{"id":3738,"date":"2017-12-18T18:34:35","date_gmt":"2017-12-18T18:34:35","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-50-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T19:50:07","modified_gmt":"2017-12-18T19:50:07","slug":"siraksbok-50-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-50-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00edraksb\u00f3k 50. kafli"},"content":{"rendered":"<p>L.<\/p>\n<p>S\u00edmon son Onie kennimannah\u00f6f\u00f0ingi, hver \u00e1 s\u00ednum t\u00edma sm\u00ed\u00f0a\u00f0i g\u00f6ng um musteri\u00f0 og st\u00f3lpa \u00fear vi\u00f0 setti og helmingi h\u00e6rra grund\u00f6llinn m\u00fara\u00f0i og gj\u00f6r\u00f0i umgang hi\u00f0 efra \u00e1 musterinu. <span class=\"athugasemd\" title=\"ii. Macha. iii.\">[<\/span> \u00c1 hans d\u00f6gum var brunnurinn ni\u00f0urfallinn, hvern hann kringdi me\u00f0 kopar. Hann bar umhyggju fyrir ska\u00f0a s\u00edns l\u00fd\u00f0s og gj\u00f6r\u00f0i \u00f6rugga borgina \u00ed gegn \u00f3vinum. Hann gj\u00f6r\u00f0i loflegt verk \u00ed \u00fev\u00ed hann kom f\u00f3lkinu aftur til r\u00e9ttrar skikkanar.<\/p>\n<p>\t\u00deegar hann gekk framhj\u00e1 fortjaldinu so l\u00fdsti hann sem morgunstjarna \u00ed gegnum sk\u00fdin, so sem fullur m\u00e1ni, l\u00edka sem \u00fe\u00e1 s\u00f3lin sk\u00edn \u00e1 musteri Hins h\u00e6\u00f0sta, svo sem regnbogi me\u00f0 s\u00ednum f\u00f6grum litum, so sem f\u00f6gur r\u00f3sa \u00e1 vort\u00edma, sem liljur vi\u00f0 vatn, l\u00edka sem reykelsistr\u00e9 \u00e1 vort\u00edma, sem tendra\u00f0 reykelsi \u00ed gl\u00f3\u00f0arkeri, svo sem eitt gullker pr\u00fdtt me\u00f0 alls kyns d\u00fdrum steinum, sem eitt frj\u00f3samt vi\u00f0smj\u00f6rstr\u00e9 og so sem hi\u00f0 h\u00e6\u00f0sta cypressustr\u00e9.<\/p>\n<p>\t\u00deegar hann kl\u00e6ddi sig me\u00f0 \u00feeim fagra s\u00ed\u00f0kyrtli og allt skarti\u00f0 upp \u00e1 sig setti og gekk til heilags altaris \u00fe\u00e1 pr\u00fdddi hann allan helgid\u00f3minn \u00ed kring. En \u00feegar hann t\u00f3k f\u00f3rnarstykkin af kennimanna hendi og st\u00f3\u00f0 vi\u00f0 eldinn \u00feann sem \u00e1 altarinu loga\u00f0i \u00fe\u00e1 st\u00f3\u00f0u br\u00e6\u00f0ur hans \u00ed kringum hann so sem sedrusvi\u00f0ur \u00e1 Libanusfjalli planta\u00f0ur og umkringdu hann so sem p\u00e1lmvi\u00f0arkvistir og allir synir Aarons \u00ed sinni fegur\u00f0 og h\u00f6f\u00f0u \u00ed \u00feeirra h\u00f6ndum f\u00f3rn Drottins fyrir \u00f6llum s\u00f6fnu\u00f0i \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0s. <span class=\"athugasemd\" title=\"Exo. xxviii.\">[<\/span> Og hann fullgj\u00f6r\u00f0i sitt emb\u00e6tti \u00e1 altarinu og f\u00e6r\u00f0i so Hinum h\u00e6sta alm\u00e1ttiga fagra f\u00f3rn. Hann framr\u00e9tti s\u00edna h\u00f6nd me\u00f0 drykkjuoffur og f\u00f3rnf\u00e6r\u00f0i hi\u00f0 rau\u00f0a v\u00edn og \u00fathellti \u00e1 altarisbotninn s\u00e6tleiks ilms Hinum h\u00e6sta, sem k\u00f3ngur er allra.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 k\u00f6llu\u00f0u h\u00e1tt synir Aarons og bl\u00e9su \u00ed l\u00fa\u00f0ra og dunu\u00f0u h\u00e1tt so a\u00f0 \u00feeirra yr\u00f0i minnst \u00ed augliti Hins h\u00e6sta. \u00de\u00e1 jafnsnart f\u00e9ll allt f\u00f3lki\u00f0 fram til jar\u00f0ar og \u00e1k\u00f6llu\u00f0u Drottin sinn alm\u00e1ttugan, h\u00e6stan Gu\u00f0. Og s\u00f6ngmennirnir lofu\u00f0u Gu\u00f0 me\u00f0 lofs\u00f6ngum og s\u00f6ngh\u00fasi\u00f0 t\u00f3k eftir \u00feeim s\u00e6tan hlj\u00f3m og l\u00fd\u00f0urinn ba\u00f0 til hins h\u00e6sta Drottins \u00fea\u00f0 hann vildi vera miskunnsamur, \u00fear til a\u00f0 Gu\u00f0s \u00fej\u00f3nustugj\u00f6r\u00f0in var \u00fati og \u00feeir h\u00f6f\u00f0u enda\u00f0 sitt emb\u00e6tti.