{"id":3725,"date":"2017-12-18T18:34:32","date_gmt":"2017-12-18T18:34:32","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-37-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:32","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:32","slug":"siraksbok-37-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-37-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00edraksb\u00f3k 37. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXXVII.<\/p>\n<p>Kvi\u00f0urinn tekur alls konar f\u00e6\u00f0u til s\u00edn, \u00fe\u00f3 er ein f\u00e6\u00f0a betri en \u00f6nnur. <\/p>\n<p>\tL\u00edka sem tungan villubr\u00e1\u00f0sr\u00e9ttinn smakkar so merkir skynugt hjarta f\u00f6lsk or\u00f0.<\/p>\n<p>\tEinn prettv\u00eds mann kann einum \u00ed \u00f3lukku a\u00f0 koma en s\u00e1 sem er fors\u00f3ttur veit sig \u00fear fyrir a\u00f0 vakta.<\/p>\n<p>\tM\u00e6\u00f0urnar hafa alla sonu k\u00e6ra en \u00fe\u00f3 t\u00e9rast stundum ein d\u00f3ttir betur en sonur. <\/p>\n<p>\tEin fr\u00ed\u00f0 kona gle\u00f0ur sinn mann og ma\u00f0urinn hefur \u00f6ngvan hlut elskara og s\u00e9 h\u00fan \u00fear me\u00f0 \u00e1st\u00fa\u00f0leg og g\u00f3\u00f0 so finnst ekki \u00feess manns l\u00edki. <span class=\"athugasemd\" title=\"G\u00f3\u00f0 kvinna\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tHver eina h\u00fasfr\u00fa hefur hann f\u00e6rir fram s\u00edna eigu og hefur tr\u00faa hj\u00e1lp og sto\u00f0 sem hann m\u00e1 upp \u00e1 treysta.<\/p>\n<p>\tHvar enginn gar\u00f0ur er \u00fear brotna ni\u00f0ur b\u00e6irnir og hvar engin h\u00fasfr\u00fa er \u00fear vegnar b\u00f3ndanum r\u00e9tt sem hann fari villt.<\/p>\n<p>\tL\u00edka sem menn tr\u00faa ekki reyfaranum er l\u00e6\u00f0ist fr\u00e1 einum sta\u00f0 til annars, svo tr\u00faa menn og ekki \u00feeim manni sem ekki neitt hrei\u00f0ur hefur og fara ver\u00f0ur til herbergis hvar sem hann kveldar uppi.<\/p>\n<p>\tS\u00e9rhver vinur segir vel: &#8222;Eg er og so vinur&#8220; en nokkrir eru alleina a\u00f0 nafni vinir. <span class=\"athugasemd\" title=\"Vinir\">[<\/span><\/p>\n<p>\t\u00deegar vinir ver\u00f0a s\u00edn \u00e1 me\u00f0al \u00f3vinir so varir \u00fea\u00f0 allt til dau\u00f0ans.<\/p>\n<p>\tHva\u00f0an kemur s\u00fa vonska a\u00f0 \u00f6ll ver\u00f6ldin er full af falskleik? <\/p>\n<p>\t\u00deegar vininum vel gengur so fagna \u00feeir me\u00f0 honum en \u00feegar honum gengur illa so ver\u00f0a \u00feeir hans \u00f3vinir. \u00deeir harma me\u00f0 honum fyrir b\u00faksins skuld en \u00feegar ney\u00f0in a\u00f0 fer l\u00e1ta \u00feeir <span class=\"athugasemd\" title=\"a Skj\u00f6ldinn) \/ Hvar \u00feeir vita sig \u00f3hr\u00e6dda og \u00ed g\u00f3\u00f0ri hylli, hvert sem \u00fea\u00f0 er Gu\u00f0i me\u00f0 e\u00f0a eigi\">[<\/span> skj\u00f6ldinn hl\u00edfa. <\/p>\n<p>\tGleym eigi \u00fe\u00ednum vin \u00fe\u00e1 \u00fe\u00fa ert gla\u00f0ur og hugsa \u00fe\u00fa til hans \u00fe\u00e1 \u00fe\u00fa ert r\u00edkur.