{"id":3659,"date":"2017-12-18T18:34:20","date_gmt":"2017-12-18T18:34:20","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esterarbok-med-vidaukum-1-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T19:53:38","modified_gmt":"2017-12-18T19:53:38","slug":"esterarbok-med-vidaukum-1-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esterarbok-med-vidaukum-1-kafli\/","title":{"rendered":"Esterarb\u00f3k (me\u00f0 vi\u00f0aukum) 1. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Greinir af b\u00f3kinni Ester<\/p>\n<p>En so er \u00fea\u00f0 br\u00e9f hlj\u00f3\u00f0andi: &#8222;Hinn mikli k\u00f3ngur Artaxerxes fr\u00e1 Indialandi allt til Bl\u00e1lands sendir \u00feeim hundra\u00f0 sj\u00f6 og tuttugu h\u00f6f\u00f0ingjum og \u00feeirra undirm\u00f6nnum s\u00edna kve\u00f0ju. <span class=\"athugasemd\" title=\"Artaxerxes \/ \u00deessa grein m\u00e1 lesa n\u00e6st eftir ii. kap. \u00ed b\u00f3kinni Ester\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00f3 a\u00f0 eg s\u00e9 megtugur konungur og s\u00e1 st\u00e6sti herra \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni \u00fe\u00e1 hefi eg \u00fe\u00f3 ekki vilja\u00f0 upphroka m\u00e9r af minni magt heldur hefi eg kostg\u00e6ft a\u00f0 r\u00edkja n\u00e1\u00f0arsamlega og spektarlega og a\u00f0 halda \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00feann g\u00f3\u00f0a fri\u00f0 af hverjum hver ma\u00f0ur gle\u00f0st so a\u00f0 hver ma\u00f0ur megi lifa r\u00f3lega og g\u00e6ta s\u00edns verkna\u00f0ar. \u00dear um h\u00e9lt eg r\u00e1\u00f0 vi\u00f0 m\u00edna h\u00f6f\u00f0ingja hvernin sl\u00edkt m\u00e6tti ver\u00f0a. \u00de\u00e1 st\u00fdr\u00f0i Aman m\u00e9r, minn s\u00e1 hyggnasti, elskulegasti og tr\u00faasti r\u00e1\u00f0gjafi, sem n\u00e6st k\u00f3nginum er h\u00e6\u00f0stur, a\u00f0 \u00fear v\u00e6ri eitt f\u00f3lk \u00fatdreift um \u00f6ll l\u00f6nd sem hefur s\u00e9rdeilis l\u00f6gm\u00e1l \u00fevert \u00ed m\u00f3ti si\u00f0venjum allra landa og \u00fej\u00f3\u00f0a og fyrirliti jafnan k\u00f3ngsins bo\u00f0 hvar me\u00f0 \u00feeir forhindra fri\u00f0 og sam\u00feykki \u00ed landinu. <span class=\"athugasemd\" title=\"Aman\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 v\u00e9r n\u00fa merktum \u00fea\u00f0 a\u00f0 eitt einstaka f\u00f3lk setti sig \u00ed m\u00f3ti \u00f6llum heiminum og h\u00e9ldi eiginlegar si\u00f0venjur og fyrirliti vorn bo\u00f0skap hvar me\u00f0 \u00feeir gj\u00f6ra st\u00f3ran ska\u00f0a og sturla fri\u00f0 og samheldi \u00ed voru r\u00edki \u00fev\u00ed bj\u00f3\u00f0um v\u00e9r a\u00f0 hverja sem Aman, s\u00e1 yppasti h\u00f6f\u00f0ingi og \u00e6\u00f0stur er n\u00e6st k\u00f3nginum, vor fa\u00f0ir, tilnefnir, \u00feeir skulu me\u00f0 kvinnum og b\u00f6rnum \u00ed hel slegnir ver\u00f0a af sinna \u00f3vina sver\u00f0i \u00e1n allrar miskunnar og v\u00e6g\u00f0ar. Og \u00feetta skal ske \u00feann t\u00f3lfta dag \u00ed m\u00e1nu\u00f0inum adar \u00e1 \u00feessu \u00e1ri so a\u00f0 \u00feeir \u00f3hl\u00fd\u00f0nu ver\u00f0i \u00ed hel slegnir allir \u00e1 einum degi og a\u00f0 \u00fear kunni a\u00f0 ver\u00f0a sta\u00f0fastur fri\u00f0ur \u00ed voru r\u00edki.