{"id":3710,"date":"2017-12-18T18:34:28","date_gmt":"2017-12-18T18:34:28","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-23-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:28","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:28","slug":"siraksbok-23-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-23-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00edraksb\u00f3k 23. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXIII.<\/p>\n<p>\tEg vilda eg kyna l\u00e1s fyrir minn munn a\u00f0 setja og traust innsigli \u00e1 m\u00ednar varir a\u00f0 \u00ferykkja so a\u00f0 eg ei \u00fear fyrir til falls komi og m\u00edn tunga mig ei fordjarfi.<\/p>\n<p>\tDrottinn Gu\u00f0 fa\u00f0ir og herra m\u00edns l\u00edfs, l\u00e1t mig ekki \u00e1 milli lastaranna koma og l\u00e1t mig ei \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra tapast. Og \u00fea\u00f0 eg kynni m\u00ednar hugrenningar \u00ed taumi a\u00f0 halda og mitt hjarta me\u00f0 Gu\u00f0s or\u00f0i a\u00f0 aga og eg m\u00e9r eigi hl\u00edfi hvar eg misgj\u00f6r\u00f0a so a\u00f0 eg uppreista ekki nokkra synd og uppsetta nokkra villu og gj\u00f6r\u00f0a miki\u00f0 illt so a\u00f0 eg \u00feyrfti fyrir m\u00ednum \u00f3vinum eigi a\u00f0 fortapast e\u00f0a af \u00feeim h\u00e6ddur a\u00f0 ver\u00f0a. <span class=\"athugasemd\" title=\"B\u00e6n Jes\u00fa S\u00edrak\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tDrottinn Gu\u00f0 fa\u00f0ir og herra m\u00edns l\u00edfs, g\u00e6t \u00fe\u00fa m\u00edn fyrir \u00f3h\u00e6versku \u00e1liti og v\u00edk fr\u00e1 m\u00e9r allri vondri lyst. L\u00e1t mig eigi falla \u00ed ofneyslu og saurlifna\u00f0 og geym m\u00edn fyrir \u00f3skammfullu hjarta. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00d3skammfullu) \/ \u00fea\u00f0 er, s\u00e1 sem ekki kann a\u00f0 skammast s\u00edn\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tK\u00e6ri synir, l\u00e6ri\u00f0 a\u00f0 halda munninum \u00fev\u00ed hver honum heldur s\u00e1 forsj\u00e9r sig eigi \u00ed or\u00f0unum so sem \u00feeir hinir \u00f3gu\u00f0hr\u00e6ddu, h\u00e1\u00f0gj\u00f6rnu og drambs\u00f6mu \u00fear fyrir falla. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00de\u00f6gn\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tVen \u00feinn munn ekki til a\u00f0 sverja og vi\u00f0 Gu\u00f0s nafn a\u00f0 leggja \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00edka sem s\u00e1 \u00fer\u00e6ll sem oft ver\u00f0ur str\u00fdktur er ekki utan benjar so kann ekki heldur s\u00e1 hreinn af syndum a\u00f0 vera sem oftsinnis sver og Gu\u00f0s nafn vi\u00f0 leggur. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ei\u00f0ar\">[<\/span><\/p>\n<p>\tHver sem sver oftlega s\u00e1 syndgar oftlega og pl\u00e1gan mun eigi haf hans h\u00fasi ganga. \u00de\u00f3 hann sverji og skilji ekki syndgar hann \u00fe\u00f3 ekki a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur. En ef hann skilur og skeytir ei \u00fear um \u00fe\u00e1 syndgar hann tvelfaldlega. En sverji hann til <span class=\"athugasemd\" title=\"a \u00d3n\u00fdtis \/ Fyrir utan n\u00e1ungsins ska\u00f0a\">[<\/span> \u00f3n\u00fdtis er hann eigi \u00e1n syndar a\u00f0 heldur, hans h\u00fas mun har\u00f0lega hegnt ver\u00f0a.<\/p>\n<p>\t\u00dear er ein dau\u00f0leg <span class=\"athugasemd\" title=\"b B\u00f6lvan) \/ E\u00f0ur bl\u00f3t \u00fe\u00e1 hei\u00f0nir menn sverja vi\u00f0 afgu\u00f0i s\u00edna\">[<\/span> b\u00f6lvan, \u00fear fyrir geymi Gu\u00f0 h\u00fas Jakobs og \u00feeir inu gu\u00f0hr\u00e6ddu for\u00f0ast soddan og saurga sig ekki me\u00f0 sl\u00edkri synd.<\/p>\n<p>\tVen ekki \u00feinn munn til a\u00f0 sverja vi\u00f0 hvert or\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fea\u00f0 kemur af illu upps\u00e1tri. <\/p>\n<p>\tGleym ekki \u00fe\u00edns f\u00f6\u00f0urs og \u00feinnar m\u00f3\u00f0ur kenningu, \u00fe\u00e1 muntu \u00e1 milli herramanna sitja og \u00fe\u00e9r mun ekki gleymt ver\u00f0a, so \u00fe\u00fa venjir \u00feig ekki til heimskunnar og me\u00f0 seinasta vildir \u00fe\u00fa a\u00f0 \u00fe\u00fa hef\u00f0ir ei f\u00e6ddur veri\u00f0 og b\u00f6lvar degi \u00feinnar f\u00e6\u00f0ingar.