{"id":3721,"date":"2017-12-18T18:34:32","date_gmt":"2017-12-18T18:34:32","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-33-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:32","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:32","slug":"siraksbok-33-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-33-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00edraksb\u00f3k 33. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXXIII.<\/p>\n<p>Hver hann \u00f3ttast Drottin s\u00e1 l\u00e6tur s\u00e9r gjarna segjast og hver s\u00e9r snemma \u00fear til heldur mun n\u00e1\u00f0 finna.<\/p>\n<p>\tHver hann grennslast eftir Gu\u00f0s or\u00f0i s\u00e1 mun \u00fea\u00f0 gn\u00f3glega \u00f6\u00f0last en s\u00e1 sem \u00fea\u00f0 meinar ekki me\u00f0 alv\u00f6ru ver\u00f0ur eigi utan verri \u00fear fyrir. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hirting\">[<\/span>  <\/p>\n<p>\tHver hann \u00f3ttast Drottin s\u00e1 hittir \u00e1 r\u00e9ttan l\u00e6rd\u00f3m og l\u00e6tur r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 l\u00fdsa so sem lj\u00f3s.<\/p>\n<p>\tEinn \u00f3gu\u00f0r\u00e6kur mann l\u00e6tur sig ekki \u00e1v\u00edta og veit s\u00e9r a\u00f0 hj\u00e1lpa me\u00f0 annarra manna d\u00e6mum \u00fe\u00e1 hann illt gj\u00f6rir. <\/p>\n<p>\tEinn skynsamur ma\u00f0ur forsm\u00e1nar eigi g\u00f3\u00f0 r\u00e1\u00f0 en einn galinn ma\u00f0ur og drambl\u00e1tur \u00f3ttast s\u00edn ekki \u00fe\u00f3 hann hafi og gj\u00f6rt hva\u00f0 illt hann vill.<\/p>\n<p>\tGj\u00f6r ekki neitt utan r\u00e1\u00f0, so i\u00f0rar \u00feig \u00feess ekki eftir verki\u00f0.<\/p>\n<p>\tGakk eigi \u00feann veg a\u00f0 \u00fe\u00fa megir falla e\u00f0a \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fa megir \u00feig \u00e1 steinum mei\u00f0a.<\/p>\n<p>\tTreystu eigi \u00fear \u00e1 a\u00f0 vegurinn s\u00e9 sl\u00e9ttur, j\u00e1, vara \u00feig og einnin fyrir \u00fe\u00ednum eigin b\u00f6rnum.<\/p>\n<p>\tHva\u00f0 sem \u00fe\u00fa uppbyrjar treystu Gu\u00f0i af \u00f6llu hjarta \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er Gu\u00f0s bo\u00f0or\u00f0 a\u00f0 halda.<\/p>\n<p>\tHver hann tr\u00fair Gu\u00f0s or\u00f0i hann athugar bo\u00f0or\u00f0in og s\u00e1 sem treystir Drottni \u00feeim mun einskis vant. <\/p>\n<p>\tHver hann \u00f3ttast Gu\u00f0 hann mun ekki neitt vont ske heldur \u00feegar hann ver\u00f0ur freista\u00f0ur so mun hann a\u00f0 n\u00fdju frelstur ver\u00f0a. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0s \u00f3tti\">[<\/span><\/p>\n<p>\tEinn vitur ma\u00f0ur l\u00e6tur sig eigi fr\u00e1 Gu\u00f0s or\u00f0i lei\u00f0a en einn hr\u00e6snari riggar l\u00edka sem skip \u00e1 \u00f3kyrrum sj\u00f3. Einn skilningsfullur mann heldur fast \u00e1 Gu\u00f0s or\u00f0i og Gu\u00f0s or\u00f0 er honum v\u00edst l\u00edka sem lj\u00f3s r\u00e6\u00f0a.<\/p>\n<p>\tVertu v\u00eds efnisins og tala \u00fear s\u00ed\u00f0an af. L\u00e1ttu undirv\u00edsa \u00fe\u00e9r, svo kanntu a\u00f0 svara.<\/p>\n<p>\tF\u00e1v\u00edss manns hjarta er so sem hj\u00f3l \u00e1 vagni og hans hugsanir hlaupa um kring l\u00edka sem hj\u00f3lvinda.