{"id":3675,"date":"2017-12-18T18:34:20","date_gmt":"2017-12-18T18:34:20","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/speki-salomons-7-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:20","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:20","slug":"speki-salomons-7-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/speki-salomons-7-kafli\/","title":{"rendered":"Speki Sal\u00f3mons 7. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VII.<\/p>\n<p>Eg er ein dau\u00f0leg manneskja l\u00edka sem a\u00f0rir, f\u00e6ddur af slekti hins fyrsta manns, og eg er mynda\u00f0ur \u00ed kj\u00f6t samanrunni\u00f0 \u00ed bl\u00f3\u00f0 um t\u00edu m\u00e1nu\u00f0i af mannss\u00e6\u00f0i fyrir girnd \u00ed samr\u00e6\u00f0inu. Og eg f\u00e9kk einnin, \u00fe\u00e1 eg var f\u00e6ddur, minn andardr\u00e1tt af almennilegum vindi og eg fell einnin \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina sem oss alla ber og gr\u00e1turinn var mitt fyrsta hlj\u00f3\u00f0 l\u00edka sem allra annarra og eg er \u00ed reifum uppf\u00e6ddur me\u00f0 sorg, \u00fev\u00ed enginn k\u00f3nganna hefur anna\u00f0 f\u00e6\u00f0ingarupphaf heldur hafa \u00feeir allir eins inngang \u00ed \u00feetta l\u00edf og eins \u00fatgang.<\/p>\n<p>\t\u00dear fyrir ba\u00f0 eg og m\u00e9r var\u00f0 viskan gefin. <span class=\"athugasemd\" title=\"Spekin s\u00e1 besti og d\u00fdrm\u00e6tasti f\u00e9sj\u00f3\u00f0ur \/ Hiob xxvii.\">[<\/span> Eg kalla\u00f0i og spekinnar andi kom til m\u00edn. Og eg h\u00e9lt hana d\u00fdrm\u00e6tari en k\u00f3ngar\u00edkin og hertugad\u00f3mana og r\u00edkd\u00f3m h\u00e9lt eg einskisver\u00f0an hj\u00e1 henni. Eigi jafna\u00f0i eg henni vi\u00f0 nokkurn gimstein \u00fev\u00ed a\u00f0 allt gull er hj\u00e1 henni svo sem l\u00edtill sandur og silfur er hj\u00e1 henni a\u00f0 reikna svo sem saurindi. Eg elska\u00f0i hana meir en heilbrig\u00f0an og fagran l\u00edkama og eg \u00fatvaldi m\u00e9r hana til eins lj\u00f3ss \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e1 lj\u00f3mi sem af henni gengur hann slokknar ekki. Allt gott kom m\u00e9r me\u00f0 henni og \u00f3seganlegur r\u00edkd\u00f3mur \u00ed hennar hendi. Eg var gla\u00f0v\u00e6r \u00ed \u00f6llum hlutum. \u00dea\u00f0 ske\u00f0i af \u00fev\u00ed a\u00f0 spekin gekk fyrir m\u00e9r \u00ed \u00feeim s\u00f6mu. En eg vissi ekki a\u00f0 svoddan kom af henni til. Eg l\u00e6r\u00f0i \u00fea\u00f0 einfaldlega, r\u00edflega \u00fatskipti eg \u00fev\u00ed, eg vil ekki fela hennar r\u00edkd\u00f3m. \u00dev\u00ed a\u00f0 h\u00fan er manninum ein \u00f3\u00ferotnandi f\u00e9sj\u00f3\u00f0ur, hverjir hans neyta \u00feeir ver\u00f0a Gu\u00f0s vinir og eru \u00feakkn\u00e6milegir \u00fear fyrir a\u00f0 \u00feeim er gefi\u00f0 a\u00f0 l\u00e1ta undirv\u00edsa s\u00e9r.<\/p>\n<p>\tGu\u00f0 gaf m\u00e9r hyggilega a\u00f0 tala og a\u00f0 hugsa r\u00e9ttilega eftir sl\u00edkum spekinnar g\u00e1fum. \u00dev\u00ed a\u00f0 hann er s\u00e1 sem lei\u00f0ir \u00e1 spekinnar vegu og s\u00e1 sem stj\u00f3rnar \u00feeim inu v\u00edsu. \u00dev\u00ed a\u00f0 b\u00e6\u00f0i v\u00e9r og vor r\u00e6\u00f0a er \u00ed hans hendi, \u00fear me\u00f0 \u00f6ll viska og kunn\u00e1tta \u00ed alls kyns verkum. \u00dev\u00ed a\u00f0 hann hefur vissilega gefi\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 \u00feekkja alla hluti so a\u00f0 eg veit hvernin heimurinn er gj\u00f6r\u00f0ur og kraft h\u00f6fu\u00f0skepnanna, upphaf t\u00edmans, enda og mi\u00f0i\u00f0, hvernin a\u00f0 daginn lengir og styttir, hvernin \u00e1rsins t\u00edmar umskipta s\u00e9r og hvernin \u00e1ri\u00f0 veltist um kring, hvernin stj\u00f6rnurnar standa, n\u00e1tt\u00faru villud\u00fdranna og \u00feeirra sem tamin eru, hvernin a\u00f0 ve\u00f0ri\u00f0 bl\u00e1si so fast og hva\u00f0 mennirnir hugsi, \u00fdmislegt e\u00f0li pl\u00e1netanna og kraft r\u00f3tanna.