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"adar\">[<\/span><\/p>\n<p>\tOg Mardocheus ba\u00f0 til Drottins og upptaldi hans d\u00e1semdarverk, segjandi: &#8222;Drottinn Gu\u00f0, \u00fe\u00fa ert s\u00e1 alm\u00e1ttugi konungur, allir hlutir eru \u00ed \u00fe\u00ednu valdi og enginn kann a\u00f0 standa \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00ednum vilja \u00feegar \u00fe\u00fa vilt hj\u00e1lpa \u00cdsrael. \u00de\u00fa hefur skapa\u00f0 himin og j\u00f6r\u00f0 og allt \u00fea\u00f0 sem \u00fear er inni. \u00de\u00fa ert Drottinn allra og enginn kann \u00fe\u00e9r \u00ed m\u00f3ti a\u00f0 standa. \u00de\u00fa veist alla hluti og hefur \u00fea\u00f0 s\u00e9\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 hefur ekki veri\u00f0 af neinni drambsemi n\u00e9 metna\u00f0i \u00fe\u00f3 eg vildi ei tilbi\u00f0ja hinn stolta Aman. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg var rei\u00f0ub\u00fainn \u00cdsrael til g\u00f3\u00f0a vel viljuglega a\u00f0 kyssa \u00e1 hans f\u00e6tur. Heldur hef eg gj\u00f6rt \u00fea\u00f0 af \u00f3tta so a\u00f0 eg ekki gefi \u00fe\u00e1 \u00e6ru nokkrum manni sem m\u00ednum Gu\u00f0i tilheyrir og a\u00f0 eg tilbi\u00f0ji \u00f6ngvan annan en minn Gu\u00f0.<\/p>\n<p>\tOg n\u00fa Drottinn, \u00fe\u00fa k\u00f3ngur og Gu\u00f0 Abrahams, miskunna \u00fe\u00fa \u00fe\u00ednu f\u00f3lki \u00fea\u00f0 vorir \u00f3vinir vilja afm\u00e1 oss og \u00feinn arf uppr\u00e6ta \u00feann \u00fe\u00fa hefur haft fr\u00e1 upphafi. Fyrirl\u00edt \u00fe\u00fa ekki \u00feinn litla h\u00f3p sem \u00fe\u00fa frelstir af Egyptalandi. Heyr m\u00edna b\u00e6n og vert l\u00edknsamur \u00fe\u00ednu f\u00f3lki og sn\u00fa \u00fe\u00fa vorri hrygg\u00f0 \u00ed gle\u00f0i so a\u00f0 v\u00e9r lifum og pr\u00edsum \u00feitt nafn. Afm\u00e1 \u00fe\u00fa ekki munna \u00feeirra sem \u00feig lofa.&#8220; Og allur \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0ur kalla\u00f0i til Drottins af \u00f6llu megni \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir voru \u00ed dau\u00f0ans ney\u00f0. <\/p>\n<p>\tOg drottningin Ester sneri s\u00e9r til Drottins \u00ed \u00feessari dau\u00f0ans h\u00e6ttu og hver lag\u00f0i af s\u00e9r s\u00edn konungleg kl\u00e6\u00f0i og \u00edkl\u00e6ddist hrygg\u00f0arkl\u00e6\u00f0um og \u00ed sta\u00f0inn d\u00fdrm\u00e6ts vats og balsam \u00fe\u00e1 dreif\u00f0i h\u00fan \u00f6sku og dufti yfir sitt h\u00f6fu\u00f0 og \u00fej\u00e1\u00f0i sitt hold me\u00f0 f\u00f6stu. Og alls sta\u00f0ar \u00fear h\u00fan haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur haft gla\u00f0v\u00e6r\u00f0 \u00fe\u00e1 reytti h\u00fan sitt h\u00e1r af s\u00e9r og \u00e1kalla\u00f0i \u00cdsraels Gu\u00f0, segjandi: <\/p>\n<p>\t&#8222;Drottinn, \u00fe\u00fa sem ert alleina vor