{"id":3741,"date":"2017-12-18T18:34:35","date_gmt":"2017-12-18T18:34:35","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/baruksbok-2-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:35","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:35","slug":"baruksbok-2-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/baruksbok-2-kafli\/","title":{"rendered":"Bar\u00faksb\u00f3k 2. kafli"},"content":{"rendered":"<p>II.<\/p>\n<p>Og Drottinn hefur haldi\u00f0 s\u00edn or\u00f0 \u00feau sem hann tala\u00f0 hefur til vor og vorra d\u00f3mara, konunga og h\u00f6f\u00f0ingja sem stj\u00f3rna skyldu \u00cdsrael og til \u00feeirra af \u00cdsrael og J\u00fada. Og hann hefur l\u00e1ti\u00f0 so \u00feungt straff koma yfir oss hvers l\u00edki ei er ske\u00f0 undir \u00f6llum himninum sem komi\u00f0 er yfir Jer\u00fasalem, l\u00edka so sem skrifa\u00f0 stendur \u00ed Moyses l\u00f6gm\u00e1li a\u00f0 ma\u00f0ur skyldi eta s\u00edns sonar og sinnar d\u00f3ttur hold. Og hann gaf \u00fe\u00e1 bur til \u00fer\u00e6la \u00ed \u00f6ll \u00feau k\u00f3ngar\u00edki sem \u00fear liggja um kring til sm\u00e1nar og b\u00f6lvanar me\u00f0al allra \u00fej\u00f3\u00f0a sem eru \u00ed kringum oss, \u00e1 me\u00f0al hverra Drottinn hefur \u00fatdreift \u00feeim, og \u00feeir ver\u00f0a jafnlega ni\u00f0ur\u00ferykktir og geta ekki komist upp aftur. \u00dev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r h\u00f6fum syndgast \u00ed m\u00f3ti Drottni Gu\u00f0i vorum \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r hl\u00fdddum ekki hans raust.<\/p>\n<p>\tDrottinn vor Gu\u00f0 er r\u00e9ttl\u00e1tur en v\u00e9r og fe\u00f0ur vorir berum maklega vora sm\u00e1n svo sem n\u00fa ske\u00f0ur. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sup. i.\">[<\/span> \u00d6ll s\u00fa \u00f3g\u00e6fa um hverja Drottinn hefur tala\u00f0 \u00ed gegn oss h\u00fan er yfir oss komin. Og v\u00e9r h\u00f6fum ekki gr\u00e1tb\u00e6nt Drottin so a\u00f0 hver hef\u00f0i sn\u00fai\u00f0 s\u00e9r fr\u00e1 s\u00ednum hjartans hugrenningum. Og Drottinn vakti yfir oss til \u00f3lukku sem hann l\u00e9t yfir oss koma \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn er r\u00e9ttl\u00e1tur \u00ed \u00f6llum s\u00ednum verkum sem hann hefur oss bo\u00f0i\u00f0. En v\u00e9r hl\u00fdddum ekki hans r\u00f6ddu svo a\u00f0 v\u00e9r hef\u00f0um gengi\u00f0 eftir bo\u00f0or\u00f0um Drottins sem hann gaf oss.<\/p>\n<p>\tOg n\u00fa Drottinn \u00cdsraels Gu\u00f0, \u00fe\u00fa sem \u00fatleiddir \u00feitt f\u00f3lk af Egyptalandi me\u00f0 einni styrkri hendi, me\u00f0 st\u00f3rri magt og miklu valdi, fyrir teikn og st\u00f3rmerki, og hefur gj\u00f6rt \u00fe\u00e9r eitt nafn so sem n\u00fa er \u00fea\u00f0, v\u00e9r h\u00f6fum syndgast og h\u00f6fum (\u00fev\u00ed verr) veri\u00f0 \u00f3gu\u00f0legir og v\u00e9r h\u00f6fum broti\u00f0 \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00ednum bo\u00f0or\u00f0um. \u00d3 Drottinn Gu\u00f0 vor, l\u00e1ttu af \u00feinni grimmdarrei\u00f0i yfir oss \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r erum or\u00f0nir harla f\u00e1ir \u00e1 me\u00f0al hei\u00f0ingjanna \u00feanga\u00f0 sem \u00fe\u00fa hefur \u00fatdreift oss.