<\/p>\n<p>\tS\u00e9rhver r\u00e1\u00f0gjafi vill r\u00e1\u00f0leggja en sumir r\u00e1\u00f0leggja s\u00e9r til eigin gagns. <span class=\"athugasemd\" title=\"R\u00e1\u00f0gjafarar\">[<\/span> \u00dear fyrir vara \u00feig vi\u00f0 \u00feeim r\u00e1\u00f0gj\u00f6fum, hugsa \u00fe\u00fa \u00e1\u00f0ur hvert \u00fea\u00f0 er gott. M\u00e1 vel ske a\u00f0 hann hugsi sj\u00e1lfum s\u00e9r a\u00f0 r\u00e1\u00f0leggja og vill l\u00e1ta \u00feig \u00e1 h\u00e6tta og segir: &#8222;\u00de\u00fa ert \u00e1 \u00feeim r\u00e9tta vegi&#8220; og hann stendur ekki a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur \u00e1 m\u00f3ti \u00fe\u00e9r og gaumg\u00e6fir hvernin \u00fea\u00f0 vill r\u00e1\u00f0ast.<\/p>\n<p>\tHaf \u00fe\u00fa engin r\u00e1\u00f0 vi\u00f0 \u00feann sem illan grun \u00e1 \u00fe\u00e9r hefur og tak \u00fe\u00e1 eigi \u00fe\u00e9r til r\u00e1\u00f0gjafa sem \u00feig \u00f6funda.<\/p>\n<p>\tL\u00edka sem \u00fe\u00e1 \u00fe\u00fa r\u00e1\u00f0gast um vi\u00f0 nokkra konu hversu ma\u00f0ur skal vera vinsamlegur vi\u00f0 henanr \u00f3vinkonu, elligar vi\u00f0 ragan mann, hvernin berjast skal, e\u00f0a vi\u00f0 einn kaupmann, hva\u00f0 miki\u00f0 hann vill reikna \u00fe\u00edna v\u00f6ru hj\u00e1 sinni, e\u00f0ur vi\u00f0 einn kaupanda, hversu d\u00fdrt \u00fe\u00fa skulir selja, e\u00f0ur vi\u00f0 einn n\u00ed\u00f0ing, hvernin ma\u00f0ur skal gj\u00f6ra gott af s\u00e9r, e\u00f0ur vi\u00f0 einn \u00f3miskunnsaman man, hvernin mann skuli n\u00e1\u00f0 s\u00fdna, e\u00f0a einn letingja um miki\u00f0 starf, e\u00f0ur einn leigudreng s\u00e1 hvergi hefur heimili, hversu tr\u00falega mann skal vinna \u00e1sett verk, e\u00f0ur einn latan vinnumann um mikla \u00fatvegu.<\/p>\n<p>\tLeita eigi r\u00e1\u00f0s vi\u00f0 svoddan f\u00f3lk heldur halt \u00feig jafnan til gu\u00f0hr\u00e6ddra manna, \u00feeirra sem \u00fe\u00fa veist a\u00f0 Gu\u00f0s bo\u00f0or\u00f0 halda, \u00feeir sinna\u00f0ir eru svo sem \u00fe\u00fa ert, \u00feeir e\u00f0 me\u00f0 \u00fe\u00e9r samharma ef a\u00f0 \u00fe\u00fa rasar, og haf \u00fe\u00fa \u00feeirra r\u00e1\u00f0 \u00fev\u00ed \u00fe\u00fa munt ekkert betra r\u00e1\u00f0 finna. Og einn \u00fev\u00edl\u00edkur ma\u00f0ur kann oftsinnis betur a\u00f0 sj\u00e1 \u00fev\u00edl\u00edkt en sj\u00f6 nj\u00f3snarmenn er sitja upp \u00e1 var\u00f0haldsh\u00e6\u00f0. \u00de\u00f3 um allt \u00feetta \u00e1kalla Hinn h\u00e6sta a\u00f0 hann \u00fe\u00ednar gj\u00f6r\u00f0ir vel grei\u00f0i og eigi breg\u00f0ast l\u00e1ti. <\/p>\n<p>\t\u00c1\u00f0ur en \u00fe\u00fa byrjar nokku\u00f0 so spyrstu fyrir og \u00e1\u00f0ur en \u00fe\u00fa gj\u00f6rir nokku\u00f0 haf \u00fear r\u00e1\u00f0 vi\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 hvar sem menn hafa n\u00fdtt fyrir hendi \u00fear hl\u00fdtur eitt af fj\u00f3rum a\u00f0 ske: A\u00f0 \u00fea\u00f0 ver\u00f0i gott e\u00f0ur illt, a\u00f0 l\u00edf e\u00f0ur dau\u00f0i \u00fear af komi, og \u00feessu \u00f6llu st\u00fdrir tungan \u00e6t\u00ed\u00f0.