<\/p>\n<p>\tOg \u00feegar hann gekk burt aftur framr\u00e9tti hann s\u00edna h\u00f6nd yfir allan s\u00f6fnu\u00f0inn \u00cdsraelssona og gaf \u00feeim blessan Drottins me\u00f0 s\u00ednum munni og \u00e6skti \u00feeim heilsu \u00ed hans nafni. \u00de\u00e1 b\u00e1\u00f0u \u00feeir \u00ed anna\u00f0 sinn og me\u00f0t\u00f3ku \u00fe\u00e1 blessan af Hinum h\u00e6\u00f0sta og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Gj\u00f6ri\u00f0 n\u00fa allir Gu\u00f0i \u00feakkir sem mikla hluti verkar \u00ed \u00f6llum \u00e1ttum, hver e\u00f0 oss l\u00edfgar fr\u00e1 m\u00f3\u00f0urkvi\u00f0i og gj\u00f6rir oss allt gott. Hann gefi oss glatt <span class=\"athugasemd\" title=\"a Hjarta) \/ G\u00f3\u00f0a samvisku\">[<\/span> hjarta og veiti eil\u00edfan fri\u00f0 um vora daga \u00ed \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0 og a\u00f0 hans n\u00e1\u00f0 jafnan me\u00f0 oss s\u00e9 og frelsi oss so lengi sem v\u00e9r lifum.&#8220;<\/p>\n<p>\tTveimur \u00fej\u00f3\u00f0um er eg af hjarta \u00f3vinur en hinum \u00feri\u00f0ja er eg svo gramur sem \u00f6ngvum \u00f6\u00f0rum: \u00deeim <span class=\"athugasemd\" title=\"b Samverskir eru falskhelgir menn og villuandar \u00e1 me\u00f0al Gu\u00f0s barna\">[<\/span> samverskum, <span class=\"athugasemd\" title=\"c Philistei) \/ eru illir n\u00e1b\u00faar og ofs\u00f3knarmenn sem eigi gefa upp a\u00f0 ofs\u00e6kja Gu\u00f0s or\u00f0\">[<\/span> Philisteis og \u00feeim heimska l\u00fd\u00f0 \u00ed <span class=\"athugasemd\" title=\"d Sik\u00edm) \/ er \u00fea\u00f0 \u00f3hl\u00fd\u00f0na upphlaupsama alm\u00fagaf\u00f3lk sem Gu\u00f0s or\u00f0 hefur og forsm\u00e1r \u00fea\u00f0 og foraktar\">[<\/span> Sik\u00edm.<\/p>\n<p>\t\u00deessa kenning og v\u00edsd\u00f3m hefur Jes\u00fas sonur S\u00edraks fr\u00e1 Jer\u00fasalem \u00ed \u00feessa b\u00f3k l\u00e1ti\u00f0 skrifa og af s\u00ednu hjarta \u00fev\u00edl\u00edkum l\u00e6rd\u00f3mi \u00fathellt. <\/p>\n<p>\tS\u00e6ll er s\u00e1 ma\u00f0ur sem sig h\u00e9r inni i\u00f0kar og hver \u00fea\u00f0 hir\u00f0ir \u00ed hjarta s\u00e1 mun vitur ver\u00f0a. Og ef hann \u00fear eftir gj\u00f6rir so mun hann til allra hluta g\u00e6fulegur ver\u00f0a \u00fev\u00ed a\u00f0 lj\u00f3s Drottins lei\u00f0ir hann.<\/p>\n<p><em>\u00cd eldri framsetningu \u00e1 S\u00edraksb\u00f3k \u00far Gu\u00f0brandsbibl\u00edu, er B\u00e6n Jes\u00fa sonar S\u00edraks h\u00f6f\u00f0 \u00ed lok 50. kafla. Til a\u00f0 samr\u00e6ma framsetningu er b\u00e6n Jes\u00fa sonar S\u00edraks n\u00fa \u00ed 51. kafla S\u00edraksb\u00f3kar.<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>L. S\u00edmon son Onie kennimannah\u00f6f\u00f0ingi, hver \u00e1 s\u00ednum t\u00edma sm\u00ed\u00f0a\u00f0i g\u00f6ng um musteri\u00f0 og st\u00f3lpa \u00fear vi\u00f0 setti og helmingi h\u00e6rra grund\u00f6llinn m\u00fara\u00f0i og gj\u00f6r\u00f0i umgang hi\u00f0 efra \u00e1 musterinu. [ \u00c1 hans d\u00f6gum var brunnurinn ni\u00f0urfallinn, hvern hann kringdi me\u00f0 kopar. Hann bar umhyggju fyrir ska\u00f0a s\u00edns l\u00fd\u00f0s og gj\u00f6r\u00f0i \u00f6rugga borgina \u00ed gegn \u00f3vinum. Hann gj\u00f6r\u00f0i loflegt verk \u00ed \u00fev\u00ed hann kom f\u00f3lkinu aftur til r\u00e9ttrar skikkanar. \u00deegar hann gekk framhj\u00e1 fortjaldinu so l\u00fdsti hann sem morgunstjarna \u00ed gegnum sk\u00fdin, so sem fullur m\u00e1ni, l\u00edka sem \u00fe\u00e1 s\u00f3lin sk\u00edn \u00e1 musteri Hins h\u00e6\u00f0sta, svo sem regnbogi me\u00f0 s\u00ednum <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-50-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3738","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3738","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3738"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3738\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3738"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}