{"id":3742,"date":"2017-12-18T18:34:35","date_gmt":"2017-12-18T18:34:35","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/baruksbok-3-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:35","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:35","slug":"baruksbok-3-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/baruksbok-3-kafli\/","title":{"rendered":"Bar\u00faksb\u00f3k 3. kafli"},"content":{"rendered":"<p>III.<\/p>\n<p>Alm\u00e1ttugur Drottinn, \u00fe\u00fa \u00cdsraels Gu\u00f0, eg \u00e1kalla \u00feig \u00ed \u00feessari st\u00f3rri angist og ney\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"B\u00e6n\">[<\/span> B\u00e6nheyr\u00f0u og vertu miskunnsamur, Drottinn, \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r h\u00f6fum syndgast \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r, \u00fe\u00fa drottnar \u00e6t\u00ed\u00f0 og a\u00f0 eil\u00edfu, en v\u00e9r forg\u00f6ngum jafnan. Alm\u00e1ttugur Drottinn, \u00fe\u00fa \u00cdsraels Gu\u00f0, heyr n\u00fa \u00cdsraels b\u00e6nir sem n\u00fa er staddur \u00ed dau\u00f0ans kverkum og b\u00e6nir \u00feeirra barna sem syndgast hafa \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r og ei hafa hl\u00fdtt r\u00f6ddu Drottins s\u00edns Gu\u00f0s. \u00dear fyrir hefur hefndarstraffi\u00f0 hangt \u00e6t\u00ed\u00f0 yfir voru h\u00f6f\u00f0i.<\/p>\n<p>\tMinnstu ekki \u00e1 misgj\u00f6r\u00f0ir vorra fe\u00f0ra heldur minnstu n\u00fa \u00e1 \u00fe\u00edna h\u00f6nd og \u00e1 \u00feitt nafn. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa, Drottinn, ert a\u00f0 v\u00edsu vor Gu\u00f0. \u00de\u00e1 viljum v\u00e9r lofa \u00feig, Drottinn. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fear fyrir hefur \u00fe\u00fa gefi\u00f0 \u00feinn \u00f3tta \u00ed vor hj\u00f6rtu a\u00f0 v\u00e9r skulum \u00e1kalla \u00feitt nafn og vegsama \u00feig \u00ed vorum fj\u00f6trum. \u00dev\u00ed a\u00f0 allar misgj\u00f6r\u00f0ir vorra fe\u00f0ra sem syndgu\u00f0u \u00e1 m\u00f3ti \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e6r ganga oss til hjarta, v\u00e9r sem n\u00fa erum \u00ed vorri herlei\u00f0ing \u00fear sem \u00fe\u00fa hefur \u00fatdreift oss til sm\u00e1nar, til b\u00f6lvunar og sv\u00edvir\u00f0ingar, vegna allra misgj\u00f6r\u00f0a vorra fe\u00f0ra sem sneru s\u00e9r fr\u00e1 Drottni Gu\u00f0i s\u00ednum.<\/p>\n<p>\tHeyr\u00f0u, \u00cdsrael, l\u00edfsins bo\u00f0or\u00f0, gef\u00f0u grandvarlega g\u00e6tur a\u00f0 \u00fev\u00ed og var\u00f0veittu \u00fea\u00f0 vel. Hvernin kemur \u00fea\u00f0 til, \u00cdsrael, a\u00f0 \u00fe\u00fa vanmegnast \u00ed landi hei\u00f0ingjanna, a\u00f0 \u00fe\u00fa ert \u00ed \u00f3kunnu landi, a\u00f0 \u00fe\u00fa saurgar \u00feig \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra dau\u00f0u, a\u00f0 \u00fe\u00fa ert reikna\u00f0ur \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra sem fara til helv\u00edtis? \u00deetta er af \u00fev\u00ed ske\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur yfirgefi\u00f0 spekinnar brunn. Hef\u00f0ir \u00fe\u00fa blifi\u00f0 \u00e1 Gu\u00f0s g\u00f6tu \u00fe\u00e1 hef\u00f0ir \u00fe\u00fa \u00e6t\u00ed\u00f0 b\u00fai\u00f0 me\u00f0 fri\u00f0i.