<\/p>\n<p>\tHeyr, Drottinn, vora b\u00e6n og vora gr\u00e1tbei\u00f0ni og hj\u00e1lpa oss vegna sj\u00e1lfs \u00fe\u00edns og l\u00e1t oss finna n\u00e1\u00f0 hj\u00e1 \u00feeim sem oss hafa \u00ed burt flutt so a\u00f0 \u00f6ll ver\u00f6ldin megi vi\u00f0urkenna a\u00f0 \u00fe\u00fa, Drottinn, ert vor Gu\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"B\u00e6n \/ Dan. v?\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00cdsrael og hans s\u00e1\u00f0 hefur sitt nafn af \u00fe\u00e9r. L\u00edttu, Drottinn, af \u00fe\u00ednu heilaga h\u00fasi og hugsa til vor. Hneig \u00fe\u00fa, Drottinn, \u00feitt eyra og b\u00e6nheyr \u00fe\u00fa. Uppl\u00fak \u00fe\u00fa, Drottinn, \u00fe\u00ednum augum og sj\u00e1 \u00fea\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir framli\u00f0nu \u00ed helv\u00edti, hverra andi er li\u00f0inn af l\u00edkamanum, \u00feeir pr\u00edsa ekki d\u00fdr\u00f0 og r\u00e9ttl\u00e6ti Drottins heldur s\u00fa s\u00e1la sem mj\u00f6g eer sorgfull og gengur bj\u00fag og hrygg\u00f0arfull og hefur hartn\u00e6r \u00fatgr\u00e1ti\u00f0 s\u00edn augu og er hungru\u00f0, h\u00fan pr\u00edsar, Drottinn, \u00fe\u00edna d\u00fdr\u00f0 og \u00feitt r\u00e9ttl\u00e6ti.<\/p>\n<p>\tOg n\u00fa Drottinn vor Gu\u00f0, v\u00e9r liggjum frammi fyrir \u00fe\u00e9r me\u00f0 vorri b\u00e6n, ekki fyrir sakir r\u00e9ttl\u00e6tis vorra fe\u00f0ra og vorra k\u00f3nga heldur fyrir sakir \u00feinnar miskunnsemdar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. ix.\">[<\/span> Eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur l\u00e1ti\u00f0 \u00fe\u00edna grimmd og rei\u00f0i ganga yfir oss so sem \u00fe\u00fa tala\u00f0ir fyrir munn prophetanna, \u00feinna \u00fe\u00e9nara, segjandi: <span class=\"athugasemd\" title=\"Jere. xxix.\">[<\/span> So segir Drottinn: Beygi\u00f0 y\u00f0ar her\u00f0ar og gefi\u00f0 y\u00f0ur undir konunginn af Bab\u00fdlon, \u00fe\u00e1 munu \u00fe\u00e9r bl\u00edfa \u00ed \u00fev\u00ed landi sem eg gaf y\u00f0ar fe\u00f0rum en ef \u00fe\u00e9r hl\u00fd\u00f0i\u00f0 ekki r\u00f6ddinni Drottins og gefi\u00f0 y\u00f0ur ei undir konunginn af Bab\u00fdlon \u00fe\u00e1 vil eg \u00ed burt taka \u00far borgunum J\u00fada og \u00far Jer\u00fasalem gle\u00f0innar og fagna\u00f0arins kall og br\u00fa\u00f0gumans r\u00f6dd og br\u00fa\u00f0arinnar og allt landi\u00f0 skal vera \u00ed ey\u00f0i og \u00fear skal enginn b\u00faa.<\/p>\n<p>\tEn v\u00e9r vorum ekki hl\u00fd\u00f0ugir \u00feinni r\u00f6ddu so a\u00f0 v\u00e9r g\u00e6fum oss undir k\u00f3nginn af Bab\u00fdlon. \u00dear fyrir hefur \u00fe\u00fa haldi\u00f0 \u00fe\u00edn or\u00f0 \u00feau sem \u00fe\u00fa tala\u00f0ir fyrir munn sp\u00e1mannanna, \u00feinna \u00fe\u00e9nara, so a\u00f0 \u00feeir hafa \u00ed burtkasta\u00f0 beinum vorra konunga og beinum vorra fe\u00f0ra af \u00feeirra gr\u00f6fum og sundurtv\u00edstra\u00f0 \u00feeim so a\u00f0 \u00feau l\u00e1gu um daga \u00ed s\u00f3lskini og um n\u00e6tur \u00ed d\u00f6ggu og \u00feeir hafa harla hryggilega fyrirfarist af hungri, sver\u00f0i og \u00ed fj\u00f6trum. Og fyrir sakir synda h\u00fassins \u00cdsraels og J\u00fada \u00fe\u00e1 hefur \u00fe\u00fa l\u00e1ti\u00f0 ni\u00f0urbrj\u00f3ta \u00feitt h\u00fas \u00ed hverju \u00feitt nafn var tilbe\u00f0i\u00f0 so sem \u00fea\u00f0 er enn n\u00fa.