k\u00f3ngur, hj\u00e1lpa \u00fe\u00fa m\u00e9r aumri. <span class=\"athugasemd\" title=\"B\u00e6n Ester\">[<\/span> Eg hefi \u00f6ngvan annan hj\u00e1lparmann utan \u00feit og ney\u00f0in er n\u00e1l\u00e6g. Eg hefi heyrt af m\u00ednum f\u00f6\u00f0ur, Drottinn, a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir skili\u00f0 \u00cdsrael fr\u00e1 \u00f6llum hei\u00f0ingjum og hafir teki\u00f0 \u00fe\u00e9r vora fe\u00f0ur fr\u00e1 upphafi til eil\u00edfrar eignar og \u00fe\u00fa hefur haldi\u00f0 vi\u00f0 \u00fe\u00e1 hva\u00f0 sem \u00fe\u00fa hefur tala\u00f0. V\u00e9r h\u00f6fum syndgast fyrir \u00fe\u00e9r. \u00dear fyrir hefur \u00fe\u00fa yfirgefi\u00f0 oss \u00ed vorra \u00f3vina hendur. Drottinn, \u00fe\u00fa ert r\u00e9ttl\u00e1tur \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r h\u00f6fum hei\u00f0ra\u00f0 \u00feeirra sk\u00fargo\u00f0.<\/p>\n<p>\tEn n\u00fa l\u00e1ta \u00feeir s\u00e9r ekki \u00fear me\u00f0 n\u00e6gja a\u00f0 \u00feeir halda oss \u00ed so st\u00f3rri \u00fej\u00e1ningu heldur eigna \u00feeir magtinni sinna sk\u00fargo\u00f0a \u00feeirra sigur og vilja gj\u00f6ra \u00feitt fyrirheit a\u00f0 \u00f6ngu og uppr\u00e6ta \u00feinn arf og afturbyrgja munninn \u00e1 \u00feeim sem \u00feig lofa og afm\u00e1 vegsemd \u00fe\u00edns musteris og altaris. Og \u00feeir vilja uppl\u00faka hei\u00f0ingjanna munni til a\u00f0 vegsama magt sk\u00fargo\u00f0anna og a\u00f0 veita einum dau\u00f0legum k\u00f3ngi eil\u00edfa hr\u00f3san. Drottinn, gef \u00feeim ei \u00feinn r\u00edkissprota sem ekkert eru so a\u00f0 \u00feeir h\u00e6\u00f0i ekki a\u00f0 vorri hrygg\u00f0 heldur l\u00e1t \u00feeirra upps\u00e1tur koma yfir \u00fe\u00e1 og merk \u00feann sem \u00feetta uppbyrjar \u00ed m\u00f3ti oss.<\/p>\n<p>\tMinnstu \u00e1 oss, Drottinn, og au\u00f0s\u00fdn \u00feig \u00ed vorri ney\u00f0 og styrk mig, Drottinn, \u00fe\u00fa k\u00f3ngur allra gu\u00f0a og herra. Kenn \u00fe\u00fa m\u00e9r hvernin eg skal tala fyrir le\u00f3ninu og sn\u00fa \u00fe\u00fa hans hjarta so a\u00f0 hann ver\u00f0i gramur vorum \u00f3vin so a\u00f0 hann fyrirfarist sj\u00e1lfur me\u00f0 \u00f6llum \u00feeim sem honum tilheyra. Og frelsa oss fyrri \u00fe\u00edna h\u00f6nd og hj\u00e1lp m\u00e9r, \u00feinni amb\u00e1tt, sem \u00f6ngva a\u00f0ra hj\u00e1lp hefur utan \u00feig, Drottinn, alleina, \u00fe\u00fa sem alla hluti veist og skilur a\u00f0 eg hefi \u00f6ngva gle\u00f0i af \u00feeirri vegsemd sem eg hefi \u00ed hj\u00e1 \u00feeim \u00f3gu\u00f0legu og a\u00f0 eg hef \u00f6ngva lysting \u00e1 \u00feeim hei\u00f0na og framanda hj\u00faskap. \u00de\u00fa veist a\u00f0 eg hl\u00fdt a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 og egi akta eg \u00fe\u00e1 vegsamlegu fegur\u00f0arpr\u00fd\u00f0i sem eg ber \u00e1 m\u00ednu h\u00f6f\u00f0i \u00feegar eg ver\u00f0 a\u00f0 skarta heldur held eg \u00fea\u00f0 so sem eitt saurugt kl\u00e6\u00f0i og ber \u00fea\u00f0 ekki utan \u00feegar eg skal skarta. Eg hefi og enn n\u00fa