<\/p>\n<p>\tL\u00edka svo sem gra\u00f0hesturinn hneggjar \u00ed m\u00f3t \u00f6llum hrossunum so samlagar hr\u00e6snarinn sig \u00f6llum h\u00e1\u00f0gj\u00f6rnum m\u00f6nnum og segir: &#8222;Hvar fyrir er einn dagur helgari en annar \u00fear a\u00f0 s\u00f3lin gj\u00f6rir svo vel einn dag \u00ed \u00e1rinu sem annan?&#8220;<\/p>\n<p>\tViska Drottins hefur \u00fe\u00f3 so sundurgreint og hann hefur \u00e1rt\u00ed\u00f0irnar sundugreint og helgih\u00f6ld so tilsett. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0s speki\">[<\/span> Hann hefur suma \u00fatvali\u00f0 og helga\u00f0 fyrir \u00f6\u00f0rum d\u00f6gum. L\u00edka so sem allir menn af j\u00f6r\u00f0unni og Adam af jar\u00f0arleiri er skapa\u00f0ur og \u00fe\u00f3 hefur Drottinn \u00fe\u00e1 sundurgreint eftir s\u00ednum margf\u00f6ldum v\u00edsd\u00f3mi og hefur margkyns h\u00e1ttu \u00feeirra \u00e1 me\u00f0al skikka\u00f0. Nokkra hefur hann blessa\u00f0, hafi\u00f0 og helga\u00f0 og til sinnar \u00fej\u00f3nustu krafi\u00f0 en sumum hefur hann b\u00f6lva\u00f0 og ni\u00f0ra\u00f0 og fr\u00e1 \u00feeirra st\u00e9tt kollvarpa\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir eru \u00ed hans hendi so sem l\u00edmi\u00f0 \u00ed leirkerasmi\u00f0sins hendi. Hann gj\u00f6rir \u00f6ll s\u00edn verk sem honum l\u00edkar. L\u00edka svo eru og mennirnir \u00ed hendi \u00feess sem \u00fe\u00e1 hefur gj\u00f6rt og gefur s\u00e9rhverjum eftir \u00fev\u00ed sem honum gott s\u00fdnist. Svo er \u00fea\u00f0 g\u00f3\u00f0a \u00ed gegn illu og l\u00edfi\u00f0 \u00ed gegn dau\u00f0anum og gu\u00f0hr\u00e6ddur ma\u00f0ur \u00ed m\u00f3ti \u00f3gu\u00f0hr\u00e6ddum settur. Me\u00f0 \u00feessu m\u00f3ti l\u00edttu \u00e1 \u00f6ll verk Hins h\u00e6\u00f0sta, so er jafnan tvennt \u00ed m\u00f3ti tvennu og eitt \u00f6\u00f0ru \u00ed m\u00f3ti sett.<\/p>\n<p>\tEg er seinastur uppvakna\u00f0ur sem nokkur s\u00e1 e\u00f0 eftir <span class=\"athugasemd\" title=\"c Les) \/ Eg hefi gefi\u00f0 gott svar upp \u00e1 \u00fev\u00edl\u00edka heimskra manna r\u00e6\u00f0u af helgum d\u00f6gum\">[<\/span> les \u00e1 haustt\u00edma og Gu\u00f0 hefur m\u00e9r blessan gefi\u00f0 a\u00f0 eg hefi og so m\u00edna v\u00edn\u00fer\u00fagu uppfyllt, l\u00edka sem \u00e1 fullu hausti. Sj\u00e1i\u00f0, eg hefi eigi fyrir mig arfi\u00f0a\u00f0 heldur fyrir alla \u00fe\u00e1 sem gjarna vildu l\u00e6ra.<\/p>\n<p>\tHeyri\u00f0 m\u00e9r, \u00fe\u00e9r st\u00f3rherrar, og stj\u00f3rnendur me\u00f0 f\u00f3lkinu, taki\u00f0 \u00fea\u00f0 til hjarta. <span class=\"athugasemd\" title=\"H\u00fasstj\u00f3rnan\">[<\/span> L\u00e1t soninn, eiginkonuna, br\u00f3\u00f0urinn og \u00fe\u00e9r skyldan \u00f6ngva magt yfir \u00fe\u00e9r hafa \u00e1 me\u00f0an \u00fe\u00fa lifir og yfirgef \u00f6ngvum \u00fe\u00edna eign so a\u00f0 \u00feig i\u00f0ri \u00feess ekki og hlj\u00f3tir \u00fe\u00fa \u00feau \u00fear fyrir a\u00f0 bi\u00f0ja. \u00c1 me\u00f0an \u00fe\u00fa lifir og dregur \u00f6nd so undirgef \u00feig \u00f6ngvum manni. \u00dea\u00f0 er betra a\u00f0 \u00fe\u00edn b\u00f6rn \u00feurfi \u00fe\u00edn vi\u00f0 heldur en \u00fe\u00fa hlj\u00f3tir \u00feeim \u00ed hendur a\u00f0 sj\u00e1. Vertu h\u00f6f\u00f0ingi \u00ed \u00fe\u00ednum au\u00f0\u00e6fum og l\u00e1t \u00feinn hei\u00f0ur ekki fr\u00e1 \u00fe\u00e9r taka. \u00deegar kemur \u00feitt endad\u00e6gur a\u00f0 \u00fe\u00fa hl\u00fdtur \u00fea\u00f0an \u00ed burt fr\u00e1 a\u00f0 fara skiptu \u00fe\u00e1 \u00feinni eigu.