{"id":3715,"date":"2017-12-18T18:34:28","date_gmt":"2017-12-18T18:34:28","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-27-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:28","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:28","slug":"siraksbok-27-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-27-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00edraksb\u00f3k 27. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXVII.<\/p>\n<p>Tveir hlutir eru \u00feeir sem m\u00e9r misl\u00edka og s\u00e1 hinn \u00feri\u00f0ji gj\u00f6rir mig rei\u00f0an: \u00deegar menn l\u00e1ta einn str\u00ed\u00f0smann me\u00f0 seinsta f\u00e1t\u00e6kt \u00feola og hyggin r\u00e1\u00f0uneyti me\u00f0 seinsta for\u00f6ktu\u00f0 ver\u00f0a og s\u00e1 sem gengur af r\u00e9ttri tr\u00fa til rangrar tr\u00faar, \u00feennan hefur Gu\u00f0 undir sver\u00f0i\u00f0 fyrird\u00e6mt.<\/p>\n<p>\tEinn kaupma\u00f0ur kann s\u00edn trau\u00f0lega a\u00f0 g\u00e6ta fyrir rangindum og einn kramari fyrir syndum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Kaupmenn \/ Kramarar\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 fyrir peninga gj\u00f6ra margir rangt og \u00feeir sem r\u00edkir vilja vera l\u00edta fr\u00e1 <span class=\"athugasemd\" title=\"a Augunum) \/ \u00dea\u00f0 er, \u00feeir hafa ekki g\u00e1t \u00e1 viskunni, e\u00f0ur \u00feeir gj\u00f6ra s\u00e9r \u00f6ngva samvisku\">[<\/span> augunum. L\u00edka sem einn nagli stendur \u00ed m\u00farvegg \u00e1 milli tveggja steina so og l\u00edka stingst syndin \u00ed millum \u00feess er kaupir og selur. Geymi hann s\u00edn eigi me\u00f0 g\u00e6tni \u00ed \u00f3tta Drottins \u00fe\u00e1 mun hans h\u00fas flj\u00f3tlega ni\u00f0urbroti\u00f0 ver\u00f0a.<\/p>\n<p>\t\u00deegar menn sigta so bl\u00edfa \u00f3kl\u00e1rindin eftir \u00ed s\u00e1ldinu. So og hva\u00f0 sem ma\u00f0urinn \u00e1formar, \u00fear lo\u00f0ir nokkur saur vi\u00f0.<\/p>\n<p>\tL\u00edka so sem ofninn reynir n\u00fdja leirpotta so reynir m\u00f3tgangurinn mannsins sinni. <span class=\"athugasemd\" title=\"M\u00f3tgangur\">[<\/span><\/p>\n<p>\tAf \u00e1vextinum marka menn hvernin a\u00f0 tr\u00e9sins er g\u00e6tt. L\u00edka so taka menn til marks \u00e1 m\u00e1linu hvernin h\u00e1ttar er hjartanu.<\/p>\n<p>\t\u00d6ngvan skaltu lofa \u00e1\u00f0ur en \u00fe\u00fa hefur heyrt hann \u00fev\u00ed a\u00f0 af or\u00f0unum m\u00e1ttu kenna manninn.<\/p>\n<p>\tEf \u00fe\u00fa eftir fylgir r\u00e9ttl\u00e6tinu muntu f\u00e1 \u00fea\u00f0 og \u00edkl\u00e6\u00f0ast \u00fev\u00ed so sem v\u00e6num stakki.<\/p>\n<p>\tFuglarnir samlaga sig vi\u00f0 s\u00edna l\u00edka, so heldur sannleikurinn til samans vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sem honum hl\u00fd\u00f0a.<\/p>\n<p>\tL\u00edka sem le\u00f3ni\u00f0 umsitur br\u00e1\u00f0ina so gr\u00edpur syndin me\u00f0 seinsta illgj\u00f6r\u00f0amanninn.<\/p>\n<p>\tEinn gu\u00f0hr\u00e6ddur ma\u00f0ur talar \u00e1vallt \u00fea\u00f0 heiln\u00e6mt er en einn afglapi umbreytist svo sem m\u00e1ni.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 \u00fe\u00fa ert me\u00f0 heimskum m\u00f6nnum \u00fe\u00e1 hugsa \u00fe\u00fa hva\u00f0 t\u00edmanum l\u00ed\u00f0ur en \u00e1 me\u00f0al vitra manna m\u00e1ttu \u00e1fram halda.