aldrei samneytt Aman og eigi heldur haft gla\u00f0v\u00e6r\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 konunglega bor\u00f0 og ekki drukki\u00f0 af f\u00f3rnarv\u00edni. Og \u00fe\u00edn amb\u00e1tt hefur aldrei gla\u00f0v\u00e6r veri\u00f0 s\u00ed\u00f0an eg var hinga\u00f0 leidd allt til \u00feessa t\u00edma utan alleina \u00ed \u00fe\u00e9r, Drottinn, \u00fe\u00fa Gu\u00f0 Abrahams. B\u00e6nheyr\u00f0 r\u00f6dd \u00feeirra forl\u00e1tnu, \u00fe\u00fa styrkur Gu\u00f0 yfir \u00f6llum hlutum, og frelsa oss fr\u00e1 hendi \u00feeirra \u00f3gu\u00f0legu og hj\u00e1lp m\u00e9r af minni ney\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00e1 hinum \u00feri\u00f0ja degi lag\u00f0i h\u00fan af s\u00e9r sinn daglega kl\u00e6\u00f0ab\u00fana\u00f0 og skr\u00fdddist s\u00ednum konunglegum skr\u00fa\u00f0a og var mj\u00f6g fr\u00ed\u00f0 og h\u00fan \u00e1kalla\u00f0i Gu\u00f0 \u00feann frelsara sem alla hluti s\u00e9r. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00deessi grein m\u00e1 vera ein gl\u00f3s\u00e9ran upphafsins hins v. kap.\">[<\/span> Og h\u00fan t\u00f3k me\u00f0 s\u00e9r tv\u00e6r jungfr\u00far og studdi sig so h\u00e6gt vi\u00f0 \u00fe\u00e1 eina en hin \u00f6nnur gekk \u00e1 eftir og h\u00e9lt upp faldi hennar kl\u00e6\u00f0a. Hennar andlitsfegur\u00f0 var mj\u00f6g v\u00e6n, bl\u00ed\u00f0leg og gle\u00f0ileg a\u00f0 sj\u00e1 en hennar hjarta var fullt af angist og harmi.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 h\u00fan kom inn yfir allar dyrnar \u00fe\u00e1 gekk h\u00fan og st\u00f3\u00f0 gagnvart k\u00f3nginum \u00fear hann sat \u00ed s\u00ednu konunglega h\u00e1s\u00e6ti \u00ed s\u00ednum konunglegum skr\u00fa\u00f0a sem var af gulli og gimsteinum og var \u00f3gnarlegur \u00e1 a\u00f0 l\u00edta. \u00de\u00e1 hann n\u00fa upplyfti s\u00ednum augum og leit rei\u00f0uglega til hennar \u00fe\u00e1 lei\u00f0 yfir drottningina og h\u00fan f\u00e9ll \u00ed \u00f6ngvit og lag\u00f0i h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 jungfr\u00fana. <\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sneri Gu\u00f0 konungsins hjarta til g\u00f3\u00f0a og hann var\u00f0 hryggur hennar vegna og st\u00f6kk \u00far s\u00ednu s\u00e6ti og t\u00f3k hana s\u00e9r \u00ed fa\u00f0m \u00fear til h\u00fan rakna\u00f0i vi\u00f0 aftur og tala\u00f0i bl\u00ed\u00f0lega til hennar: &#8222;Hva\u00f0 er \u00fe\u00e9r, Ester? Eg em \u00feinn br\u00f3\u00f0ir, \u00f3ttast ekki. \u00de\u00fa skalt ekki deyja. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feetta forbo\u00f0 \u00e1hr\u00e6rir alla a\u00f0ra en \u00feig ekki. Kom hinga\u00f0.&#8220; Og hann upplyfti \u00feeim gulllega sprota og lag\u00f0i hann upp \u00e1 hennar axlir, minntist vi\u00f0 hana og sag\u00f0i: &#8222;Seg\u00f0u fram.