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00fa, Drottinn vor Gu\u00f0, hefur harla n\u00e1\u00f0arsamlega og eftir mikilleika miskunnsemdar \u00feinnar vi\u00f0 oss gj\u00f6rt, so sem \u00fe\u00fa tala\u00f0ir vi\u00f0 Moysen \u00feinn \u00fej\u00f3nustumann \u00e1 \u00feeim degi \u00fe\u00e1 \u00fe\u00fa bau\u00f0st honum a\u00f0 skrifa \u00feitt l\u00f6gm\u00e1l fyrir \u00cdsraelsb\u00f6rnum, segjandi: <span class=\"athugasemd\" title=\"Levit. xxvi. \/ Deut. xxix.\">[<\/span> Ef a\u00f0 \u00fe\u00e9r hl\u00fd\u00f0i\u00f0 ekki minni r\u00f6ddu \u00fe\u00e1 skal sannarlega \u00feessi h\u00f3pur sem er einn mikill mannfj\u00f6ldi ver\u00f0a mj\u00f6g l\u00edtill \u00e1 me\u00f0al hei\u00f0ingjanna \u00fear sem eg vil \u00fatdreifa \u00feeim. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg veit vel a\u00f0 \u00feeir hl\u00fd\u00f0a m\u00e9r ei \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er eitt har\u00f0sv\u00edra\u00f0 f\u00f3lk.<\/p>\n<p>\tEn \u00feeir munu sn\u00faa s\u00e9r \u00ed \u00fev\u00ed landi \u00fear \u00feeir eru herteknir og \u00feeir munu vi\u00f0urkenna a\u00f0 eg s\u00e9 Drottinn \u00feeirra Gu\u00f0. Og eg vil gefa \u00feeim skynsemdarhjarta og eyru so a\u00f0 \u00feeir heyri. \u00de\u00e1 munu \u00feeir vegsama mig \u00ed \u00fev\u00ed landi \u00fear \u00feeir eru herteknir haldnir og \u00feeir munu minnast \u00e1 mitt nafn og \u00feeir munu sn\u00faa s\u00e9r fr\u00e1 s\u00ednu har\u00f0sv\u00edru\u00f0u sinni og fr\u00e1 s\u00ednum syndum \u00fev\u00ed \u00feeir munu minnast \u00e1 \u00fea\u00f0 hvernin a\u00f0 \u00fea\u00f0 gekk \u00feeirra fe\u00f0rum, \u00feeir sem syndgu\u00f0ust fyrir Drottni.<\/p>\n<p>\tOg eg vil lei\u00f0a \u00fe\u00e1 aftur \u00ed sitt land sem eg s\u00f3r \u00feeirra fe\u00f0rum, \u00feeim sem syndgu\u00f0ust fyrir Drottni, og \u00feeir skulu r\u00edkja \u00fear inni og eg vil fj\u00f6lga \u00fe\u00e1 og ei f\u00e6kka. Og eg vil uppreisa einn eil\u00edfan s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 eg vil vera \u00feeirra Gu\u00f0 og \u00feeir mitt f\u00f3lk. Og eg vil ekki \u00fea\u00f0an af \u00fatreka mitt f\u00f3lk \u00cdsrael af \u00fev\u00ed landi sem eg hefi gefi\u00f0 \u00feeim.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>II. Og Drottinn hefur haldi\u00f0 s\u00edn or\u00f0 \u00feau sem hann tala\u00f0 hefur til vor og vorra d\u00f3mara, konunga og h\u00f6f\u00f0ingja sem stj\u00f3rna skyldu \u00cdsrael og til \u00feeirra af \u00cdsrael og J\u00fada. Og hann hefur l\u00e1ti\u00f0 so \u00feungt straff koma yfir oss hvers l\u00edki ei er ske\u00f0 undir \u00f6llum himninum sem komi\u00f0 er yfir Jer\u00fasalem, l\u00edka so sem skrifa\u00f0 stendur \u00ed Moyses l\u00f6gm\u00e1li a\u00f0 ma\u00f0ur skyldi eta s\u00edns sonar og sinnar d\u00f3ttur hold. Og hann gaf \u00fe\u00e1 bur til \u00fer\u00e6la \u00ed \u00f6ll \u00feau k\u00f3ngar\u00edki sem \u00fear liggja um kring til sm\u00e1nar og b\u00f6lvanar me\u00f0al allra \u00fej\u00f3\u00f0a sem eru \u00ed kringum oss, <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/baruksbok-2-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3741","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3741","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3741"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3741\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3741"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}