{"id":3736,"date":"2017-12-18T18:34:32","date_gmt":"2017-12-18T18:34:32","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-48-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:32","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:32","slug":"siraksbok-48-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-48-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00edraksb\u00f3k 48. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XLVIII.<\/p>\n<p>Og El\u00edas sp\u00e1ma\u00f0ur braust fram sem annar eldur og hans or\u00f0 brunnu so sem blys, og leiddi yfir \u00fe\u00e1 hall\u00e6ri og f\u00e6kka\u00f0i \u00feeim fyrir sitt vandl\u00e6ti. <span class=\"athugasemd\" title=\"El\u00edas \/ ii. Reg. xvii.\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 fyrir or\u00f0 Drottins byrg\u00f0i hann aftur himininn. \u00derem sinnum f\u00e6r\u00f0i hann eld af himni. Hva\u00f0 d\u00fdr\u00f0legur hefur \u00fe\u00fa veri\u00f0, El\u00edas, \u00ed \u00fe\u00ednum d\u00e1\u00f0samlegum verkum! Hver er jafnd\u00fdr\u00f0legur sem \u00fe\u00fa?<\/p>\n<p>\tMe\u00f0 or\u00f0i Hins h\u00e6sta hefur \u00fe\u00fa uppvaki\u00f0 hinn dau\u00f0a og \u00fat af helv\u00edti leitt. \u00de\u00fa hefur steypt stoltum k\u00f3ngum af \u00feeirra s\u00e6ng og \u00feeim fyrirfari\u00f0. \u00de\u00fa hefur heyrt \u00e1 fjallinu S\u00edna\u00ed \u00fe\u00e1 tilkomandi <span class=\"athugasemd\" title=\"a str\u00f6ffun) \/ iii. Reg. xix. stendur hversu \u00fea\u00f0 Hasael, Jeh\u00fa, Eliseus, fyrir vind, jar\u00f0skj\u00e1lfta og eld merktir skyldu drepa \u00feann \u00f3gu\u00f0lega l\u00fd\u00f0\">[<\/span> str\u00f6ffun og \u00e1 \u00d3reb hefndina. \u00de\u00fa hefur af k\u00f3ngunum fyrirsp\u00e1\u00f0 sem \u00fear skyldu refsa og sp\u00e1menn eftir \u00feig skikka\u00f0. \u00de\u00fa ert uppnuminn \u00ed vindbyl me\u00f0 eldlegri kerru og hestum. \u00de\u00fa ert tilsettur til a\u00f0 straffa \u00e1 s\u00ednum t\u00edma til a\u00f0 stilla rei\u00f0ina fyrr en grimmdin kemur og a\u00f0 sn\u00faa hj\u00f6rtum fe\u00f0ranna til sonanna og \u00e6ttkv\u00edslir Jakobs a\u00f0 endurskikka.<\/p>\n<p>\tS\u00e6lir eru \u00feeir e\u00f0 \u00feig sj\u00e1 og fyrir \u00fe\u00edns vinskapar sakir ver\u00f0a hei\u00f0ra\u00f0ir. \u00dear munum v\u00e9r \u00fea\u00f0 sanna l\u00edfi\u00f0 hafa.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 El\u00edas var uppnuminn \u00ed vindbylnum kom hans andi r\u00edkuglega yfir Heliseum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Eliseus \/ iiii. Reg. ii.\">[<\/span> \u00c1 s\u00ednum d\u00f6gum hr\u00e6ddist hann \u00f6ngvan h\u00f6f\u00f0ingja og enginn kunni hann a\u00f0 sigra. Hann l\u00e9t sig ekki neitt \u00fevinga. Og sem hann var anda\u00f0ur sp\u00e1\u00f0i enn \u00fe\u00e1 hans l\u00edkami. \u00de\u00e1 hann lif\u00f0i gj\u00f6r\u00f0i hann t\u00e1kn og \u00fe\u00e1 hann var dau\u00f0ur gj\u00f6r\u00f0i hann st\u00f3rmerki. \u00de\u00f3 dug\u00f0i \u00feetta alls ekki a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 i\u00f0ra\u00f0ist og l\u00e9ti af s\u00ednum syndum, \u00fear til \u00feeir ur\u00f0u \u00fatreknir af sinni f\u00f3sturj\u00f6r\u00f0u og um \u00f6ll l\u00f6nd tv\u00edstra\u00f0ir \u00fear til a\u00f0 l\u00edtill h\u00f3pur var\u00f0 eftir og einn h\u00f6f\u00f0ingi \u00ed h\u00fasi Dav\u00ed\u00f0s, \u00e1 me\u00f0al hverra nokkrir gj\u00f6r\u00f0u hva\u00f0 Gu\u00f0i l\u00edka\u00f0i en sumir syndgu\u00f0u harla mj\u00f6g.