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg h\u00fan andsvara\u00f0i: &#8222;\u00de\u00e1 eg leit \u00feig \u00fe\u00e1 \u00fe\u00f3tti m\u00e9r sem s\u00e6i eg engil Gu\u00f0s. \u00dear fyrir skelfdust eg fyrir \u00fe\u00ednu mikla veldi \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa ert mj\u00f6g hr\u00e6\u00f0ilegur og \u00feitt yfirlit mj\u00f6g d\u00fdr\u00f0arlegt.&#8220; Og \u00feegar h\u00fan haf\u00f0i svo tala\u00f0 kom yfir hana \u00f3megin \u00ed anna\u00f0 sinn og f\u00e9ll ni\u00f0ur. \u00de\u00e1 var\u00f0 k\u00f3ngurinn skelfdur og hans \u00fe\u00e9narar og huggu\u00f0u hana.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00fev\u00ed fj\u00f3r\u00f0a \u00e1ri Ptolomei k\u00f3ngs og Cleupatre h\u00f6f\u00f0u \u00feeir Dositeus (hver e\u00f0 h\u00e9lt sig vera kennimann af Lev\u00ed \u00e6tt) og hans sonur Ptolomeus \u00feetta p\u00far\u00edmsbr\u00e9f og s\u00f6g\u00f0u a\u00f0 Lysimachus \u00feess sama Ptolomei sonur hef\u00f0i \u00fatlagt \u00fea\u00f0 \u00ed Jer\u00fasalem. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00deetta m\u00e1 lesa eftir \u00feann viii. kap. fyrir hinn ix.\">[<\/span><\/p>\n<p>\t&#8222;Artaxerxes hinn mikli konungur fr\u00e1 Indialandi allt til Bl\u00e1lands sendir hundra\u00f0 sj\u00f6 og tuttugu h\u00f6f\u00f0ingjum og \u00feeirra undirm\u00f6nnum s\u00edna kve\u00f0ju.<\/p>\n<p>\tV\u00e9r formerktum a\u00f0 \u00feeir eru margir sem misbreyta h\u00f6f\u00f0ingjanna n\u00e1\u00f0 og ver\u00f0a metna\u00f0arsamir og vondir af \u00feeim hei\u00f0ri sem \u00feeim veitist so a\u00f0 \u00feeir eigi a\u00f0eins yfirfalla \u00fe\u00e1 undirgefnu heldur hugsa \u00feeir a\u00f0 tro\u00f0a herrann sj\u00e1lfan undir f\u00e6tur \u00feeim af hverjum \u00feeir eru upphaf\u00f0ir og gj\u00f6ra ei a\u00f0eins \u00ed m\u00f3ti n\u00e1tt\u00farlegum r\u00e9ttindum me\u00f0 \u00fev\u00ed \u00f3\u00feakkl\u00e6ti heldur eru \u00feeir so blinda\u00f0ir af drambseminni a\u00f0 \u00feeir hugsa einnin a\u00f0 Gu\u00f0 (hver e\u00f0 \u00e1l\u00edtur \u00fe\u00e1 g\u00f3\u00f0u) straffi ekki sl\u00edka \u00f3tr\u00fa. \u00deeir sv\u00edkja og einnin g\u00f3\u00f0a h\u00f6f\u00f0ingja og koma \u00feeim til a\u00f0 \u00fathella saklausu bl\u00f3\u00f0i og \u00feeir sem \u00fej\u00f3na \u00feeim tr\u00falega og \u00e6rlega \u00fe\u00e1 f\u00e6ra \u00feeir \u00ed alls kyns \u00f3lukku. \u00dev\u00edl\u00edk d\u00e6mi finna menn ekki alleina \u00ed g\u00f6mlum s\u00f6gum heldur reyna menn \u00fea\u00f0 daglega hva\u00f0 mikillri \u00f3g\u00e6fu sl\u00edkir r\u00e1\u00f0gjafar af sta\u00f0 koma.<\/p>\n<p>\tAf \u00fev\u00ed a\u00f0 oss ber a\u00f0 sj\u00e1 so til a\u00f0 \u00fear megi framvegis haldast fri\u00f0ur \u00ed r\u00edkinu \u00fe\u00e1 ney\u00f0unst v\u00e9r stundum eftir m\u00e1lav\u00f6xtum a\u00f0 umbreyta vorum skipunum \u00fe\u00e1 v\u00e9r formerkjum a\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00f6\u00f0ruv\u00eds en sem oss er undirv\u00edsa\u00f0 og rasa ei fyrir r\u00e1\u00f0 fram ofmj\u00f6g. