{"id":3688,"date":"2017-12-18T18:34:24","date_gmt":"2017-12-18T18:34:24","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-1-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:24","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:24","slug":"siraksbok-1-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-1-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00edraksb\u00f3k 1. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Form\u00e1li Jes\u00fa S\u00edrak yfir s\u00edna b\u00f3k<\/p>\n<p>Margir og miklir menn hafa oss v\u00edsd\u00f3m \u00fat af l\u00f6gm\u00e1linu, sp\u00e1m\u00f6nnunum og \u00f6\u00f0rum sem \u00feeim sj\u00e1lfum eftir fylgt hafa kunnan gj\u00f6rt. \u00dear af mega menn \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0 maklega lofa sakir \u00feeirra visku og l\u00e6rd\u00f3ms. \u00dear fyrir skulu \u00feeir allir sem hana hafa og lesa ekki alleina \u00fear \u00fat af v\u00edsir ver\u00f0a heldur og einnin \u00f6\u00f0rum \u00fe\u00e9na me\u00f0 l\u00e6rd\u00f3mi og skrifi.<\/p>\n<p>\tMinn afi, Jes\u00fas, eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 hann sig s\u00e9rlega i\u00f0ka\u00f0i til a\u00f0 lesa l\u00f6gm\u00e1lsins, sp\u00e1mannanna og a\u00f0rar fleiri b\u00e6kur \u00fe\u00e6r sem oss af vorum fe\u00f0rum eftirl\u00e1tnar voru og sem hann haf\u00f0i sig \u00fear vel inni i\u00f0ka\u00f0, lag\u00f0i hann fyrir sig nokku\u00f0 a\u00f0 skrifa af v\u00edsd\u00f3mi og g\u00f3\u00f0um si\u00f0um so a\u00f0 \u00feeir hinir s\u00f6mu sem gjarna vildu l\u00e6ra og hyggnir ver\u00f0a yr\u00f0i \u00feess skynsamari og skikkanlegri til gott l\u00edferni fram a\u00f0 f\u00e6ra.<\/p>\n<p>\t\u00dear fyrir bi\u00f0 eg a\u00f0 \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 \u00feetta vinsamlega me\u00f0taka og me\u00f0 g\u00e1ti lesa og so halda oss til g\u00f3\u00f0a \u00fe\u00f3tt v\u00e9r kunnum ekki so vel a\u00f0 tala sem hinir v\u00ed\u00f0fr\u00e6gu or\u00f0snillingar. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00ed ebresku m\u00e1li er skrifa\u00f0 \u00fea\u00f0 hl\u00fd\u00f0ir ekki svo vel \u00feegar menn sn\u00faa \u00fev\u00ed \u00ed anna\u00f0 m\u00e1l, ekki alleinasta \u00feessi m\u00edn b\u00f3k heldur og fleiri l\u00f6gm\u00e1lsins og sp\u00e1mannanna og a\u00f0rar b\u00e6kur hlj\u00f3\u00f0a langtum \u00f6\u00f0ruv\u00eds en \u00fe\u00e6r ver\u00f0a \u00ed \u00feeirra m\u00e1li tala\u00f0ar.<\/p>\n<p>\tN\u00fa sem eg kom \u00ed Egyptaland \u00e1 \u00e1tta og \u00fer\u00edtuganda \u00e1ri, \u00e1 d\u00f6gum k\u00f3ngsins Ptolomei Euergetis, og alla m\u00edna l\u00edfdaga \u00fear inni var, f\u00e9kk eg t\u00edma til marga g\u00f3\u00f0a hluti \u00fear a\u00f0 lesa og skrifa. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ptolomeus Euergetes\">[<\/span> \u00dear fyrir s\u00fdndist m\u00e9r b\u00e6\u00f0i a\u00f0 vera gott og nytsamlegt a\u00f0 eg minni g\u00e6tni og m\u00e6\u00f0u \u00fear til venda\u00f0i og \u00feessa b\u00f3k \u00fatleg\u00f0a. Og af \u00fev\u00ed eg haf\u00f0i t\u00edma til arfi\u00f0a\u00f0i eg og sneri minni \u00e1stundan til a\u00f0 eg \u00feessa b\u00f3k \u00fatgj\u00f6r\u00f0a og \u00ed lj\u00f3s leidda so a\u00f0 \u00feeir framandi menn sem l\u00e6ra vilja venji sig til g\u00f3\u00f0ra si\u00f0a svo \u00feeir eftir l\u00f6gm\u00e1li Drottins lifa megi.