<\/p>\n<p>\tHeimskra manna tal er mj\u00f6g lei\u00f0inlegt og \u00feeirra hl\u00e1tur er ekki nema synd og \u00feeir <span class=\"athugasemd\" title=\"b  Kitla) \/ \u00dea\u00f0 er, \u00fea\u00f0 er \u00feeim \u00f3s\u00e1rt \u00fe\u00f3 \u00feeir angri a\u00f0ra menn og \u00e6 ska\u00f0a \u00fe\u00e1\">[<\/span> kitla sig sj\u00e1lfa \u00fear me\u00f0.<\/p>\n<p>\tHvar menn heyra mikla svardaga \u00fear stendur h\u00e1ri\u00f0 \u00e1 einum andh\u00e6ris og \u00feeirra k\u00edf gj\u00f6rir \u00fea\u00f0 a\u00f0 menn ver\u00f0a fyrir eyrun a\u00f0 halda. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ei\u00f0ar\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tN\u00e6r e\u00f0 drambl\u00e1tir menn deila s\u00edn \u00e1 milli so fylgir bl\u00f3\u00f0s\u00fathelling \u00fear eftir og \u00fea\u00f0 er lei\u00f0inlegt a\u00f0 heyra \u00fe\u00e1 \u00feeir skammyr\u00f0ast svo.<\/p>\n<p>\tHver leynda hluti opinberar hann tapar tr\u00fanni og mun aldrei f\u00e1 tr\u00faan vin.<\/p>\n<p>\tHaf \u00feinn vin \u00ed hei\u00f0ri og halt vi\u00f0 hann tr\u00fa en ef \u00fe\u00fa opinberar hans leynda hluti \u00fe\u00e1 f\u00e6r \u00fe\u00fa hann ekki aftur.<\/p>\n<p>\tHver hann missir sinn vin honum gengur ei minna \u00ed m\u00f3ti en \u00feeim e\u00f0 sleppir s\u00ednum \u00f3vin. L\u00edka sem \u00fe\u00fa l\u00e1tir lausan fugl \u00far hendi \u00fe\u00e9r so er \u00fea\u00f0 og \u00feegar \u00fe\u00fa fyrirl\u00e6tur vin \u00feinn. \u00de\u00fa n\u00e1ir honum ekki aftur, \u00fe\u00fa \u00fearft eigi a\u00f0 hlaupa eftir honum, hann er of langt \u00ed burt, hann er burthlaupinn so sem villud\u00fdr \u00far neti. S\u00e1r mega menn binda og hr\u00f3pyr\u00f0i kunna menn a\u00f0 s\u00e6tta en s\u00e1 sem leynda hluti opinberar me\u00f0 \u00feeim er \u00fatgj\u00f6rt.<\/p>\n<p>\tHver hann bendir me\u00f0 augunum honum b\u00fdr nokku\u00f0 illt \u00ed skapi og l\u00e6tur ekki koma s\u00e9r \u00fear af. Fyrir \u00fe\u00e9r kann hann fagurt a\u00f0 tala og lofar mj\u00f6g \u00fea\u00f0sem \u00fe\u00fa talar en \u00e1 bak \u00fe\u00e9r talar hann anna\u00f0 og umsn\u00fdr \u00fe\u00ednum or\u00f0um. Eg em \u00f6ngvum hlut \u00fev\u00edl\u00edkur \u00f3vin sem \u00feessum og Drottinn er einnin hans \u00f3vinur.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXVII. Tveir hlutir eru \u00feeir sem m\u00e9r misl\u00edka og s\u00e1 hinn \u00feri\u00f0ji gj\u00f6rir mig rei\u00f0an: \u00deegar menn l\u00e1ta einn str\u00ed\u00f0smann me\u00f0 seinsta f\u00e1t\u00e6kt \u00feola og hyggin r\u00e1\u00f0uneyti me\u00f0 seinsta for\u00f6ktu\u00f0 ver\u00f0a og s\u00e1 sem gengur af r\u00e9ttri tr\u00fa til rangrar tr\u00faar, \u00feennan hefur Gu\u00f0 undir sver\u00f0i\u00f0 fyrird\u00e6mt. Einn kaupma\u00f0ur kann s\u00edn trau\u00f0lega a\u00f0 g\u00e6ta fyrir rangindum og einn kramari fyrir syndum. [ \u00dev\u00ed a\u00f0 fyrir peninga gj\u00f6ra margir rangt og \u00feeir sem r\u00edkir vilja vera l\u00edta fr\u00e1 [ augunum. L\u00edka sem einn nagli stendur \u00ed m\u00farvegg \u00e1 milli tveggja steina so og l\u00edka stingst syndin \u00ed millum \u00feess er kaupir <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-27-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3715","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3715","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3715"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3715\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3715"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}