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ester\">[<\/span><\/p>\n<p>\tN\u00fa af \u00fev\u00ed a\u00f0 Aman Hamadathison af Macedonia en ekki af Persabl\u00f3\u00f0i og eigi vorrar g\u00e6sku tegundar heldur einn gestur hj\u00e1 oss, hverjum v\u00e9r (so sem v\u00e9r pl\u00f6gum a\u00f0 gj\u00f6ra \u00f6llum \u00fej\u00f3\u00f0um) s\u00fdndum alla n\u00e1\u00f0 og upph\u00f3fum hann so a\u00f0 v\u00e9r nefndum hann vorn f\u00f6\u00f0ur svo a\u00f0 hann var\u00f0 af hverjum manni hei\u00f0ra\u00f0ur n\u00e6st k\u00f3nginum, \u00fe\u00e1 var\u00f0 hann so drambsamur a\u00f0 hann hug\u00f0i s\u00e9r a\u00f0 skilja oss b\u00e6\u00f0i vi\u00f0 vort k\u00f3ngar\u00edki og l\u00edf. <span class=\"athugasemd\" title=\"Aman\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 hann hefur Mardocheum (sem fyrir s\u00edna tr\u00fa og velgj\u00f6r\u00f0 frelsa\u00f0i vort l\u00edf) og vora saklausa h\u00fasfr\u00fa, drottning Ester, \u00e1samt me\u00f0 \u00f6llu hennar f\u00f3lki falsklega og hrekkv\u00edslega r\u00e6gt so a\u00f0 \u00feeir yr\u00f0i allir l\u00edfi sviptir. Og \u00feegar \u00feeir hef\u00f0i n\u00fa allir \u00ed burt veri\u00f0 sem oss var\u00f0veita \u00fe\u00e1 \u00e6tla\u00f0i hann s\u00e9r a\u00f0 l\u00edfl\u00e1ta oss einnin og koma Persar\u00edki undir \u00fe\u00e1 Macedonios.<\/p>\n<p>\tEn v\u00e9r formerktum a\u00f0 Gy\u00f0ingar, hverja s\u00e1 \u00fatfl\u00e6mdi sk\u00e1lkur vildi drepa l\u00e1ta, eru saklausir, hafa gott l\u00f6gm\u00e1l og eru synir hins h\u00e6sta, st\u00e6sta og eil\u00edfa Gu\u00f0s, hver e\u00f0 vorum forfe\u00f0rum og oss hefur gefi\u00f0 \u00feetta r\u00edki og enn \u00fev\u00ed vi\u00f0 magt heldur. \u00dear fyrir skulu \u00fe\u00e9r ekki halda y\u00f0ur eftir \u00feeim br\u00e9fum sem Aman l\u00e9t \u00fatganga \u00fev\u00ed a\u00f0 fyrir sl\u00edks gj\u00f6rnings sakir er hann me\u00f0 \u00f6llum s\u00ednum \u00e6ttm\u00f6nnum \u00e1 g\u00e1lga hengdur fyrir S\u00fasansporti og so hefur Gu\u00f0 endurgoldi\u00f0 honum so sem hann hefur for\u00fe\u00e9na\u00f0.<\/p>\n<p>\tEn \u00feessa skipun sem n\u00fa sendum v\u00e9r til y\u00f0ar skulu \u00fe\u00e9r l\u00e1ta kunngj\u00f6ra \u00ed \u00f6llum borgum a\u00f0 Gy\u00f0ingar megi me\u00f0 frelsi halda s\u00ednu l\u00f6gm\u00e1li. Og ef nokkur vill veita \u00feeim ofr\u00edki \u00e1 \u00feeim \u00ferett\u00e1nda degi hins t\u00f3lfta m\u00e1na\u00f0ar sem kallast adar \u00fe\u00e1 skulu \u00fe\u00e9r vernda \u00fe\u00e1 svo a\u00f0 \u00feeir megi hefnast \u00e1 hinum \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feann sama dag hefur Gu\u00f0 alm\u00e1ttugur gj\u00f6rt \u00feeim a\u00f0 f\u00f6gnu\u00f0i \u00e1 hverjum \u00fea\u00f0 \u00fatvalda f\u00f3lk \u00e1tti l\u00edfl\u00e1ti\u00f0 a\u00f0 ver\u00f0a. <span class=\"athugasemd\" title=\"Adar\">[<\/span><\/p>\n<p>\t\u00dear fyrir skulu \u00fe\u00e9r og so halda \u00feennan dag helgan me\u00f0 \u00f6\u00f0rum h\u00e1t\u00ed\u00f0um me\u00f0 \u00f6llum f\u00f6gnu\u00f0i so a\u00f0 oss vel gangi og \u00f6llum \u00feeim sem hollir eru Persum. Og \u00fea\u00f0 skal vera eftird\u00e6mi hversu a\u00f0 \u00f3tr\u00faleiki ver\u00f0ur straffa\u00f0ur. En hvert \u00fea\u00f0 land e\u00f0ur borg sem ekki heldur \u00feetta bo\u00f0 \u00fea\u00f0 skal me\u00f0 sver\u00f0i og eldi afm\u00e1\u00f0 ver\u00f0a so a\u00f0 \u00fea\u00f0an \u00ed fr\u00e1 skulu \u00fear hverki menn n\u00e9 d\u00fdr n\u00e9 fuglar inni b\u00faa.