<\/p>\n<p>\tEg veit allt hva\u00f0 leynt og f\u00f3lgi\u00f0 er \u00fev\u00ed a\u00f0 spekin sem er meistari allra lista kenndi m\u00e9r \u00fea\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00ed henni er andi skilningsins, heilagur, alleina, margfaldlegur, hygginn, margvitur, m\u00e1lsnjallur, hreinn, kl\u00e1r, \u00feolinm\u00f3\u00f0ur, vingjarnlegur, alvarlegur, frj\u00e1ls, g\u00f3\u00f0gjarn, manng\u00e6skufullur, st\u00f6\u00f0ugur, sta\u00f0fastur, \u00f3hr\u00e6ddur, s\u00e1 er allt getur gj\u00f6rt, s\u00e9r alla hluti og gengur \u00ed gegnum alla anda, hversu hyggnir, sk\u00e6rir og skarpir \u00feeir eru. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0s andi\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 spekin a\u00f0 h\u00fan er lj\u00f3mi gu\u00f0d\u00f3mlegs kraftar og einn geisli d\u00fdr\u00f0ar Hins alm\u00e1ttuga.<\/p>\n<p>\t\u00dear fyrir kann ekkert \u00f3hreint a\u00f0 koma til hennar \u00fev\u00ed h\u00fan er birti \u00feess eil\u00edfa lj\u00f3ssins og ein sk\u00e6r skuggsj\u00f3 gu\u00f0d\u00f3mlegs kraftar og ein mynd hans g\u00e6sku. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hva\u00f0 spekin er\">[<\/span> H\u00fan er ein og verkar \u00fe\u00f3 alla hluti, h\u00fan er \u00fear h\u00fan er og endurn\u00fdjar \u00fe\u00f3 alla hluti. Og h\u00fan gefur sig \u00e6 og alla t\u00edma \u00ed s\u00e1lir \u00feeirra heil\u00f6gu og gj\u00f6rir a\u00f0 Gu\u00f0s vinum og prophetum. \u00dev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 elskar \u00f6ngvan nema hann bl\u00edfi vi\u00f0 spekina. H\u00fan framgengur veglegar en s\u00f3lin og allar stj\u00f6rnur og hj\u00e1 lj\u00f3sinu a\u00f0 reikna \u00fe\u00e1 gengur h\u00fan langt yfir. \u00dev\u00ed a\u00f0 lj\u00f3si\u00f0 hl\u00fdtur fyrir n\u00f3ttinni a\u00f0 v\u00edkja en rangl\u00e6ti yfirvinnur aldrei spekina. H\u00fan n\u00e1ir volduglega fr\u00e1 einum enda til annars og st\u00fdrir vel \u00f6llum hlutum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VII. Eg er ein dau\u00f0leg manneskja l\u00edka sem a\u00f0rir, f\u00e6ddur af slekti hins fyrsta manns, og eg er mynda\u00f0ur \u00ed kj\u00f6t samanrunni\u00f0 \u00ed bl\u00f3\u00f0 um t\u00edu m\u00e1nu\u00f0i af mannss\u00e6\u00f0i fyrir girnd \u00ed samr\u00e6\u00f0inu. Og eg f\u00e9kk einnin, \u00fe\u00e1 eg var f\u00e6ddur, minn andardr\u00e1tt af almennilegum vindi og eg fell einnin \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina sem oss alla ber og gr\u00e1turinn var mitt fyrsta hlj\u00f3\u00f0 l\u00edka sem allra annarra og eg er \u00ed reifum uppf\u00e6ddur me\u00f0 sorg, \u00fev\u00ed enginn k\u00f3nganna hefur anna\u00f0 f\u00e6\u00f0ingarupphaf heldur hafa \u00feeir allir eins inngang \u00ed \u00feetta l\u00edf og eins \u00fatgang. \u00dear fyrir ba\u00f0 eg og m\u00e9r var\u00f0 viskan <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/speki-salomons-7-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3675","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3675","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3675"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3675\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3675"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}