<\/p>\n<p>\tEzechias gj\u00f6r\u00f0i styrkva m\u00farveggi \u00ed kringum s\u00edna borg og veitti vatni \u00fear inn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ezechias\">[<\/span> Hann l\u00e9t grafa ni\u00f0ur \u00ed bergi\u00f0 og gj\u00f6ra \u00fear brunna. \u00c1 hans d\u00f6gum fer\u00f0a\u00f0ist Sennaker\u00edb ofan og sendi \u00fat Rabsacen. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sennaker\u00edb \/ Esa. xxxvii.\">[<\/span> Hann h\u00f3f upp s\u00edna h\u00f6nd \u00ed m\u00f3t S\u00edon og dreissa\u00f0i me\u00f0 miklu drambi. \u00fe\u00e1 ur\u00f0u \u00feeirra hj\u00f6rtu og hendur skj\u00e1lfandi og \u00feeir \u00feoldu angist l\u00edka sem kona \u00ed barnsbur\u00f0arney\u00f0. Og \u00feeir k\u00f6llu\u00f0u \u00e1 hinn miskunnsama Drottin og h\u00f3fu upp til hans s\u00ednar hendur. Og s\u00e1 Hinn heilagi \u00e1 himnum er heyr\u00f0i \u00fe\u00e1 og frelsa\u00f0i fyrir Esaiam. <span class=\"athugasemd\" title=\"Esaias\">[<\/span> Hann sl\u00f3 herb\u00fa\u00f0ir \u00feeirra Assyreis og hans engill afm\u00e1\u00f0i \u00fe\u00e1. \u00dev\u00ed a\u00f0 Ezechias gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0 Drottni l\u00edka\u00f0i vel og st\u00f3\u00f0 st\u00f6\u00f0ugur \u00e1 vegi Dav\u00ed\u00f0s, s\u00edns f\u00f6\u00f0urs, so sem Esaias kenndi honum, hver a\u00f0 var einn mikill og sannarlegur sp\u00e1ma\u00f0ur \u00ed s\u00ednum sp\u00e1s\u00f6gum.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00feeim d\u00f6gum gekk s\u00f3lin aftur og hann j\u00f3k k\u00f3ngsins l\u00edfdaga. Hann sag\u00f0i fyrir me\u00f0 r\u00edkum anda hva\u00f0 me\u00f0 seinasta skyldi ske og veitti traust hrygg\u00f0arfullum l\u00fd\u00f0 til S\u00edon \u00fear \u00feeir m\u00e6tti sig um aldur og \u00e6vi me\u00f0 hugga. Hann bo\u00f0a\u00f0i \u00f3komna og leynda hluti \u00e1\u00f0ur en \u00feeir komu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XLVIII. Og El\u00edas sp\u00e1ma\u00f0ur braust fram sem annar eldur og hans or\u00f0 brunnu so sem blys, og leiddi yfir \u00fe\u00e1 hall\u00e6ri og f\u00e6kka\u00f0i \u00feeim fyrir sitt vandl\u00e6ti. [ \u00dev\u00ed a\u00f0 fyrir or\u00f0 Drottins byrg\u00f0i hann aftur himininn. \u00derem sinnum f\u00e6r\u00f0i hann eld af himni. Hva\u00f0 d\u00fdr\u00f0legur hefur \u00fe\u00fa veri\u00f0, El\u00edas, \u00ed \u00fe\u00ednum d\u00e1\u00f0samlegum verkum! Hver er jafnd\u00fdr\u00f0legur sem \u00fe\u00fa? Me\u00f0 or\u00f0i Hins h\u00e6sta hefur \u00fe\u00fa uppvaki\u00f0 hinn dau\u00f0a og \u00fat af helv\u00edti leitt. \u00de\u00fa hefur steypt stoltum k\u00f3ngum af \u00feeirra s\u00e6ng og \u00feeim fyrirfari\u00f0. \u00de\u00fa hefur heyrt \u00e1 fjallinu S\u00edna\u00ed \u00fe\u00e1 tilkomandi [ str\u00f6ffun og \u00e1 \u00d3reb hefndina. \u00de\u00fa hefur <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-48-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3736","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3736","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3736"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3736\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3736"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}