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00f6\u00f0ru \u00e1ri hins mikla k\u00f3ngs Artaxerxes, \u00e1 hinum fyrsta degi m\u00e1na\u00f0arins n\u00edsan, haf\u00f0i Mardocheus einn draum, sem var einn Gy\u00f0ingur, sonur Ja\u00edr\u00ed, sonar Semei, sonar K\u00eds, af \u00e6tt Benjam\u00edn og bj\u00f3 \u00ed borginni S\u00fasan, einn hei\u00f0arlegur ma\u00f0ur og vel haldinn \u00ed k\u00f3ngsins gar\u00f0i. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00deetta m\u00e1 lesast fyrst e\u00f0ur seinast \u00fea\u00f0 draumurinn var fyrir gj\u00f6rninginn en \u00fat\u00fe\u00fd\u00f0ingin eftir\">[<\/span> En hann var einn af \u00feeim herteknu sem Nabogodonosor Bab\u00fdlonsk\u00f3ngur haf\u00f0i flutt fr\u00e1 Jer\u00fasalem me\u00f0 Jekonja k\u00f3ngi J\u00fada. Og \u00feetta var hans draumur: <\/p>\n<p>\t\u00dear gj\u00f6r\u00f0ist miki\u00f0 h\u00e1reysti og hark, rei\u00f0ar\u00ferumur og jar\u00f0skj\u00e1lfti og ein \u00f3gnarhr\u00e6\u00f0sla \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni. <span class=\"athugasemd\" title=\"Draumur Mardochei\">[<\/span> Og sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fear voru tveir drekar. \u00deeir r\u00e9\u00f0ust til bardaga hver \u00ed m\u00f3ti \u00f6\u00f0rum. Og \u00fea\u00f0 h\u00e1reysti var so miki\u00f0 a\u00f0 \u00f6ll l\u00f6nd t\u00f3ku sig upp a\u00f0 berjast \u00ed m\u00f3ti einu heil\u00f6gu f\u00f3lki. Og \u00fea\u00f0 var einn dagur mikils myrkurs, harmkv\u00e6lis og angistar og mikil h\u00f6rmung og hr\u00e6\u00f0sla var \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni. Og \u00fea\u00f0 heilaga f\u00f3lk var \u00ed mikillri hrygg\u00f0 og hr\u00e6ddist s\u00edna \u00f3g\u00e6fu og \u00f3tta\u00f0ist fyrir s\u00ednum dau\u00f0a og \u00fea\u00f0 \u00e1kalla\u00f0i Gu\u00f0. Og eftir sl\u00edkt kall spratt upp einn mikill vatsstraumur \u00far einum litlum brunni og s\u00f3lin gekk upp og skein fagurt og \u00feeir ves\u00f6lu fengu sigur og dr\u00e1pu \u00fe\u00e1 inu drambs\u00f6mu.<\/p>\n<p>\tN\u00fa \u00feegar Mardocheus vakna\u00f0i eftir sinn draum \u00fe\u00e1 hugsa\u00f0i hann hva\u00f0 Gu\u00f0 mundi meina h\u00e9r me\u00f0. Og hann var\u00f0veitti drauminn \u00ed hjarta s\u00ednu og hugsa\u00f0i eftir honum allt til n\u00e6tur og vildi gjarnan hafa fengi\u00f0 a\u00f0 vita hans \u00fat\u00fe\u00fd\u00f0ing. Og Mardocheus sag\u00f0i: &#8222;Gu\u00f0 hefur tilskikka\u00f0 \u00fea\u00f0 allt saman. Eg hugsa um minn draum og \u00fea\u00f0 hefur so tilgengi\u00f0 sem mig dreymdi.