gm\u00e1li og r\u00e9ttindum og taka upp a\u00f0ra si\u00f0i. Og hver sem ekki v\u00e6ri hl\u00fd\u00f0inn Antiocho \u00feann \u00e1ttu menn a\u00f0 l\u00edfl\u00e1ta. <\/p>\n<p>\t\u00deetta bo\u00f0 l\u00e9t hann \u00fatganga um allt sitt k\u00f3ngar\u00edki og setti til h\u00f6fu\u00f0smenn \u00feeir sem f\u00f3lkinu skyldu nau\u00f0ga til a\u00f0 halda sl\u00edkt. \u00deessir uppbyrju\u00f0u offranir \u00ed J\u00fada og bu\u00f0u a\u00f0 halda \u00fe\u00e6r. Og margt af f\u00f3lkinu f\u00e9ll til \u00feeirra fr\u00e1 Gu\u00f0s l\u00f6gm\u00e1li. \u00deeir dr\u00fdg\u00f0u allan piltskap \u00ed landinu og \u00fatr\u00e1ku \u00cdsraelsf\u00f3lk so a\u00f0 \u00feeir ur\u00f0u a\u00f0 geyma og fela sig \u00ed holum svo sem fl\u00f3ttamenn.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00fev\u00ed hundra\u00f0asta fertugasta fimmta \u00e1ri, \u00e1 \u00feeim fimmta degi m\u00e1na\u00f0arins kaslev, l\u00e9t k\u00f3ng Antiochus setja sv\u00edvir\u00f0ing forey\u00f0slunnar upp \u00e1 Gu\u00f0s altari og hann l\u00e9t reisa altari \u00ed \u00f6llum borgum \u00ed J\u00fada so a\u00f0 menn opinberlega f\u00f3rn\u00f6\u00f0u reykelsi og offru\u00f0u \u00e1 str\u00e6tunum og hver fyrir s\u00ednu h\u00fasi. <span class=\"athugasemd\" title=\"cxlv \u00e1r \/ kaslev \/ Sv\u00edvir\u00f0ing forey\u00f0slunnar var uppsett \u00e1 Gu\u00f0s altari\">[<\/span> Og hann l\u00e9t \u00ed sundur r\u00edfa b\u00e6kur Gu\u00f0s l\u00f6gm\u00e1ls og brenna \u00fe\u00e6r og \u00ed hel sl\u00e1 alla \u00fe\u00e1 hj\u00e1 hverjum a\u00f0 fundust b\u00e6kur gu\u00f0legs s\u00e1ttm\u00e1la og alla \u00fe\u00e1 sem h\u00e9ldu Gu\u00f0s l\u00f6gm\u00e1l. Og \u00feetta gj\u00f6r\u00f0u \u00feeir me\u00f0 s\u00ednu str\u00ed\u00f0sf\u00f3lki hvern m\u00e1nu\u00f0 \u00fe\u00e1 f\u00f3lki\u00f0 til samans kom \u00ed st\u00f6\u00f0unum. \u00c1 \u00feeim fimmta og tuttugasta degi m\u00e1na\u00f0arins f\u00e6r\u00f0u \u00feeir f\u00f3rnir \u00e1 \u00fev\u00ed altari sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u uppreist \u00ed gegn altari Drottins.<\/p>\n<p>\tKvinnurnar \u00fe\u00e6r sem umsk\u00e1ru s\u00edn b\u00f6rn voru drepnar so sem Antiochus haf\u00f0i skipa\u00f0. Foreldrarnir voru myrtir \u00ed s\u00ednum h\u00fasum og b\u00f6rnin voru \u00fear upphengd. En margir af \u00cdsraelsf\u00f3lki voru sta\u00f0fastir og vildu ei eta \u00fea\u00f0 \u00f3hreina og l\u00e9tu heldur drepa sig en a\u00f0 \u00feeir saurgu\u00f0u sig og vildu ekki falla fr\u00e1 heil\u00f6gu Gu\u00f0s l\u00f6gm\u00e1li. \u00dear fyrir ur\u00f0u \u00feeir l\u00edfl\u00e1tnir.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fyrsta b\u00f3k Machabeorum I. Alexander Philippison k\u00f3ngur \u00ed Macedonia, s\u00e1 fyrsti monarcha af Grikklandi, hann \u00fatdr\u00f3 af landi Kit\u00edm og \u00e1tti margar orr\u00f6stur. [ Hann vann sterkar borgir og hann \u00ed hel sl\u00f3 Darium k\u00f3ng af Persia. \u00dear eftir braut hann undir sig a\u00f0ra k\u00f3nga \u00ed \u00f6llum l\u00f6ndum og hann reisti jafnan \u00e1fram og vann \u00f6ll l\u00f6nd og k\u00f3ngar\u00edki og enginn \u00feor\u00f0i \u00ed m\u00f3ti honum a\u00f0 standa. Og hann haf\u00f0i megtugt gott str\u00ed\u00f0sf\u00f3lk. \u00de\u00e1 hann haf\u00f0i n\u00fa unni\u00f0 k\u00f3ngar\u00edkin var\u00f0 hann drambsamur og f\u00e9kk s\u00f3tt. [ En \u00fe\u00e1 hann s\u00e1 a\u00f0 hann mundi deyja \u00fe\u00e1 kalla\u00f0i hann til s\u00edn s\u00edna <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrsta-makkabeabok-1-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3747","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3747","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3747"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3747\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3747"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}