<\/p>\n<p>Jes\u00fa S\u00edraks b\u00f3k<\/p>\n<p>I.<\/p>\n<p>Allur v\u00edsd\u00f3mur er af Gu\u00f0i Drottni og er me\u00f0 honum eil\u00edflega. <span class=\"athugasemd\" title=\"Allur v\u00edsd\u00f3mur er af Gu\u00f0i\">[<\/span><\/p>\n<p>\tHver hefur fyrir hugsa\u00f0 hversu margt sandkorn er \u00ed sj\u00f3num, hversu margir dropar \u00ed regninu eru og hversu margir dagar veraldarinnar ver\u00f0a skyldu? Hver hefur \u00e1\u00f0ur m\u00e6lt hversu h\u00e1r a\u00f0 himinninn er og hversu v\u00ed\u00f0 a\u00f0 j\u00f6r\u00f0in s\u00e9 og hversu dj\u00fapur a\u00f0 sj\u00f3rinn er? Hver hefur Gu\u00f0i nokkurn t\u00edma kennt hva\u00f0 hann skyldi gj\u00f6ra? \u00dev\u00ed a\u00f0 hans viska er yfir alla hluti fram.<\/p>\n<p>\tOr\u00f0 hins h\u00e6\u00f0sta Gu\u00f0s eru brunnur viskunnar og \u00fea\u00f0 eil\u00edfa bo\u00f0or\u00f0 er hennar uppspretta. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0s or\u00f0 er brunnur viskunnar\">[<\/span> Hver kynni elligar a\u00f0 vita hvernin mann skyldi v\u00edsd\u00f3m og kl\u00f3kleik \u00f6\u00f0last? Einn er allra h\u00e6\u00f0stur, skapari allra hluta, alm\u00e1ttigur, voldugur k\u00f3ngur og \u00f3gnarlegur, s\u00e1 upp \u00e1 s\u00ednum st\u00f3li situr, drottnandi Gu\u00f0. Hann hefur hana fyrir sinn heilagan anda kunngj\u00f6rt. Hann hefur alla hluti fyrirhuga\u00f0, vita\u00f0 og meti\u00f0 og hefur viskunni \u00fathellt yfir \u00f6ll s\u00edn verk og yfir allt hold eftir sinni n\u00e1\u00f0 og gefur hana \u00feeim sem elska hann. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0s or\u00f0 kennir a\u00f0 \u00f3ttast og elska Gu\u00f0\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00d3tti Drottins er d\u00fdr\u00f0 og hr\u00f3san, f\u00f6gnu\u00f0ur og fegur\u00f0ark\u00f3r\u00f3na. \u00d3tti Drottins er gj\u00f6rir hjarta\u00f0 glatt og gefur f\u00f6gnu\u00f0 og eil\u00edfa una\u00f0semd. Hver hann \u00f3ttast Drottin \u00feeim mun vel ganga \u00ed sinni s\u00ed\u00f0ustu ney\u00f0 og hann ver\u00f0ur endilega blessan haldandi. Gu\u00f0 a\u00f0 elska, \u00fea\u00f0 er s\u00fa in allra fegursta viska og hver sem hana s\u00e9r, s\u00e1 elskar hana \u00fea\u00f0 hann s\u00e9r hversu miklar d\u00e1semdir h\u00fan gj\u00f6rir.<\/p>\n<p>\t\u00d3tti Drottins er upphaf viskunnar og er h\u00fan \u00ed grunni hjartans einkanlega hj\u00e1 tr\u00fau\u00f0um og h\u00fan byggir alleina hj\u00e1 \u00fatv\u00f6ldum kvinnum og alleina finna menn hana hj\u00e1 r\u00e9ttl\u00e1tum og tr\u00fau\u00f0um. <span class=\"athugasemd\" title=\"S\u00e1l. cxi. \/ Prover. i.\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00d3tti Drottins er s\u00fa r\u00e9tta gu\u00f0s\u00fej\u00f3nusta. Hann geymir og gj\u00f6rir hjarta\u00f0 gott og gefur f\u00f6gnu\u00f0 og una\u00f0semd. <\/p>\n<p>\tHver sem Drottinn \u00f3ttast \u00feeim mun vel vegna og \u00feegar hann \u00fearf huggunar vi\u00f0 mun hann blessa\u00f0ur ver\u00f0a.<\/p>\n<p>\tGu\u00f0 a\u00f0 \u00f3ttast er s\u00fa viska sem a\u00f0 au\u00f0gar og allt gott me\u00f0 s\u00e9r f\u00e6rir. H\u00fan uppfyllir h\u00fasi\u00f0 me\u00f0 s\u00ednum g\u00e1fum og \u00f6ll herbergi me\u00f0 s\u00ednum thesaur.<\/p>\n<p>\t\u00d3tti Drottins er k\u00f3r\u00f3na viskunnar, gefandi n\u00f3glegan fri\u00f0 og heilsu.