{"id":3631,"date":"2017-12-18T18:34:13","date_gmt":"2017-12-18T18:34:13","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/tobitsbok-3-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:34:13","modified_gmt":"2017-12-18T18:34:13","slug":"tobitsbok-3-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/tobitsbok-3-kafli\/","title":{"rendered":"T\u00f3b\u00edtsb\u00f3k 3. kafli"},"content":{"rendered":"<p>III.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 andvarpa\u00f0i T\u00f3b\u00edas og t\u00f3k til a\u00f0 gr\u00e1ta og bi\u00f0jast fyrir, so segjandi: <span class=\"athugasemd\" title=\"B\u00e6n T\u00f3b\u00edas\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t&#8222;R\u00e9ttl\u00e1tur ertu, Drottinn minn, og allar gj\u00f6r\u00f0ir \u00fe\u00ednar eru r\u00e9ttar og einsaman g\u00f3\u00f0girni og tr\u00fana\u00f0ur. Og n\u00fa, Drottinn minn, vert m\u00e9r miskunnsamur og tak eigi hefnd \u00e1 syndum m\u00ednum. Endurminnstu eigi minna e\u00f0ur fe\u00f0ra vorra misgj\u00f6r\u00f0a. \u00dev\u00ed a\u00f0 fyrst a\u00f0 v\u00e9r h\u00f6fum \u00fe\u00edn bo\u00f0or\u00f0 ei haldi\u00f0 so erum v\u00e9r og seldir \u00ed vald \u00f3vinum vorum a\u00f0 \u00feeir r\u00e6ni oss, herteknum haldi og drepi og erum v\u00e9r til skammar, spottanar og h\u00e1\u00f0ungar or\u00f0nir af \u00fev\u00ed framandi f\u00f3lki \u00feanga\u00f0 sem \u00fe\u00fa hefur dreift oss. Og n\u00fa, Drottinn, \u00f3gurlegir eru \u00fe\u00ednir d\u00f3mar af \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r h\u00f6fum ekki geymt \u00fe\u00edn bo\u00f0or\u00f0 og ekki r\u00e9ttilega framgengi\u00f0 \u00ed \u00fe\u00ednu augliti. \u00d3 Drottinn, s\u00fdn m\u00e9r miskunn og taktu \u00ed burtu \u00ed fri\u00f0i minn anda \u00fev\u00ed n\u00fa k\u00fds eg heldur a\u00f0 deyja en a\u00f0 lifa.&#8220;<\/p>\n<p>\tSo bar til \u00feann sama dag a\u00f0 Sara, d\u00f3ttir Rag\u00fael, \u00ed borginni Medorum Rages, var\u00f0 og so af einni amb\u00e1tt f\u00f6\u00f0urs hennar illa skammyrt og l\u00f6stu\u00f0, hver e\u00f0 gift haf\u00f0i veri\u00f0 sj\u00f6 m\u00f6nnum hverjum eftir annan og einn illur andi, Asm\u00f3d\u00edus a\u00f0 nafni, haf\u00f0i drepi\u00f0 \u00fe\u00e1 alla jafnsnart sem \u00feeir skyldu hj\u00e1 henni hv\u00edla. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sara Rag\u00faelsd\u00f3ttir\">[<\/span> \u00dear fyrir hr\u00f3pa\u00f0i hana hennar f\u00f6\u00f0urs amb\u00e1tt og sag\u00f0i: &#8222;Gu\u00f0 gefi a\u00f0 aldreigi sj\u00e1um v\u00e9r af \u00fe\u00e9r \u00e1 jar\u00f0r\u00edki hverki son n\u00e9 d\u00f3ttur, \u00fe\u00fa mannamor\u00f0ingjan \u00fe\u00edn! Viltu og drepa mig einnin l\u00edka sem \u00fe\u00fa hefur drepi\u00f0 sj\u00f6 b\u00e6ndur \u00fe\u00edna?&#8220;<\/p>\n<p>\tVi\u00f0 \u00feessi or\u00f0 gekk h\u00fan \u00ed eitt loft upp \u00ed h\u00fasinu og \u00e1t hverki n\u00e9 drakk \u00ed \u00ferj\u00e1 daga og \u00ferj\u00e1r n\u00e6tur og l\u00e9tti ekki af b\u00e6n og t\u00e1rum, ba\u00f0 Gu\u00f0 a\u00f0 hann frelsa\u00f0i hana af \u00fev\u00ed br\u00edgsli.