<\/p>\n<p>\tMargur er vel skikka\u00f0ur til \u00f6\u00f0rum m\u00f6nnum r\u00e1\u00f0 a\u00f0 leggja og er s\u00e9r sj\u00e1lfum til einskis n\u00fdtur.<\/p>\n<p>\tMargur vill kl\u00f3klega r\u00e1\u00f0leggja og menn heyra \u00fea\u00f0 ekki gjarna og bl\u00edfur \u00feurfandi \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hefur \u00fear ekki n\u00e1\u00f0 til af Drotni og engin viska er \u00ed honum.<\/p>\n<p>\tMargur er v\u00eds af eiginlegri reynslu, hann gj\u00f6rir gagn me\u00f0 s\u00ednu r\u00e1\u00f0i og \u00e1hittir \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>\tEinn hygginn ma\u00f0ur kann a\u00f0 undirv\u00edsa s\u00ednu f\u00f3lki og hann gj\u00f6rir gagn me\u00f0 s\u00ednu r\u00e1\u00f0i og \u00e1hittir \u00fea\u00f0 r\u00e9tt.<\/p>\n<p>\tEinn vitur ma\u00f0ur ver\u00f0ur mj\u00f6g lofa\u00f0ur og allir \u00feeir sem hann sj\u00e1 pr\u00edsa hann.<\/p>\n<p>\tHver og einn ma\u00f0ur hefur \u00e1kve\u00f0inn t\u00edma til a\u00f0 lifa en \u00cdsraels t\u00edmi hefur \u00f6ngva t\u00f6lu.<\/p>\n<p>\tEinn hygginn ma\u00f0ur hefur hj\u00e1 s\u00ednu f\u00f3lki miki\u00f0 \u00e1lit og hans nafn varir \u00e6vinlega.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXXVII. Kvi\u00f0urinn tekur alls konar f\u00e6\u00f0u til s\u00edn, \u00fe\u00f3 er ein f\u00e6\u00f0a betri en \u00f6nnur. L\u00edka sem tungan villubr\u00e1\u00f0sr\u00e9ttinn smakkar so merkir skynugt hjarta f\u00f6lsk or\u00f0. Einn prettv\u00eds mann kann einum \u00ed \u00f3lukku a\u00f0 koma en s\u00e1 sem er fors\u00f3ttur veit sig \u00fear fyrir a\u00f0 vakta. M\u00e6\u00f0urnar hafa alla sonu k\u00e6ra en \u00fe\u00f3 t\u00e9rast stundum ein d\u00f3ttir betur en sonur. Ein fr\u00ed\u00f0 kona gle\u00f0ur sinn mann og ma\u00f0urinn hefur \u00f6ngvan hlut elskara og s\u00e9 h\u00fan \u00fear me\u00f0 \u00e1st\u00fa\u00f0leg og g\u00f3\u00f0 so finnst ekki \u00feess manns l\u00edki. [ Hver eina h\u00fasfr\u00fa hefur hann f\u00e6rir fram s\u00edna eigu og hefur tr\u00faa hj\u00e1lp <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-37-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3725","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3725","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3725"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3725\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3725"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}