<\/p>\n<p>\t\u00deessi v\u00edsd\u00f3mur gj\u00f6rir r\u00e9tthyggna menn og s\u00e1 e\u00f0 fast \u00e1 honum heldur \u00feeim hj\u00e1lpar hann \u00fat me\u00f0 d\u00fdr\u00f0.<\/p>\n<p>\tDrottin a\u00f0 \u00f3ttast er r\u00f3t viskunnar og hennar greinir bl\u00f3mgast eil\u00edflega.<\/p>\n<p>\t\u00d3tti Drottins ver syndinni. \u00dev\u00ed a\u00f0 hver hann er fyrir utan \u00f3tta, s\u00e1 er ekki Gu\u00f0i \u00feekkur og hans ofmetna\u00f0ur mun honum umsteypa. En l\u00edtill\u00e1tur b\u00ed\u00f0ur \u00feess t\u00edma sem hann mun hugga \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00f3 hans s\u00f6k um stundarsakir ver\u00f0i undir\u00ferykkt munu \u00fe\u00f3 fr\u00f3mir menn hr\u00f3sa hans speki. <\/p>\n<p>\tGu\u00f0s or\u00f0 er \u00f3gu\u00f0r\u00e6kum manni andstyggilegt \u00fea\u00f0 \u00fea\u00f0 er spekinnar f\u00e9sj\u00f3\u00f0ur sem fyrir honum er leyndur.<\/p>\n<p>\tSon minn, viltu hygginn ver\u00f0a so l\u00e6r \u00fe\u00fa bo\u00f0or\u00f0in, \u00fe\u00e1 mun Gu\u00f0 \u00fe\u00e9r v\u00edsd\u00f3m gefa. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00f3tti Drottins er s\u00fa r\u00e9tta speki og h\u00e6verska og tr\u00fa og \u00feolinm\u00e6\u00f0i \u00fe\u00f3knast Gu\u00f0i vel.<\/p>\n<p>\tSj\u00e1 \u00fe\u00fa til a\u00f0 \u00feinn Gu\u00f0s \u00f3tti s\u00e9 engin hr\u00e6sni og \u00fej\u00f3na honum ekki me\u00f0 f\u00f6lsku hjarta. Leita einskis lofs hj\u00e1 m\u00f6nnum fyrir hr\u00e6sni og sj\u00e1 til hva\u00f0 \u00fe\u00fa talar, tr\u00fair e\u00f0ur a\u00f0hefst. Hreyk \u00fe\u00e9r ekki sj\u00e1lfum upp so a\u00f0 \u00fe\u00fa fallir ekki og skamma\u00f0ur ver\u00f0ir og Drottinn opinberi \u00fe\u00edn svik og steypi \u00fe\u00e9r berlega fyrir m\u00f6nnum \u00fear fyrir a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00ed s\u00f6nnum Gu\u00f0s \u00f3tta ekki \u00fej\u00f3na\u00f0 hefur og \u00feitt hjarta falskt veri\u00f0 hefur. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hr\u00e6sni\">[<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Form\u00e1li Jes\u00fa S\u00edrak yfir s\u00edna b\u00f3k Margir og miklir menn hafa oss v\u00edsd\u00f3m \u00fat af l\u00f6gm\u00e1linu, sp\u00e1m\u00f6nnunum og \u00f6\u00f0rum sem \u00feeim sj\u00e1lfum eftir fylgt hafa kunnan gj\u00f6rt. \u00dear af mega menn \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0 maklega lofa sakir \u00feeirra visku og l\u00e6rd\u00f3ms. \u00dear fyrir skulu \u00feeir allir sem hana hafa og lesa ekki alleina \u00fear \u00fat af v\u00edsir ver\u00f0a heldur og einnin \u00f6\u00f0rum \u00fe\u00e9na me\u00f0 l\u00e6rd\u00f3mi og skrifi. Minn afi, Jes\u00fas, eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 hann sig s\u00e9rlega i\u00f0ka\u00f0i til a\u00f0 lesa l\u00f6gm\u00e1lsins, sp\u00e1mannanna og a\u00f0rar fleiri b\u00e6kur \u00fe\u00e6r sem oss af vorum fe\u00f0rum eftirl\u00e1tnar voru og sem hann haf\u00f0i sig \u00fear vel inni <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/siraksbok-1-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3688","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3688","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3688"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3688\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3688"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}