<\/p>\n<p>\t\u00c1 hinum \u00feri\u00f0ja degi \u00fear eftir, \u00fe\u00e1 h\u00fan haf\u00f0i loki\u00f0 b\u00e6n sinni, lofa\u00f0i h\u00fan Gu\u00f0 og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"B\u00e6n Sare\">[<\/span> &#8222;Blessa\u00f0 s\u00e9 nafn \u00feitt, Drottinn, sem ert Gu\u00f0 fe\u00f0ra vorra, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feegar \u00fe\u00fa rei\u00f0ist \u00fe\u00e1 tj\u00e1ir \u00fe\u00fa n\u00e1\u00f0 og g\u00f3\u00f0girnd og \u00ed hrygg\u00f0inni fyrirgefur \u00fe\u00fa syndirnar \u00feeim er \u00feig \u00e1kalla. Til \u00fe\u00edn, Drottinn minn, sn\u00fd eg minni \u00e1sj\u00f3nu, til \u00fe\u00edn upplyfti eg m\u00ednum augum, bi\u00f0jandi \u00feig a\u00f0 \u00fe\u00fa frelsir mig af \u00feessu vondu br\u00edgsli ella takir \u00fe\u00fa mig \u00ed burtu h\u00e9\u00f0an. \u00de\u00fa veist, Drottinn, a\u00f0 eg hefi ekki nokkurn mann girnst. Og hefi eg var\u00f0veitt aund m\u00edna flekklausa af \u00f6llum vondum losta og hefi ekki nokkurn t\u00edma samlaga\u00f0 mig \u00f3h\u00e6verskum og lausl\u00e1tum selskap. Einum manni a\u00f0 giftast hefi eg sam\u00feykk or\u00f0i\u00f0 \u00ed \u00fe\u00ednum \u00f3tta en ekki fyrir m\u00edna lostasemi. Og hefi eg anna\u00f0 hvert veri\u00f0 \u00feeirra e\u00f0ur \u00feeir m\u00edn \u00f3ver\u00f0ugir og m\u00e1 vel ske a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir mig var\u00f0veitt \u00f6\u00f0rum manni til handa. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feitt r\u00e1\u00f0 stendur ekki \u00ed nokkurs manns valdi.<\/p>\n<p>\tEn \u00fea\u00f0 veit eg sannarlega, \u00feeim sem Gu\u00f0i \u00fej\u00f3nar mun eftir freistingina veitast huggun og mun hann af hrygg\u00f0inni frelsa\u00f0ur ver\u00f0a og eftir hirtingina finnur hann miskunn. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur \u00f6ngva \u00fe\u00f3knan \u00e1 vorri gl\u00f6tun. Og eftir \u00f3ve\u00f0r\u00e1ttuna l\u00e6tur \u00fe\u00fa s\u00f3lina sk\u00edna og eftir gr\u00e1t og kveinan blessar \u00fe\u00fa oss me\u00f0 f\u00f6gnu\u00f0i r\u00edkuglega. \u00de\u00ednu nafni s\u00e9 eil\u00edft lof og d\u00fdr\u00f0, \u00fe\u00fa Gu\u00f0 \u00cdsrael.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00e1 \u00feeirri s\u00f6mu stundu ur\u00f0u beggja \u00feeirra b\u00e6nir heyr\u00f0ar af Drottni \u00e1 himnum. Og engill Drottins, hinn heilagi Rafael, var sendur \u00fat til hj\u00e1lpar b\u00e1\u00f0um \u00feeim af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeirra b\u00e6nir komu fyrir Drottin \u00e1 einni og s\u00f6mu stundu. <span class=\"athugasemd\" title=\"Rafael\">[<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>III. \u00de\u00e1 andvarpa\u00f0i T\u00f3b\u00edas og t\u00f3k til a\u00f0 gr\u00e1ta og bi\u00f0jast fyrir, so segjandi: [ &#8222;R\u00e9ttl\u00e1tur ertu, Drottinn minn, og allar gj\u00f6r\u00f0ir \u00fe\u00ednar eru r\u00e9ttar og einsaman g\u00f3\u00f0girni og tr\u00fana\u00f0ur. Og n\u00fa, Drottinn minn, vert m\u00e9r miskunnsamur og tak eigi hefnd \u00e1 syndum m\u00ednum. Endurminnstu eigi minna e\u00f0ur fe\u00f0ra vorra misgj\u00f6r\u00f0a. \u00dev\u00ed a\u00f0 fyrst a\u00f0 v\u00e9r h\u00f6fum \u00fe\u00edn bo\u00f0or\u00f0 ei haldi\u00f0 so erum v\u00e9r og seldir \u00ed vald \u00f3vinum vorum a\u00f0 \u00feeir r\u00e6ni oss, herteknum haldi og drepi og erum v\u00e9r til skammar, spottanar og h\u00e1\u00f0ungar or\u00f0nir af \u00fev\u00ed framandi f\u00f3lki \u00feanga\u00f0 sem \u00fe\u00fa hefur dreift oss. Og n\u00fa, Drottinn, <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/tobitsbok-3-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3631","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3631","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3631"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3631\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3631"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}