<\/p>\n<p>\tHver sig venur til <span class=\"athugasemd\" title=\"c H\u00e6\u00f0ni) \/ A\u00f0 bakm\u00e6la og a\u00f0ra men a\u00f0 d\u00e6ma\">[<\/span> h\u00e6\u00f0ni s\u00e1 b\u00e6tir sig ekki s\u00edna l\u00edfdaga. <span class=\"athugasemd\" title=\"H\u00e6\u00f0ni\">[<\/span> \u00cd annan t\u00edma er ofmiki\u00f0 a\u00f0 syndga, \u00ed \u00feri\u00f0ja sinn f\u00e6rir \u00fea\u00f0 me\u00f0 s\u00e9r hefndarp\u00ednuna.<\/p>\n<p>\tHver hann \u00ed brunanum er fanginn hann er sem annar gl\u00f3andi eldur og h\u00e6ttir ekki allt \u00fear til hann brennir sig sj\u00e1lfur.<\/p>\n<p>\tEinn lostasamur ma\u00f0ur hefur \u00f6ngva r\u00f3 \u00e1 s\u00ednum l\u00edkama \u00fear til hann einn eld uppkveikir. <span class=\"athugasemd\" title=\"Lostasemi\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tSaurl\u00edfum manni er allur matur <span class=\"athugasemd\" title=\"d S\u00e6tur) \/ \u00dea\u00f0 er, hann tekur hva\u00f0 hann kann f\u00e1 oft, einn lei\u00f0inlegan saursekk, heldur en eiginkonu s\u00edna\">[<\/span> s\u00e6tur og hann h\u00e6ttir ei fyrr en hann fullgj\u00f6rir. <\/p>\n<p>\tEinn ma\u00f0ur s\u00e1 h\u00f3rd\u00f3m dr\u00fdgir og hugsar me\u00f0 sj\u00e1lfum s\u00e9r: <span class=\"athugasemd\" title=\"H\u00f3rd\u00f3mur\">[<\/span> &#8222;Hver s\u00e9r mig? \u00dea\u00f0 er myrkt yfir m\u00e9r og veggirnir leyna m\u00e9r so enginn s\u00e9r mig. Hvern skal eg for\u00f0ast? S\u00e1 Hinn allra h\u00e6\u00f0sti skeytir ekki m\u00ednum syndum.&#8220; Einn svoddan ma\u00f0ur for\u00f0ast a\u00f0eins mannanna augu og hugsar ekki a\u00f0 augu Drottins eru miklu sk\u00e6rri en s\u00f3lin og sj\u00e1 allt \u00fea\u00f0 sem mennirnir gj\u00f6ra, og so einnin \u00ed heimugleg fylsni. Allir hlutir eru honum kunnugir fyrr en \u00feeir ver\u00f0a skapa\u00f0ir, jafnvel og \u00fe\u00e1 \u00feeir eru skapa\u00f0ir. S\u00e1 sami ma\u00f0ur mun opinberlega \u00ed sta\u00f0num straffa\u00f0ur ver\u00f0a so hann mun gripinn ver\u00f0a \u00fe\u00e1 hann sj\u00e1lfan sem minnst varir. <\/p>\n<p>\tSo mun \u00fea\u00f0 og ganga \u00feeirri konu sem sinn mann forl\u00e6tur og einn erfingja vi\u00f0 \u00f6\u00f0rum getur. Fyrst er h\u00fan Gu\u00f0s bo\u00f0or\u00f0i \u00f3hl\u00fd\u00f0in, \u00ed annan m\u00e1ta syndgast h\u00fan \u00ed m\u00f3ti s\u00ednum manni, \u00ed \u00feri\u00f0ju grein \u00e1 h\u00fan b\u00f6rn \u00ed h\u00f3rd\u00f3mi vi\u00f0 \u00f6\u00f0rum manni. \u00deessa munu menn af s\u00f6fnu\u00f0inum \u00fatreka og hennar b\u00f6rn hlj\u00f3ta hennar a\u00f0 gjalda. Hennar b\u00f6rn munu ekki r\u00f3tfestast og hennar kvistir munu \u00f6ngvan \u00e1v\u00f6xt bera. H\u00fan l\u00e6tur b\u00f6lva\u00f0a minning eftir og hennar sk\u00f6mm mun aldrei afm\u00e1st. \u00dear af l\u00e6ra eftirkomendurnir a\u00f0 ekki neitt s\u00e9 betra en \u00f3ttast Gu\u00f0 og ekkert s\u00e6tara en upp \u00e1 Gu\u00f0s bo\u00f0 a\u00f0 stunda.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXIII. Eg vilda eg kyna l\u00e1s fyrir minn munn a\u00f0 setja og traust innsigli \u00e1 m\u00ednar varir a\u00f0 \u00ferykkja so a\u00f0 eg ei \u00fear fyrir til falls komi og m\u00edn tunga mig ei fordjarfi. Drottinn Gu\u00f0 fa\u00f0ir og herra m\u00edns l\u00edfs, l\u00e1t mig ekki \u00e1 milli lastaranna koma og l\u00e1t mig ei \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra tapast. Og \u00fea\u00f0 eg kynni m\u00ednar hugrenningar \u00ed taumi a\u00f0 halda og mitt hjarta me\u00f0 Gu\u00f0s or\u00f0i a\u00f0 aga og eg m\u00e9r eigi hl\u00edfi hvar eg misgj\u00f6r\u00f0a so a\u00f0 eg uppreista ekki nokkra synd og uppsetta nokkra villu og gj\u00f6r\u00f0a miki\u00f0 illt so a\u00f0 eg <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-23-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3710","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3710","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3710"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3710\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3710"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}