<\/p>\n<p>\tSo l\u00e6r n\u00fa sanna speki so a\u00f0 \u00fe\u00fa megir reyna hver s\u00e1 s\u00e9 sem a\u00f0 gefur langa l\u00edfdaga, au\u00f0leg\u00f0, gle\u00f0i og f\u00f6gnu\u00f0. Hver veit hvar h\u00fan b\u00fdr? Hver hefur komi\u00f0 \u00ed hennar herbergi? Hvar eru hei\u00f0ingjanna h\u00f6f\u00f0ingjar sem drottna yfir villud\u00fdrunum \u00e1 j\u00f6r\u00f0u, \u00feeir sem leika vi\u00f0 fugla loftsins, \u00feeir sem safna silfri og gulli, hvar \u00e1 a\u00f0 menn setja sitt traust og kunna aldrei \u00fear af mettir a\u00f0 ver\u00f0a (\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00fatvega f\u00e9\u00f0 og hafa alla kostg\u00e6fni \u00e1 \u00fev\u00ed og \u00fea\u00f0 er \u00fe\u00f3 allt saman til einkis)? \u00deeir eru afm\u00e1\u00f0ir og f\u00f3ru ni\u00f0ur til helv\u00edtis og a\u00f0rir eru komnir \u00ed sta\u00f0inn \u00feeirra. \u00deeirra eftirkomendur sj\u00e1 a\u00f0 s\u00f6nnu lj\u00f3si\u00f0 og b\u00faa \u00e1 jar\u00f0r\u00edki en hitta \u00fe\u00f3 ekki \u00e1 \u00feann veginn \u00fear e\u00f0 speki ver\u00f0ur fundin \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir fyrirl\u00edta hana. \u00dear me\u00f0 hafa og \u00feeirra b\u00f6rn villt fari\u00f0.<\/p>\n<p>\t\u00cd Kanaanslandi heyra menn ekkert af henni. \u00cd Teman s\u00e9st h\u00fan ei. Synir Hagar leita a\u00f0 v\u00edsu eftir jar\u00f0legri speki. S\u00f6mulei\u00f0is kaupmennirnir af Meran og \u00ed \u00feeirri Teman sem halda sig hyggna a\u00f0 vera en \u00fe\u00f3 hitta \u00feeir ekki \u00e1 \u00feann veg \u00fear sem spekin finnst.<\/p>\n<p>\t\u00d3 \u00cdsrael, hva\u00f0 d\u00fdr\u00f0legt er Drottins h\u00fas, hva\u00f0 v\u00ed\u00f0ur og st\u00f3r er s\u00e1 sta\u00f0ur \u00fear hann b\u00fdr! Hann hefur \u00f6ngvan enda og er \u00f3m\u00e6lanlega h\u00e1r. \u00dear voru for\u00f0um risar, miklir, nafnfr\u00e6gir menn og sterkir str\u00ed\u00f0smenn, \u00fe\u00e1 hina s\u00f6mu hefur Drottinn ekki \u00fatvali\u00f0 og eigi heldur opinbera\u00f0 \u00feeim vi\u00f0urkenningarinnar veg og me\u00f0 \u00fev\u00ed \u00feeir h\u00f6f\u00f0u ekki spekina \u00fe\u00e1 eru \u00feeir foreyddir \u00ed sinni heimsku.<\/p>\n<p>\tHver er farinn upp \u00ed himininn og s\u00f3tt hana og hafi hana ofan hinga\u00f0 \u00far sk\u00fdjunum? Hver hefur siglt yfir um hafi\u00f0 og fundi\u00f0 hana og flutt hana hinga\u00f0 fyrir kostulegt gull? Sn\u00f6ggt a\u00f0 segja, \u00fear er enginn s\u00e1 sem \u00feann veg veit \u00fear e\u00f0 spekin finnst.