<\/p>\n<p>\tS\u00e1 litli brunnur sem var\u00f0 eitt miki\u00f0 vatsfall \u00fe\u00e1 s\u00f3lin skein og var kl\u00e1r, \u00fea\u00f0 er Ester hverja k\u00f3ngurinn t\u00f3k s\u00e9r til eiginkvinnu og gj\u00f6r\u00f0i hana a\u00f0 drottningu. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00dat\u00fe\u00fd\u00f0ing draumsins\">[<\/span> \u00deeir tveir drekar, \u00fea\u00f0 em eg og Aman. Annar \u00feeirra merkir hei\u00f0ingja sem til samans komu og vildi afm\u00e1 Gy\u00f0inga nafn. Anna\u00f0 merkir mitt f\u00f3lk \u00cdsrael hvert e\u00f0 til Drottins kalla\u00f0i og Drottinn hj\u00e1lpa\u00f0i s\u00ednu f\u00f3lki og frelsa\u00f0i oss fr\u00e1 \u00feessari \u00f3g\u00e6fu. Hann gj\u00f6rir mikil t\u00e1kn og st\u00f3rmerki \u00e1 me\u00f0al hei\u00f0ingja \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hefur \u00e6t\u00ed\u00f0 gj\u00f6rt mismun \u00e1 millum s\u00edns f\u00f3lks og hei\u00f0ingja. Og \u00feegar s\u00fa stund kom \u00fe\u00e1 hei\u00f0ingjarnir voru sem stoltastir en v\u00e9r sem veikastir og Gu\u00f0 skyldi d\u00e6ma \u00fe\u00e1 minntist hann \u00e1 sitt f\u00f3lk og gaf s\u00ednum arfi sigurvinningina.<\/p>\n<p>\tOg \u00feennan dag skulu menn halda \u00ed m\u00e1na\u00f0inum adar, \u00feann fj\u00f3rt\u00e1nda og fimmt\u00e1nda dag \u00feess m\u00e1na\u00f0ar, me\u00f0 allri gle\u00f0i og me\u00f0 allri g\u00e6tni, \u00feegar f\u00f3lki\u00f0 kemur til samans. <span class=\"athugasemd\" title=\"Adar\">[<\/span> Og \u00fea\u00f0 skal so haldast \u00e6vinlega \u00e1 me\u00f0al \u00cdsraelsf\u00f3lks.&#8220;<\/p>\n<p>H\u00e9r endast \u00fe\u00e6r greinir af Ester.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Greinir af b\u00f3kinni Ester En so er \u00fea\u00f0 br\u00e9f hlj\u00f3\u00f0andi: &#8222;Hinn mikli k\u00f3ngur Artaxerxes fr\u00e1 Indialandi allt til Bl\u00e1lands sendir \u00feeim hundra\u00f0 sj\u00f6 og tuttugu h\u00f6f\u00f0ingjum og \u00feeirra undirm\u00f6nnum s\u00edna kve\u00f0ju. [ En \u00fe\u00f3 a\u00f0 eg s\u00e9 megtugur konungur og s\u00e1 st\u00e6sti herra \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni \u00fe\u00e1 hefi eg \u00fe\u00f3 ekki vilja\u00f0 upphroka m\u00e9r af minni magt heldur hefi eg kostg\u00e6ft a\u00f0 r\u00edkja n\u00e1\u00f0arsamlega og spektarlega og a\u00f0 halda \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00feann g\u00f3\u00f0a fri\u00f0 af hverjum hver ma\u00f0ur gle\u00f0st so a\u00f0 hver ma\u00f0ur megi lifa r\u00f3lega og g\u00e6ta s\u00edns verkna\u00f0ar. \u00dear um h\u00e9lt eg r\u00e1\u00f0 vi\u00f0 m\u00edna h\u00f6f\u00f0ingja hvernin sl\u00edkt m\u00e6tti ver\u00f0a. <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/esterarbok-med-vidaukum-1-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3659","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3659","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3659"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3659\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3659"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}