<\/p>\n<p>\tAsnanum heyrir sitt f\u00f3\u00f0ur, svipa og byr\u00f0i, so og \u00fer\u00e6lnum sitt brau\u00f0, str\u00f6ffun og erfi\u00f0i. Haltu \u00fer\u00e6li \u00fe\u00ednum til erfi\u00f0is, so hefur \u00fe\u00fa n\u00e1\u00f0 fyrir honum. En l\u00e1tir \u00fe\u00fa hann vera i\u00f0julausan so vill hann vera einn j\u00f3nk\u00e6ri.<\/p>\n<p>\tOk og b\u00f6nd beygja h\u00e1lsinn en vondan \u00fer\u00e6l stokkur og keyri. Rektu hann til erfi\u00f0is a\u00f0 hann gangi ekki i\u00f0julaus. I\u00f0juleysi kennir margt illt. Legg \u00e1 hann erfi\u00f0i \u00fea\u00f0 einum \u00fer\u00e6li tilheyrir. Hl\u00fd\u00f0ir hann \u00fe\u00e1 enn eigi, so set hann \u00ed stokk. En \u00fe\u00f3 legg\u00f0u ekki \u00e1 neinn of miki\u00f0 og halt h\u00f3fi um alla hluti.<\/p>\n<p>\tHafir \u00fe\u00fa nokkurn \u00fe\u00e9nara so vernda \u00fe\u00fa hann sem sj\u00e1lfan \u00feig \u00fev\u00ed a\u00f0 hver honum gj\u00f6rir nokku\u00f0 hann meinar \u00feinn l\u00edkama og l\u00edf. Hafir \u00fe\u00fa einn \u00fe\u00e9nara so l\u00e1ttu hann halda r\u00e9tt sem \u00fe\u00fa v\u00e6rir n\u00e1l\u00e6gur \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00fearft hans vi\u00f0 so sem \u00fe\u00edns eigin l\u00edfs.<\/p>\n<p>\tEn ef \u00fe\u00fa heldur hann eigi vel so hann tekur sig upp og hleypur fr\u00e1 \u00fe\u00e9r, hvert viltu hans \u00fe\u00e1 leita?<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXXIII. Hver hann \u00f3ttast Drottin s\u00e1 l\u00e6tur s\u00e9r gjarna segjast og hver s\u00e9r snemma \u00fear til heldur mun n\u00e1\u00f0 finna. Hver hann grennslast eftir Gu\u00f0s or\u00f0i s\u00e1 mun \u00fea\u00f0 gn\u00f3glega \u00f6\u00f0last en s\u00e1 sem \u00fea\u00f0 meinar ekki me\u00f0 alv\u00f6ru ver\u00f0ur eigi utan verri \u00fear fyrir. [ Hver hann \u00f3ttast Drottin s\u00e1 hittir \u00e1 r\u00e9ttan l\u00e6rd\u00f3m og l\u00e6tur r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 l\u00fdsa so sem lj\u00f3s. Einn \u00f3gu\u00f0r\u00e6kur mann l\u00e6tur sig ekki \u00e1v\u00edta og veit s\u00e9r a\u00f0 hj\u00e1lpa me\u00f0 annarra manna d\u00e6mum \u00fe\u00e1 hann illt gj\u00f6rir. Einn skynsamur ma\u00f0ur forsm\u00e1nar eigi g\u00f3\u00f0 r\u00e1\u00f0 en einn galinn ma\u00f0ur og drambl\u00e1tur \u00f3ttast s\u00edn ekki \u00fe\u00f3 hann <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-33-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3721","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3721","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3721"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3721\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3721"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}