<\/p>\n<p>\tEn s\u00e1 sem alla hluti veit hann \u00feekkir hana og hann hefur fundi\u00f0 hana fyrir sinn skilning. <span class=\"athugasemd\" title=\"Spekin er fr\u00e1 Gu\u00f0i\">[<\/span> S\u00e1 sem tilbj\u00f3 jar\u00f0r\u00edki\u00f0 og uppfyllti \u00fea\u00f0 af alls kyns d\u00fdrum. Hann sem l\u00e6tur lj\u00f3si\u00f0 upp renna og \u00fe\u00e1 n\u00e6r hann kallar \u00fea\u00f0 aftur \u00fe\u00e1 hl\u00fdtur \u00fea\u00f0 a\u00f0 hl\u00fd\u00f0a honum. Stj\u00f6rnurnar l\u00fdsa \u00ed sinni skikkan me\u00f0 fagna\u00f0i og \u00fe\u00e1 hann kallar \u00e1 \u00fe\u00e6r \u00fe\u00e1 svara \u00fe\u00e6r: &#8222;H\u00e9r erum v\u00e9r&#8220; og \u00fe\u00e6r l\u00fdsa me\u00f0 gle\u00f0i hans vegna sem \u00fe\u00e6r hefur skapa\u00f0. \u00dea\u00f0 er vor Gu\u00f0 og enginn er honum samjafn. Hann hefur fundi\u00f0 spekina og hann gaf hana Jakob s\u00ednum \u00fe\u00e9nara og \u00cdsrael s\u00ednum elskulega. Eftir \u00fea\u00f0 birtist h\u00fan \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni og bj\u00f3 me\u00f0al f\u00f3lksins.<\/p>\n<p>\t\u00deessi speki er s\u00fa bo\u00f0or\u00f0ab\u00f3k og \u00fea\u00f0 l\u00f6gm\u00e1l sem er eil\u00edft. Allir \u00feeir sem halda henni \u00feeir munu lifa en \u00feeir sem brj\u00f3ta hana \u00feeir munu deyja. Sn\u00fa\u00f0u \u00fe\u00e9r \u00feanga\u00f0 aftur, \u00cdsrael, og me\u00f0taktu hana, gakktu eftir \u00fev\u00edl\u00edku lj\u00f3si sem fyrir \u00fe\u00e9r sk\u00edn. Yfirgef \u00fe\u00fa ekki \u00f6\u00f0rum \u00fe\u00edna vegsemd og einu annarlegu f\u00f3lki \u00feinn f\u00e9sj\u00f3\u00f0. Og s\u00e6lir eru v\u00e9r, \u00cdsrael, \u00fev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 hefur opinbera\u00f0 oss sinn vilja.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>III. Alm\u00e1ttugur Drottinn, \u00fe\u00fa \u00cdsraels Gu\u00f0, eg \u00e1kalla \u00feig \u00ed \u00feessari st\u00f3rri angist og ney\u00f0. [ B\u00e6nheyr\u00f0u og vertu miskunnsamur, Drottinn, \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r h\u00f6fum syndgast \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r, \u00fe\u00fa drottnar \u00e6t\u00ed\u00f0 og a\u00f0 eil\u00edfu, en v\u00e9r forg\u00f6ngum jafnan. Alm\u00e1ttugur Drottinn, \u00fe\u00fa \u00cdsraels Gu\u00f0, heyr n\u00fa \u00cdsraels b\u00e6nir sem n\u00fa er staddur \u00ed dau\u00f0ans kverkum og b\u00e6nir \u00feeirra barna sem syndgast hafa \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r og ei hafa hl\u00fdtt r\u00f6ddu Drottins s\u00edns Gu\u00f0s. \u00dear fyrir hefur hefndarstraffi\u00f0 hangt \u00e6t\u00ed\u00f0 yfir voru h\u00f6f\u00f0i. Minnstu ekki \u00e1 misgj\u00f6r\u00f0ir vorra fe\u00f0ra heldur minnstu n\u00fa \u00e1 \u00fe\u00edna h\u00f6nd og \u00e1 \u00feitt nafn. \u00dev\u00ed a\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/baruksbok-3-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3742","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3742","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3742"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3742\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3742"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}